Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 10
VÍSINDI
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021
Á
rið 2016 var hópur fólks í
Bandaríkjunum beðinn um að
skrifa niður hugleiðingar sínar
um dauða sinn og dauðleika.
Annar hópur leysti svipað verk-
efni er varðaði sársauka, ekki dauða. Eftir á
var fólk í fyrri hópnum líklegra til að sýna
neikvætt viðhorf til innflytjenda, vera á móti
byggingu mosku í hverfi þess og styðja Do-
nald Trump sem þá bauð sig fram sem for-
seta gegn Hillary Clinton. Hvað í ósköpunum
getur útskýrt þessar niðurstöður?
Sköpum okkur tilgang
Sheldon Solomon var ungur sálfræðiprófessor
þegar hann fyrir slysni rakst á bók mann-
fræðingsins Ernest Becker, The Denial of
Death, sem hlaut hin virtu Pulitzer-verðlaun í
flokki fræðibóka árið 1974. Í bókinni færir
Becker rök fyrir því að siðmenning manna
hafi verið sett á fót til að vernda fólk gegn
hugsunum um dauðann. Solomon varð heltek-
inn af kenningu Beckers og benti tveimur
öðrum ungum sálfræðingum á verk hans,
þeim Tom Pyszczynski og Jeff Greenberg.
Eftir að hafa legið yfir skrifum Beckers í
nokkurn tíma settu þeir Solomon, Pyszc-
zynski og Greenberg fram kenningu sína
byggða á skrifunum sem síðar hlaut nafnið
óttastjórnunarkenningin (e. terror manage-
ment theory). Í bók sinni, The Worm at the
Core, frá árinu 2015 ræða þeir félagar kenn-
inguna og áralanga rannsóknarvinnu sem
rennir stoðum undir hana.
Í kenningunni gera höfundarnir ráð fyrir
að vegna vitneskju okkar um að við munum
einn daginn deyja höfum við tekið ástfóstri
við sameiginlega menningarlega heimssýn
sem kemur í veg fyrir að við metum líf okkar
sem tilgangslaust. Í gegnum þessa heimssýn
sjáum við okkur sem hluta af stærra sam-
hengi sem, ólíkt okkur, hverfur ekki eftir
dauða okkar. Líf okkar og við sjálf höfum því
tilgang.
Augljósasta dæmið um þetta er hugmyndin
um líf eftir dauðann sem finna má í einhverju
formi í nánast öllum trúarbrögðum. En önnur
samfélagsleg gildi, jafnvel þau sem hafa lítið
sem ekkert að gera með dauðann, sinna þessu
hlutverki einnig. Þar má nefna þjóðarstolt,
kynjahlutverk og þá hugmynd að við lifum
áfram í gegnum afkomendur okkar.
Dauðinn og þjóðernishyggja
Solomon og félagar settu saman vísindagrein
þar sem þeir útlistuðu kenninguna en henni
var hafnað af hverju einasta sálfræðiriti sem
þeir reyndu við. Ástæðan var einföld: þeir
höfðu, ekki frekar en Becker á undan þeim,
engin gögn sem bentu til þess að þeir hefðu
rétt fyrir sér. Kenningin,
sama hversu góð hún var,
var einungis byggð á
innsæi og rökfærslu. Til-
rauna sem prófuðu kenn-
inguna var þörf. Í þeirri
fyrsta voru ákvarðanir
dómara í dómsmálum
skoðaðar. Einn hópur
dómara var minntur á
dauðleika sinn, annar
ekki. Allir dómararnir voru svo beðnir um að
skoða upplýsingar um konu sem var ásökuð
um vændi og kveða upp peningaupphæð sem
konan þyrfti að leggja út til að sleppa við
fangelsisvist þar til farið yrði með mál hennar
fyrir dóm. Þeir sem voru minntir á dauðleika
sinn kváðu upp tryggingu sem var að meðal-
tali níu sinnum hærri en þeir sem voru það
ekki. Þegar dómararnir voru spurðir sögðu
þeir útilokað að hugsanir um dauðann gætu
haft áhrif á dómgreind þeirra.
Hvernig tengist þetta óttastjórnunarkenn-
ingunni? Jú, þegar dómararnir hugleiddu
dauðleika sinn var varnarviðbragð þeirra að
halda fastar í þau samfélagslegu gildi sem
þeir nota til að verja sig gegn hugsunum um
dauðann. Dómararnir litu svo á að vændi
bryti gegn þessum gildum og því voru þeir
reiðubúnari en ella til að refsa konum sem
stunda vændi þegar þeir höfðu hugann við
dauðann.
Til að renna sterkari stoðum undir kenn-
ingu sína gerðu Solomon og félagar aðra til-
raun. Aftur var einn hópur minntur á dauð-
leika sinn, annar ekki. Því næst las fólk grein
um mann sem komið hafði í veg fyrir banka-
rán og var spurt hversu hárri fjárhæð ætti að
verðlauna manninn með. Hópurinn sem var
minntur á dauðann lagði að meðaltali til
þrisvar sinnum hærri upphæð en hinn. Fólk
sem hafði nýlega hugleitt dauðann vildi frek-
ar verðlauna þá sem sýndu af sér hegðun sem
var í samræmi við þeirra samfélagslegu gildi.
Fleiri rannsóknir eru í
samræmi við kenninguna.
Í einni þeirra voru Þjóð-
verjar annaðhvort stöðv-
aðir fyrir framan útfarar-
stofu þar sem stundum
mátti sjá smurð lík í
gluggunum eða 100 metra
frá henni. Þeir sem voru
stöðvaðir fyrir framan út-
fararstofuna vildu frekar
kaupa þýska matvöru, stitja nær öðrum Þjóð-
verjum og fjær tyrkneskum innflytjendum.
Deyjum því við
hræðumst dauðann
Innan heimssýnar okkar eru því ákveðin gildi
sem við og aðrir í kringum okkur meta sem
mikilvæg og við höldum fastar í þessi gildi
þegar við erum minnt á dauðleika okkar. Þar
sem sjálfsmynd okkar er skilgreind út frá því
hversu vel okkur finnst við falla að þeim gild-
um sem við metum mikilvæg liggur beinast
við að við reynum að bólstra sjálfsmyndina
þegar við erum minnt á dauðleikann.
Þessi rökfærsla hefur verið prófuð með
rannsóknum. Ein slík skoðaði akstur ísr-
aelskra hermanna eftir að þeir höfðu verið
minntir á dauðleika sinn. Þeir hermenn sem
byggðu sjálfsmynd sína á því hversu góðir
þeir væru að keyra keyrðu hraðar og af meiri
glannaskap. Önnur rannsókn sýndi að þeir
sem meta hæfileika sína í körfubolta mikils
hitta frekar úr vítaskotum eftir að hafa hugs-
að um dauðleika sinn. Enn ein rannsóknin
sýndi að kafarar sem kafa án súrefniskúts eru
tilbúnir að kafa í verra veðri og halda lengur í
sér andanum hugsi þeir um dauðann áður.
Rannsóknirnar á köfurunum og ísraelsku
hermönnunum sýna að hugsanir um dauðann
leiða ekki endilega til hegðunar sem kemur í
veg fyrir að við deyjum. Hegðunin snýr að því
að koma í veg fyrir að hugsanir um dauðann,
og hræðslan sem þeim fylgir, læðist að.
Stundum aukum við því líkur okkar á því að
deyja til að forða okkur frá þeirri óþægilegu
tilhugsun sem dauðinn er.
Náðarvald undir ógn dauðans
En hvað með Trump? Af hverju er hann vin-
sælli hjá þeim sem hafa verið minntir á dauð-
leika sinn? Í kenningu Solomons og félaga er
gert ráð fyrir að leiðtogar sem búa yfir því
sem félagsfræðingurinn Max Weber kallaði
náðarvald séu vinsælli hjá fólki sem hefur
verið minnt á dauða sinn. Slíkir leiðtogar
leiða hóp fólks sem er svo hrifið af þeim að
það eignar þeim jafnvel yfirnáttúrulega hæfi-
leika.
George W. Bush, þáverandi forseti Banda-
ríkjanna, varð gríðarlega vinsæll meðal landa
sinna eftir hryðjuverkaárásirnar á Tvíbura-
turnana 11. september 2001 og sömu sögu má
segja um Donald Trump, þáverandi forseta-
frambjóðanda, eftir árásirnar í París í nóv-
ember 2015.
Auðvitað eru ekki allir sammála um hversu
stórt hlutverk hræðsla okkar við dauðann
spilar í lífi okkar. Margir mótmæla og segjast
ekki hugsa um dauðleika sinn dags daglega.
Af ofantöldu er þó ljóst að þessi hræðsla hef-
ur mun meiri áhrif en margan grunar.
Trump, þjóðarstolt og hraðakstur
Árásirnar á Tvíburaturnana 11. sept-
ember 2001 var augljós áminning fyr-
ir Bandaríkjamenn um að dauðinn
getur látið á sér kræla án nokkurs
fyrirboða. Í kjölfarið varð George W.
Bush forseti gríðarlega vinsæll.
Reuters
Öll vitum við að við munum einn daginn deyja. Það er einfaldlega ein af staðreyndum lífsins sem flestir hafa
sætt sig við. Af hverju ætli fólk líki þá betur við samlanda sína, verr við útlendinga, keyri hraðar, taki meiri
áhættu, refsi af meiri hörku og verðlauni betur þegar það er minnt á þessa saklausu staðreynd?
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
’
Þeir sem voru stöðv-
aðir fyrir framan út-
fararstofuna vildu frekar
kaupa þýska matvöru,
stitja nær öðrum Þjóð-
verjum og fjær tyrk-
neskum innflytjendum.