Fréttablaðið - 19.10.2021, Side 4
Það hefur verið búinn
til mismunur milli
fólks í kjörum og
ákveðin stéttaskipting.
Drífa Snædal, forseti ASÍ
84
82
80
78
76
74
72
70
68
66
64
01/08/2021 01/09/2021 01/10/2021
Þróun olíuverðs í Bandaríkjadölum
TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU
TIL AFHENDINGAR EFTIR ÁRAMÓT
ÖRFÁ EINTÖK EFTIR TIL
AFHENDINGAR Í NÓVEMBER
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
Forseti ASÍ og framkvæmda
stjóri FÍB telja að stjórnvöld
ættu að grípa í taumana
vegna hækkandi eldsneytis
verðs. Ástæða er til að ætla að
mengun í heiminum aukist
vegna þessarar þróunar.
elinhirst@frettabladid.is
VERÐLAG „Við höfum mjög miklar
áhyggjur af dýrtíð sem nú er í upp
siglingu, því hækkun olíuverðs er
svo stórt atriði í lífskjörum fólks,
einkum þeirra sem þurfa að sækja
sér vinnu fjær vegna hærri hús
næðiskostnaðar,“ segir Drífa Snæ
dal, forseti ASÍ.
Verð á olíu og bensíni hefur
hækkað umtalsvert á heimsmark
aði að undanförnu og endurspeglast
það í verðlaginu hér.
„Það hefur verið búinn til mis
munur milli fólks í kjörum og ákveð
in stéttaskipting. Þeir sem hafa keypt
Teslurnar og hafa fengið gríðarlegar
ívilnanir til þess, þeir eru hins vegar
að græða á því núna,“ segir Drífa um
áhrif hækkananna á kjör fólks.
„Það er alveg ljóst að heimurinn
mun menga meira núna eftir að allt
er farið af stað eftir Covid,“ segir
Runólfur Ólafsson, framkvæmda
stjóri FÍB.
„Olíuverð hækkar dag frá degi og
tonnið af bensíni er komið upp í 980
dollara og hefur ekki verið svo hátt
síðan 2014. Mér finnst alveg koma
til greina að stjórnvöld grípi tíma
bundið inn í þetta og lækki opin
ber gjöld á olíu,“ segir Runólfur og
bendir á að hækkun á olíuverði ýti
vísitölunni upp. „Það hefur áhrif á
þá sem minnst hafa umleikis.“
Drífa segir það vera á ábyrgð
stjórnvalda að sjá svo til að breyt
ingar á efnahagskerfi heimsins verði
ekki til þess að rýra kjör þeirra sem
minnst hafi.
„Þannig verði þeim hagnaði sem
við njótum af hækkun hrávöru
Hátt verð á olíu veldur mismunun
Drífa Snæ-
dal, forseti
ASÍ, og Run-
ólfur Ólafsson,
framkvæmda-
stjóri FÍB, hafa
áhyggjur af
áhrifum ört
hækkandi elds-
neytisverðs.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
verðs, til dæmis álsins, loðnunnar,
skilað til almennings, til dæmis með
því að endurreisa vaxtabótakerfið
eða lækka álögur á nauðsynjavörur,“
segir forseti ASÍ.
Aukin eftirspurn eftir olíu hafi
tvenns konar áhrif. Annars vegar
hækkar hún olíuverð og þar með
vöruverð því stór hluti framleiðslu
á vöru og þjónustu í heiminum er
drifinn áfram af orku sem fram
leidd er með jarðefnaeldsneyti. Hins
vegar eykur vaxandi olíunotkun á
CO2 sem er að verða eitt stærsta
vandamál heimsins í dag vegna
loftslagsvandans.
„Það er sorglegt að það skuli vera
svona mikil eftirspurn eftir þessu
„skítuga eldsneyti“ eins og farið er
að kalla kol og olíu, svokölluðu jarð
efnaeldsneyti sem er að valda lofts
lagsbreytingum um alla jörð,“ segir
Runólfur. Það stefni því í að opna
þurfi að nýju kolaorkuver sem búið
hafi verið að loka í Kína vegna lofts
lagsáhrifa.
„Nú þegar kínverska efnahags
vélin er farin í gang á ný þýðir það
gríðarlega eftirspurn eftir orku sem
þýðir að olíuverð rýkur upp,“ segir
framkvæmdastjóri FÍB. n
bth@frettabladid.is
VINNURÉTTUR Uppsögn Ólafar Helgu
Adolfsdóttur, hlaðkonu hjá Icelanda
ir, er siðlaust níðingsverk. Þetta segir
Viðar Þorsteinsson, framkvæmda
stjóri félagsmála hjá Eflingu.
Ólöfu var sagt upp þrátt fyrir að
hún og stéttarfélag hennar teldu
uppsögnina kolólöglega. Ef ling
segir engan vafa leika á að hún hafi
gegnt trúnaðarmennsku og verið
að vinna að réttindum samstarfs
manna þegar henni var sagt upp.
Ef ling boðar lögsókn ef uppsögn
Ólafar verður ekki dregin til baka.
„Þetta er ekki aðeins ólöglegt
heldur líka algjörlega siðlaust níð
ingsverk,“ segir Viðar Þorsteinsson
hjá Eflingu.
Spurður um rökstuðning svo
stórra orða, svarar hann að Ólöf
sé heiðvirð manneskja sem njóti
trausts og stuðnings vinnufélaga.
Efling segir Icelandair hafa unnið siðlaust níðingsverk
Viðar Þorsteins-
son, fram-
kvæmdastjóri
félagsmála hjá
Eflingu
Þegar Icelandair hafi reynt að rétt
læta uppsögn hennar hafi félagið
borið á Ólöfu þungar og tilhæfu
lausar sakir.
Viðar gagnrýnir ekki bara Ice
landair harðlega heldur sé þáttur
Samtaka atvinnulífsins mjög alvar
legur í máli Ólafar.
Samtökin virðist hreinn gerandi
í málinu með fundarsetum og sam
þykki uppsagnarinnar.
Halldór Benjamín Þorbergs
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins (SA) hafi sagt þvert
nei þegar Efling óskaði eftir fundi
vegna málsins.
Fréttablaðið hefur ítrekað reynt
að fá viðbrögð SA vegna málsins en
án árangurs. Þá hefur Icelandair lítið
annað látið hafa eftir sér en að félag
ið harmi að mál Ólafar sé komið í
fjölmiðla. Vafi leiki á að hún hafi
verið trúnaðarmaður þegar henni
var sagt upp. n
Veiðileyfi gefið út
á íslensk heimili
með sölu Mílu
odduraevar@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Ragnar Önundarson,
fyrrverandi bankastjóri, segir
„veiðileyfi“ gefið út á íslensk heim
ili með fyrirhugaðri sölu Símans á
dótturfyrirtækinu Mílu. Fram kom
í kvöldfréttum RÚV í gær að salan
hefði verið rædd í þjóðaröryggis
ráði.
Síminn er kominn langt á veg í
viðræðum við alþjóðlegt stórfyrir
tæki um sölu á dótturfyrirtækinu
Mílu. Katrín Jakobsdóttir forsætis
ráðherra sagði í kvöldfréttum RÚV
að samræður við fyrirtækið undir
forystu samgönguráðherra hefðu
farið fram um hvernig unnt yrði að
tryggja þjóðar og almannaöryggi
óháð eignarhaldi.
Katrín sagðist binda vonir við að
frumvarp sem tryggi stjórnvöldum
getu til að rýna í erlendar fjárfest
ingar sem teljast hafa gildi fyrir
almanna og þjóðaröryggi verði lagt
fram á komandi þingvetri.
Ragnar gerir málið að umtalsefni
á Facebooksíðu sinni og segist heita
á þjóðaröryggisráð að bregðast
strax við og koma í veg fyrir þessi
viðskipti.
Staða Mílu jaðri við að vera í
einokunaraðstöðu. „Slík aðstaða
kallar alltaf á sjálftöku gegnum
verðlagið. Samkeppnislöggjöf okkar
er evrópsk og miðast við stóra, virka
markaði. Hún nær ekki að verja
okkur fyrir sjálftöku þeirra sem
komast í forréttindaaðstöðu.“ n
Ragnar
Önundarson
4 Fréttir 19. október 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ