Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
H
vernig hefur herratískan breyst
eftir að kórónuveiran bankaði upp
á?
„Það má segja að þegar tíma-
mót verða í þjóðfélaginu eins og
þessi faraldur er þá breytist margt. Fólk fer að
hugsa öðruvísi og þar af leiðandi að klæða sig
öðruvísi. Margir fóru að vinna heima og þar af
leiðandi að klæða sig öðruvísi en á vinnustaðn-
um. Við fundum að margir vildu ekki vera á
náttfötunum á Zoom-fundunum og má segja að
það hafi orðið sprenging í sölu á hversdags-
klæðnaði,“ segir Vilhjálmur.
„Þegar höftin hafa horfið smátt og smátt vilja
karlmenn fá sér eitthvað fallegt þegar farið er
eitthvað út eða breyta um stíl í vinnunni. Það
varð sprenging í sölu á joggingpeysum og bux-
um. Svo hafa strigaskór tekið fram úr spari-
skónum í sölu. Stóru merkin okkar, Hugo Boss,
Polo, Ralph Lauren og Armani, hafa öll verið
með nýjar áherslur og áhugavert að á tímum
Covid voru hettupeysur og peysur með logo það
sem viðskiptavinirnir vildu fá hjá okkur. Karl-
menn vilja vera afslappaðri og „casual“ dags-
daglega en í leiðinni leggja mikinn metnað í
fínu fötin þegar tækifæri gefst,“ segir Pét-
ur.
Pétur og Vilhjálmur eru sammála um
að síðustu misseri hafi orðið sprenging í
sölu á laugardagsfötum eða hversdags-
klæðnaði eins og þeir kalla það. Þeir
segja að fyrir nokkrum árum hafi þeir
aðallega selt skyrtur og bindi en nú sé
margt að breytast.
„Að eiga vandaða strigaskó, flottar
gallabuxur og joggingpeysu er klárlega það
sem við sjáum gríðarlega aukningu í fyrir ut-
an allt sem við erum þekktir fyrir sem er „for-
mal“ klæðnaður,“ segir Vilhjálmur og Pétur ját-
ar að 2020 hafi alls ekki verið stórt söluár þegar
kom að jakkafötum og skyrtum.
„Allar árshátíðir, brúðkaup og veislur voru
blásnar af en um leið og það er að breytast
núna hefur allt farið á fullt og við við-
búnir með gott úrval í verslunum okk-
ar. Okkar sérstaða er auðvitað
gríðarlegt úrval og því auðvitað
ekki annað hægt en að fagna
því hversu vel viðskiptavinir
hafa tekið því sem við erum
að gera í innkaupum með
opnum örmum og við finn-
um að þeir eru ánægðir
með það sem við erum að
sýna þeim,“ segir Pétur.
Við ræðum meira um
heimavinnu og áhrif henn-
ar á fataval og tísku. Þeir
vilja ekki meina að heima-
vinnan hafi haft mikil áhrif og
í raun ekki breytt innkaupum á
fatnaði ef heildin er skoðuð.
„Þegar höftin eru að fara eru
menn þyrstir í að fá sér falleg jakka-
föt eða stakan jakka en til viðbótar
sjáum við að það er orðið svo langt síðan
menn fóru í fínni fötin þannig að það má ætla að
menn þurfi nú að fá sér ný jakkaföt eða jakka.
Svo hafa margir breyst í vaxtarlaginu. Covid-
kílóin ýmist hafa bæst á eða fokið af,“ segir Vil-
hjálmur og hlær.
Hvaða breytingu sjáið þið helst?
„Það er margt sem minnir á tímana eftir
efnahagshrunið. Það er ívið meiri litagleði og
menn þora aðeins að breyta af vananum og vera
frjálslegri í klæðaburði. Það einhvern veginn
virðist
gerast að
menn vilja lyfta upp andanum. Það hafa margir
breytt og bætt heima við og að sjálfsögðu má
ekki gleyma sjálfum sér,“ segir Pétur.
Þegar þeir eru spurðir út í vor- og sumartísk-
una segja þeir að það verði meira um afslapp-
aðri snið á jökkum og skyrtum.
„Axlapúðarnir hafa horfið að mestu og
áherslan er að vera í vel sniðnum fötum en ekki
of þröngu. Ljós-
ari litir í jökkum
og bómullar- og
hörblönduefni gefa
frjálslegt og afslapp-
að yfirbragð. Einnig
sjáum við mikla aukningu
í að menn vilji vandaðar og
flottar gallabuxur þar sem þær
eru viðurkenndur fatnaður nánast
alls staðar,“ segir Vilhjálmur.
Finnst ykkur karlar farnir að leyfa sér
meira þegar kemur að herratísku?
„Já, við finnum að menn kunna að
meta gæðin. Sérsaumurinn í Herra-
garðinum er alltaf að verða vinsælli og
ef þú kaupir þér vandað þá ertu að
kaupa þér flottari vöru, hún endist
betur og þú lítur auðvitað mun betur
út. Fötin skapa nú einu sinni mann-
inn. Svo er líka þessi blanda að eiga
bæði vandaðan hversdagsklæðnað,
gallabuxur og peysu og svo á hinn
bóginn að eiga vandaðan sparifatnað
sem hentar við mismunandi tækifæri,“
segir Vilhjálmur.
Hvað einkennir vel klæddan karl-
mann?
„Í fyrsta lagi þurfa menn að sjá vel um föt-
in sín og bera virðingu fyrir þeim. Að bursta
skóna og strauja skyrtuna er grunnurinn. Svo
er mikilvægt að vera ekki í sömu fötunum tvisv-
ar í röð. Eins og að leggja áherslu á heimilið sitt
og raða því fallega upp þurfa menn að leggja
metnað á sama hátt með fötin sín,“ segir Pétur.
Hver eru mestu tískumistök sem karlar
gera?
„Þau geta verið af mörgum toga. Að hneppa
báðum tölum á tveggja tölu jakka fær okkur til
að iða í skinninu. Karlmenn eiga það einnig til
að vera í of síðum buxum og með of langar erm-
ar. Síðan eruð það litlu hlutirnir. Að vera ekki
með eldgamalt belti og í sokkum sem ekki passa
við fötin. Annars eru íslenskir karlmenn upp til
hópa frekar vel klæddir,“ segir Vilhjálmur.
Ef þið væruð að fara að ganga í hjónaband í
sumar. Í hverju mynduð þið vera?
„Þar erum við ívið íhaldssamir. Maður vill
ekki fela brúðkaupsmyndina eftir nokkur ár
þegar fólk kemur í heimsókn og því eru falleg
klassísk jakkaföt eða smóking við hæfi. Við gift-
um okkur til að mynda báðir í svörtum smók-
ing,“ segir Pétur.
Þegar ég spyr þá fyrir hverju þeir eru veik-
astir þegar kemur að fatnaði játar Pétur að
hann hafi mikið dálæti á þverröndóttum bolum
og því sem hann kallar druslujökkum sem er
auðvitað bara frjálslegur blazer. Á meðan Pétur
vill vera í druslujökkum er Vilhjálmur sér-
stakur áhugmaður um dökkblá jakkaföt og
jakka og falleg ítölsk efni sem hann býður upp á
í sérsaumnum verða oftast fyrir valinu.
Hvað þurfa allir karlar að eiga í fataskápnum
sínum í sumar?
„Fallegan stakan jakka, fínar gallabuxur og
fallega strigaskó, það ætti að dekka sum-
arpartíin og vinnuklæðnaðinn. En menn þurfa
að muna að eiga til skiptanna,“ segir Pétur.
Er fólk að eyða meiri peningum í föt núna en
oft áður?
„Já, okkur finnst mikið af nýjum kúnnum
sem vilja eiga vandaðri og þar með ívið dýrari
vöru en þeir höfðu áður keypt. Það líka er gott
að koma til okkar og fá ráð og leiðbeiningar um
hvernig eigi að klæða sig við hvert tækifæri. því
fylgir auðvitað fjárfesting í sjálfan sig,“ segir
Vilhjálmur.
Í blálokin spyr ég þá um sínar helstu tísku-
fyrirmyndir. Svarið er einfalt, þeir dýrka James
Bond.
„Hann kann að klæða sig við hvert tækifæri
og því er málið einfalt. Strákar horfið á allar
Bond-myndirnar og komið svo í spjall,“ segja
þeir nánast í kór.
Druslujakkar og James Bond
Pétur Ívarsson, verslunarstjóri í
Boss í Kringlunni, og Vilhjálmur
Svan Vilhjálmsson, verslunarstjóri
í Herragarðinum, hafa klætt karla
þessa lands síðustu áratugi. Þeir
búa yfir mikilli reynslu þegar kemur
að sniðum, efnum og herratísku al-
mennt. Pétur játar að hann dýrkar
druslujakka og Vilhjálmur vill helst
alltaf vera glerfínn.
MartaMaría | mm@mbl.is
Vilhjálmur Svan Vilhjálms-
son, verslunarstjóri í
Herragarðinum, og Pétur
Ívarsson, verslunarstjóri í
Boss-búðinni í Kringlunni.
Pierce Brosnan gerði
gott mót sem James
Bond. Hér er hann
ásamt Halle Berry en
myndin var tekin 2002.
Daniel Craig í
hlutverki
James Bond.
Reuters
Reuters
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Að hneppa báðum tölum á tveggja tölu
jakka fær okkur til að iða í skinninu.
Karlmenn eiga það einnig til að vera í of
síðum buxum ogmeð of langar ermar.
Síðan eruð það litlu hlutirnir. Að vera
ekki með eldgamalt belti og í sokkum sem
ekki passa við fötin. Annars eru íslenskir
karlmenn upp til hópa frekar vel klæddir.