Morgunblaðið - 25.05.2021, Page 22

Morgunblaðið - 25.05.2021, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Málarar Málarar Getum bætt við okkur verkefnum, fagmennska í fyrirrúmi og löggiltir málarar að störfum. Sími 790 7130 Bílar Þeir gerast ekki flottari. MERCEDES-BENZ S 550 Plug in Hybrid. Árgerð 2015, ekinn 22 þ.km, bensín, sjálfskiptur. Tilboðsverð 9.990.000. Rnr.225946. Bíllinn er á staðnum. Sá vinsælasti í dag. MMC Outlander Intense plus Árgerð 2020, ekinn 100 km, Plug in Hybrid, sjálfskiptur. Verð 4.990.000. Rnr.226428. Er á staðnum. Nýr bíll og ríkulega búinn. LAND ROVER Range Rover Sport HSE P400E. Árgerð 2021, ekinn 2 þ.km. Plug in Hybrid, sjálfskiptur 8 gírar. Verð 15.950.000. Rnr.226381. Bíllinn er á staðnum. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 Húsviðhald Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir #,&)"-/% í síma %!" $#$$ Morgunblaðið óskar eftir blaðber(# $ *(#%,%-&."*)!+%, $ .('!+*$' Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Postulíns- málun kl. 13. Prjónakaffi með Önnu kl.13.30. Kaffi kl. 14.30-15.20. Það er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411- 2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur kl. 11. Handavinna kl. 12-16. Hreyfiþjálfun kl. 13.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa, sími 411-2600. Boðinn Ganga/stafganga með leiðsögn kl. 10 frá anddyri Boðans, allir velkomnir. Fuglatálgun kl. 13-16, munið sóttvarnir. Ganga fyrir fólk með göngugrindur kl. 14 með Sigríði Breiðfjörð, allir velkomnir. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistar- hópurinn Kríur, opinn hópur kl. 13-15.30. Bónusrútan kl. 13.10. Síð- degiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Qi-Gong í Sjálandsskóla kl. 8.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11 í sal í kjallara Vídalínskirkju. Leikfimi í Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.55. Vatns- leikfimi Sjálandi kl. 15.15. Áfram skal gæta að handþvotti og smit- vörnum. Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 8.30-16, heitt á könnunni. Gönguhópur frá kl. 10 (leikfimi og svo ganga). Ath. línudansinn verður í dag kl. 11-12. Núvitund frá kl. 11-11.25. Listaspírurnar hittast kl. 13. Félagsvistin hefst aftur á morgun, miðvikudag kl. 13. Grafarvogskirkja Í dag, þriðjudaginn 25. maí, verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju kl. 13-15.30. Í upphafi er söngstund inni í kirkjunni. Boðið er upp á handavinnu, spil og spjall fyrir þau sem vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst í kirkjunni kl. 12. Að henni lokinni er í boði léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Helgistund kl. 14, prestur frá Grensáskirkju þjónar. Korpúlfar Listmálun í umsjón Péturs Halldórssonar kl. 9 í Borgum. Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45 í Borgum. Botsía kl. 10 í dag í Borgum. Helgistund Grafarvogskirkju í Borgum kl. 10.30 í dag. Leik- fimishópur Korpúlfa í umsjón Margrétar kl. 11 í Egilshöll. Spjallhópur í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14 í dag. Sóttvarnir í heiðrum hafðar. Vantar þig fagmann? FINNA.is Smá- og raðauglýsingar ✝ Erla Hann- esdóttir fædd- ist í Reykjavík 30. apríl 1932. Hún lést á Landspít- alanum Fossvogi 15. maí 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ragnhildur Fann- ey Halldórsdóttir, hattagerðarkona, f. 3.6. 1906, d. 3.9. 1980, og Hannes Erlendsson, klæðskerameistari, f. 9.7. 1903, d. 2.9. 1970. Systkini Erlu voru Sigrún, f. 22.3. 1936, d. 5.8. 1983, og Jón Gunnar, f. 29.9. 1943, d. 30.10. 2013. Þann 26.8. 1955 giftist Erla Jóhannesi Lárussyni lögmanni, f. 8.8. 1925, d. 3.10. 1970. Syn- ir þeirra eru Jóhannes, f. 5.12. 1965, ráðgjafi hjá Advania, og Lárus Stefán, f. 21.12. 1966, tæknimaður hjá Digiplex. Börn Jóhannesar eru Hákon, f. 28.9. 1993, og Freyja stjúp- dóttir, f. 30.11. 1988. Börn Lárusar eru Sveinn Óttar, f. 3.1. 1988, Birta Rós, f. 18.2. 1998, Jóhannes, f. 23.11. 2014, og Stefán, f. 18.9. 2019. Erla giftist síðari manni sínum, Ótt- ari Þorgilssyni bankamanni, 17.11. 1974, f. 30.3. 1925, d. 22.4. 2008. Erla ólst upp á Laug- arnesveginum frá 6 ára aldri við gott atlæti. Eftir að hafa lokið gagnfræðaprófi frá Laugarnesskóla innritaðist hún í Verslunarskóla Íslands þar sem hún útskrifaðist með verslunarpróf. Eftir útskrift starfaði hún í mennta- málaráðuneytinu og síðar í ut- anríkisráðuneytinu sem ritari utanríkisráherra. Seinna á lífsleiðinni kenndi Erla eldri borgurum í Hafnarbúðum hannyrðir. Útför hennar verður frá Laugarneskirkju í dag, 25. maí 2021, kl. 13. Við Hofteig í Reykjavík bjó Erla móðursystir mín í svo gott sem heilan mannsaldur. Hún var ákveðin í því að flytja aldrei út úr því húsi. Erla var viljasterk og kom gjarnan sínu fram, eins og til dæmis þessu með Hofteig- inn. Í garðinum hjá henni uxu risavaxnir rósarunnar og rabar- bari frá Setbergi, sem hvort tveggja þreifst með eindæmum vel, því Erla hafði tröllatrú á hrossataði sem áburði. Það var enginn svikinn af sandkökunni og heimabakaða brauðinu hennar Erlu. Einnig hafði kaffið alveg sérstakan keim enda hellt upp á gamaldags kaffikönnu með saumuðum poka. Svona var þetta hjá henni Erlu alveg frá því að ég man eftir mér fyrst. Erla var fremur lágvaxin, en þó litu svo margir upp til hennar. Það var roskinn bóndi í Þverárhlíð sem benti mér nýlega á það augljósa; hversu mikil reisn væri yfir henni Erlu. Hannes afi minn, faðir Erlu, flutti ungur úr Reykholtsdalnum og tók með sér „Sveitina í sál- inni“. Þannig ólst Erla upp í Reykjavík en tengslin við ætt- ingjana í Borgarfirði voru sterk. Sérstaklega á fyrri hluta ævi hennar var mikill samgangur upp í Borgarfjörð. Fyrir nokkr- um árum gerðum við Erla okkur ferð í Þverárréttir og var okkur sannarlega vel tekið. Minnis- stæðast er þó þegar okkur var boðinn kaffisopi hjá Völu frænku í aðstöðu sem komið hafði verið fyrir í hestakerru. Erla kippti sér ekki upp við það enda veit- ingar góðar og félagsskapurinn einnig. Erla tók miklu ástfóstri við Siglufjörð í seinni tíð og hafði á orði að fjörðurinn og fjöllin væru það fegursta sem hún hefði séð. Þetta er mikið hól fyrir Siglu- fjörð því Erla hafði ferðast víða á langri ævi. Hún sótti Þjóð- lagahátíðina nokkrum sinnum og þá var fjölskyldan saman komin í litla húsinu í Bakka. Erla var með samkomulag við Braga bók- sala að taka til hliðar allar bæk- ur sem tengdust sr. Bjarna og Siglufirði. Margar af þessum bókum enduðu svo í bókahorn- inu í Bakka. Þegar kvödd er öldruð frænka sem fylgt hefur manni frá blautu barnsbeini er margs að minnast. Of margs til að setja í stutta minningargrein en nógu margt til að rifja upp um ókomin ár. Það eru nefnilega góðu minning- arnar sem lifa með manni þegar ástvinirnir hverfa á braut. Hannes Þór Bjarnason. Þegar ég lít yfir farinn veg og helstu tímamót í lífi mínu þá var Erla frænka mér við hlið. Hún hélt á mér undir skírn, fermingarveislan var haldin heima hjá henni og fyrsta utan- landsferðin var í boði Erlu. Und- irbúningur brúðkaups míns og athöfnin á eftir var hjá Erlu og fallega silkibrúðarkjólinn minn fékk hún lánaðan hjá Elínu, bestu vinkonu sinni. Undirbún- ingur að fæðingu barna minna var í umsjón Erlu þegar hún nostraði við vöggur þeirra og fatnað. Ég ólst upp við það að móð- urafi minn og amma nutu þess að vera með börnum sínum og barnabörnum og mikilvægi þess að fjölskyldan héldi saman. Erla tók þetta skrefi lengra en henn- ar heimili var opið öllum enda var hún með eindæmum ætt- rækin og vinmörg. Hún veitti mörgum skjól og stuðning óbeð- in og taldi sjálfsagt að styðja þá sem stóðu höllum fæti. Haustið 1970 dundi mikil ógæfa yfir fjölskylduna þegar móðurafi minn lést í byrjun september og síðan Jóhannes eiginmaður Erlu, mánuði síðar. Við þetta mikla áfall þar sem Erla stóð uppi ein með tvo unga syni kom í ljós það æðruleysi og sú þrautseigja sem ávallt fylgdi henni. Hún lagði ekki árar í bát heldur hóf eigin rekstur þar sem hún bauð upp á „Bed & break- fast“ á heimili sínu af miklum myndarskap. Sem betur fer fann frænka mín ástina að nýju þegar Óttar Þorgilsson kom inn í líf hennar enda var hún enn ung og falleg kona í blóma lífsins. Þau áttu mörg yndisleg ár en aftur þurfti Erla að sjá á eftir eiginmanni þegar Óttar féll frá fyrir þrettán árum. Erla var alla tíð mikill fag- urkeri og heimili hennar á Hof- teignum var einstaklega fallegt og þar leið henni vel og þar fékk hún að búa, sjálfstæð og stolt, allt fram að síðustu dögum lífs- ins. Í klæðaburði var frænka mín alltaf óaðfinnanleg svo eftir henni var tekið hvert sem hún fór. Erla hafði unun af hönnun og fallegum munum og var ákaflega vel lesin í sögu, bókmenntum og listum. Hún var frábær kennari sem var sérlega lagið að miðla fróðleik ekki síst til unga fólks- ins sem laðaðist að henni og það eru ófá börnin sem hún tók á móti eftir skóla og hjálpaði við heimanám. Yndislegu frændur mínir, Jó- hannes og Lárus, hafa reynst móður sinni stoð og stytta gegn- um lífið og eftir að Lárus flutti til útlanda hefur Jóhannes verið vakinn og sofinn yfir móður sinni á hverjum degi hin síðari ár enda þurfti Erla orðið tölu- verða umönnun. Það er með mikilli hlýju, virðingu og þakklæti sem ég kveð elskulega móðursystur mína, sem alla tíð reyndist mér sem önnur móðir og var börn- um mínum sem besta amma. Ragnhildur Erla Bjarnadóttir. Hún Erla tanta ömmusystir mín var engri lík. Þegar ég tal- aði um Erlu við vinkonur mínar þá talaði ég um drottninguna og það voru orð að sönnu. Heimili Erlu er það glæsileg- asta sem ég hef komið inn á. Konunglegu húsgögnin sem nutu sín svo vel í þessu fallega hannaða húsi létu manni líða eins og maður væri staddur í höll. Á móti manni kom svo Erla umvefjandi en ávallt uppá- klædd eins og drottning. Um leið og inn var komið hófst síð- an „Mannasiðaskólinn“ því Erla ætlaði að sjá til þess að við börnin yrðum okkur ekki til skammar ef einhvern tímann bæri svo við að okkur yrði boðið í veislu með fyrirfólki. Þegar ég var í tíunda bekk grunnskóla ákváðum við tvær vinkonur að halda fyrirlestur um tísku. Við vorum sammála um að við yrðum að taka viðtal við Erlu frænku. Og ekki kom- um við að tómum kofunum. Hún þekkti ekki einungis til allra helstu tískufrömuða heims, heldur hafði sótt tísku- sýningar þeirra í París og London. Þá sýndi hún okkur föt frá mörgum þeirra sem 50 ár- um seinna voru eins og ný, þrátt fyrir að Erla gengi reglu- lega í þeim. En Erla var ekki bara fróð um tísku, hún var full af fróðleik um fyrri tíma sem hún bæði miðlaði okkur börn- unum þegar við vorum í heim- sókn en ekki síður með bréf- unum dásamlegu sem hún sendi okkur öllum, rituð með hennar fallegu rithönd, fagurlega skreytt með alls kyns upplýs- ingum um land og þjóð og fyrri tíma. En það sem mér þótti alltaf vænst um að heyra voru sögurnar af henni og ömmu Sigrúnu þegar þær voru að alast upp. Eftir dásamlega æsku þurftu þær báðar að tak- ast á við mikla erfiðleika sem ungar konur. Og þvílíkar hetjur þær báðar tvær voru á erfiðum tímum og alltaf geisluðu þær af glæsileika og sjarma. Nöfnin þeirra ber ég með miklu stolti. Það má segja að síðustu tvö árin höfum við Erla virkilega smollið saman. Sameiginlegur áhugi okkar á tísku og fötum var uppspretta endalausra um- ræðna og ég er svo heppin að vera lítil og nett eins og hún og ég fékk aldrei nóg af því að máta fötin hennar á meðan hún dásamaði mig hvað ég bæri þau vel og hvað ég væri yndisleg og falleg. Minnisstæðar eru ferð- irnar sem við fórum saman til saumakonunnar hennar þegar þurfti að snikka til blússur og pils. Samband mömmu og Erlu var alla tíð mjög mikið og sterkt og í raun eins og sam- band mæðgna. Þær töluðu sam- an á hverjum degi og stundum nokkrum sinnum á dag. Síðustu mánuði kom hún alltaf í fisk til okkar á mánudagskvöldum sem var ómetanlegur tími fyrir okk- ur öll. Það var í takt við eðli Erlu þegar hún sárþjáð og við litla meðvitund lá á Landspítalanum og kvartaði yfir því að vera með ólakkaðar neglur en hún var alla tíð með vel snyrtar rauðar neglur. Ég mætti því með snyrtitöskuna mína og tók Erlu mína í handsnyrtingu, lakkaði neglurnar hennar rauðar og bar á hana uppháhaldskrem ömmu Sigrúnar. Takk elsku Erla mín fyrir allt sem þú hefur kennt mér, þín minning mun lifa alla tíð í hjarta mínu. Sigrún Erla. Erla Hannesdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.