Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2021 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,- L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ETOILE model 2623 L 200 cm Leður ct. 25 Verð 549.000,- L 230 cm Leður ct. 25 Verð 599.000,- Þættirnir nefnast „Ljóðmála á almannafæri“ en þar er ljóðskáldum og kvikmyndagerðarmönnum stefnt saman á ljóðahátíð á skjánum. Skáldin koma víða að en þó eru norðlensk skáld áberandi. Meðal annars koma Akureyr- arskáldin Arnar Már Arngrímsson, Eyþór Gylfason, Sesselía Ólafs, Vilhjálmur B. Bragason og Ásgeir H. Ing- ólfsson fram í þáttunum. Að sunnan koma Bergþóra Snæbjörnsdóttir, María Ramos, Loki, Soffía Bjarnadótt- ir, Þórdís Helgadóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir. Þá koma nokkrir gestir að utan við sögu, Tereza Riedlbauc- hová frá Tékklandi, Jonas Gren frá Svíþjóð og Vestur- Íslendingurinn Darrell Jónsson frá Alaska. Ilona Gott- waldova, Eiríkur Örn Norðdahl og Ásgeir H. Ingólfsson sjá um að þýða ljóðin og munu öll birtast á skjánum líka. Kvikmyndagerðarmennirnir sem færa okkur ljóð- skáldin heim í stofu eru Kári Liljendal, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Atli Sigurjónsson, Haukur Valdimar Pálsson, Hallur Örn Árnason og Darrell Jónsson, en sá síðastnefndi sér líka um upptöku í stúdíói í MeetFactory, þar sem Arnheiður Eiríksdóttir og Ásgeir H. Ingólfsson kynna dagskrána en sá síðarnefndi hefur jafnframt um- sjón með þáttunum. Arnheiður Eiríksdóttir og Ásgeir H. Ingólfsson kynna ljóðadagskrána á skjánum. Ljóðmála á almannafæri Ljóðskáld koma fram í glænýrri sjö þátta seríu sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni N4 á þriðjudaginn kemur, 15. júní. „Vivian Robinson heitir ung bandarísk kona, sem hefur víða komið við. Er hún m.a. kvik- myndaleikkona, útvarpsstjarna og hefur einnig komið fram í sjónvarpi. Hún er jafnframt tizku- sýningarstúlka og söngkona.“ Hún var ekki amaleg, kynn- ingin sem konan sem skemmti gestum á Loftleiðum sumarið 1971 fékk í Morgunblaðinu. Í fréttinni kom fram að Vivian Robinson hefði byrjað að syngja sjö ára gömul og hefði komið fyrst fram í sjónvarpi níu ára. „Í dag segist hún hafa verið að, og sagði að það væru fimmtán ár alls, sem hún hefði fengizt við að koma fram opinberlega.“ Robinson söng hér lög úr kvik- myndum, m.a. myndum sem hún hafði leikið í sjálf. „Uppáhalds- lagið hennar er Mrs. Robinson, sem er framarlega víða erlend- is.“ Nema hvað? Robinson tjáði blaðinu að ekki væri tekið út með sældinni að vera leikkona í kvikmyndum og oft væri unnið frá klukkan sex að morgni til klukkan þrjú næstu nótt, og þá væru möguleikar á því að fólk væri orðið hálfvankað. Loks sagði Robinson, að áheyr- endur sínir á Íslandi væru mjög elskulegir, og aldrei hefðu jafn margar konur vottað sér vinskap og hérna. GAMLA FRÉTTIN Kvikmyndadís á Loftleiðum Vivian Robinson söng á Loftleiðum sumarið 1971. Engum sögum fer af ferðum hennar eftir það; sé nafninu slegið upp á Wikipediu kemur aðeins upp karlkyns enskur krikkettleikari, fæddur 1897 og látinn 1979. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Joseph Beuys myndlistarmaður Hallgrímur Helgason rithöfundur og myndlistarmaður Freddy Krueger raðmorðingi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.