Morgunblaðið - 25.05.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 25.05.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 Mörg dæmi eru um að hagsmuna Reykja- víkur sé ekki gætt nægilega vel á Alþingi. Afleiðingin er sú að mörg lagafrumvörp verða að lögum þar sem margvíslegum sköttum og skyldum er velt yfir á Reykvíkinga. Sumar þessar kvaðir eru beinar, aðrar óbeinar. Mörg dæmi eru um álögur og nið- urgreiðslur, sem Reykvíkingar standa straum af í mun ríkari mæli en aðrir landsmenn. Ég óska eftir stuðningi í 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna alþingiskosninga, sem fram fer 4.-5. júní. Ég tel brýnt að hags- munum Reykvíkinga sé vel sinnt á Alþingi og tel að þekking mín og löng reynsla af borg- armálum sem borg- arfulltrúi muni þar koma að góðum not- um. Álagning fast- eignaskatta Nefna má álagn- ingu fasteignaskatta sem dæmi um ósann- gjarna skattlagningu, enda koma þeir nú miklu harðar niður á fasteignaeig- endum í Reykjavík en flestum öðr- um landsmönnum. Skattstofninn er áætlað söluverðmæti viðkom- andi eignar. Slíkt fyrirkomulag hefur í för með sér ófyrirsjáan- legar sveiflur skattstofnsins og skatttekna, sem hvorki eru í sam- ræmi við greiðslugetu skattgreið- enda né þjónustu viðkomandi sveitarfélags. Gífurlegar verðhækk- anir á fasteignum í Reykjavík hafa þannig sjálfkrafa leitt til mikilla verðhækkana á eigendur fasteigna í Reykjavík án þess að þeir fái rönd við reist. Margir Reykvíkingar sem búa í eigin húsnæði geta ekki aukið tekjur sínar og koma slíkar skatta- hækkanir skiljanlega afar illa niður á þeim. Fasteignaskatti var í upphafi ekki ætlað að vera eignarskattur. Brýnt er að Alþingi endurskoði álagningu fasteignaskattsins til lækkunar, svo ekki sé hróplegt ósamræmi á álagningu hans eftir sveitarfélögum. Sundabraut sem fyrst Áratugum saman hafa fjár- framlög til vegamála verið mun lægri en þörf hefur verið á. Síðustu ár hefur ein helsta ástæðan verið sú að vinstri meirihlutinn í Reykjavík hefur tafið eða hafnað löngu tíma- bærum samgönguframkvæmdum, sem ríkið er þó reiðubúið til að fjár- magna. Mikilvægt er að ríkið knýi Reykjavíkurborg til að standa við samninga um að gera framkvæmdir mögulegar, sem ljóst er að munu auka umferðaröryggi, draga úr mengun og greiða fyrir umferð. Dæmi um þetta eru Sundabraut og mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Skelfileg skuldastaða Skuldir Reykjavíkurborgar nálg- ast nú 400 milljarða króna og eru komnar yfir hættumörk. Ekki verð- ur hjá því komist að Alþingi fjalli um skuldastöðu Reykjavíkur vegna mikilvægis hennar, bæði sem höf- uðborgar og þess sveitarfélags þar sem ríflega þriðjungur landsmanna býr. Eyðendur og greiðendur Mörg mál koma til kasta Alþing- is, mörg eru samþykkt en öðrum synjað. Aukin ríkisútgjöld á ákveðnu sviði kunna að vera „gott mál“ fyrir suma en slæm fyrir marga aðra, þ.e. skattgreiðendur sem þurfa að borga brúsann. Brýnt er að auka ráðdeild í ríkisrekstri og eftirlit með fjárveitingum þingsins. Í hvert sinn, sem frumvarp um op- inberar álögur kemur til kasta Al- þingis, þarf að greina hvort og þá með hvaða hætti slíkar álögur leggjast á landsmenn eftir búsetu. Eyðendur hafa of marga fulltrúa á Alþingi. Brýnt er að fjölga fulltrú- um greiðenda þar. Eftir Kjartan Magnússon »Eyðendur hafa of marga fulltrúa á Al- þingi. Brýnt er að fjölga fulltrúum greið- enda þar. Kjartan Magnússon Höfundur býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og óskar eftir 3.-4. sæti. kjartanmagg@gmail.com Tryggjum hagsmuni Reykvíkinga á Alþingi Þegar ég tók við embætti dóms- málaráðherra í byrjun árs 2017 blasti við mér að áhlaup hafði verið gert á landið með til- hæfulausum umsóknum um alþjóðlega vernd. Stór hluti umsækjenda (um 70% árið 2016) kom frá tveimur Evr- ópuríkjum, Albaníu og Makedóníu. Þar var ekkert slíkt neyðarástand að rétt- lætti flótta þaðan til Íslands í stórum stíl. Þessar tilhæfulausu umsóknir yf- irfylltu það kerfi sem Ísland hefur sett upp til verndar fólki sem er á raunverulegum flótta undan vopn- uðum átökum, ofsóknum og öðrum hörmungum í sínu heimalandi. Hér var því ekki aðeins vegið að hags- munum íslenskra skattgreiðenda, sem greiða allan kostnað við þetta kerfi, heldur einnig að getu Íslands til að sinna fólki í raunverulegri neyð. Ríkisfangi fylgja skyldur Ef til vill höfum við sjálf átt ein- hvern þátt í þessari óheillaþróun með út- deilingu Alþingis á ís- lenskum ríkisborg- ararétti til manna sem uppfylltu ekki al- menn skilyrði fyrir þeim rétti. Um bein tengsl þarna á milli er auðvitað erfitt að full- yrða en það er ekki gott ef það spyrst út að íslensk vegabréf standi til boða með handahófskenndum hætti. Í Albaníu voru fluttar fréttir af veitingu íslensks ríkisborgarréttar til Albana í lok ársins 2015. Það er ekki óvarlegt að ætla að sá stríði straumur Albana hingað til lands í kjölfarið eigi sér skýringar í þeim fréttum. Rétt er að hafa í huga að íslenskur ríkisborg- araréttur veitir ekki aðeins rétt hér innanlands heldur greiðir íslenskt vegabréf og orðspor Íslands götu manna víða um heim og leggur um leið skyldur á íslenska ríkið að gæta hagsmuna viðkomandi hvar sem er í veröldinni. Andstaðan við lagfæringar Nokkrar aðgerðir þurfti til að sporna gegn þessum tilhæfulausu umsóknum um vernd. Öllum þeim laga- og reglugerðabreytingum sem ég beitti mér fyrir í því skyni var mætt með gauragangi og stór- yrðum í fjöl- og samfélagsmiðlum. Þessi upphlaup í miðlunum virðast ein besta gæðavottunin sem stjórn- málamaður getur fengið á störf sín. Aðgerðirnar höfðu það í för með sér að á næstu þremur árum fækk- aði umsóknum frá þessum tveimur löndum yfir 90%. Sömu sögu má segja af umsóknum frá Georgíu í kjölfar þess Georgíumenn fengu áritunarfrelsi inn í Evrópusam- bandið árið 2017. Þeim fækkaði einnig um 90% frá 2017 til 2019. Að þessu leyti tókst að stöðva misnotk- un á velvild Íslendinga gagnvart fólki á flótta. Nýjar áskoranir bætast hins veg- ar jafnt og þétt við í þessum efnum. Hverri tilraun til að bregðast við ástandinu er mætt með uppnámi innan þings sem utan. Í þingkosningum í haust verður meðal annars tekist á um hvort ábyrgð og festa eða upphlaup og handahóf hafi meira vægi þegar kemur að þeirri alþjóðlegu vernd sem hér er í boði. Eftir Sigríði Ásthildi Andersen » Öllum þeim laga- og reglugerðabreyt- ingum sem ég beitti mér fyrir í því skyni var mætt með gauragangi og stóryrðum í fjöl- og samfélagsmiðlum. Sigríður Ásthildur Andersen Höfundur er þingmaður og sækist eftir 2. sætinu í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík. Tekið á tilhæfulausum umsóknum Árið 2013 voru gerðir samningar um gjaldfrjálsar tannlækningar barna. Þrátt fyrir að það teljist sjálf- sagt mál í dag að hið opinbera styðji barnafjölskyldur fjárhagslega til að hlúa að tannheilsu komandi kyn- slóðar, ríkti samningsleysi í tæpa tvo áratugi. Það kostaði auknar álögur á barnafjölskyldur og verri heimtur til tannlæknis, jafnvel ómeðhöndlaðar tannpínur og ýmiss konar vandamál. Við getum verið sammála um að ástandið sé allt annað í dag. En hvað gerist ef rétta þarf tennur barna og unglinga? Hvernig standa mál varðandi þátttöku hins opinbera ef tann- réttingar eru nauðsynlegar? Til ársins 1992 var samningur á milli tannréttingasérfræðinga og Tryggingastofnunar ríkisins um endurgreiðslu á tannrétt- ingum. Samningurinn náði til flestra tryggðra sjúklinga með bit- og tannskekkjur og var verulegur hluti af kostnaði við tannréttinguna end- urgreiddur. En í ársbyrjun 1992 voru sett lög sem bundu enda á allar endur- greiðslur vegna venjulegra tannrétt- inga. Það þýddi að þeir sjúklingar sem þurftu á tannrétt- ingum að halda, fengu um tíma ekk- ert endurgreitt. Eftir nokkurt þóf var styrk komið á, sem í fyrstu var 100 þúsund, en var hækkaður í 150 þúsund 1. maí 2002. Hefði sá styrkur verið vísitölutengdur og fylgt eðlilegu verðlagi, væri hann um 335 þúsund krónur í dag (skv. vísitölu neysluverðs – Hagstofa Íslands). Styrkurinn er greiddur ef tannréttingameðferð með föst- um tækjum hefst fyrir 21 árs ald- ur. Tannréttingameðferð tekur að meðaltali tvö til þrjú ár. Kostn- aður er mismunandi eftir umfangi meðferðarinnar, en algengur kostnaður er 800-1.200 þúsund krónur. Tann- og bitskekkjur er- fast mjög gjarnan innan fjöl- skyldna. Það er því töluverður kostnaður sem leggst á fjöl- skyldur þegar börn þurfa á tann- réttingum að halda, sérstaklega ef um fleiri en einn einstakling er að ræða. Styrkurinn í dag er að mestu óháður alvarleika bit- og tannskekkjunnar og er í mjög stórum hluta tilfella einungis 150 þúsund krónur. Þegar um alvar- legri tilfelli er að ræða, t.d. hjá sjúklingum með klofinn góm og/ eða skarð í vör, greiðir SÍ 95% af raunverulegum kostnaði. Ekki er samningur um þá þjónustu, held- ur er greitt eftir gjaldskrá við- komandi sérfræðings. Málum er þannig háttað í dag að margar fjölskyldur hafa ekki efni á að senda börn sín í tannrétt- ingar; hvað þá ef mörg börn innan sömu fjölskyldu þurfa á tannrétt- ingum að halda. Í langflestum til- fellum fæðast börn með bit- skekkjur/tannskekkjur og lítið sem ekkert við þeim að gera. Í langflestum tilvikum er því um meðfæddan galla að ræða og lítið sem foreldrar geta gert til að koma í veg fyrir skaðann. Benda má á að slíkir meðfæddir gallar annars staðar í líkamanum en í tyggingarfærum væru sannanlega bættir með fullum stuðningi hins opinbera. Styrkur hins opinbera hefur hlutfallslega lækkað með árunum og ekki er búist við því að hann hækki í bráð. Til að svara spurn- ingu minni að ofan, þá hefur ekk- ert þokast í málaflokknum, heldur hefur dregið verulega úr. Hækkun styrksins er háð ákvörðun Alþing- is um fjárveitingu. Það er því póli- tísk ákvörðun að veita fé til mála- flokksins. Nú er lag fyrir komandi kosningar fyrir alla stjórn- málaflokka að velta því fyrir sér, hvort þessi mál barnafjölskyldna eigi að vera í forgangi eða ekki. Hjálp, barnið mitt er með skakkt bit Eftir Kristínu Heimisdóttur Kristín Heimisdóttir »Nú er lag fyrir komandi kosn- ingar fyrir alla stjórnmálaflokka að velta því fyrir sér, hvort þessi mál barnafjölskyldna eigi að setja í forgang. Höfundur er tannréttinga- sérfræðingur, lektor við tann- læknadeild HÍ og formaður Tannréttingafélags Íslands. kristin@tennur.isÍ veiðihug Kisan tók ekki augun af bráð sinni. Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.