Morgunblaðið - 25.05.2021, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021
✝
Sigurður Haf-
steinn Björns-
son fæddist í
Reykjavík 15. sept-
ember 1953. Hann
varð bráðkvaddur
þann 7. maí 2021.
Foreldrar Sigurðar
voru Björn Þór-
arinn Þórðarson
læknir, f. 22.2.
1925, d. 25.2. 2005,
og Lilja Ólafsdóttir
húsfreyja, f. 22.8. 1926, d. 11.12.
2004. Systkini Sigurðar eru Þór-
unn Bára, f. 24.5. 1950, Bryndís
Anna, f. 31.12. 1956, Edda, f.
Berit Malmquist, f. 14.7. 1980.
Börn þeirra eru: a) Baldur Páll,
f. 25.10. 2009, b) Þórunn Ása, f.
5.3. 2012, og Svana Björk, f.
18.1. 2018. 2) Hólmfríður Björk
Sigurðardóttir, f. 6.10. 1985, gift
Agli Árna Guðnasyni, f. 24.9.
1985. Börn þeirra eru: a) Axel
Árni, f. 21.4. 2014, og Edda
Katrín, f. 31.8. 2018.
Sigurður lauk atvinnuflug-
manns-, blindflugs- og flugkenn-
araprófi frá Flugskóla Helga
Jónssonar árið 1977. Hann
starfaði stærstan hluta ævi sinn-
ar sem flugmaður, fyrst hjá
Helga Jónssyni að námi loknu,
þá hjá Íslandsflugi og loks hjá
Air Atlanta. Sigurður átti lang-
an og farsælan starfsferil til 65
ára aldurs.
Útför Sigurðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 25. maí
2021, kl. 13.
23.2. 1959, og Páll,
f. 16.7. 1963.
Sigurður kvænt-
ist 18.1. 1980 Þór-
unni Ólafsdóttur
hjúkrunarfræðingi,
f. 14.3. 1954. For-
eldrar hennar eru
Hólmfríður Ása
Jónasdóttir ritari,
f. 13.4. 1929, og
Ólafur Eyjólfsson
loftskeytamaður, f.
17.8. 1927, d. 15.8. 1997.
Börn Sigurðar og Þórunnar
eru: 1) Snorri Páll Sigurðsson, f.
13.11. 1979, í sambúð með Ástu
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt.
(Jónas Hallgrímsson)
Sigurður, tengdafaðir minn,
er nú lagður snemma af stað í
ferðalag eftir farsæla ævi.
Kynni mín af Sigurði hófust fyr-
ir tíu árum, þegar ég gekk með
grasið í skónum á eftir Fríðu
Björk, dóttur hans. Sökum
starfs Sigurðar sem flugstjóra
tók viðkynningin lengri tíma en
ella, því hann var til skiptis
heima og að heiman í þrjár vikur
í senn. Mér varð þó fljótt ljóst,
að þar fór ljúfur og góður mað-
ur.
Sigurði er best lýst sem heið-
arlegum, tryggum og hjálpsöm-
um manni. Sigurður var fagur-
keri og safnari, vel lesinn og
fróður, en fyrst og fremst voru
áhugamál Sigurðar tengd hand-
verki og framkvæmdum. Sig-
urður var verklaginn svo eftir
var tekið og til marks um það
eru híbýli þeirra Þórunnar og
barna þeirra, þar sem Sigurður
hefur því sem næst neglt hvern
nagla og skrúfað hverja skrúfu.
Umhyggjusemi og hlýju fyrir
sínum nánustu tjáði Sigurður
oft fremur í verki en orði.
Á kveðjustund er mér efst í
huga sú tryggð og hlýja sem
Sigurður sýndi mér alla tíð. Sig-
urður náði því að verða afi og
kynnast barnabörnunum sínum
og fyrir það er ég þakklátur.
„Afi Siggi!“ hrópuðu þau þegar
hann opnaði dyrnar brosandi,
með sinni stóísku ró, og þau
hlupu fagnandi í fangið á hon-
um. Þá sá maður hvað hann
ljómaði.
Í garðinum syngur svart-
þrösturinn sinn hljómfagra
söng. Sumarið er handan við
hornið. Þetta var árstíminn
þinn, Siggi minn; tími lífsins,
ljóssins og gróandans. Nú, þeg-
ar þessi kveðjustund er upp-
runnin, fer vel á því að þú hverf-
ir okkur, brosandi og sæll inn í
sumarbjarta nóttina. Þótt sorg-
in sé sár, lifir minningin um góð-
an mann. Far sæll vinur minn og
megir þú hvíla í friði.
Egill Árni Guðnason.
Í dag kveðjum við Sigga eins
og hann var kallaður. Það er
sárt að missa hann svo snöggt
frá okkur og það verður erfitt að
venjast því að Siggi sé ekki
lengur með okkur. Það er fyrst
og fremst þakklæti sem kemur
upp í huga minn þegar ég lít yfir
farinn veg. Það eru fimmtán ár
síðan ég kom inn á heimili Sigga
og Þórunnar í Tjaldanesinu, ég
fann strax að ég var velkomin.
Siggi var hár og grannur og
beinn í baki, með smá skarð á
milli framtannanna, hann var oft
með afaskegg sem fór honum
vel. Hann var alltaf snyrtilegur
og vel til fara, svolítill töffari í
sér. Hann var hógvær, fáorður
en gat verið kíminn. Siggi var
góður afi og hafði gaman af
börnunum, hann varð meiri og
meiri afi með hverju barnabarni
sem bættist í hópinn.
Eftir að Siggi lauk starfsferli
sínum var hann sístarfandi
heima, ýmist að smíða í bíl-
skúrnum, í bústaðnum eða að
mála og laga eitthvað. Siggi
nýtti tímann vel; hann vildi hafa
skipulag á hlutunum og ganga
beint til verks. Þegar við Snorri
höfum verið að koma okkur fyrir
á nýju heimili hvort sem það var
í Danmörku eða á Íslandi, var
Siggi kominn til að hjálpa okk-
ur.
Heimili Sigga og Þórunnar er
glæsilegt; það er fegurðin í litlu
hlutunum sem gildir og hver
hlutur er á vísum stað. Siggi
setti sinn svip á umhverfið og
vildi hafa fallegt í kringum sig.
Hann var heimakær og vana-
fastur.
Siggi og Þórunn hafa haldið
vel utan um fjölskylduna sem
hefur stækkað ört á síðustu ár-
um. Þar er amma Fríða aldurs-
höfðinginn enda er Þórunn
einkabarn hennar og er amma
Fríða alltaf með okkur. Sam-
verustundirnar eru ótalmargar;
ferðir í bústaðinn, allar veislurn-
ar í sólstofunni í Tjaldanesinu.
Siggi og Þórunn hafa verið dug-
leg við að búa til alls konar til-
efni til að koma saman, þau eru
mikið afmælisfólk. Ekki má
gleyma heimilishundinum
Hrímu, það hafa líka verið
haldnar afmælisveislur fyrir
hana. Við Snorri og Fríða og
Egill og öll börnin okkar höfum
notið alls þessa, það er ríkidæmi
að eiga svona fjölskyldu.
Við fjölskyldan vorum búsett
í Kaupmannahöfn um árabil og
kom Siggi oft í heimsókn. Hann
hafði gaman af að spássera í bæ-
inn, gæða sér á dönskum kræs-
ingum og skoða sig um. Þegar
við komum í heimsókn til Ís-
lands kom Siggi og náði í okkur
út á flugvöll á stóra bílnum sín-
um.
Í öllum fríum þegar við kom-
um heim frá Danmörku höfum
við búið hjá þeim en einnig um
lengri eða skemmri tíma og
núna í mars- og aprílmánuði
þegar við vorum að mála og
koma húsinu okkar í stand.
Siggi var alltaf mikill morgun-
hani, hann var búinn að leggja á
borð fyrir börnin þegar þau
komu upp í eldhúsið. Hann var
búinn að hafa til kaffi og lesa
blöðin, klæddur fallegum nátt-
buxum og aðhnepptri hlýrri
peysu.
Siggi naut sín á vorin og
sumrin þegar fuglarnir láta sem
mest í sér heyra. Hann hugsaði
vel um fuglana í garðinum, hann
gerði sér jafnvel ferð í Costco til
að eiga nóg af rúsínum fyrir þá.
Elsku Þórunn, Snorri og
Fríða, missir okkar er mikill, við
munum hjálpast að við að halda
minningu Sigga á lofti og ylja
okkur við litlu hlutina og allar
minningarnar um Sigga.
Ásta Berit.
Lífið höfum við að láni. Ég
trúi því að til sé annað tilveru-
stig. Siggi bróðir minn varð
bráðkvaddur. Hann var í blóma
lífsins og sofnaði inn í vorið. Ég
er stóra systir hans og er þakk-
lát fyrir að hann dó þjáninga-
laust, þó að á hinn bóginn fylgi
því að hvorki hann né fjölskyld-
an gátu kvatt. Það er erfitt að ná
utan um tímann og tilveruna.
Margt ætlum við okkur að gera
seinna sem aldrei verður. Lífið
er ferðalag sem fylgir tilhlökk-
un. Siggi var næstelstur af
börnunum og þremur árum
yngri en ég. Því var hann alltaf
litli bróðir minn á uppeldisárun-
um þegar ég þekkti hann mest
og best.
Pabbi var í læknanámi þegar
við Siggi komum til sögunnar og
litla fjölskyldan að fóta sig í
Reykjavík eftirstríðsáranna við
lítinn kost. Við áttum góða
æsku, mamma og pabbi bjart-
sýn á starfsnám sem þýddi langt
og mikið ferðalag. Fyrsti
áfangastaðurinn var læknisbú-
staðurinn á Skagaströnd. Þar
man ég að pabbi geymdi suðu-
súkkulaði uppi á háum skáp fyr-
ir börnin sem komu í sprautu.
Þaðan lá leiðin til Danmerkur
með Gullfossi.
Við Siggi vorum góð börn. Á
mikilvægum mótunarárum
krafðist starfsþjálfun pabba
mikillar aðlögunar af okkur
börnunum vegna tíðra vista-
skipta. Dvölin í Skandinavíu
tengdi okkur Sigga við náttúr-
una, skógana og berin sem uxu
þar villt og við færðum mömmu
og hún ristaði haframjöl, þeytti
rjóma og sló upp veislu. Siggi
var að eðlisfari rólegt og við-
kvæmt barn, sjálfum sér nægur
og hafði góða nærveru. Hann
var alla tíð dulur og tjáði sig
fremur í verki en orði. Hann
elskaði dýr og kom ósjaldan
heim með býflugur í krukku eða
broddgölt undir peysunni.
Við heimkomu vorum við
systkinin orðin fimm og Sörla-
skjólið okkar heimili. Þar tóku
undur fjörunnar við með úti-
leikjum og uppátækjum sem
fylgdi frelsi þessara ára. Þegar
ró komst á heimilið sátu systk-
inin oft saman við lítið kringlótt
eldhúsborð og fengu sér kvöld-
hressingu og ræddu málin við
mömmu. Siggi var mörg sumur í
sveit og undi sér vel hjá móð-
urfólki okkar austur á Síðu.
Siggi bróðir var seintekinn,
íhugull, vel greindur og sem
fullorðinn maður fastur fyrir og
fámáll. Hann var greiðvikinn,
hjálpsamur og einstaklega heið-
arlegur. Siggi var fallegt barn
og fallegur maður. Hann var fal-
inn fjársjóður og hafði gott
hjartalag, vel lesinn og fróður.
Honum hlotnaðist að starfa við
það sem hugur hans stóð til, sem
var flugið, og sinnti starfinu af
öryggi og samviskusemi.
Mesta gæfa Sigga var að
eignast góða fjölskyldu. Hann
fann ástina 17 ára og þau Tótu
áttu langt líf saman. Á fullorð-
insárum varð lengra á milli sam-
tala okkar en þau voru kærleiks-
rík, einlæg og djúp. Þegar hann
talaði um börnin sín tvö, Snorra
og Fríðu, skein gleði úr augum
hans og þegar hann minntist
síðar á barnabörnin sín fimm
geislaði hann af innri hamingju.
Við systkinin fylgjum góðum
bróður til grafar. Bróður, sem
við elskum og erum þakklát fyr-
ir og sem lifir í hjörtum okkar.
Missir Tótu mágkonu, barna
þeirra, tengdabarna og ömmu
Fríðu er mikill svo og barna-
barnanna, en þau áttu sálina í
afa Sigga. Minningin lifir.
Þórunn Bára Björnsdóttir.
Blessaður bróðir sæll, ertu
heima? Já, er kaffi á könnunni?
Já, komdu. Svona hófust und-
antekningarlaust samtöl okkar
bræðra í seinni tíð. Siggi stóri
bróðir minn gaf sér alltaf tíma
til að hitta mig. Við vorum ólíkir
á margan hátt en samt náðum
við svo ótrúlega vel saman enda
byggðir úr sama byggingarefni.
Það voru tíu ár á milli okkar
bræðra en aldrei fann ég fyrir
aldursmun. Hann var fámáll í
Sigurður H.
Björnsson
✝
Sigurður Jón-
atan Jóhanns-
son var fæddur á
Siglufirði 29. sept-
ember 1938. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
urlands á Akranesi
16. maí 2021. For-
eldrar hans voru
Jóhann Guðjón
Ólafsson, f. 1912,
d. 1949 og kona
hans Lovísa Norðfjörð Jón-
atansdóttir, f. 1920, d. 1992.
Systkini Sigurðar eru Sig-
uróli, Halla, Guðrún Erla,
Lína, Rafn, Karl, Jóhann,
Linda og Sólveig. Eftirlifandi
maki Sigurðar er Elísabet
Guðbjörg Karlsdóttir. Börn
Sigurðar frá fyrra hjónabandi
eru Rúna Björk, f. 1960, maki
er Björn Olgeirsson. Jóhann
Þór, f. 1961, maki er Fjóla
Lúðvíksdóttir. Hrefna, f. 1963,
maki er Karvel Lindberg
Karvelsson.
Stjúpbörn Sig-
urðar eru Hulda
Björk Ragn-
arsdóttir, f. 1959,
maki er Magnús
Ólafur Krist-
jánsson. Sigurður
Ragnarsson, f.
1960, maki er El-
ín Rós Sveins-
dóttir. Magni
Ragnarsson, f.
1964, maki er Írena Bjarna-
dóttir og Vignir Ragnarsson,
f. 1964.
Afabörn og langafabörn eru
alls 31 talsins.
Sigurður vann lengst af sem
sjómaður en einnig sem neta-
gerðamaður. Hann bjó síðast á
Brúarflöt 2 á Akranesi.
Útförin fer fram í Akra-
neskirkju 25. maí 2021 kl. 13.
Streymishlekk má nálgast
á:
https://www.mbl.is/andlat
Þá er elsku afi Siggi okkar
farinn frá okkur. Seinustu dagar
hafa verið mjög erfiðir þar sem
við sátum yfir elsku afa okkar
og biðum þess sem verða vildi.
En það var gott að vita til þess
að við gátum passað upp á afa
eins og hann passaði alltaf upp á
okkur. Hann veitti okkur bestu
knúsin og fallegustu hrósin. Í
gegnum öll hans veikindi var
alltaf stutt í brosið og léttleik-
ann sem hann bjó yfir. Sáum við
fyrir okkur margar heimsóknir
á Hjúkrunar- og dvalarheimilið
Höfða en hann hafði sjálfur aðr-
ar áætlanir.
Þótt mislangt hafi liðið á milli
heimsókna hvort sem það voru
nokkrir dagar eða vikur þá var
einhvern veginn alltaf eins og
við höfðum hitt hann seinast í
gær. Hann sýndi alltaf því sem
við vorum að gera mikinn áhuga
og var mikill selskapsmaður áð-
ur fyrr, fannst gaman að hitta
fólkið sitt yfir kaffi, brauðrétt-
um og konfektmola.
Við prinsessurnar þínar pöss-
um upp á ömmu Lillu þína og
munum ávallt minnast þín með
gleði í hjarta og sakna þín.
Knúsaðu Emblu og Lady Norð-
fjörð frá okkur þegar þú hittir
þær.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þínar
Ragnheiður og Ólöf Lilja.
Á lífsins leið kynnumst við
alls kyns samferðarfólki. Við
höfum verið svo heppin að fá að
vera samferða Sigurði Jóhanns-
syni í gegnum stóran hluta lífs
okkar. Siggi Jóh, eins og hann
var alltaf kallaður, var einstak-
lega hlýr og góður maður, alltaf
jákvæður og brosandi og hafði
sérstaklega góða nærveru.
Mamma og Siggi Jóh fóru að
vera saman fyrir um 35 árum og
var það mikil gæfa fyrir alla í
fjölskyldunni. Samband þeirra
var einstaklega gott og kær-
leiksríkt. Þau voru dugleg að
ferðast saman og njóta lífsins.
Við áttum saman margar góð-
ar stundir og minnumst t.d. að-
fangadagskvölda sem voru sér-
staklega notaleg og skemmtileg,
heimsókna til þeirra mömmu á
Laugarvatn, ýmis ferðalög í
gegnum tíðina og samveru í golfi
en á golfvellinum sást vel að
hann var íþróttamaður í eðli
sínu og var fljótur að ná góðum
tökum á golfinu. Siggi Jóh var
félagslyndur og vinamargur og
var gaman að fylgjast með því í
gegnum árin hversu margir
skipsfélagar hans í gegnum tíð-
ina voru í reglulegu sambandi.
Það var kannski ekkert skrítið
því það var sérstaklega auðvelt
að þykja vænt um Sigga Jóh og
gaman að umgangast hann. Við
minnumst Sigga Jóh með mikl-
um söknuði því okkur þótti mjög
vænt um þennan mikla öðling og
erum þakklát fyrir samfylgdina
í gegnum árin.
Sigurður Ragnarsson
og Elín Rós Sveinsdóttir.
Sigurður Jónatan
Jóhannsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi. Við minnumst
þín með hlýhug og söknuði.
Þú mættir okkur alltaf með
brosi og hlýju og því mun-
um við aldrei gleyma.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Sigrún Dóra og
Sigurður Jónatan.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
KARL JÓHANN SAMÚELSSON,
lést á líknardeild Landspítalans þann 22.
maí sl.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ásthildur Ding
Elín K. Torgnes Paul Birger Torgnes
Samúel M. Karlsson Sigurlína Steinsdóttir
Sigvaldi Karlsson Ósk Ebenesersdóttir
Sigurjón Karlsson Guðfinna Helga Gunnarsdóttir
Bing M. Xi
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNÍNA K. MICHAELSDÓTTIR,
rithöfundur og blaðamaður,
lést mánudaginn 17. maí á Landakoti.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 27. maí klukkan 12.
Einnig verður streymt frá útförinni á mbl.is/andlat.
Sigþór J. Sigurðsson
Michael Sigþórsson Lilja Bragadóttir
Björn Sigþórsson Birna G. Hermannsdóttir
Þórunn Sigþórsdóttir Reynir A. Guðlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn