Morgunblaðið - 25.05.2021, Síða 19

Morgunblaðið - 25.05.2021, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 ✝ Ragnheiður Magnúsdóttir fæddist á Úlfs- stöðum, A- Landeyjum, 4. júlí 1931. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Eir 7. maí 2021. Foreldrar hennar voru Magn- ús Gunnarsson frá Hólmum í A- Landeyjum, bóndi í Ártúnum, f. 13. júlí 1896, d. 13. apríl 1973, og Auðbjörg María Guðlaugsdóttir, Gerði, Vest- mannaeyjum, f. 13. ágúst 1900, d. 23. júní 1986. Þau áttu fimm börn. Elst var Guðlaug, f. 4. maí 1925, d. 14. júní 2020. Gunnar, f. 4. apríl 1928, d. 5. september 1995. Ragnheiður, sem hér er minnst, f. 4. júlí 1931. Geir, f. 13. ágúst 1933 og Ólafur, f. 6. des. 1939. Ragnheiður giftist árið 1957 Árna Vigfússyni frá Ljót- arstöðum í Skaftártungu. Þau eignuðust tvo syni, en fyrir átti Ragnheiður Magnús H. Há- konarson vélstjóra, f. 21.8. 1954. a) Örlygur V. Árnason, f. 12. júlí 1958, húsasmíðameistari. Sam- býliskona hans er Ásrún Vil- bergsdóttir leikskólastjóri. Börn Örlygs og Huldu Maríu Mikaels- dóttir Tölgyes: Hildur Máney Örlygsdóttir Tölgyes, f. 26. október 1981. Börn Hildar: Sig- rún María Birgisdóttir, f. 17. apríl 2002. Eldur Máni, f. 6. mars 2017. Barn Örlygs og Láru Einarsdóttur: Hlynur Kári, f. 24. apríl 1996. b) Gunnar V. Árna- son, f. 6. apríl 1963, skrif- stofustjóri. Börn Gunnars og Rutar Gunnarsdóttir: Unnar Örn, f. 18. október 1996 og Katr- ín Silja, f. 26. september 1999. Fyrir átti Rut Matthildi Björgu Bjarnadóttur, f. 11. apríl 1990. Börn Matthildar og Karls Gunn- arssonar: María Ósk, f. 5. des. 2013 og Sara Mjöll, f. 5. nóv. 2018. Ragnheiður fæddist á Úlfsstöðum, A- Landeyjum. Hún flutti ásamt fjöl- skyldu sinni að Ár- túnum, Rang- árvöllum, árið 1932 og ólst þar upp hjá ástríkum for- eldrum og fjórum systkinum. Hún stundaði nám við barnaskólann á Strönd. 17 ára flutti hún til Reykjavíkur og hóf nám við Austurbæjarskólann og síð- ar við Kvennaskólann þaðan sem hún lauk námi árið 1951. Ragnheiður fór snemma að hjálpa til við bú- og heim- ilisstörfin í Ártúnum eins og tíðkaðist á þessum árum. Eftir að námi frá Kvennaskólanum lauk 1951 hóf hún störf hjá Sam- einuðum verktökum og vann þar í nokkur ár. Hún vann einn- ig við verslunarstörf í Reykjavík á 6. og 7. áratugnum eftir að hún giftist. Hún sinnti einnig bókhaldsstörfum fyrir eig- inmann sinn, Árna Vigfússon, sem var sjálfstætt starfandi byggingarmeistari um langt árabil. Á níunda áratugnum vann hún hjá Félagsmiðstöðinni í Árbæ við eldhús- og þjón- ustustörf. Auk þess sinnti hún hefðbundnum heimilisstörfum alla sína búskapartíð. Þau hjón festu kaup á lóð í Árbænum, Hlaðbæ 20, árið 1966 og byggðu sér heimili þar til framtíðar. Árni lést 16.12. 2016. Ragnheiður sinnti áhuga- málum sínum meðan heilsan leyfði, sérstaklega hannyrðum, prjónaskap og ættfræði. Hún var heilsuhraust framundir átt- rætt, en kenndi sér hjartameins upp úr því. Hún missti heilsuna árið 2019 og naut aðhlynningar á Hjúkrunarheimilinu Eir síð- ustu tvö árin sem hún lifði. Ragnheiður verður jarð- sungin frá Árbæjarkirkju í dag, 25. maí 2021, og hefst afhöfnin kl. 15. Í dag kveðjum við Ragnheiði Magnúsdóttur, ástkæra móður okkar, ömmu og langömmu. Við þessi tímamót hrannast upp margar góðar minningar. Við nutum þeirrar gæfu að alast upp í Hlaðbænum í Árbæjar- hverfi þegar hverfið var að byggjast upp á sjöunda og átt- unda áratugnum. Á þessum tíma var heimilið alltaf öruggt skjól fyrir okkur bræður. Við minnumst móður sem alltaf var til staðar og hægt var að leita ráða hjá. Hún var gædd jafnaðargeði, hafði ríka réttlætiskennd, en tranaði sér hvergi fram. Hún fór ætíð vel með allt sem henni var trúað fyrir. Mamma var alltaf áhugasöm um hvað við hefðum fyrir stafni og veitti okkur ómetanlegan stuðning í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Við erum ævinlega þakklátir fyrir þá ástúð og viðurgjörning sem börnin okkar nutu í Hlað- bænum, hjá ömmu og afa. Barnabörnin veittu henni einnig mikla ánægju og gleði. Þau sýndu henni ræktarsemi og voru dugleg að hafa samband við hana þegar heilsunni hrakaði síðustu árin. Undanfarin tvö ár var hjúkr- unarheimilið Eir hennar heimili, en fram að því hafði hún búið í Hlaðbænum. Á Eir naut hún að- hlynningar sem við erum þakk- látir fyrir. Fram á síðasta dag var hún málhress og spurði alltaf frétta af barnabörnunum. Þegar við spurðum hana um hennar heilsu- far, svaraði hún jafnan „það gæti víst verið verra“ og hafði ekki fleiri orð um það. Guð blessi minningu móður okkar, Ragnheiðar Magnúsdótt- ur. Þú varst mér ástrík, einlæg og sönn, mitt athvarf lífs á brautum, þinn kærleik snart ei tímans tönn, hann traust mitt var í hvíld og önn, í sæld og sorg og þrautum. (Steinn Sigurðsson) Gunnar, Örlygur og fjölskyldur. Ragnheiður Magnúsdóttir ✝ Kristín Odds- dóttir fæddist þann 23. ágúst 1948 á Ísafirði. Hún lést á Hvi- dovre hospital 25. apríl 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Álf- heiður Guðjóns- dóttir, f. 1920, d.2010, og Oddur Friðriksson raf- virkjameistari, f. 1917, d. 1990. Eftirlifandi systur Kristínar eru Lára Guðbjörg, f. 1944, og Guðný Lilja, f. 1956. Kristín ólst upp á Ísafirði. Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1967, kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands 1968, BA-próf í dönsku og bóka- safnsfræðum frá Háskóla Ís- lands 1976 og próf frá Hand- elshöjskolen í Kaupmannahöfn 1983 og öðlaðist þá réttindi sem löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi. Sendiráði Íslands í Kaup- mannahöfn til starfsloka, en auk þess sinnti hún bókasafn- inu í Jónshúsi frá 1983 ásamt því að skipuleggja og annast konukvöld sem þar voru haldin reglulega. Áhugamál Kristínar leiddu hana að skátastarfi á Ísafirði og í Kaupmannahöfn og til stjórnarstarfa í Litla leik- klúbbnum á Ísafirði. Eftirlifandi eiginmaður Kristínar er Peter Bruhn Bonde, f. 11.8. 1949. Foreldrar hans voru hjónin Ove Bruhn Bonde, f. 1926, d. 1982, og Birgit Bonde, f. Kjeldsen 1930, d.2013. Dætur Kristínar og Peters eru: 1) Heidi Christina, f. 29.4. 1980. Hún á tvær dætur með fyrri eiginmanni sínum Peter, þær Lauru, f. 2007, og Anni- ken, f. 2011. Sambýlismaður Heidi er Lars Holger Nielsen. 2) Maria Christina, f. 30.9. 1981. Eiginmaður hennar er Jesper Hamann-Olsen. Sonur þeirra er Oliver, f. 2010. Útför hennar verður gerð frá Margrethe Kirken í Valby í dag, 25. maí 2021, kl. 12 að dönskum tíma. Kristín var kennari við Barna- skóla Ísafjarðar á árunum 1968-1971. Á námsárunum við HÍ starfaði Kristín sem bókavörður við bókasafn Hjúkrunarskóla Ís- lands og við Bóka- safn Langholts- skóla. Á árunum 1975- 1979 var Kristín dönskukenn- ari og bókavörður við Mennta- skólann á Ísafirði. Sumurin 1976 og 1977 starf- aði Kristín sem leiðsögumaður danskra ferðamanna hjá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Kristín fluttist til Danmerk- ur 1979 og starfaði þar sem húsfreyja, þýðandi og dómtúlk- ur og móðurmálskennari ís- lenskra barna á grunn- skólaaldri. Frá 1990 starfaði Kristín hjá Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Lífið er ferðalag þar sem máli skiptir að nýta og njóta hvers augnabliks, því enginn gengur vísum að eins og segir í ljóðinu. Þótt samverustundum fjöl- skyldna okkar Kristínar systur hafi fækkað síðustu ár voru þær mjög margar og ánægjulegar þegar börnin okkar voru yngri. Dætur Kristínar og Peters, Heidi og María, eru á sama aldri og Bjarni eldri sonur okkar Árna. Það var því ósjaldan farið í ferðalag til Danmerkur, hvort sem það var um vetur eða sumar, dýragarðar og Tívolí heimsótt og ekki síst dvalið í yndislega sum- arhúsinu þeirra niður við strönd í Rödvig. Gestrisni Kristínar og Peters var óendanleg og frænd- systkinin kynntust vel á þessum árum og nokkru síðar bættist í hópinn yngri sonur okkar, Árni Þór. Þótt vel færi um Kristínu með sinni fjölskyldu í Danmörku var taugin til Íslands sterk. Ferska íslenska loftið, frísk náttúran, krafturinn í fólkinu og ekki síst íslenska fjölskyldan togaði alltaf í hana. Baráttuþrek Kristínar í sinni heilsufarslegu glímu einkenndist af vestfirskri þrjósku að gefast ekki upp og að njóta sérhvers sólarlags sem sitt hinsta væri. Nú er stundin runnin sitt skeið og að leiðarlokum komið þótt enginn sé tilbúinn að kveðja. Far vel, elsku systir, og takk fyrir allt og allt. Guðný Lilja. Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur og dapran hör- kveik slekkur hann ekki (Jes. 42:3). Þessi orð hafa ótal sinnum komið í huga minn síðustu daga þegar ég hugsa til hennar Krist- ínar systur minnar. Það er erfitt að viðurkenna að hún skuli ekki hafa getað staðið af sér síðustu þrekraunina. Leiftur minninga hafa borið fyrir augu mér. Við systur áttum farsæla æsku og unglingsár á Ísafirði „Í faðmi fjalla blárra“. Heimili okk- ar var í Smiðjugötunni, þar var hópur krakka á okkar aldri og göturnar iðuðu af leikjum okkar. Löngum stundum eyddi Krist- ín í bílskúrnum með pabba, lærði að handleika verkfæri og tileinka sér þá hugsun sem að baki bjó þegar þú réðst í það verkefni sem fram undan er. Það verður að segjast að Kristín hafði meiri áhuga á verkefnum pabba en að fylgjast með mömmu handleika saumavélina og töfra fram dásamlegar flíkur. Eftir nám leitaði Kristín aftur á heimaslóðir, en sumarvinna sem leiðsögumaður fyrir danska ferðamenn dró dilk á eftir sér. Í einni ferðinni var ungur maður, Dani, Peter að nafni, og þar með spunnust saman örlagaþræðir þeirra. Sá þráður hefur aldrei slitnað frá því þau unnu heit sín í Ísafjarðarkirkju í júlímánuði 1979. Danmerkursaga Kristínar spannar rúm 40 ár, það er saga ungrar fjölskyldu með tvær ung- ar dætur, uppvöxt þeirra og fylgd út í lífið, það er saga um leik og störf, mikinn og langan vinnudag oft og tíðum, ekki síst eftir að hún hafði aflað sér rétt- inda til að starfa sem löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi. Að loknum starfsdegi í Sendiráði Ís- lands í Danmörku tóku við stund- ir í Jónshúsi, umsjón með bóka- safninu þar og Konukvöldunum ásamt ýmsu öðru sem til féll á þeim vettvangi. Fyrir óeigin- gjarnt starf sitt tengt málefnum Íslendinga í Danmörku afhenti Svavar heitinn Gestsson, þáver- andi sendiherra, Kristínu og Vi- beke Nörgaard Nielsen, fyrir hönd forseta Íslands, riddara- kross hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á heimili sínu og Guðrúnar Ágústsdóttur þann 17. júní 2009. Það var fal- legur dagur og falleg stund sem Kristín var afar þakklát fyrir. Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta. (Sl. 90:12) Kristín átti viturt hjarta. Hún átti ómældan skerf af gæsku og mannkærleika, hjálpsemi og ósérhlífni – allt nokkuð sem sam- ferðafólk hennar fékk að njóta hvort sem um var að ræða skyld- menni og vini eða alls ókunnuga sem leituðu aðstoðar á hennar vinnustað. Alltaf hafði Kristín nægan tíma. Svo fór að reyrinn brotnaði undan þungu álagi sjúkdóma. Á sárri kveðjustund er gott og dýr- mætt að geta leitað í minninga- bankann og dregið fram myndir af Kristínu í faðmi fjölskyldu og vina. Þannig heldur hún áfram að búa með okkur og vera okkur fyr- irmynd. Um Góða ferð sungu þau BG og Ingibjörg á sínum tíma. Það lag ásamt ýmsu öðru sem þau fluttu hljómaði oft í eyrum Krist- ínar, því segi ég að lokum: Góða ferð, góða ferð, góða ferð góða ferð já það er allt og síðan bros því ég geymi alltaf vinur það allt er gafstu mér góða ferð, vertu sæl(l) já góða ferð. (Jónas Friðrik) Lára G. Oddsdóttir. Sendiráð okkar erlendis eru fá og smá og þar skiptir oft mestu að vel sé skipað af staðarráðnu starfsfólki, sem þekkir sinn heimavöll. Kristín Oddsdóttir Bonde, sem ung flutti vestan af fjörðum til borgarinnar við sund- ið, var um áratuga skeið kjölfest- an í starfi sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn. En hún var meira en það; hún var sannarlega hjarta þess í samskiptum við hið fjölmenna samfélag Íslendinga í borginni og reyndar um allt land. Auk mikilvægra starfa við sendiráðið sinnti hún þýðingum og sá lengi um fjölbreytt fé- lagsstarf í Jónshúsi. Fyrir okkur sem komum til starfa í sendiráðinu um nokkurra ára skeið var þekking og reynsla Kristínar betra vegarnesti en nokkuð annað til að ná tökum á viðfangsefnum. Ráð hennar voru óbrigðul, gefin af þekkingu og umhyggju. Megi blessun fylgja minningu hennar. Bjarni Sigtryggsson. Kveðja frá utanríkisþjónustunni Kristín Oddsdóttir Bonde hóf störf í sendiráði Íslands í Kaup- mannahöfn árið 1990 og starfaði þar í rúma tvo áratugi. Á löngum starfstíma sínum sinnti hún margvíslegum störfum í sendi- ráðinu, var ritari, bókari og ann- aðist skjalasafnið. Sem löggiltur skjalaþýðandi var hún líka dönskusérfræðingur sendiráðs- ins, auk þess að vera helsti ráð- gjafi sendiherra og annarra starfsmanna um ýmsa þætti dansks samfélags. Kristín var afskaplega vel gerð og vel gefin kona. Alúð og trú- mennska einkenndu störf hennar í sendiráðinu og hún rækti af samviskusemi og ljúfmennsku allt sem kom til hennar kasta. Hún var sérlega samviskusöm og vandvirk og má segja að hún hafi verið af gamla skólanum í já- kvæðum skilningi, hvað varðar formfestu og nákvæmni í öllum opinberum samskiptum sendi- ráðsins. Hún lagði mikinn metn- að í vönduð vinnubrögð og lét sér annt um ásýnd Íslands. Fyrir nýtt starfsfólk sem kom til starfa við sendiráðið var það mikil gæfa að Kristín tók á móti þeim og vísaði þeim veginn um völundarhús danskra siðareglna, skriffinnsku og samfélags. Hún hafði kyrrláta og traustvekjandi framkomu, var hlýleg og nær- gætin en bjó jafnframt yfir ríkri kímnigáfu – lun humør – að fyr- irmyndar dönskum hætti. Slíkir mannkostir eru mikilvægir og dýrmætir fyrir fámennan vinnu- stað eins og sendiráðið, enda var Kristín í sérstökum metum hjá samstarfsfólki sínu í gegnum tíð- ina. Kristín bjó yfir mikilli þekk- ingu og skilningi á sögu og menn- ingu bæði Íslands og Danmerk- ur. Í áranna rás safnaðist svo einnig upp hjá henni þekking á sögu og verkefnum sendiráðsins. Kom sér oft vel fyrir samstarfs- fólkið að geta leitað til reynslu hennar við úrlausn ýmissa við- fangsefna, spurt um fordæmi og fengið útskýringar. Sendiráðið og þeir ótalmörgu sem áttu skipti við sendiráðið á löngum starfs- tíma Kristínar eiga henni mikið að þakka og minnast hennar með mikilli vinsemd og hlýhug. Þess er einnig vert að geta að Kristín var mjög virk í starfi Húss Jóns Sigurðssonar í Kaup- mannahöfn. Bókasafn Jónshúss var hennar stóra áhugamál, en það skipulagði hún og hafði um- sjón með því um langa hríð. Þá tók hún að sér rekstur Jónshúss um tíma til að brúa bil milli um- sjónarmanna þess. Kristín var sæmd riddara- krossi Fálkaorðunnar árið 2009 fyrir störf sín í þágu samskipta Íslands og Danmerkur og Íslend- inga í Danmörku. Að leiðarlokum vill utanríkis- þjónustan þakka Kristínu sam- fylgdina og votta eiginmanni, dætrum og fjölskyldu Kristínar sína dýpstu samúð. Með kveðju frá samstarfsfólki í utanríkisþjónustunni. Helga Hauksdóttir sendiherra. Kristín Oddsdóttir Bonde Ástkær faðir okkar og afi, ÓLAFUR INGIMAR JÓNSSON flugvélaviðhaldstæknifræðingur, lést í Ostrava í Tékklandi 3. maí. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 28. maí klukkan 13 en einnig verður streymt frá seljakirkja.is. Aðstandendur afþakka blóm og kransa en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Elín, Ólafur Jón, Jakob, Ólöf Kristín, Björn Sigþór, Ómar Ari og Justin Leifur Ólafsbörn og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.