Morgunblaðið - 25.05.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 25.05.2021, Síða 32
Tónlistarkonan Hera Hjartardóttir heldur tónleika í sal Norræna hússins á fimmtudag kl. 21, en tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröð Norræna hússins sem þá hefur göngu sína. Hera, sem hefur gert það gott bæði hérlendis og erlendis, sendi síðast frá sér plötu í fyrra sem hlaut góðar viðtökur. Tónleikarnir á fimmtudag eru síðustu tónleikar Heru á Íslandi í bili þar sem hún er á leið í tónleikaferðalag til Nýja-Sjálands. Á efnisskrá tónleikanna eru bæði gömul og ný lög eftir Heru. Hera leikur í Norræna húsinu ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 145. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Þrír leikir voru á dagskrá á Íslandsmóti karla í knatt- spyrnu í gærkvöldi. Íslandsmeistarar Vals sóttu sigur til nýliða Keflavíkur og Breiðablik vann sigur á Skag- anum í fjörugum leik. Þá lagði KA lánlausa Stjörnu- menn að velli en Garðbæingar eru á botni deild- arinnar eftir sex umferðir og hafa enn ekki unnið deildarleik. »27 Valur með þriggja stiga forystu ÍÞRÓTTIR MENNING Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbær Í lista- og handverksbúðinni Duus Handverk er að finna fjölbreytt handverk eftir handverks- og lista- fólk á Suðurnesjum sem meðal ann- ars er að skapa sér vinnu á tímum mikils atvinnuleysis og óvissu í at- vinnumálum. Alls 30 lista- og hand- verksmenn selja þar hönnun sína og er fjölbreytt úrval aðalsmerki búðarinnar. „Ég hef haft það að leiðarljósi að taka inn aðila sem eru að gera eitthvað nýtt. Þannig skap- ast þessi fjölbreytileiki,“ segir Gerður Sigurðardóttir, forsvars- maður Duus Handverks. Handverks- og listafólk á Suð- urnesjum hefur lengi verið iðið. Til marks um það á lista- og hand- verksbúðin hartnær 30 ára sam- fellda sögu og þótt fólk hafi komið og farið hafa sumir verið lengi með vörur í búðinni, eins og Steinunn Guðnadóttir sem selur leðurvörur. Saga búðarinnar hófst á heimili Hafdísar Hill í Stapakoti í Innri- Njarðvík árið 2003 þar sem 15 listamenn seldu verk sín. Þegar Hafdís fluttist búferlum til Dan- merkur árið 2005 var búðin, eða sölugalleríið eins og það kallaðist þá, flutt í eitt af elstu húsum bæj- arins, Svarta pakkhúsið þar sem búðin hefur lengst af verið, eða þar til fyrir tveimur árum þegar hún var flutt í húsnæði í Grófinni og fékk jafnframt nafnið Duus Hand- verk. Handverks- og listafólkið sem selur vörur sínar í Duus Handverki skiptist á að taka vaktir í versl- uninni sem er opin alla daga vik- unnar jafnframt því að deila rekstr- arkostnaði. Margir að skapa sér vinnu á óvissutímum Þegar Morgunblaðið leit inn stóð Gerður Sigurðardóttir vaktina í búðinni en hún er formaður og gjaldkeri Duus Handverks. „Þetta er miklu bjartara og hentugra hús- næði en við erum dálítið út úr hér og þurfum að hafa fyrir því að láta fólk vita af okkur,“ segir Gerður. Vöruúrval búðarinnar er hreint ótrúlegt og margt hefur breyst. Gerður segir skýringuna nýjar áherslur og breytingar á versl- unarrýminu ásamt þeirri staðreynd að það séu margir að skapa sér vinnu og hafa eitthvað við að vera á tímum Covid og óvissu í atvinnu- málum á Suðurnesjum. „Það er svo sem allur gangur á því í hvaða aðstöðu fólk er, sumir eru atvinnulausir, sumir eru á ör- orku og aðrir eru að fá útrás fyrir sköpunarþörf sína. Sumir hérna eru sprenglærðir og vilja koma list sinni á framfæri. Við vorum að taka inn tvo nýja söluaðila og það er mjög ánægjulegt.“ Mikil spurn eftir lopapeysum Gerður segir vöruúrvalið helgast af því að handverks- og listafólk sé valið inn í búðina með þeim hætti að ekki sé tekinn inn aðili með sams konar vöru og sé fyrir. Hún telur ekki ósennilegt að þar fáist ódýrustu lopapeysurnar á landinu, sem sannarlega eru „Made in Ice- land“. Gerður segir pláss fyrir fleiri lopapeysuprjónara, því spurn eftir peysum sé mikil. „Við finnum að sala er að aukast núna mánuð fyrir mánuð en þetta hefur verið erfitt hjá okkur eins og hjá flestum öðr- um í samfélaginu á þessum veiru- tímum. Við höfum þurft að loka vegna samgöngutakmarkana en er- um bjartsýn á komandi sumar,“ segir Gerður og bætir við að hóp- um bjóðist að koma í lista- og hand- verksbúðina utan afgreiðslutíma. - Er hægt að segja að einhverjar vörur séu vinsælli en aðrar? „Smávörurnar eru oft vinsælar hjá erlendu ferðamönnunum, þær eru auðveldastar í farangur en hér er fjölbreytt gjafavara fyrir alla og fyrir fólk á öllum aldri,“ segir Gerð- ur og sýnir fréttaritara m.a. spilið Myllu sem gert er með nýstár- legum hætti með tveimur teg- undum af máluðum steinum. Gæti hentað vel í ferðalögin fram undan. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Verslun Gerður Sigurðardóttir, formaður Duus Handverks, í Grófinni. Fjölbreytt handverk að- alsmerki Duus Handverks - Íslenskar lopapeysur og smávörur vinsælar hjá gestum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.