Morgunblaðið - 25.05.2021, Side 21

Morgunblaðið - 25.05.2021, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 margmenni en þegar við vorum tveir gat hann komist á flug – við vorum þó reyndar aldrei bara tveir því áheyrnarfulltrúar okk- ar voru alltaf Hríma hundurinn hans og ef þau komu til mín í kaffi fékk hundurinn minn hún Mía að vera með líka. Siggi var hjartahlýr og hafði sterka réttlætiskennd, hann elskaði dýr og börn, sérstaklega barnabörnin sín. Siggi bróðir minn var einhver mesti ná- kvæmnismaður sem ég hef hitt á lífsleiðinni enda frábær flug- stjóri og góður handverksmað- ur. Fyrir mörgum árum bauð hann mér með sér í flug til Grænlands, það var hreint út sagt ógleymanleg ferð. Að sitja í stjórnklefanum með honum og virða fyrir sér stórbrotið lands- lag Grænlands – þá skildi ég vel hvað flugið gaf honum mikið. Ég er óendanlega þakklátur fyrir að hafa átt Sigga sem bróð- ur. Ég vildi að ég hefði sagt hon- um hversu ofurvænt mér þótti um hann og hversu mikið sam- skipti okkar gáfu mér en ég held að hann hafi vitað það. Þórunn mágkona, Snorri, Fríða, barna- börn og fjölskyldur, missir ykk- ar er mestur. Hvíl í friði bróðir sæll. Þinn bróðir Páll (Palli). Mágur minn, Sigurður, er fyr- irvaralaust brott kallaður úr þessu lífi. Við kölluðum hann Sigga. Hann var klettur í lífi fjöl- skyldu sinnar, ábyrgðarfullur og sá fyrir öllu. Hann lærði flug og á þeim ár- um var aðgengi flugmanna að störfum takmarkað á Íslandi. Það leiddi til þess að hann varði samanlagt hálfri stafsævinni fjarri fjölskyldunni, þar sem hann vann fyrir Atlanta air. Hann var flugmaður fyrst, síðan flugstjóri og loks þjálfunarflugs- tjóri á stærstu Boeing- og Air- bus- flugvélum. Flaug hann um allan heim en mest í Mið-Aust- urlöndum og oft með hvíldar- tíma í Sádi-Arabíu þar sem lífið milli flugferða er fábrotið og takmarkað af siðum þess lands. Lauk hann farsælum flug- mannsferli 65 ára, fyrir tveimur og hálfu ári. Hann hafði nýlega fengi frelsi og andrými, þegar Covid takmarkaði samskipti og einangraði á ný, eins og starfið hafði gert áður. Siggi hafði kankvísi og bros móður sinnar ásamt með hand- lagni hennar en alvarleika og ábyrgð föður síns. Öll verkfæri léku í höndunum á Sigga og birt- ist í því að hann sá um allar smíðar á fyrstu íbúðinni, síðar einbýlishúsinu, sumarbústaðn- um og nú síðast í nýrri íbúð dótt- ur og sonarfjölskyldu. Hafði hann nýlokið því verki þegar kallið kom. Rætur Sigga lágu í sveit og sem drengur kynntist hann sveitalífi og hestamennsku. Siggi og Tóta eignuðust sum- arbústað sem hann endurgerði og í sveitinni naut hann sín best. En dýrmætast var Sigga að þau Tóta eignuðust tvö myndaleg börn, sem hafa verið augasteinar þeirra og þegar þau síðan eign- uðust fjölskyldur, þá fjölgaði augasteinunum. Siggi var dulur maður og lítið fyrir innihaldslaust hjal, hafði sterkar skoðanir og réttlætis- kennd, greiðvikinn og honum mátti treysta fullkomlega. Orð stóðu. Og maður hefði svo sann- arlega viljað eiga lengri tíma og dýpra samtal við hann. Nú er Siggi floginn inn í eilífð- ina, veg foreldra sinna og Guði falinn. Eftir sitja eiginkona, börn og barnabörn í djúpri sorg. Megi góður Guð styrkja þau. En Siggi lifir í huga og hjörtum þeirra sem unnu honum. Pálmi V. Jónsson - Fleiri minningargreinar um Sigurð H. Björnsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Gunnhildur Birna Björns- dóttir fæddist á Siglufirði 12. júlí 1940. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn 11. maí 2021. Foreldrar Birnu voru Björn Marinó Dúason frá Ólafsfirði, f. 1916, d. 2009, og Ólafía Margrét Bjarna- dóttir, f. 1918, d. 1977. Birna var þriðja í röð fjögurra systra; Steinunnar Dúu, f. 1938, d. 1996, Salóme Herdísar, f. 1939, og Svanhildar Eddu, f. 1943, d. 2010. Fyrri eiginmaður Birnu var Ottó David Tynes, f. 13. apríl 1937, d. 2. júlí 2018. Börn Birnu og Ottós eru: 1) Sverrir, f. 7. júní 1960, kvæntur Ásu Kolka, f. 2. febrúar 1951. Sonur Sverris af eldrum sínum á Hávallagötu 25 frá fjögurra ára aldri. Þau hétu Salóme Jónsdóttir frá Súðavík, f. 1899, d. 1985, og Bjarni H.G. Pálmason, f. 1887, d. 1957. Þau ólu einnig upp frá fæðingu Sal- óme Herdísi, systur Birnu. Birna gekk í Melaskólann og Kvennaskólann í Reykjavík. Hún hóf störf í Landsbanka Íslands 18 ára og vann þar alla starfsævina, með nokkurra ára hléum. Fyrstu árin vann hún sem gjaldkeri í Vegamótaútibúi en lengst af var hún forstöðumaður í aðalútibúi Landsbankans í Austurstræti. Birna starfaði í Kvenfélaginu Hringnum frá 1983. Þar vann hún mikið og óeigingjarnt sjálf- boðastarf og gegndi formennsku í fjölmörgum nefndum fyrir Hringinn, en félagið vinnur að líknar- og mannúðarmálum í þágu barna. Útför Birnu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 25. maí 2021, klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á vefslóðinni https://sonik.is/streymi Streymishlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat fyrra hjónabandi er Axel Ingi Tynes, f. 1996. 2) Salome, f. 31. maí 1961, gift Pálma Kristinssyni, f. 12. maí 1957. Börn Salome og Pálma eru: a) Bjarni Þór, f. 1991, d. 2018, b) Ágúst Ottó, f. 1995, og c) Birna Lind, f. 2000. Börn Pálma úr fyrra hjónabandi eru Hjalti Þór, f. 1981, og El- ísabet, f. 1986. Seinni eiginmaður Birnu er Hörður Reynir Jónsson, f. 8. októ- ber 1930. Synir Birnu og Reynis eru: 1) Jón Reynir, f. 1. apríl 1971, og 2) Bjarni Birkir, f. 20 júlí 1974, kvæntur Rakel Guðmundsdóttur, f. 4. desember 1980. Börn þeirra eru a) Bjarki Reynir, f. 2008, og b) Sara Björk, f. 2015. Birna ólst upp hjá móðurfor- Elsku hjartans mamma mín hefur kvatt þennan heim, þann heim sem hún átti erfitt með að skilja síðustu mánuðina í sínu lífi. Illvígur sjúkdómur hafði tekið sér bólfestu í huga hennar og smám saman „rænt“ henni frá okkur. Þegar svo samverustundunum eru settar skorður vegna heims- faraldurs verður sársaukinn enn meiri að fá ekki að umvefja og faðma að vild. En við nýttum tím- ann eins vel og við gátum. Mamma var svo lánsöm að fá pláss á hjúkr- unarheimilinu Seltjörn á Seltjarn- arnesi í janúar sl. og upp frá því gat Reynir heimsótt elskuna sína oft á dag, sem og við börnin henn- ar. Það var okkur dýrmætt að kveðjustundin var á Seltjarnar- nesinu, á þeim stað þar sem hún bjó hvað lengst. Mamma og Reyn- ir höfðu búið á Sævargörðum 3 frá 1978 og þar býr Reynir enn. Samband okkar mömmu var alla tíð einstaklega kærleiksríkt og náið. Hún var mér allt. Það var svo margt í fari mömmu sem ég dáðist að og hef reynt að tileinka mér. Hún var allt í senn, ástrík, umhyggjusöm, ósérhlífin, dugleg og drífandi. Það sýndi sig hvað best í starfi hennar fyrir Kven- félagið Hringinn, en þar vann mamma óeigingjarnt starf í hart- nær 40 ár. Hún var tilbúin að gera allt í þágu veikra barna og lagði svo sannarlega sitt af mörkum á þeim vettvangi. Það góða starf sem Hringskonur hafa innt af hendi í gegnum árin er með ólík- indum. Barnaspítalasjóður Hringsins hefur bæði lagt til fjár- magn til byggingar barnaspítala – sem kenndur er við Hringinn – sem og lagt til fé til tækjakaupa á spítalann. Þeirra hugsjón er að styðja við veik börn og aðstand- endur þeirra. Í starfinu hjá Hringnum var mamma á heima- velli. Hún elskaði öll börn og barnabörnin áttu auðvitað hug hennar allan. Hún var alltaf boðin og búin að passa þau, knúsa og faðma. Það eru miklir mannkostir að geta af einlægni miðlað ást og umhyggju til annarra eins og mamma gerði. Að gleðja aðra og sýna samhug var henni eðlislægt. Við mamma áttum okkar gæða- stundir, bara við tvær. Við fórum saman á tónleika, m.a. á Jóla- söngva Kórs Langholtskirkju á hverju ári í yfir 20 ár. Ég man líka þá stund þegar við sáum Sissel Kirkjebø í Hörpu og við grétum báðar yfir Pie Jesu, báðar jafn hrifnæmar yfir fallegri tónlist. Þau Reynir komu með mér í kór- ferðalag til Vínarborgar 2007, sem var ógleymanleg ferð. Við fórum í Vínaróperuna og nutum náttúru- fegurðarinnar í Austurríki. Utan- landsferðirnar með fjölskyldunni voru líka margar og eftirminnileg- ar. Allar þessar dýrmætu minn- ingar og samverustundir verða vel varðveittar í hjörtum okkar. Elsku mamma, fyrirmyndin mín í lífinu. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég elska þig af öllu hjarta og bið Guð að geyma þig. Þín Salome (Sallý) Mikið er sárt að kveðja þig elsku mamma mín, en á sama tíma er ég svo þakklátur fyrir allar minningarnar og að hafa verið heima á Íslandi síðustu daga, náð dýrmætum stundum með þér á hjúkrunarheimilinu og kvatt þig. Hjartahlýja þín og hjálpsemi leyndist engum sem umgekkst þig eða hitti. Þú máttir ekkert aumt sjá og sást alltaf það góða í öllu og öllum. Eitt af því fyrsta sem kem- ur upp í hugann þegar ég hugsa til baka, var vinnusemi þín í fjáröflun fyrir Barnaspítala Hringsins í tæp 40 ár, hvort sem það var sala jóla- korta, kökubakstur eða söfnunar- baukar, alltaf varstu reiðubúin í verkefnin og gafst þér tíma til að sinna því sem var þér svo kært; að hjálpa börnum. Og í rauninni hverjum sem var sem á þurfti að halda hverju sinni. Minningin um ást þína og um- hyggju fyrir fjölskyldunni, pabba, börnunum þínum, barnabörnum og tengdabörnum lifir að eilífu. Ég trúi að þú sért á góðum stað, umvafin börnum. Hvíl í friði elsku mamma, Vönduð er sálin, velvildin mest, vinkona, móðir og amma. Minningin mæta í hjartanu fest, ég elska þig, ástkæra mamma. Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt, af gæsku þú gafst yl og hlýju. í heimi guðsenglanna hafðu það blítt, uns hittumst við aftur að nýju. (Höf. ók.) Bjarni Birkir. Þegar ég hugsa um Sævar- garða 3 þyrlast upp óteljandi minningar. Í þessu fallega húsi bjó Baddi minn þegar ég fyrst hitti hann og þarna var mér fyrst tekið opnum örmum af elsku tengdafor- eldrum mínum, Birnu og Reyni. Hér mætti ég fyrst þessari miklu hlýju og glæsilega heimilishaldi sem var svo einkennandi fyrir tengdamömmu mína. Jafnvel kjötbollur með brúnni sósu urðu að hátíðarrétti í meðförum Birnu og umgjörðin einstök. Hvað þá þegar það voru veislur; stíllinn, borðbúnaðurinn og fágunin sem lýsti svo vel reisn og höfðingsskap þeirra hjóna. Það virtist svo sjálf- sagt hvað allt var fínt, pússað og fægt, líkt og engin fyrirhöfn lægi þar að baki. Birna tengdamamma mín var ekki einungis gædd gæsku og um- hyggju heldur bjó hún einnig yfir ótrúlegum dugnaði og hörku þeg- ar á þurfti að halda. Margir minn- ast hennar úr Landsbankanum í Austurstræti þar sem hún vann störf sín af einstakri alúð og ábyrgð svo eftir var tekið. Það var þessi reisn og fágaða framkoma sem menn minnast þegar þeir hugsa til hennar í þeirri stöðu. En það voru ekki bara viðskiptavinir Landsbankans sem nutu krafta hennar og umhyggju heldur einn- ig skjólstæðingar Barnaspítala Hringsins, því hverja frístund not- aði tengdamamma til þess að vinna Hringnum allt sem hún gat og kunni. Þar eignaðist hún einnig dýrmætt samstarfsfólk og vini með sömu hjartagæsku og hún hafði sjálf til að bera. En mest allra nutu þó börnin hennar, barnabörn og við tengdabörnin. Sjálf munum við, fjölskyldan hennar, hlýjuna þegar hún greip þétt um hendur manns með mjúku höndunum sínum, horfði einlægt á mann og spurði; ertu viss um að ég geti ekki gert eitt- hvað fyrir þig? Svipur sem túlkaði allt í senn, áhuga, umhyggju og ástúð. Það líkast til syrgir enginn tengdamömmu eins sárt og Reyn- ir tengdapabbi minn því gagn- kvæm ást þeirra hvert til annars alla áratugina fór ekki fram hjá neinum manni. Við hjónin höfðum vonað svo innilega að þau kæmu í eina loka- ferð til okkar til Kaupmannahafn- ar, ekki síst eftir að við fluttum í framtíðarhúsnæðið okkar. Bjarki og Sara höfðu hlakkað til að fá afa og ömmu til okkar einu sinni enn, enda engin venjuleg hátíð í bæ þegar þau komu færandi hendi með gjafir (sérstaklega súkku- laðirúsínurnar), ást og kærleika. Það var því hnípinn hópur sem sat og grét þegar Baddi minn hringdi í okkur til Danmerkur og sagði að amma Birna væri farin til Guðs. Ekki þarf að taka fram hve óend- anlega sárt það er að geta ekki komið til Íslands og fylgt henni vegna fársins sem enn geisar, en ég er svo þakklát að Baddi minn náði að fara þangað og vera með foreldrum sínum síðustu ævidaga mömmu sinnar. Ég bið góðan Guð að blessa og styrkja elsku Reyni tengdapabba, Sverri, Sallý, Nonna og elsku Badda minn í sárri sorginni. Sjálf kveð ég og faðma í anda yndislega tengdamömmu sem tók mér alltaf opnum, hlýjum örmum og örlæti síns stóra hjarta. Hvíl í friði elsku Birna. Þín Rakel, Bjarki Reynir og Sara Björk. Það er komið að kveðjustund eftir rúmlega sjötíu ára kynni, en við Birna kynntumst í sjö ára bekk í Melaskóla. Alla tíð síðan höfum við verið vinkonur og ýmislegt brallað saman. Við eignuðumst t.d. eldri börnin okkar á svipuðum tíma. Við ferðuðumst talsvert saman innanlands og ut- an. Fyrsta ferðin okkar ásamt fleiri vinum var til Majorka í þrjár vikur og endað fimm daga í Lond- on. Einnig fórum við saumaklúbb- urinn vikuferð til Parísar, fórum í óperuna, Versali, sigldum á Signu og fórum á fín veitingahús. Erum við oft búnar að minnast þeirrar ferðar. Einnig fórum við í nokkrar innanlandsferðir vikutíma í senn í bústaði Landsbankans með Birnu, Reyni og Siggu vinkonu okkar, m.a. á Vestfirði, Austfirði og Suðurland og fleiri staði og er allt þetta Birnu vinkonu okkar að þakka. Birna og Reynir voru mikl- ir fagurkerar og höfðu afar mikla ánægju af að bjóða ættingjum og vinum heim á þeirra fallega heim- ili. Ekki má gleyma að minnast á þeirra litla hlýlega sumarbústað. Þar nutum við Skúli góðs af, því við fengum að gista þar við smíði á okkar bústað þar í nágrenninu. Al- veg ómetanlegt á því mikla rign- ingarsumri. Þau héldu líka veg- legar grillveislur á haustin í logni og rökkri sveitarinnar. Birna var ávallt boðin og búin að hjálpa ef eitthvað stóð til, t.d. afmæli, jarð- arför og þ.h. en hún var óvenju- flink að baka og nutu margir vina hennar þess. Að leiðarlokum sendum við Skúli þakkir fyrir margra áratuga vináttu og tryggð, og biðjum Reyni og allri fjölskyldu þeirra guðs blessunar. Þóra Björg og Skúli. Sumt fólk setur mark sitt á líf manns og skapar minningar sem aldrei hverfa. Móðir okkar, Guðný S. Friðsteinsdóttir, átti tvær bestu vinkonur, þær Birnu og Lóu. Í huga okkar systra hafa þær alltaf verið nátengdar og nefndar í sömu andrá, því þrátt fyrir að vera eins ólíkar og hugsast getur voru þær alltaf saman, a.m.k. í okkar huga. Lóa lifir nú þessa góðu vin- konu sína og missir hennar er mikill. Tryggari vinkonur er varla hægt að hugsa sér. Þær stóðu þétt við bakið á mömmu í veikindum hennar og alltaf þegar eitthvað stóð til í fjölskyldunni voru þær mættar til að leggja sitt af mörk- um. Aðeins hálfu ári áður en mamma dó varð pabbi fertugur og þar stóðu þær í ströngu við að gera daginn sem bestan fyrir okk- ur öll. Ári síðar, þegar mamma var látin, var önnur okkar fermd og þar voru þær aftur mættar að skipuleggja og baka, síðan kom næsta ferming og svo fimmtugs- afmæli pabba og þótt þá væru heil 10 ár liðin frá andláti mömmu voru þær þar, fremstar í flokki, al- veg eins og áður. Einnig eigum við systurnar dásamlegar minningar þar sem við vorum í pössun hjá Birnu, eins og t.d. rétt fyrir ein jólin þegar Stúfur barði að dyrum með nammipakka fyrir okkur. Það er ekki ólíklegt að þar hafi Birna ver- ið að hlaupa undir bagga á meðan mamma var veik, en okkur var al- gjörlega hlíft við allri vitneskju um það og allt gert til að gera dag lítilla stelpna ánægjulegan og eft- irminnilegan. Svo má ekki gleyma sumarbústaðaferðunum í Gríms- nesið sem eru algjörlega ógleym- anlegar. Tryggð Birnu og Lóu við ömmu þar til hún lést árið 2001 var líka algjörlega ómetanleg og segir mikið um hjarta þeirra og hug til mömmu sem náði langt út yfir gröf og dauða. Birna var yndisleg kona. Hún var ljúf, kærleiksrík og skemmti- leg, róleg og yfirveguð en samt alltaf svo kát og glettin. Einstök og yndisleg kona er fallin frá, hún mun lifa í minning- um okkar systra um alla tíð. Við og faðir okkar, Þór Símon Ragn- arsson, vottum fjölskyldu hennar allri, sem og Lóu vinkonu hennar, okkar innilegustu samúð. Guð blessi minningu Birnu Björnsdóttur. Ásta Lóa og Ragna Sif. Í dag kveð ég yndislega vin- konu, Birnu Björnsdóttur. Það er sárt að kveðja þann sem manni þykir vænt um. Við Birna kynntumst á ung- lingsárunum, fyrst í leik á Landa- kotstúninu, síðar í Kvennaskólan- um og enn betur þegar við unnum saman í sparisjóðsdeild LÍ. Við urðum góðar vinkonur þrátt fyrir þriggja ára aldursmun sem með árunum varð að engu. Þegar Reynir og Birna fluttu á Reyni- melinn og síðan vestur á Seltjarn- arnes vorum við aftur orðnar ná- grannar með börn á líkum aldri svo skiljanlega varð samgangur okkar mjög náinn. Birna var ein- stök kona með mikla útgeislun. Hún var hörkudugleg, yndisleg og vann hjarta allra sem kynntust henni. Ávallt boðin og búin að hjálpa öllum sem til hennar leit- uðu. Síðar á lífsleiðinni gengum við í Kvenfélagið Hringinn. Þar starfaði Birna frá 1983, í nefndum sem formaður og í mörg ár sem gjaldkeri. Þá vann hún einnig mikið í sambandi við útgáfu bók- arinnar „Hringurinn í Reykjavík“. Hringurinn var hennar ástríða alla tíð þar til að heilsa hennar fór að bila. Í Hringnum kynntumst við mörgum frábærum konum sem gaman er að starfa með. Við Birna, Áslaug Björnsdóttir, Erna Hansen, Guðrún Garðarsdóttir, Guðrún Geirsdóttir, sem er látin, og Sólveig Hákonardóttir mynd- uðum vinkvennahóp 20. desember 1986 sem við kölluðum Glúntrur. Við Glúntrurnar höfum síðan verið duglegar að hittast, búa til alls konar viðburði og tilefni til að gleðjast saman. Búa til góðan mat og dekra hver við aðra. Þar var Birna okkar í essinu sínu. Við buð- um eiginmönnunum með í gleðina og héldum árleg jólaboð og fórum m.a. í jólaferðir til Kaupmanna- hafnar, Boston, ókum um Tosk- ana-hérað og heimsóttum Sollu til Stokkhólms. Hvílík gleði og mikið hlegið. Þar naut gleðigjafinn, Birna okkar, sín í botn með alls kyns sögum og gamanyrðum, sem þau Reynir höfðu undirbúið til flutnings. Þegar komið er að kveðjustund er ómetanlegt að eiga slíkar minningar. Elsku Reynir, Sverrir, Salóme, Jón Reynir og Bjarni Birkir. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur og ástvinum hugheilar samúðar- kveðjur. Einnig senda Glúntrurn- ar, Áslaug, Erna, Dúa og Solla, ykkur og ástvinum ykkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Góð vinátta er gulli betri. Kristín Bernhöft. Gunnhildur Birna Björnsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURBJARTUR SIGURÐSSON, Langagerði 34, lést á Hrafnistu miðvikudaginn 12. maí. Útför fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. maí kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort MS-félags Íslands (s. 568-8620) eða Kapellusjóðs Skógarmanna KFUM (s. 588-8899). Guðbjörg Jónsdóttir Jóna Sigfríð Sigurbjartsd. Gunnar Þ. Þorkelsson Heiða Björg Sigurbjartsd. Hans Gíslason barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.