Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 2
Bankastræti 11 145.000.000 kr. Til sölu Við Bankastræti 11 í Reykjavík er að finna 183 fm íbúð sem er algerlega í hjarta Reykjavíkur. Húsið sjálft var byggt 1915 og hefur verið vel við haldið. Íbúðin er á þriðju hæð með fallegu útsýni yfir miðbæinn. Þriggja metra lofthæð er í íbúðinni og þar er líka að finna stóra glugga. Íbúðin hentar ekki bara sem íbúð heldur væri hægt að nota hana sem skrif- stofuhúsnæði. Á gólfum er parket með fiskibeinamunstri og eru hnausþykkir gólflistar meðfram öllu. Í eldhúsinu er nýleg grá innrétting með fulningahurðum. Nánari upplýsingar á fasteignavef mbl.is. 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 Til Sölu Við Bárugötu í Reykjavík er að finna einstakt einbýlishús sem byggt var 1923. Húsið er 259 fm að stærð. Ef þig dreymir um að eignast hús á besta stað í 101 með aukaíbúð sem hægt er að leigja út þá er þetta eitthvað fyrir þig. Húsið er málað í ferskjulituðum og hvítum að utan, hvítir gluggar og hvít bílskúrshurð. Nánari upplýsingar á fasteignavef mbl.is. Bárugata 16 149.000.000 kr. Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elin- ros@mbl.is Auglýsingar Jón Kristinn Jónsson jonkr@mbl.is, Viðar Ingi Pétursson vip@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Guðfinna Magnúnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.