Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Qupperneq 2
Hvernig sæki ég að þér?
Alveg ljómandi. Ég er úti í garði að horfa á fuglana.
Þú rekur Kómedíuleikhúsið, segðu mér
frá því.
Það er atvinnuleikhús sem við höfum rekið hér á Vest-
fjörðum í tvo áratugi. Við höfum aðallega verið að setja upp ein-
leiki en ástæðan er kannski sú að ég er eini atvinnuleikarinn hér
á Vestfjörðum. En nú setjum við upp brúðuleikhúsverkið Bakka-
bræður, sem er verk númer 49 sem við setjum upp. Við erum
mikið að vinna með efni úr vestfirska sagnaarfinum en bregðum
okkur af og til norður eins og núna og gerum verk um þessa
vinsælustu bræður Íslandssögunnar.
Ert þú maðurinn sem stjórnar brúðunum?
Já, ég er bara þjónn brúðanna.
Hvar sýnið þið?
Í Haukadal í Dýrafirði. Við gerðum upp krúttlegt félagsheimili sem
við keyptum hjónin fyrir mörgum árum og breyttum í leikhús. Það býr
enginn í þessum dal og ekki einu sinni ljósastaur þarna.
Eruð þið að sýna í allt sumar?
Já. Það er bara bullandi bjartsýni í gangi. Hingað kemur alltaf fjöldi
manns. Það verður rosalega gaman að koma Bakkabræðrum á svið.
Er þetta fullt starf hjá ykkur hjónunum?
Já, þótt ótrúlegt sé. Enda þurfum við ekkert mikið, bara hafið og fjöllin.
Átti ekki að sýna Bakkabræður fyrir löngu?
Jú, þetta hefur verið langt ferli því við þurftum að bakka með Bakkabræður
vegna kórónuveirunnar. En nú mun það takast! Við höfum aldrei æft sýningu
jafn vel og lengi. Nú komum við Bakkabræðrum úr bakkgír og í fluggír!
ELFAR LOGI HANNESSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.5. 2021
Ég vona að ég æri ekki óstöðugan en ég má til með að höggva í samaknérunn og Ásdís sessunautur minn og vinkona hér á þessum vett-vangi fyrir réttri viku. Ég hef sumsé enn ekki verið bólusettur. Rit-
stjórn Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins er augljóslega ekki í forgangi þegar
kemur að þessu þjóðarátaki. Framan af beið ég sultuslakur meðan mér eldra
fólki, framlínustarfsmönnum og fólki með undirliggjandi sjúkdóma var ekið
undir grenjandi sírenum í Laugardalinn. Hjó að vísu eftir því að hvergi var
minnst á fólk með yfirliggjandi sjúkdóma, eins og exem, sóríasis og annað
slíkt. Hvers eigum við að gjalda?
Síðan fóru símar að klingja allt í
kringum mig; foreldrar mínir fengu
kvaðningu, eiginkona mín og nú er
svo komið að búið er að bólusetja
fjögur af fimm börnum mínum. Svo
því sé til haga haldið þá eru börnin
mín öll yngri en ég, nema mögulega
eitt. Tvö af fjórum tengdabörnum
hafa líka farið undir nálina og það
þriðja verið margboðað enda þótt
því sé ekki ráðlagt að þiggja spraut-
una að svo stöddu. Bommsíbomm,
þið skiljið. Fjórða tengdabarnið tók
slaginn við KÓVEIS (e. COVID) og
fer því aftast í röðina, jafnvel aftur
fyrir mig. Nú bíð ég bara eftir að barnabörnin fái boð. Jafnvel hundurinn.
Svo ég sé nú alveg heiðarlegur þá hef ég fengið eina kvaðningu í bólusetn-
ingu; var ræstur út sem varamaður, eins og hálf karlþjóðin, í upphafi þessa
mánaðar, þegar einhverjir byrjunarliðsmenn skrópuðu í AstraZeneca. Það
boð kom þó ekki með sms-skilaboðum, eins og hjá öðrum. Ég er eini mað-
urinn sem ég veit um sem ekki hefur fengið boð í bólusetningu með sms-
skilaboðum. Ég og svili minn í Hafnarfirði. Ég veit að við þykjum báðir frek-
ar sérkennilegir menn en það er svíngróft, eins og unga fólkið orðar það, að
nota það gegn okkur í þessu sambandi.
Þegar allir og afi þeirra voru búnir að fá boð þennan dag benti velgjörðar-
fólk mér góðfúslega á að fara inn á önhvurja gátt í netheimum sem heitir
heilsuvera.is. Skilaboðin gætu verið þar. Og, jú, jú, mikil ósköp, þar lágu þau
– í blóði sínu. Mér hafði sumsé verið frjálst að mæta einhverjum átta klukku-
stundum áður. Í stuttermabol. Verst að ég hafði aldrei á ævinni heyrt um
heilsuveru.is. Nú ryðst ég þangað inn oft á dag en nei, ekkert er að frétta.
Svo við uppfærum pistilinn frá seinustu helgi þá fékk Ásdís kvaðningu í
vikunni og situr hér alsæl og býsna roggin við hliðina á mér, bólusett til hálfs.
Var einhver að tala um bólusetningaröfund?!
Óbólusettur og
öfundsjúkur
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Ég er eini maðurinn
sem ég veit um sem
ekki hefur fengið boð í
bólusetningu með sms-
skilaboðum. Ég og svili
minn í Hafnarfirði.
Linda Ósk Valdimarsdóttir
Það verður öðruvísi, en gott.
Auðveldara að starfa án hennar.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
líst þér á að
losna við
grímuna?
Povilas Traskevicius
Já, ég er nokkuð feginn. Kominn
tími til.
Dilja Örvarsdóttir
Mjög vel. Þetta er falskt öryggi.
Julios Freysson
Já, mjög svo.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Bakkabræður er brúðuleikhússýning um þá Gísla, Eirík og Helga sem sýnd verður í
Haukadal í Dýrafirði í allt sumar. Leikari og þjónn brúðanna er Elfar Logi Hannesson, sem
einnig er höfundur verksins ásamt Sigurþóri A. Heimissyni sem jafnframt leikstýrir. Lög
Diddúar hljóma við tónlist sem Björn Thoroddsen gítarleikari samdi og flytur. Marsibil G.
Kristjánsdóttir hannaði brúður og leikmynd. Frumsýnt var 22. maí. Miðar fást á tix.is.
Vinsælustu bræð-
ur sögunnar
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS
ÚRVALSFÓLK 60+
SKEMMTU ÞÉR
MEÐ HEIÐARI
Á BENDIRORM