Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 8

Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Skóla- og frístundasvið Fjármálasérfræðingur - Skóla- og frístundasvið Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir starf fjármálasérfræðings laust til umsóknar. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í fjármála- og rekstrarþjónustu skóla- og frístundasviðs. Næsti yfirmaður fjármálasérfræðings er fjármálastjóri sviðsins og helstu verkefni tengjast fjármálaþjónustu, reikningsskilum og gerð fjárhagsáætlunar fyrir starfsstaði sviðsins. Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkur- borgar, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita. Jafnframt greiðir sviðið framlög til sjálfstætt starfandi dag- foreldra, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla og hefur eftirlit með starfsemi þeirra. Skóla- og frístundasvið þjónustar yfir 20 þúsund börn og fjölskyldur þeirra. Útgjöld sviðsins eru u.þ.b. 59 milljarðar kr. á ári í tæplega 200 rekstrareiningum. Umsókn fylgi starfsferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri og Guðmundur Guðbjörnsson, deildastjóri í síma 411-1111 Netföng: kristjan.gunnarsson@reykjavik.is / gudmundur.gudbjornsson@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og með 5.júlí 2021. Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is Helstu verkefni og ábyrgð • Umssjón með fjárhagslíkani grunnskóla • Gerð fjárhagsáætlana. • Mánaðarleg uppgjör og frávikagreining. • Fjárhagslegt eftirlit til að tryggja að útgjöld séu innan fjárheimilda. • Greiningarvinna og fjárhagseftirlit. • Fjarhagsupplýsingagjöf til stjórnenda. Hæfniskröfur • Háskólagráða í viðskiptafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Mastersgráða kostur. • Reynsla af vinnu við uppgjör og áætlanagerð æskileg. • Reynsla af lykiltalnagreiningu æskileg. • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg • Þekking á rekstri grunnskóla er kostur. • Góð íslenskukunnátta ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi. • Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð. • Lipurð í samskiptum. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð. ÚTIBÚSSTJÓRI REYÐARFIRÐI JAFNLAUNAVOTTUN 2019–2022 Olíuverzlun Íslands óskar eftir að ráða útibús- og svæðisstjóra á Austurlandi með starfsstöð á Reyðarfirði. Um er að ræða krefjandi stjórnunarstarf sem tengist öflugu þjónustuneti Olís um land allt. Helstu verkefni og ábyrgð: • Daglegur rekstur útibús Olís á Reyðarfirði • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina félagsins á svæðinu frá Djúpavogi til Vopnafjarðar • Stofnun nýrra viðskiptasambanda • Umsjón með lager og dreifingu á vörum Hæfniskröfur: • Reynsla af sölumennsku • Rík þjónustulund • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð samskiptahæfni • Frumkvæði • Gott vald á íslensku • Góð tölvuhæfni og skipulögð vinnubrögð Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Stefán Segatta, ss@olis.is. Vinsamlega sendið umsóknir til mannauðsstjóra Olís, Ragnheiðar Bjarkar, á rbg@olis.is merktar „Útibússtjóri“. Umsóknarfrestur er til 4. júlí 2021. SPENNANDI STARF Á AUSTURLANDI Fyrirtæki ársins 2021

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.