Morgunblaðið - 11.06.2021, Page 12
S
alan er góð en staðan í
raun ekki alveg nægilega góð.
Það hafa sennilega sjaldan
eða aldrei verið færri
eignir í fjölbýli til sölu
og miðað við það sem er í bygg-
ingu eru nokkur ár þar til fram-
boð annar eftirspurn. Staðan er
enn verri ef við tökum einbýlis-
hús. Það eru innan við 90 ein-
býlishús til sölu á öllu höfuðborg-
arsvæðinu og lítið sem ekkert í
byggingu af svoleiðis eignum.
Rétt rúmlega 30% eigna fara á
yfirverði, hin 70% á ásettu eða undir
ásettu,“ segir Hannes, spurður um
stöðuna á fasteignamarkaði þessa
stundina.
Það færist í vöxt að fólk sem á auka pen-
inga vilji fjárfesta í litlum íbúðum til að leigja út.
Ég spyr Hannes hvað hann myndi ráðleggja fólki að
gera sem er í þessum hugleiðingum.
Er tíminn fyrir það núna?
„Það fer í raun allt eftir hversu mikið eigið fé fólk á. Pen-
ingar eru í grunninn hvergi betur geymdir en í fasteignum, ef
spár bankana ganga eftir þá hækkar fasteignaverð um 22-
25% á næstu þremur árum. Þannig að já, ég mæli með kaup-
um á íbúðum til að setja í leigu.“
Þegar Hannes er spurður að því hvaða fasteignir séu að
seljast best þessa dag-
ana segir hann að það
seljist í raun allt vel
núna.
„Það sem fer einna hrað-
ast eru lítil einbýli, par- og
raðhús, það er ekkert til af því.“
Hvað þarf fólk að gera til að
geta selt hratt og örugglega?
„Númer eitt, tvö og þrjú er að verðmeta
rétt, taka góðar myndir og halda opið hús. Kaupendur eru
með mjög gott verðskyn og bakka út ef verðið er of hátt.“
Hvernig á fólk að undirbúa íbúð sína fyrir sölu?
„Fólk á að hafa eins snyrtilegt og kostur er, dytta að því
sem hægt er án þess að fara í stórar framkvæmdir. Lausir
listar, lausir hurðarhúnar, mála veggi sem eru í sterkum lit-
um, létta á ef fólk er með mikið af húsgögnum,“ segir Hann-
es.
Þegar ég spyr Hannes út í helstu mistök fólks þegar kem-
ur að fasteignakaupum nefnir hann að fólk þurfi að skoða
eignina, sem það er að kaupa, vel.
„Fólk á helst að skoða eignina tvisvar, fá yfirlýsingu hús-
félags, fá upplýsingar um allt sem ekki sést, skólp, þak, dren,
rafmagn og allt sem ekki sést við hefðbundna skoðun.“
Hvernig sérðu markaðinn þróast næstu mánuði? „Mark-
aðurinn verður svipaður og hann er næstu 8-18 mánuði, mikil
eftirspurn, minna framboð.“
Hvaða hverfi eru vinsælust núna?
„Í ljósi stöðunnar og hversu lítið er til af eignum þá eru
flestöll hverfi vinsæl, þó eru hverfi eins og Vesturbærinn,
Fossvogur, Sala- og Lindahverfi alltaf gríðarlega vinsæl.“
Hvaða hverfi eiga meira inni?
„Þetta er mjög erfið spurning. Við erum á það litlum mark-
aði að ef fasteignaverð hækkar þá hækka öll hverfi. Þau
hverfi sem eiga mögulega meira inni en önnur gætu verið
Breiðholt, Mosó og Vellirnir Hafnarfirði,“ segir Hannes.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Innan við 90
einbýlishús á
sölu á höfuð-
borgarsvæðinu
Hannes Steindórsson fasteignasali á
Lind fasteignasölu segir að fasteignamark-
aðurinn sé skrýtinn þessa dagana. Það er
skortur á eignum sem gerir það að verkum
að íbúðir og hús fara á yfirverði. Hann spáir
því að fasteignaverð eigi eftir að hækka.
MartaMaría | mm@mbl.is
Hannes segir að allt bendi til
þess að fasteignaverð muni
hækka á næstu árum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hannes segir að allar
íbúðir seljist ef þær
eru rétt verðlagðar.
„Það fer í raun allt eftir hversu mikið eigið
fé fólk á. Peningar eru í grunninn hvergi
betur geymdir en í fasteignum, ef spár
bankanna ganga eftir þá hækkar fasteigna-
verð um 22-25% á næstu þremur árum.
Hannes Stein-
dórsson, löggiltur
fasteignasali hjá
Lind fasteignasölu
og varaformaður
Félags fast-
eignasala.
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021