Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Side 18
B
andaríski gesturinn horfði fyrst á
snæviþakinn bergvegginn fyrir
framan sig og síðan í augun á gest-
gjafa sínum, Benedikt Eyjólfssyni,
forstjóra Bílabúðar Benna. „Þú hef-
ur blekkt okkur; það er útilokað að nokkur jeppi
komist þarna upp!“ fullyrti hún vonsvikin enda
kostaði fyrirtæki hennar, bandaríski spilfram-
leiðandinn Warn, svaðilförina. Benedikt stapp-
aði stálinu í þá bandarísku og fullvissaði hana
um að þetta væri víst vinnandi vegur.
– Varstu sannfærður um það sjálfur?
„Nei!“ svarar hann nú þrjátíu árum síðar.
Skellihlæjandi.
Ekki kom þó til greina að gefast upp og renna
af hólmi. Hvannadalshnjúkur, hæsti tindur Ís-
lands, var þarna til að verða sigraður af harð-
snúnustu jeppamönnum Íslands. Og hananú!
„Þetta er með stærri augnablikum í mínu lífi;
að koma að Hvannadalshnjúk í þessu líka
dásamlega veðri,“ segir Benedikt. Og mann-
skapnum héldu engin bönd. „Við fórum allir, tólf
jeppar, að spóla upp hlíðina, eins langt og við
mögulega komumst. Þýskur blaðamaður í hópn-
um, sem kallaði ekki allt ömmu sína, var gap-
andi yfir þessum aðferðum og þegar hann kom
aftur heim og settist við tölvuna rötuðu þessi
orð meðal annars á blað: „Ég hef aldrei á ævinni
séð önnur eins fífl!““
En upp fóru þeir á endanum með einn jeppa
og í fyrsta sinn stóð bíll á tindi Hvannadals-
hnjúks. „Þegar frostið fór niður í 25 gráður
breyttust þessir menn í berserki,“ skrifaði sá
þýski.
„Það er óhætt að kalla þetta jeppaleiðangur
Íslandssögunnar. Ekkert þessu líkt hafði áður
verið gert og ekkert þessu líkt verður gert aft-
ur. Því get ég eiginlega lofað,“ segir Benedikt.
„Það er brjálæði að hafa látið sér detta í hug að
fara í jeppaleiðangur á Hvanndalshnjúk; hvað
þá að reyna það og komast alla leið á toppinn.“
Óttuðust að aðrir yrðu á undan
Hugmyndin kom upp um það bil hálfu ári
áður en lagt var í’ann hjá fámennum hópi sem
hélt henni lengi vel aðeins fyrir sig. „Ætli við
höfum ekki verið sex sem vissum af þessum
áformum og biðin var ekki auðveld enda
vorum við skíthræddir um að einhverjir
aðrir fengju þessa sömu hugmynd og yrðu á
undan okkur,“ segir Benedikt sposkur á svip.
Öðrum leiðangursmönnum var tilkynnt hvert
þeir væru að fara morguninn sem lagt var af
stað. Einn af þeim var Þorgrímur St. Árnason.
„Ég hélt að við værum að fara með einhverja út-
lendinga á jökul sem við höfðum gert áður,
þannig að það voru í sjálfu sér engin tíðindi,“
rifjar hann upp. „Menn ráku upp stór augu þeg-
ar þeim var tilkynnt að við værum að fara á
Hvannadalshjnúk.“
Í huga Þorgríms stendur upp úr að fjögurra
daga ferð varð að átta daga ferð. Þetta var
sumsé meira en að segja það og veðurguðirnir
ekki endilega að sýna verkefninu tilhlýðilegan
skilning. Þorgrímur efaðist þó aldrei á leiðinni.
„Ég var alltaf bjartsýnn á að við myndum klára
þetta verkefni. Það var mikill vöxtur í jeppa-
mennsku á þessum tíma og við búnir að fara
margoft á jökla. Ný og fullkomin staðsetningar-
tæki höfðu líka rutt sér til rúms og fyrir vikið
gátum við keyrt í verra veðri en áður. Tækni-
byltingin gerði okkur kleift að komast á Hnjúk-
inn,“ segir Þorgrímur sem var á stærsta bílnum
í leiðangrinum, Econoline.
Ómar spriklaði af gleði
Erlend bílatímarit höfðu sýnt jeppaferðum á Ís-
landi áhuga áður og leist að vonum vel á þessi
áform. Ritstjóri og aðstoðarritsstjóri banda-
ríska tímaritsins Four Wheeler voru klárir í
slaginn, auk þess þýska, sem fyrr var nefndur,
og japansks blaðamanns frá tímaritinu 4x4
Magazine. Íslenskir fjölmiðlamenn voru einnig
með í för, ljósmyndararnir Árni Sæberg frá
Morgunblaðinu og Páll Stefánsson, sem þá vann
á Iceland Review, Gunnlaugur Rögnvaldsson,
ljósmyndari og blaðamaður á tækni- og tóm-
stundatímaritinu 3T, og Ómar Ragnarsson
fréttamaður og Þorvarður Björgúlfsson töku-
maður frá Stöð 2.
„Ég gleymi því aldrei hvað Ómar varð glaður
þegar við buðum honum með í þessa ferð á fundi
í höfuðstöðvum Stöðvar 2. Hann lét sig falla aft-
ur í sófann og spriklaði af gleði með fæturna
upp í loftið. Svo fullur eftirvæntingar var hann,“
segir Benedikt.
Hann segir Þorvarð hafa unnið þrekvirki við
að mynda leiðangurinn en eftir á að hyggja
hefði líklega verið skynsamlegra að hafa alla
vega einn ef ekki tvo tökumenn með honum. Í
fjölmörg horn var að líta og aðstæður mjög erf-
iðar í hnédjúpum snjó og yfir tuttugu stiga
frosti.
Tólf jeppar með 29 manns innanborðs lögðu
af stað frá Bílabúð Benna á kosninganótt, 21.
apríl 1991. Breidd var í flotanum, þar var Wil-
lys, Suzuki, Scout, Econoline og nefnið bara
þessa jálka. „Þetta voru bestu bílarnir og bestu
ökumennirnir á þessum tíma; alla vega þótti
okkur það,“ segir Benedikt. Á ýmsu gekk á leið-
inni; þannig fóru tveir bílar niður um ís og sátu
fastir. Býsna vel gekk þó að ná þeim upp. Menn
töldu að þeir hefðu verið að keyra á landi en
voru í reynd á ís sem þakinn var ösku frá Heklu-
gosinu.
Hvergi eins illt og í kjálkunum
Fyrsti viðkomustaður var Grímsvötn, þar sem
hópurinn þurfti að gista í skála um nóttina
vegna veðurs. Ómar Ragnarsson sá um að
stytta mönnum stundir – og fór á kostum. „Eftir
ferðina var mér hvergi eins illt og í kjálkunum;
ég hló svo mikið að Ómari. Maðurinn er þjóðar-
gersemi og íslenska ríkið ætti að sjá sóma sinn í
að hafa hann á að minnsta kosti tvöföldum lista-
mannalaunum,“ segir Benedikt. „Lýsingar Óm-
ars voru kostulegar og útlendingarnir höfðu
augljóslega aldrei kynnst svona manni áður.
Hann var úti um allt á föðurlandinu. Þegar ég
sagði honum á endanum að nú yrðum við að fara
að sofa, Hvannadalshnjúkur biði daginn eftir,
þá var hann snöggur í koju og sofnaði um leið,
þrátt fyrir að hafa staðið einni mínútu áður uppi
á borði og farið með gamanmál. Ég hef aldrei
kynnst öðru eins.“
Hann hlær.
Á hádegi á þriðjudegi var haldið af stað og
keyrt eftir lóran-leiðsögutækjum yfir Vatna-
jökul og komið að Hvannadalshnjúki aðfaranótt
miðvikudags. Þegar komið var á áfangastað var
tjaldbúðum slegið upp og hringur myndaður
með jeppunum til að verjast hugsanlegu óveðri.
Árla morguninn eftir gengu menn í að festa
akkeri uppi á Hnjúknum fyrir spilvírinn sem
draga átti jeppann upp bratta hlíðina. Eins var
notast við svokallaðan júmmara og lá aðalvírinn
440 metra leið niður brekkuna. Þá þurfti að
vaða hnédjúpan snjó til að fara með rafgeyma
upp á fjallið.
Blíðskaparveður á toppnum
Þennan dag komst bifreiðin, sem var af gerðinni
Jeep Comanche, upp bröttustu brekkurnar.
Undir stýri var Jón Einar Eyjólfsson, bróðir
Benedikts. Notað var spil, sem Benedikt stjórn-
aði, og eigið vélarafl bifreiðarinnar. Um nóttina
var hópurinn sendur til að hvíla sig í búðunum
fyrir átök morgundagsins en bræðurnir héldu
áfram fram á nóttina. Daginn eftir komst bíllinn
svo alla leið upp við mikinn fögnuð leiðangurs-
manna. Blíðskaparveður var og farið var með
bíl og allan útbúnað samdægurs niður og tjald-
búðirnar teknar upp.
Þorgrímur segir það hafa verið meiri háttar
mál og mikið ævintýri að spila bílinn upp en
hópurinn hafi unnið sem einn maður við aðgerð-
ina. „Þetta voru nýjar áskoranir fyrir okkur alla
en við vorum aldrei í hættu að fara okkur að
voða. Það voru þvílíkir jálkar þarna með okkur,“
segir hann.
Leiðangursmenn hittust í vikunni til að rifja ævintýraferðina upp. Þorvarður Björgúlfsson, Árni Páll
Árnason, Jón Einar Eyjólfsson, Snorri Ingimarsson, Arngrímur Hermannsson, Þorgrímur St. Árnason,
Gunnar Antonsson, Ómar Ragnarsson, Ástvaldur Guðmundsson, Eiríkur Kolbeinsson, Snorri
Hauksson, Guðbjörn Ingason, Þórður Valdimarsson, Björn Magnússon, Jónas Sigurðsson, Benedikt
Eyjólfsson, Birgir Brynjólfsson, Ægir Bjarnason og Gestur Magnússon. Að baki þeim er eini bíllinn úr
ferðalaginu sem enn er til í óbreyttri mynd, Djákninn á Myrká. Eigandi Birgir „Fjalli“ Brynjólfsson.
Forsíða Morgunblaðsins laugardaginn 27. apríl
1991. Myndina tók Ragnar Axelsson.
Þá breyttust þeir í berserki
Langþráðu takmarki, að koma bifreið upp á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk, var náð fyrir réttum þrjátíu
árum, þegar 29 manna leiðangur á vegum Bílabúðar Benna og spilframleiðandans Warn komst þangað. Á ýmsu
gekk í ferðinni en dagarnir urðu átta en ekki þrír til fjórir vegna óveðurs. Tveir leiðangursmanna, Benedikt
Eyjólfsson og Þorgrímur St. Árnason, líta stoltir um öxl í samtali við Sunnudagsblaðið.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
’
Það er óhætt að kalla þetta
jeppaleiðangur Íslandssög-
unnar. Ekkert þessu líkt hafði
áður verið gert og ekkert þessu
líkt verður gert aftur. Því get ég
eiginlega lofað.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.5. 2021
FJALLAFERÐ