Morgunblaðið - 11.06.2021, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
V
algerður Árnadóttir, sérfræðingur
hjá Eflingu stéttarfélagi og formað-
ur Samtaka grænkera á Íslandi, og
Karl Fannar Sævarsson hús-
gagnasmiður búa með fjölskyldunni
sinni í fallegri íbúð í Hlíðunum. Þau eru dug-
legir einstaklingar með margt á sinni könnu
og um þessar mundir fer tími Valgerðar að
stórum hluta í að undirbúa kosningabaráttu
fyrir alþingiskosningar þar sem hún er í
framboði fyrir Pírata í Reykjavíkurkjördæmi
norður.
„Ég er einnig að taka á mig aukin störf
fyrir borgarstjórnarflokk Pírata sem annar
varaborgarfulltrúi. Svo er ég að vona að ég
geti hugað betur að hreyfingu og heilsu eftir
kórónuveiruslenið. Við eigum hund og kött
og hefur hundurinn verið að koma mér út að
hlaupa. Í sumar stefnum við að því að fara í
krefjandi fjallgöngur líka.“
Gott að búa með húsgagnasmiði
Valgerðar og Karl Fannar keyptu íbúðina
sem stendur við Klambratún fyrir rúmu ári.
„Við gerðum íbúðina alla upp. Skiptum um
innréttingar og gólfefni sem voru orðin mjög
lúin. Við brutum einnig niður tvo veggi til að
breyta herbergi aftur í borðstofu. Karl Fann-
ar er húsgagnasmiður að mennt og mjög
handlaginn og svo eru pabbi hans og stjúpi
einnig ansi lunknir svo við gerðum íbúðina að
mestu upp sjálf með hjálp fjölskyldunnar.
Við réðum þó pípara og rafvirkja í þau verk
og vinur okkar sem er smiður hjálpaði okkur
að steypa gólf og veggi. Það tók okkur tæpa
þrjá mánuði að gera íbúðina upp á kór-
ónuveirutímum. Það var þolinmæðisvinna að
þurfa að fara í röð í þrjú mismunandi sóttvarnahólf í sömu bygging-
arvöruverslun og eiga kannski eina til tvær verslanir aðrar eftir. Mér líður
svona eftir á eins og ég hafi verið mestmegnis að skutlast og í röðum á með-
an karlarnir unnu í íbúðinni. Ég sá til þess að þeir væru vel nærðir og var
Valgerður Árnadóttir og Karl Fannar Sævarsson búa í
fallegri íbúð við Klambratún sem þau keyptu fyrir rúmu
ári. Þau gerðu hlutina sjálf og notuðu meðal annars You-
Tube til að finna út hvernig best væri að flísaleggja baðið.
Hún vann sem innkaupastjóri áður og kostuðu endur-
bætur á baðherberginu 800 þúsund krónur.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Það þarf ekki að
kostamikið að
gera upp íbúð
Liturinn í svefnherberginu heitir Copper
Orange frá Nordsjö og fæst í Sérefni.
Við gerðum íbúðina alla
upp. Skiptum um inn-
réttingar og gólfefni sem
voru orðin mjög lúin. Við
brutum einnig niður tvo
veggi til að breyta her-
bergi aftur í borðstofu.
5 SJÁ SÍÐU 10
Eldhúsinnréttingin
er úr Ikea.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sinnepsguli stóll-
inn er frá Norda.
Valgerður Árnadóttir er sérfræðingur hjá
Eflingu stéttarfélagi.