Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 17
framsetningu. Við leggjum mikið upp úr að stilla út og
skapa þar ákveðið andrúmsloft á meðan í Fellsmúla er
meiri áhersla lögð á einfaldari framsetningu og keyrt á
magni. Viðtökur GH á Hverfisgötu hafa verið frábærar og
viðskiptavinir okkar mjög jákvæðir. Ég persónulega hef
trú á framtíð miðbæjarins enda starfaði ég þar í verslun í
mörg ár á árum áður, fyrir Kringlu og Smáralind. Allar
borgir þurfa að hafa miðbæ með fjölbreyttum verslunum
og þjónustu, við teljum okkur vera að leggja af mörkunum
þar. En við erum ekki hætt og erum að skoða að bæta enn
frekar við verslunarrými Góða hirðisins.“
Hvað með þitt eigið heimili?
„Við keyptum okkur hús á Akranesi fyrir ári og fer ein-
staklega vel um fjölskylduna okkar hér.
Hér er ró, öll þjónusta, stutt í náttúruna og svo göngum
við bara út á golfvöll sem er mikið fjölskyldusport á okkar
heimili.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima?
„Það er klárlega sólstofan. Hún hefur verið minn griða-
staður og vinnustaður á tímum kórónuveirunnar. Þaðan
horfi ég upp á Akrafjallið og kann einstaklega vel við mig á
stað með svo góðu útsýni.“
Hvað með uppáhaldshúsgagnið þitt?
„Það er skemill sem hann afi minn heitinn, Gunnar Guð-
mundsson, tré- og húsgagnasmiður, smíðaði. Skemillinn er
vel yfir 50 ára og hefur því verið í mínu lífi alla tíð. Hann er
enn með upprunalega áklæðinu sem reyndar er nú orðið
lúið og planið er að láta bólstra hann upp á nýtt. Hann
minnir mig á afa minn sem var mikill handverksmaður og
smíðaði mikið af tekkhúsgögnum. Ég á líka mjög fallegan
tekkbakka eftir hann. Þessir hlutir munu fá að vera sam-
ferða mér og færast svo til barnanna minna. Mér finnst
það fallegt.“
Er sjálf mikið fyrir gamla hluti
Kaupir þú mikið af húsgögnum sjálf sem eru antík?
„Það hef ég alltaf gert alveg frá því ég flutti að heiman.
Mér finnst skapast meiri karakter á heimilum þar sem
þetta nýja og gamla fær að
mætast. Það væri líka bara
svo mikil synd að loka á alla
fallegu munina og hand-
bragðið sem orðið hefur til í
gegnum árin. Svo er auð-
veldara að skipta notuðu út
því það eru oftast ódýrari
munir og þá verður okkar
nánasta umhverfi ekki
staðnað.“
Ruth vil hvetja alla lands-
menn til að huga að endurnotum. „Við Íslendingar erum
mikið neyslusamfélag sem er gott og blessað en við verð-
um þá að vera tilbúin til að taka ábyrgð á hringrásar-
hagkerfinu okkar. Gefið hlutum annað líf. Maður hefur séð
ótrúlega fallega hluti umbreytast með smá ást, sand-
pappír, málningu eða spreyi.“
Ruth hvetur fólk
til að huga að
endurnotum.
Þannig gefum við
hlutum annað líf.
„Við Íslendingar er-
ummikið neyslu-
samfélag sem er gott
og blessað en við
verðum þá að vera
tilbúin til að taka
ábyrgð á hringrás-
arhagkerfinu okkar.“
Góði hirðirinn
er með fallega
verslun á
Hverfisgötu.
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 17
EIGUM VON Á NÝBYGGINGUM Í SÖLU
..NÁNAR Á FJARFESTING.IS
Óskar Þór Hilmarsson
Framkvæmdastjóri /
Löggiltur fasteignasali
Sími 822 8750
oskar@fjarfesting.is
Hilmar Óskarsson
Stjórnarformaður
Sími 896 8750
hilmar@fjarfesting.is
Guðjón Sigurjónsson
Rekstrarfr./
Löggiltur fasteignasali
Sími 846 1511
gudjon@fjarfesting.is
Pálmi B. Almarsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 846 1511
gudjon@fjarfesting.is
Smári Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 864 1362
smari@fjarfesting.is
Edda Svavarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími 845 0425
edda@fjarfesting.is
Þorlákur Sigurbjörn
Sigurjónsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 699 4675
thorlakur@fjarfesting.is
Guðmundur H. Valtýsson
Viðskiptafr./
Löggiltur fasteignasali
Sími 865 3022
gudmundur@fjarfesting.is
Berglind Nanna
Kristinsdóttir
Skrifstofustjóri
Sími 562 4250
berglind@fjarfesting.is
Hildur Edda
Gunnarsdóttir
Lögfræðingur/lögg.fs.
Sími 661 0804
hildur@fjarfesting.is
Okkur vantar allar
eignir á söluskrá
Traust og góð þjónusta