Morgunblaðið - 25.05.2021, Side 17

Morgunblaðið - 25.05.2021, Side 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 Eins og allir vita eru kosningar fram undan og margir telja sig kallaða til forystu- og leiðtogahlutverka. Á dögunum skrifaði frambjóðandi, ung og gæfuleg kona, grein í blaðið undir fyrirsögn- inni „Aðild að Evrópu- sambandinu fer gegn hagsmunum Íslands“. Þegar komið er inn í textann bætir frambjóðandinn ungi um betur og segir hugmyndina um að Ísland gangi í Evrópusambandið „arfavit- lausa“. Er þá djúpt í árinni tekið, ekki síst þegar til þess er litið að flest önnur smáríki V-Evrópu telja sig best komin innan vébanda ESB og er staða sumra þeirra sambæri- leg við okkar. Ég er hér að tala um Eistland, Lettland, Litháen, Írland, Lúxemborg, Slóveníu, Möltu og Kýpur. Einnig má minna á að hug- ur þegna Skotlands, N-Írlands og Wales virðist standa nokkuð til ESB-aðildar. Sennilega vantar þá eitthvað af vitsmunum í það fólk sem þessar 11 evrópsku smáþjóðir leiðir. Og hver eru svo rök þessa ágæta frambjóðanda, þessarar stóryrtu ungu konu, fyrir því að það væri arfavitlaust að ganga í ESB? „Með því að standa utan við Evr- ópusambandið höldum við okkar sjálfstæðu viðskiptastefnu og höf- um fullt forræði á viðskiptasamn- ingum við önnur ríki,“ segir hún. Frambjóðandinn skýrir síðan frá því að Ísland hafi nú fríversl- unarsamninga við 74 ríki og að frekari samningar við m.a. Indóne- síu, Ekvador, Gvatemala, Argent- ínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrúgvæ bíði gildistöku. Telur hann þetta gott mál og þarft. En hver er raunveruleikinn í þessum málum? 90-95% af utanrík- isviðskiptum Íslands eru við Evr- ópu og Bandaríkin enda er íslensk- ur varningur og þjónusta í háum kostnaðar- og gæðaflokki sem ein- vörðungu efnaðir neytendur á efna- hagslega sterkum mörkuðum ráða við. Þau lönd sem frambjóðandinn gleðst yfir að Ísland hafi náð frí- verslunarsamningi við hafa enga burði til að kaupa íslenskan varn- ing. Ætla má að allir þessir miklu og víðtæku viðskiptasamningar séu að mestu gagnslausir og hrein tíma- og peningasóun. Með fullri inngöngu í ESB hefði hins vegar fengist fríverslun við Kanada, Kór- eu og Japan, samtals 220 milljónir efnaðra neytenda, sem ESB hefur fríverslunarsamning við og henta fyrir íslenskan hágæðavarning og –þjónustu. Næst kemur frambjóð- andinn galvaski að því að sjáv- arútvegsstefna ESB sé „… stefna sem fyrir löngu hefur sannað gagnsleysi sitt og skaðsemi“. Skýr- ingar eru engar. Aftur tekur ung kona mikið upp í sig. Fullmikið. Malta var í sambærilegri stöðu og við Íslendingar þegar landið gekk í ESB. Lifði mest á fisk- veiðum og ferðamennsku. Líka fá- mennt eyríki, sem hafði ráðið fyrir og nýtt sín fiskimið um ár og aldir. Út á þessa sögulegu staðreynd fékk Malta að halda fullum yfirráðum yf- ir sínum miðum við inngöngu og fengu önnur ESB-aðildarríki þar engan aðgang. Telja má öruggt að við Íslendingar fengjum sams kon- ar samning við inngöngu. Svo kemur margt í belg og biðu hjá frambjóðandanum: Stefna ESB í dreifbýlisþróun, skattamálum, gjaldmiðilssamstarfi, byggðastefnu, réttarvörslu, dóms- og innanrík- ismálum, tollabandalagi, utanrík- istengslum, öryggis- og varn- armálum, fjárhagslegu eftirliti, framlags- málum og stofnunum, en allt á þetta að vera kolómögulegt. Fyrr má nú rota en dauðrota kom upp í hugann við lestur þessarar lönguvit- leysu, sem ég leyfi mér svo að kalla, enda efast ég um að fram- bjóðandinn sjálfur hafi vitað vel hverju hann var að romsa upp úr sér og skrá á blað. Ef ESB kæmi að dreifbýlis- og byggðamálum hér væri það helst í formi fjárframlags eða styrkja. Skattamál eru innanríkismál aðild- arríkja. Hvert aðildarríki ræður sjálft hvort það tekur þátt í gjald- miðilssamstarfi. Svíar gera það t.a.m. ekki. Varðandi réttarvörslu og dómsmál erum við nú þegar sterktengd ESB eins og dæmin (Landsréttarmálið) sanna, varðandi innanríkismál erum við nú þegar í Schengen þar sem við opnum landamærin fyrir öllum hinum ESB- og Schengen-ríkjunum (og þau fyrir okkur), um tollabandalög og utanríkistengsl gæti ESB aðeins gagnast okkur og um öryggis- og varnarmál erum við auðvitað öll, Ís- land og ESB-ríkin flest, í sama báti; NATO. Loks þetta um þá fullyrðingu frambjóðandans og utanrík- isráðherrans að Ísland hafi aðeins tekið upp 13,4% af regluverki ESB: Fjölmargar reglugerðir ESB ná alls ekki til Íslands þannig að ef heildarfjöldi reglugerða er talinn, og svo einfaldlega talinn fjöldi þeirra reglugerða sem Ísland hefur innleitt, kann að koma út lág pró- sentutala. Þetta er þó ekki það sem gildir, heldur áhrif og vægi þeirra gerða og reglugerða sem Ísland hefur tekið upp. Norðmenn eru með svipaðan ESS-samning og við. Á 20 ára af- mæli norska EES-samningsins lét ríkisstjórn landsins gera úttekt á samningnum og áhrifum hans. Hlutlausir sérfræðingar gerðu 900 bls. skýrslu um málið. Í inngangi stendur þetta í enskri útgáfu: „Norway has adopted roughly ¾ of EU legislation compared to those Member States that participate in everything…“ 75%. Þetta var 2012. Ætla má að staða Íslands sé svipuð. Skýrslan bendir einnig á þá nei- kvæðu staðreynd að Norðmenn hafa engin áhrif á stefnumál ESB og koma hvergi að ákvörðunum. Það sama gildir auðvitað um Ísland í stöðunni. Ef Ísland væri fullgilt aðildarríki fengjum við sex þing- menn á Evrópuþingið, okkar eigin kommissar – hver þjóð hefur bara einn, líka Þjóðverjar og Frakkar – og auk þess fengjum við fullt neit- unarvald hvað varðar stefnumörk- un, stærri ákvarðanir og samn- ingagerð ESB við önnur ríki eða álfur. Við gætum þá loks látið í okkur heyra og að okkur kveða með þau lög og reglugerðir sem við erum svo að taka upp. Hvað segja frambjóðendur og ut- anríkisráðherra um það? Vart vill sjálfstætt fólk láta draga sig á asnaeyrum. Keyrir út í skurð með utanríkisráð- herra í aftursætinu Eftir Ole Anton Bieltvedt » Væri Ísland fullgilt aðildarríki fengjum við okkar eigin kommissar og fullt neitunarvald við stærri ákvarðanir ESB. Ole Anton Bieltved Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Landnáma hefur reynst mér afar skemmtileg bók. Landið átti að hafa verið óbyggt þegar fyrstu landnáms- mennirnir komu hing- að, utan nokkurra kristinna papa, sem voru fljótir að koma sér á braut. Hvaðan komu þessir kristnu papar? Einhvers misskilnings gæt- ir á fyrstu blaðsíðu í Landnámu um að þeir hafi verið írskir munk- ar, vegna írskra bóka, bjalla og bagla, og mátti þess vegna skilja að þeir væru Vestmenn. (Þat fannst í Papey austr ok í Papýli.) Írland er ekkert í vestur frá Ís- landi, það er beint í austur. Vestur af Íslandi eru Grænland og Hvítra- mannaland, eða Írland hið mikla. Ari Másson varð sæhafi til Hvítramannalands, segir í Land- námu. Hann komst eigi á brott og var þar skírður. Þarna virðist hafa verið rótgróin kristin trú og eru sagnir af ferð heilags Brendans sem styðja það. Það er engin goðgá að ætla að Papar hafi komið þaðan og Vestmannaeyjar séu nefndar eftir þeim: Þeir sem komu vestan að. Sagan af Hjörleifi og írsku þræl- unum, sem plötuðu hann með bjarndýrunum, er afar hæpinn til- búningur. Ingólfur og Hjörleifur höfðu kannað landið fjórum árum fyrr og vissu ósköp vel að engir skógarbirnir væru hér. Naddoddur er sagður hafa kom- ið hér, Garðar Svavarsson og síðan Hrafna-Flóki líka og enginn þeirra virðist hafa orðið var við þessa papa. Þegar heilagur Brendan kemur hingað árið 548 hittir hann fyrir einsetumanninn Pól, sem var búinn að vera hér í 60 ár. Þótt hann hafi verið einsetumaður er ekkert sem mælir gegn því að hér hafi verið byggð í landinu áður en Norðmenn komu. Mér hefur alltaf fundist vera undirliggjandi áskorun í orðum Ara fróða, sem hann setti í Íslend- ingabók: „En hvatki er missagt er í fræðum þessum, þá er skylt at hafa þat heldur, er sannara reynist.“ Þessi setning finnst mér einnig eiga við um Landnámu enda mikl- ar líkur á að Ari fróði hafi viðað að sér miklu af efni hennar og haft eitthvað um gerð hennar að segja. Þessi setning er vægast sagt einkennileg fyrir höf- und að viðhafa. Það er næstum því ögrandi fyrir lesandann að reyna að finna eitthvað sem sannara reynist í texta þeirra. Hlutur kvenna finnst mér alltaf hafa verið fyrir borð borinn í Landnámu. Það er lagt mikið upp úr ættrakningu og tíundað hverjir séu synir og dætur viðkomandi. Af nógu er að taka. Samt skýtur skökku við að um alla Landnámu eru karlar sagðir feður en engra mæðra er getið. Eins og dæmin sanna getur eingetnaður átt sér stað hjá konum en öllu erfiðara er með þess háttar hjá körlum. Vissu- lega áttu landnámsmenn börn með ambáttum en þess er alveg getið ef slíkt hefur átt sér stað. Ólafur pá er ambáttarson og er það tíundað skilmerkilega og ekki lagt honum til minnkunar. Á einum stað er maður sagður „getinn austr og upplenzkr at móðurætt“. Ólafur pá fékk Þorgerðar, dóttur Egils Skalla-Grímssonar, svo ekki var mikið amast við ætterni hans. Þegar horft er til þess er Auður djúpúðga gaf land skipverjum sín- um og leysingjum kemur ýmislegt undarlegt í ljós. Eftir að hafa bjargast frá skipbroti á Vikars- skeiði við Ölfusárósa og brotist þaðan upp á Kjalarnes og þaðan rakleitt vestur í Breiðafjörð getur hún farið að úthluta löndum og jörðum til manna sinna! Hvernig í ósköpunum á slíkt að vera hægt? Ketill hét maður er hún gaf land. Hann bjó á Ketilsstöðum. Hann var faðir Vestliða og Einars. Engin móðir? Hörður hét skipverji Auðar. Honum gaf hún Hörðadal. Hans sonur Ásbjörn. Engin móðir? Kjallakur hét maður, sonur Bjarna ins sterka, bróður Gjaflaug- ar, er átti Björn inn austræni. Hann bjó á Kjallaksstöðum. Hans börn voru Helgi hrogn og Þor- grímur þöngull undir Felli, Eilífur prúði, Ásbjörn vöðvi á Orrastöðum, Björn hvalmagi í Túngarði, Þor- steinn þynning, Gizurr glaði í Skorravík, Þorbjörn skröfuður á Ketilsstöðum, Æsa í Svíney. Engin móðir? Ljótólfur hét maður. Honum gaf Kjallakur bústað á Ljótólfsstöðum inn frá Kaldakinn. Hans synir voru Þorsteinn og Björn og Hrafsi. Engin móðir, en Hrafsi er sagður risaættar að móðerni. Hér sést greinilega misræmið. Þrátt fyrir að Kjallakur ætti að hafa nóg með sig og öll þessi börn, níu talsins, er ekkert mál að gefa Ljótólfi eitt stykki bústað! Þegar Auður djúpúðga er að gefa land skipverjum sínum og leysingjum er sagt frá því að Vífill, leysingi hennar, kvartar yfir því að hann fái engan bústað, sem aðrir hafa fengið. Hún kvað það engu skipta og gaf honum Vífilsdal. Konu hans er ekki getið en þau áttu Þorbjörn og Þorgeir. Hvaða bústaði er um að ræða? Það er ekki bara einn eða tveir, heldur er um helling að ræða. Auð- ur er allslaus, nýkomin úr sjáv- arháska og það er ekkert mál að úthluta bústöðum hist og her! Þá er ekki hægt að tíunda hverjar voru mæður þessara barna en í kapítulanum á undan er sagt frá gjaforðum barna Auðar djúpúðgu. Eina skýringin er sú, eins og manni hefur oft komið í hug: hér hafi verið búseta annarra og hafi verið um langt skeið. Landnámið hafi í raun verið skipulagt hernám og skýrist þá margt. Hverjar voru mæðurnar? Eftir Ægi Geirdal Gíslason Ægir Geirdal Gíslason » Ari fróði segir í Ís- lendingabók: „En hvatki er missagt er í fræðum þessum, þá er skylt at hafa þat heldur, er sannara reynist.“ Höfundur er listamaður og grúskari. arthands@sandman.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.