Morgunblaðið - 12.06.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.06.2021, Qupperneq 4
M ar Studio er markaðsstúdíó og ráðgjafarfyrirtæki sem býr til efni og stefnu fyrir fyrirtæki. Eins hefur vinna mín í sam- vinnu við fyrirtæki á netinu tek- ið drjúgan tíma. Þrátt fyrir það þá reyni ég að passa rosalega vel upp á húðina mína. Ég er að verða þrítugur og húðin að byrja að bera merki þess.“ Húðin er farin að eldast Það sem hefur alltaf verið mikilvægt fyrir Helga er að fara að sofa með hreint hárið. „Hársprey og hárvax fer ekki vel með húðina á koddaverinu. Ég þríf alltaf á mér húðina á kvöldin og nota húð- hreinsivörur frá Clinique Men, Skin-Regimen og La Mer. Eins mikið og mig lang- ar að þrífa húðina á morgn- ana þá er ég ekki morgunhani svo rakakrem er það eina sem fer á húðina þá. Svo finnst mér algjörlega nauðsynlegt að nota sólarvörn daglega. Það er alveg magnað að sjá muninn á húðinni eftir að ég byrjaði að nota sólarvörn. Ég vil þó kalla þetta húðvörn og hvet alla til að nota hana allan ársins hring. Ég drekk einnig alltaf „po- wer boost“ á morgnana hlaðið hampfræjum og grænu gulli og tek mjög mörg vítamín. Húðvítamínin eru Hair Skin and Nails frá Chitoc- are, kollagenið frá Iceherbs og hampfræolía í töfluformi.“ Hvaða krem notarðu daglega? „Ég nota alltaf sólarvörn en mín sólarvörn er frá Clinique Men og heitir Super Energizer SPF 40. Ég nota einnig rakakremin frá Clini- que Men og flakka á milli Moistu- rizing Lotion og Anti Age Moisturizer. Á sparidögum nota ég rakakremið fræga frá La Mer. Á kvöldin ber ég á mig allskonar krem. Ég set alltaf á mig serum á kvöldin. Anti Ag- ing Repair-serumið frá Chitocare er að koma gríðarlega sterkt inn núna. Það er glænýtt og fær fullt hús stiga frá mér. Ég get einnig mælt með BioEffect-seruminu, The Concentrate frá La Mer, Retinol frá SkinCeuticals og Night Detox frá SkinRegimen. Mér finnst æðislegt að nota krem á kvöldin áður en ég leggst á koddann og telja mér trú um að ég vakni yngri.“ Brúnkukrem er einnig fyrir karlmenn Eiga karlar ekki að nota snyrtivörur til jafns við konur? „Jú algjörlega. Mér finnst það að passa upp á húðina sína mjög kynlaust. Að hugsa um húðina er eitt form þess að hugsa um sig og taka tíma fyrir sig og líta vel út. Það er hægt að fá meira sjálfstraust með því að passa vel upp á húðina og á það ekki síst við karlmenn. bara einn en núna fer það eftir skapi. Sauvage og Homme frá Dior eru hvers- dagsilmirnir mínir. Svo er Tom Ford Noir de Noir og Super Cedar frá ByRedo aðeins meira spari. Svo var ég að uppgötva íslenska fyrir- tækið Fischer þegar ég var að skoða mig um í Rammagerðinni. Það eru guðdómlegir ilm- ir einnig!“ Velur sér náttúru- lega liti í klæðnaði Áttu leyndarmál er tengist hárinu sem þú ert til í að deila með okkur? „Að blása hárið er að sjálfsögðu mikið baks. Strákar gleyma því oft. Þess vegna er maður alltaf svona ógeðslega sætur eftir klippingu og svo nær maður aldrei að hafa það jafn fínt eftir á. Kannast ekki allir við það? Svo er það svo ótrúlega mismunandi. Ég til dæmis get ekki verið sætur með hár á hliðunum þó ég mundi reyna það. Svo ég þarf alltaf að hafa það vel snyrt og klippt. Ég hef oftar en einu sinni verið örvæntingarfullur og reynt að raka það sjálfur rétt fyrir teiti eða einhvern viðburð og þá verið eins og kjáni. Að fara í klippingu er einnig form af sjálfs- dekri. Það er alltaf gott fyrir sjálfstraustið.“ Hvað er í snyrtitöskunni þeg- ar þú ferð í ræktina? „Ég læt mér nægja raka- krem og svitalyktareyði. En ég nota Dior Sau- vage.“ Hvernig lýsir þú þínum eigin fata- stíl? „Mér hefur aldr- ei tekist að lýsa honum. Ég er mik- ill tvíburi. Ég vil vera í stórum fötum eða bara vel sniðnum fötum. Ég klæðist náttúrulegum litum. Þú sérð mig sjaldan í sterkum litum. Svo ætli það sé ekki sannleikanum samkvæmt að segja að fatastíllinn minn sé svolítið tví- buralegur.“ Hollt mataræði hefur áhrif á húðina Hefur mataræðið áhrif á útlitið? „Jenna á Húðlæknastöðinni er minn gúru þegar kemur að húð og hlusta ég alltaf á Húð- kastið sem hún stýrir. Hún vill meina að það hafi ekki endilega afgerandi áhrif en þó ein- hver. Ég allavega sturta í mig hampfræolíu, drekk mikið af vatni og borða eins mikið grænt og ég get komið ofan í mig. Ég er svo sem al- veg sammála því að það hafi ekki afgerandi áhrif en ég held að öll óhollusta sýni sig á útlit- inu. Hvort svo sem það er ruslfæði, sígarettur eða alkóhól. Holl fæða gerir okkur gott á öllum sviðum og ég hef það í huga alltaf.“ Helgi mælir með því við alla að huga að húð- inni og þá sér í lagi að huga að húðvörnum. „Ég nota mjög rakagefandi húðvarnir og gef húðinni minni góðan tíma. Það er mjög heil- andi. Við lifum á svo miklum hraða og því er svo mikilvægt að nýta allskonar stundir fyrir okk- ur sjálf og í hluti sem gefa okkur andlegan ávinning.“ Karlmenn orðnirmeðvit- aðir umhúðina Helgi Ómarsson er maður sem vill hafa nóg á sinni könnu. Hann starfar sem ljósmyndari, gerir hlaðvarpsþætti um helgar og síðan er skartgripalína hans í samvinnu við Dagmar Mýrdal, 1104 by Mar, að slá í gegn um þessar mundir. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Helgi notar nokkra ilmi. Sauvage og Homme frá Dior eru hversdagsilm- irnir hans. Tom Ford Noir de Noir og Super Cedar frá ByRedo eru ilmirnir sem hann notar spari. Sauvage-ilmurinn frá Di- or er með keim af mand- arínu og bergamot. Helgi Ómarsson leggur áherslu á að þrífa húðina vel á kvöldin. Dior Homme- ilmurinn er með keim af leðri, við og rós svo eitt- hvað sé nefnt. Helgi notar Clini- que for Men raka- kremin. Helgi notar allskonar krem á kvöldin. Ljósmyndir/Helgi Ómars Í raun tel ég karlmenn spá alveg jafn mikið í krem og konur. Þeir setja á sig brúnkukrem til dæmis og eru orðnir miklu opnari að setja á sig hyljara eða bólufelara. Það finnst mér frá- bært. Ég fæ endalaust mikið af spurningum á Instagramminu mínu hvað á að kaupa eða hvað hægt sé að gera. Að líta vel út að utan er líka að líða vel að innan.“ Hvaða ilm notar þú? „Ég nota nokkra. Ég notaði einu sinni alltaf Að verja húðina fyrir sólinni er mikilvægt allan ársins hring að mati Helga. 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.