Morgunblaðið - 25.05.2021, Page 27

Morgunblaðið - 25.05.2021, Page 27
_ Sverrir Ingi Ingason, landsliðs- maður í fótbolta, lék ekki með PAOK er liðið tryggði sér gríska bikarmeist- aratitilinn í fótbolta á laugardag vegna hnémeiðsla. Sverrir fór í uppskurð á dögunum og er óvíst hvenær hann snýr aftur á völlinn. _ Kvennalið Stjörnunnar í hópfim- leikum tryggði sér sjötta bikarmeist- aratitilinn í röð á laugardag. Liðið fékk 57,3 stig en Gerpla varð í öðru sæti með 55,7 stig. Í karlaflokki mættu tvö lið frá Stjörnunni til keppni og var það lið Stjörnunnar 1 sem sigraði, með 59,0 stig. _ Ásmundur Hálfdán Ásmundsson og Jana Lind Ellertsdóttir fögnuðu sigri í Íslandsglímunni í íþróttahúsi Kennaraháskóla Íslands á laug- ardag. Var þetta í 111. skiptið sem keppt var um Grettisbeltið og í 22. sinn sem keppt er um Freyjumenið. _ Robert Lew- andowski skoraði sitt 41. deild- armark í þýsku 1. deildinni í fótbolta er hann gerði fimmta mark Bayern München í 5:2-sigri á Alfreð Finn- bogasyni og félögum í Augsburg í lokaumferð deildarinnar á laugardag. Með markinu bætti Lewandowski 49 ára gamalt met goðsagnarinnar Gerd Müller. _ Óðinn Þór Ríkharðsson var drjúgur í hægra horni danska úrvalsdeild- arliðsins Holstebro í úrslitakeppninni og valinn í úrvalslið deildarinnar eftir leikina átta. Úrvalsliðið var sett saman eftir framlagsstigum leikmanna eftir frammistöðu þeirra í úrslitakeppninni. _ Frjálsíþróttamaðurinn Guðni Valur Guðnason var ekki langt frá því að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíu- leikunum í Tókýó í sumar er hann keppti í kringlukasti í Svíþjóð á laug- ardag. Guðni kastaði lengst 64,85 metra en ólympíulágmarkið er 66 metrar. Íslandsmet Guðna er 69,35 metrar. _ Víkingur varð um helgina bik- armeistari í borðtennis. Lið Víkings var skipað þeim Nevenu Tasic, Ár- sæli Aðalsteins- syni og Magnúsi Jóhanni Hjart- arsyni. _ Handknatt- leiksdeild KA hef- ur gert samning við færeyska línumanninn Pætur Mikkjalsson um að leika með liðinu næstu tvö árin. Pætur er 24 ára fær- eyskur landsliðsmaður og mun hann koma til liðs við KA í sumar frá H71 í heimalandinu. Hjá KA hittir hann nokkra félaga sína úr landsliðinu en Færeyingarnir Allan Norðberg og Nicholas Satchwell spila allir með KA. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 FH – KR 0:2 0:1 Ægir Jarl Jónasson 8. 0:2 Pálmi Rafn Pálmason 53.(v) M Ágúst Eðvald Hlynsson (FH) Þórir Jóhann Helgason (FH) Finnur Tómas Pálmason (KR) Grétar Snær Gunnarsson (KR) Kennie Chopart (KR) Kjartan Henry Finnbogason (KR) Kristinn Jónsson (KR) Ægir Jarl Jónasson (KR) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7. Áhorfendur: 474. STJARNAN – KA 0:1 0:1 Elfar Árni Aðalsteinsson 82. MM Steinþór Már Auðunsson (KA) M Haraldur Björnsson (Stjörnunni) Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjörnunni) Daníel Laxdal (Stjörnunni) Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni) Brynjar Ingi Bjarnason (KA) Dusan Brkovic (KA) Andri Fannar Stefánsson (KA) Rodrigo Gomes Mateo (KA) Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8. Áhorfendur: Um 400. ÍA – BREIÐABLIK 2:3 0:1 Gísli Eyjólfsson 42. 1:1 Viktor Jónsson 46. 1:2 Jason Daði Svanþórsson 55. 1:3 Árni Vilhjálmsson 77. 2:3 Steinar Þorsteinsson 88. MM Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) M Viktor Jónsson (ÍA) Arnar Már Guðjónsson (ÍA) Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Damir Muminovic (Breiðabliki) Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðab.) Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7. Áhorfendur: 396. KEFLAVÍK – VALUR 1:2 0:1 Rasmus Christiansen 42. 0:2 Birkir Már Sævarsson 52. 1:2 Joey Gibbs 90. MM Rasmus Christiansen (Val) M Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík) Davíð Snær Jóhannsson (Keflavík) Ástbjörn Þórðarson (Keflavík) Rúnar Þór Sigurgeirsson (Keflavík) Birkir Már Sævarsson (Val) Birkir Heimisson (Val) Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Andri Adolpsson (Val) Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 7. Áhorfendur: 300. FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslandsmeistarar Vals eru komnir með þriggja stiga forskot á toppi Pepsi Max-deildar karla í fótbolta eftir 2:1-sigur á nýliðum Keflavíkur á útivelli í gærkvöldi. Valsmenn eru nú með 16 stig, þremur stigum meira en Víkingur og KA en fyrr- nefnda liðið getur jafnað Valsmenn á stigum með sigri á Fylki í kvöld. Daninn Rasmus Christiansen kom Valsmönnum yfir á 40. mínútu og Birkir Már Sævarsson, félagi hans í Valsvörninni, bætti við marki á 52. mínútu. Joe Gibbs lagaði stöð- una fyrir Keflavík í blálokin en nær komust heimamenn ekki. Valsmenn voru heilt yfir mun sterkari og var sigurinn verðskuldaður, enda ákveðinn gæðamunur á liðunum. Keflavík sýndi hins vegar batamerki á sínum leik og þá sérstaklega í vörninni þar sem liðið hafði fengið á sig fjögur mörk í fjórum leikjum í röð. „Sigur Valsmanna var fyllilega verðskuldaður og í raun var aldrei spurning hvernig færi eftir að þeir skoruðu annað markið. Þeir náðu hins vegar aldrei að brjóta Keflvík- inga algjörlega á bak aftur, sem þeir hefðu gert með þriðja markinu,“ skrifaði Víðir Sigurðsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Rasmus Christiansen skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í níu ár. Síðasta markið kom gegn Val fyrir ÍBV árið 2012. _ Joey Gibbs skoraði í öðrum leiknum í röð fyrir Keflavík. Hann gerði 22 mörk í 1. deildinni síðasta sumar. _ Almarr Ormarsson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Vals en hann kom inn á sem varamaður í fyrstu fimm leikjunum. Stjarnan enn í botnsætinu KA fór upp í 13 stig með 1:0-sigri á botnliði Stjörnunnar á útivelli. Varamaðurinn Elfar Árni Að- alsteinsson skoraði sigurmarkið á 82. mínútu í jöfnum og spennandi leik. Gott gengi KA hélt því áfram en sumarið hefur verið stórslys hjá Stjörnunni til þessa. Liðið er enn án sigurs og aðeins með tvö stig í botn- sætinu. Þá hefur Stjarnan aðeins skorað tvö mörk í allt sumar. Á sama tíma hefur KA komið á óvart og var sigurinn sá fjórði í sex leikjum. Það var gífurlega sterkt hjá Akureyringum að hrista af sér afar svekkjandi tap gegn Víkingi í síðasta leik með sterkum sigri. Elvar Árni er kominn á fulla ferð aftur eftir erfið meiðsli og byrjaður að skora á ný, en hann lék ekkert með KA síðasta sumar. Arnar Grét- arsson er að gera virkilega góða hluti með KA á meðan uppaldi KA- maðurinn Þorvaldur Örlygsson er í miklu basli með Stjörnuna. Steinþór Már Auðunsson í marki KA átti afar góðan leik, en hann hef- ur leikið vel í sumar. „Steinþór Már lék vel í fyrri hálf- leik en steig enn frekar upp í þeim síðari með nokkrum frábærum vörslum og mikilvægum inn- gripum,“ skrifaði Gunnar Egill Daníelsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Steinþór Már Auðunsson, markvörður KA, hefur þrisvar hald- ið hreinu í þeim sex leikjum sem hann hefur leikið í efstu deild. _ Belginn Sebastiaan Brebels var í fyrsta skipti í byrjunarliði KA. _ Eggert Aron Guðmundsson lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki þeg- ar hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik. Annar sigur Blika í röð Breiðablik vann 3:2-sigur á ÍA á útivelli og fór fyrir vikið upp í tíu stig. Eftir hæga byrjun á mótinu hefur Breiðablik unnið tvo í röð og þrjá af síðustu fjórum. Árni Vilhjálmsson nýtti tækifærið í byrjunarliðinu vel og skoraði þriðja mark Breiðabliks, en hann hefur þurft að sitja á bekknum í upphafi móts. Thomas Mikkelsen hefur ver- ið fyrsti kostur í framherjastöðuna hjá Blikum en hann er frá keppni vegna meiðsla. Vandræði Skagamanna eru helst í vörninni og hefur liðið fengið tólf mörk á sig í fyrstu sex leikjunum. Aðeins Keflavík hefur fengið fleiri mörk á sig eða fimmtán. Þrátt fyrir að ÍA hafi skorað tvö mörk og lokatölurnar gefa það til kynna að leikurinn hafi verið spenn- andi voru gestirnir úr Kópavogi sterkari og var sigurinn verðskuld- aður. „Gestirnir úr Kópavogi voru sókn- djarfari og sóttu oft skemmtilega á mörgum mönnum. Skagamenn áttu þó sínar sóknir, snöggir fram og pressuðu vörn Blika oft hraustlega,“ skrifaði Stefán Stefánsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Jason Daði Svanþórsson skor- aði sitt þriðja mark í sjötta leiknum í efstu deild fyrir Breiðablik. _ Viktor Jónsson hjá ÍA og Árni Vilhjálmsson hjá Breiðabliki skor- uðu báðir í öðrum leiknum í röð eftir að hafa leikið fjóra leiki án þess að skora þar á undan. _ Skagamaðurinn Steinar Þor- steinsson og Blikinn Gísli Eyjólfsson skoruðu sín fyrstu mörk í sumar. Valsmenn með þriggja stiga forskot Ljósmynd/Víkurfréttir/Hilmar Keflavík Ingimundur Aron Guðnason sækir að Almari Ormarssyni í gær. - Enn eitt tap Stjörnumanna - Breiðablik að komast á flug Olísdeild karla Selfoss – Haukar .................................. 24:35 Fram – Grótta....................................... 32:20 ÍR – FH ................................................. 25:30 Stjarnan – Þór ...................................... 27:23 ÍBV – Afturelding ................................ 27:27 Valur – KA ............................................ 31:27 Staðan: Haukar 21 18 1 2 631:506 37 FH 21 12 4 5 620:581 28 Stjarnan 21 11 3 7 603:575 25 Valur 21 12 1 8 611:567 25 KA 21 9 6 6 568:552 24 Selfoss 21 11 2 8 550:539 24 ÍBV 21 11 2 8 613:587 24 Afturelding 21 10 3 8 564:568 23 Fram 21 9 2 10 560:545 20 Grótta 21 5 4 12 533:568 14 Þór Ak. 21 4 0 17 469:582 8 ÍR 21 0 0 21 495:647 0 Úrslitakeppni kvenna Undanúrslit, fyrstu leikir: KA/Þór – ÍBV ....................................... 26:27 Fram – Valur ........................................ 22:28 Umspil karla Undanúrslit, annar leikur: Kría – Fjölnir ........................................ 21:34 _ Liðin mætast í oddaleik í kvöld. Hörður – Víkingur................................ 31:30 _ Liðin mætast í oddaleik í kvöld. Umspil kvenna Fyrsti úrslitaleikur: HK – Grótta .......................................... 28:18 Spánn Ademar León – Barcelona ................. 27:34 - Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir Barcelona sem er þegar orðið meistari. Þýskaland Lemgo – Kiel ........................................ 25:30 - Bjarki Már Elísson skoraði 9 mörk fyrir Lemgo. Evrópudeild karla Undanúrslit: Magdeburg – Wisla Plock .................. 30:29 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson er meiddur. RN Löwen – Füchse Berlín ................ 32:35 - Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark fyrir Löwen. Úrslitaleikur: Magdeburg – Füchse Berlín............... 28:25 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk fyrir Magdeburg Danmörk Undanúrslit, fyrri leikir: GOG – Aalborg .................................... 28:30 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 4 skot í marki GOG. - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Holstebro – Bjerringbro/Silkeborg.. 27:27 - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 3 mörk fyrir Tvis Holstebro. Sviss Þriðji úrslitaleikur: Bruhl – Zug .......................................... 29:33 - Harpa Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Zug sem er svissneskur meistari. E(;R&:=/D Úrslitakeppni karla 8-liða úrslit þriðji leikur: Stjarnan – Grindavík ................... 85:69 (2:1) Keflavík – Tindastóll ................... 87:83 (3:0) Þór Þ. – Þór Ak ........................ 109:104 (2:1) Valur – KR................................ 103:115 (1:2) Umspil karla Undanúrslit, þriðji leikur: Vestri – Skallagrímur................ 101:88 (3:0) Hamar – Selfoss ........................... 85:74 (2:1) Umspil kvenna Undanúrslit, annar leikur: Ármann – Njarðvík...................... 61:82 (0:2) Grindavík – ÍR ............................. 89:66 (2:0) Spánn Valencia – Fuenlabrada ..................... 96:76 - Martin Hermannsson skoraði 14 stig, tók 3 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á 19 mínútum með Valencia. Murcia – Zaragoza .............................. 91:68 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 8 stig og tók 3 fráköst á 15 mínútum með Zaragoza. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Víkingsv.: Víkingur R. – Fylkir........... 19.15 Meistaravellir: KR – HK ..................... 19.15 Domusnova-völlur: Leiknir R. – FH .. 19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR 8-liða úrslit karla, fjórði leikur: HS Orkuhöll: Grindavík – Stjarnan.... 20.15 Umspil kvenna, undanúrslit, þriðji leikur: Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Ármann 19.15 TM-hellirinn: ÍR – Grindavík.............. 19.15 HANDKNATTLEIKUR Umspil kvenna, annar úrslitaleikur: Hertz-höllin: Grótta – HK ................... 19.30 Umspil karla, undanúrslit, oddaleikur: Víkin: Víkingur – Hörður .................... 19:30 Dalhús: Fjölnir – Kría.......................... 19:30 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.