Morgunblaðið - 11.06.2021, Qupperneq 18
E
igendur keyptu húsið tilbúið undir
tréverk og fengu mig til liðs við sig
snemma árs 2019. Skipulagið í hús-
inu var nokkuð gott svo ekki þurfti
að gera miklar breytingar á því.
Þetta er einbýli á einni hæð í funkís-stíl um-
kringt fallegri náttúru þar sem mosi og hraun
er í forgrunni,“ segir Sæja og þegar hún er
spurð út í óskir húseigendanna kemur í ljós að
þau höfðu skoðanir á efnisvali.
„Þau vildu til dæmis hafa innréttingarnar
dökkar og vildu fá spa-baðherbergi,“ segir
hún.
Hvaða efnivið notaðir þú?
„Innréttingar eru spónlagðar með eik og
bæsaðar dökkar, ýmist með svörtum höldum
eða gripum. Inni á milli eru smáatriði úr mess-
ing. Borðplöturnar eru frá Granítsmiðjunni og
heitir steinninn Kelya. Ég nota líka Arabes-
cato-marmara. Á gólfum eru stórar flísar frá
Agli Árnasyni og hluti herbergja er teppalagð-
ur með teppi frá Stepp. Til að brjóta upp flís-
arnar á böðum notaði ég dökkar marmarafl-
ísar frá Vídd sem ég sneri lóðrétt. Efnis- og
litapalletan smellpassar í umhverfið sem um-
lykur húsið,“ segir Sæja. Þegar ég spyr hana
út í höldurnar sem setja svip sinn á innrétting-
arnar upplýsir hún að þær komi frá Viefe.
Sæja segir að eigendur hússins hafi líka ver-
ið með ákveðnar skoðanir á því hvað ætti að
vera í eldhúsinu.
„Húsráðendur vildu gott vinnupláss, tvo
kæla, vínkæli, tvo ofna, tækjaskáp og barstóla.
Og eiginlega bara það helsta. Þau vildu ekki
marmara eða annan viðkvæman stein í eldhús-
ið og því notaði ég Kelya-steininn þar og
tengdi hann svo aftur inn á böð með því að
setja dökkar marmaraflísar á veggina í stíl,“
segir hún.
Sæja hefur sett saman litakort fyrir Slipp-
félagið. Hún hefur næmt auga fyrir því hvern-
ig fallegast er að blanda saman litum. Þegar ég
spyr hana út í innimálninguna í húsinu kemur í
ljós að það er margt sem kemur á óvart þar.
„Aðallitur hússins að innan er litur úr Slipp-
félaginu sem átti að vera í nýjasta litakortinu
Dökkar innrétt-
ingar, marmari og
spa-baðherbergi
Sæbjörg Guðjónsdóttir innanhússhönnuður er alltaf kölluð Sæja. Stíll-
inn hennar er einstakur enda er hún eftirsótt í sínu starfi. Árið 2019 hann-
aði hún heimili fyrir fólk sem gerði kröfur um að það væru tveir ofnar í eld-
húsinu, tveir kæliskápar og vínkælir. Eins og sést tókst að sameina
fegurð og notagildi á heillandi hátt.
MartaMaría | mm@mbl.is
Vínskápurinn er við endann
á eldhúsinnréttingunni.
Hann er með bronsspeglum
í bakið sem er guðdómlegt!
5 SJÁ SÍÐU 20
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
• Er komið að húsnæðis-
skiptum eða vantar þig
stuðning og ráðgjöf við
erfðaskrá, kaupmála eða
dánarbússkipti?
• Vilt þú fá lögmann þér við
hlið við sölu fasteignar án
þess að greiða aukalega
fyrir þá þjónustu?
• BÚUM VEL veitir nýja
tegund þjónustu.
Kynntu þér málið.
Elín Sigrún, lögmaður
sími 783 8600
elin@buumvel.is
www.buumvel.is
Sérhæfð
lögfræðiþjónusta
við búsetuskipti
með áherslu á 60+
Húsráðendur vildu tvo ofna,
tvöfaldan kæli og vildu dökka
eikarinnréttingu. Sæja notaði
granít á borðplötuna.
Lampi úr Heimili og
Hugmyndum gefur
milda og fallega lýsingu.
Skápurinn í stofunni er hannaður af Sæju en
undir skápnum er marmaraklæddur bekkur.
Bak við þetta allt er sjónvarp sem er falið á
bak við hurðir þegar það er ekki í notkun.
Höldurnar á fata-
skápnum eru mjög
langar og framkalla
ákveðinn karakter.
„Húsráðendur vildu gott vinnupláss, tvo kæla,
vínkæli, tvo ofna, tækjaskáp og barstóla. Og
eiginlega bara það helsta. Þau vildu ekki marm-
ara eða annan viðkvæman stein í eldhúsið.