Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Page 10
HUGARFAR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
það að markmiði að bæta andlega heilsu
íþróttamanna. Eru þær nokkurs konar mót-
vægi við það sjálfsniðurrif sem einkennir oft
og tíðum íþróttir og margir halda að sé nauð-
synlegt til að ná árangri.
Grét eftir hvern ósigur
Sigrar, töp og aðrar útkomur leiksins eiga,
eins og gefur að skilja, stærstan sess í huga
þeirra sem koma að íþróttum þegar árangur er
metinn. Það kemur þó oft og tíðum niður á
andlegri heilsu íþróttamannanna sem falla
margir í þá gryfju að tengja virði sitt við út-
komuna. Halsted var engin undantekning sem
ungur íþróttamaður.
„Ég man hversu illa mér leið þegar ég tap-
aði. Sem barn grét ég í hvert skipti sem ég tap-
aði. Það hugarfar fylgdi mér fram á fullorðins-
aldur er ég keppti fyrir landsliðið. Það tók
daga eða vikur að jafna sig á tapi, mér leið svo
illa eftir á. Útkomurnar skiptu of miklu máli.“
Halsted segir að þegar hann áttaði sig á því,
með sálfræðingi sínum, að hann þyrfti ekki að
þjást eftir hvert tap, að hann gæti verið
ánægður með sig eða stoltur af sér þrátt fyrir
tap, hafi það skipt sköpum. Hann hafði líklega
heyrt eitthvað þvíumlíkt áður en þarna small
það fyrir honum. Þetta var um það leyti er
hann glímdi við meiðslin fyrir leikana í Lond-
on.
„Kvíðinn og hræðslan við að tapa hvarf því
ef ég tapaði þá leið mér ekki nærri því jafn illa
og áður. Á þessum leikum og leikunum í Ríó
var upplifunin af keppni allt önnur en hún
hafði verið.“
Halsted fylgdi á sínum tíma þeirri meg-
instraumsskoðun að ef manni líði ekki illa eftir
tap þá skipti íþróttin mann ekki nógu miklu
máli. Það myndi svo leiða til þess að maður
legði ekki nægilega mikið á sig til að ná árangri.
„En það var ekki satt því eftir að ég losaði
mig við kvíðann langaði mig alveg jafn mikið
að standa mig vel næst. Ég tók bara ekki kvíð-
ann með mér inn í næstu keppni,“ segir Hals-
ted. Munurinn var sá að drifkrafturinn kom
ekki lengur frá neikvæðum hugsunum heldur
vilja til að gera betur. Vilja sem bæði endist
lengur og hefur ekki neikvæð áhrif á aðra
þætti lífsins.
Íþróttamenn eiga að láta í sér heyra
Fyrir Ólympíuleikana í Ríó skrifaði Halsted
pistil sem birtist í Guardian. Þar talaði hann
um mikilvægi þess að ólympíufarar létu í sér
heyra þegar kæmi að neikvæðum áhrifum leik-
anna á samfélögin þar sem þeir eru haldnir.
„Það kom til vegna konunnar minnar. Hún
hefur engan áhuga á íþróttum og hún sá Ól-
ympíuleikana sem eitthvað slæmt frekar en
gott. Það kom mér algjörlega í opna skjöldu
því ég hafði ekki hugleitt að það væru slæmar
hliðar á Ólympíuleikunum og hvað þá að það
ætti ekki að halda þá því þessar slæmu hliðar
vægju svo mikið. Hún opnaði augu mín fyrir
málefninu og eftir það var ómögulegt að loka
þeim aftur,“ segir Halsted.
„Það er ekki svo að það eigi ekki að halda Ól-
ympíuleikana en það getur ekki verið þannig
að við dönsum á línunni á milli þeirra slæmu
áhrifa sem leikarnir hafa á samfélagið og góðu
áhrifa sem þeir hafa á íþróttamennina og þá
sem líta upp til þeirra,“ segir Halsted.
Hann segir þetta vandamál sjást vel í um-
ræðunni um Ólympíuleikana sem eru á dag-
skrá í Tókýó í sumar. Það sé á mjög gráu
svæði hvort halda eigi leikana enda margir
sem vilji að þeir verði ekki haldnir.
Halsted er á þeirri skoðun að íþróttamenn
eigi almennt að láta í sér heyra um málefni af
þessu tagi og nýta sér áhrif sín til að ýta undir
samfélagslegar breytingar. „Íþróttamenn eins
og LeBron James og Colin Kaepernick hafa
breytt samfélaginu. Í tilfelli Kaepernicks er
ótrúlegt hvernig ákvörðun eins manns um að
krjúpa hefur breytt heilu sviði stjórnmála í
Bandaríkjunum,“ segir Halsted en Kaepernick
var fyrsti leikmaður NFL-deildarinnar til að
krjúpa á hné sér til að mótmæla lögreglu-
ofbeldi í garð svartra árið 2016.
Sú skoðun að íþróttir eigi að vera lausar við
pólitík að öllu leyti er úrelt að mati Halsted.
Þær séu pólitískar hvort sem fólki líkar betur
eða verr. „Það er auk þess það sem samfélagið
þarf. Við þurfum að nýta okkur þá sem geta
haft áhrif á stóran hóp fólks, sérstaklega ungt
fólk,“ segir hann.
Vöntun á mennsku innan íþrótta
Talið berst að Naomi Osaka, næststigahæstu
tenniskonu heims, sem dró sig úr keppni á
opna franska meistaramótinu fyrir skömmu.
Fyrir mót ákvað hún að mæta ekki á blaða-
mannafundi eftir leiki á mótinu og eftir að hafa
verið sektuð af mótstjórnendum ákvað hún að
hætta keppni vegna þess fjaðrafoks sem því
fylgdi. Hún tjáði sig í kjölfarið um glímu sína
við þunglyndi og félagskvíða sem veldur því að
hún á erfitt með að ræða við fjölmiðla.
„Henni finnst ekki að hún sé of góð til að
tala við fjölmiðla,“ segir Halsted. „Hún er að
passa upp á sjálfa sig og er gott dæmi um fyr-
irmynd þegar hún talar opinskátt um andleg
veikindi sín. Það mun hjálpa öðrum að vera að-
eins opnari líka. Það er auðvitað skylda
íþróttamannanna að tala við fjölmiðla og ég
skil það. En að mótstjórnendur skuli refsa
henni fyrir að mæta ekki þeim skyldum þegar
þetta er ástæðan er ótrúlegt. Það sýnir vönt-
unina á mennsku innan íþrótta að sjá ekki ein-
lægnina á bak við gjörðir hennar og vilja
styðja hana. Þetta var frábært tækifæri fyrir
tennis til að sýna íþróttamönnum sem glíma
við andleg vandamál stuðning.“
Halsted bendir á að þetta viðhorf sjáist víða
í íþróttaheiminum. Íþróttamenn eru ekki
studdir til að hugsa um sína andlegu heilsu þó
þeir komi fram af heiðarleika og heilindum.
Halsted er þeirrar skoðunar að framkoma
og gjörðir íþróttamanna utan vallar sé það sem
leiði til samfélagslegra breytinga, ekki
frammistaða á vellinum. „Það er fólk eins og
Naomi, LeBron og Kaepernick sem blæs fólki
í brjóst. Þau sýna hvernig það er að sýna öðr-
um og sjálfum sér samkennd. Ríki styrkja
íþróttir því þær ýta undir samfélagslega þátt-
töku, góða heilsu fólks og samstöðu. En íþrótt-
ir gera það ekki einar og sér, en geta það ef við
ölum upp íþróttamenn eins og þessa. Íþrótta-
menn sem láta gott af sér leiða.“
Halsted bendir á að ekki sé nauðsynlegt að
vera heimsfrægur íþróttamaður til að láta gott
af sér leiða. Innan síns samfélags eða íþrótta-
félags geti íþróttamenn sem ekki hafa náð eins
langt lagt sitt af mörkum. Það geti þeir gert í
gegnum ýmis verkefni eins og að hitta yngri
iðkendur, mæta í skóla eða hafa áhrif á innan-
bæjarstjórnmál.
Er þetta allt og sumt?
Halsted sendir frá sér bók í ágúst, Becoming a
True Athlete, þar sem hann leggur fram heim-
speki sýna fyrir íþróttamanninn. Íþróttir eigi
ekki eingöngu að snúast um að verða sem best-
ur í íþrótt sinni heldur einnig að rækta aðra
eiginleika sem stuðla að því að viðkomandi geti
lifað innihaldsríku lífi meðan á ferlinum stend-
ur og eftir að honum lýkur. Bókin byggir á
ákveðnum dyggðum þessarar heimspeki og
hvaða aðferðum sé hægt að beita til að rækta
þær dyggðir.
Ólíkt aldagömlum bardagaíþróttum fannst
Halsted engin heimspeki vera til staðar fyrir
nútímaíþróttir. Þá er hætt við að áherslan á út-
komur leiksins taki yfir. Íþróttamenn halda að
ef markmiðinu er náð, hvort sem það er ólymp-
íugull eða eitthvað annað, muni það veita þeim
hamingju. En eftir að því er náð spyrja margir
sig: „Er þetta allt og sumt?“ Niðurstaðan er að
margir íþróttamenn glíma við andleg veikindi
eftir að ferlinum lýkur; þunglyndi, kvíða og
jafnvel sjálfsvígshugsanir.
„Það er ekki þess virði að komast á toppinn
ef þú situr eftir með ekkert sjálfsálit. Ef
íþróttir byggja þig ekki upp sem manneskju,
til hvers þá að vera að þessu?“ segir Halsted.
„Það eru margir sem segja að líf atvinnu-
íþróttamanns sé ekki heilbrigt. Og það er rétt
að vissu leyti og erfitt að finna jafnvægi ef þú
hefur æft íþróttir allt þitt líf. En það er svo
margt sem við getum gert til að koma í veg
fyrir þessa niðurstöðu. Hjálpa íþróttamönnum
að skilja hvað er mikilvægt og hvað ekki. Það
er svo margt annað en verðlaunin sem veita
íþróttamönnum ánægju.“
Hvað er þá mikilvægt?
„Þegar vinir mínir úr skylmingum, hvort
sem það eru heimsmeistarar eða bara góðir
skylmingamenn, horfa til baka yfir ferilinn eru
það ekki sigrarnir eða medalíurnar sem þeir
tala um. Það eru samböndin sem þeir mynd-
uðu, reynslan sem þeir öðluðust og hvert þeir
ferðuðust. Það er það sem þeir muna.“
Halsted segir sorglegt hve margir átti sig
ekki á þessu fyrr en of seint og einblíni allan
sinn feril á það sem gefi þeim á endanum ekk-
ert en hunsi það sem gefi þeim ánægju og til-
gang.
Ekki málmurinn sem skiptir máli
Halsted segir að hægt sé að gefa allt sitt í
íþróttina þó svo maður átti sig á því að sig-
urinn sem maður eltir skiptir ekki öllu máli.
Það sé leiðin að markmiðinu sem veitir manni
ánægju og lífsgleði, ekki málmurinn sem
verður eða verður ekki hengdur um háls
manns.
„Það er ekkert mál að komast á toppinn án
þess að sýna samkennd, ábyrgð og vera með-
vitaður um hvað skiptir máli. En það er það
sem við þurfum að bæta við og það þarf ekki að
gera frammistöðuna verri,“ segir Halsted.
En myndu þeir íþróttamenn sem hunsa allt
nema markmiðið um að verða meistarar ná
jafnlangt ef þeir áttuðu sig á því hvað skipti þá
raunverulega máli? Myndu þeir leggja jafn
mikið á sig til að verða bestir?
„Kannski myndu þeir missa eitthvað við það
en er það þess virði að verða svona góður ef þú
hefur ekkert annað?“ segir Halsted og nefnir
Roger Federer sem dæmi um íþróttamann
sem hefur náð lengst allra tenniskarla á meðan
hann hefur ræktað aðra eiginleika sína.
Þarna kemur uppeldi íþróttamanna inn. Ef
við ölum upp íþróttamenn með það í huga að
þeir leggi hart að sér til að ná árangri en á
sama tíma átti sig á því að aðrir þættir lífsins
skipti meira máli getum við fengið það besta úr
báðum heimum.
„Það er einmitt spurningin. Gætu þessir
íþróttamenn verið jafnvel betri ef þeir hefðu
verið aldir upp með því viðhorfi sem ég tala
fyrir? Gæti Tiger Woods hafa orðið enn betri
ef hann hefði fengið annað uppeldi?“
Svo er auðvitað spurning hvort við myndum
sjá fleiri góða íþróttamenn sem ungir heltast
úr lestinni vegna þess viðhorfs til árangurs
sem er ætlast til af þeim. „Ég hef heyrt frá
mörgum innan afreksíþrótta sem tala um að
margir einfaldlega hætti vegna þeirrar hörku
sem oft er beitt við þjálfun. Það er ekki í boði
að sýna veikleika og ef fólk nær ekki fram sínu
besta við þær aðstæður hættir það.“
Halsted segir mikilvægt að íþróttamenn séu
fyrirmyndir utan vallar sem innan. „Það er
stefnan sem við viljum að íþróttir taki. Að við
ölum upp íþróttamenn sem eru fyrirmyndir en
ekki bara frábærir íþróttamenn. Það sem frá-
bær frammistaða blæs fólki í brjóst er hverfult
samanborið við að sjá einhvern eins og Roger
Federer spila frábærlega og vera svo auð-
mjúkur og sýna andstæðingum sínum vænt-
umþykju,“ segir hann.
„Það er mun auðveldara að tengja við ein-
hvern sem sýnir eitthvað sem við getum sett
okkur markmið um að ná. Við verðum aldrei
jafngóð í tennis og Federer en við getum
sett okkur það að markmiði að koma fram
við aðra eins og hann,“ segir Halsted að lok-
um.
„Það sýnir vöntunina á mennsku innan
íþrótta að sjá ekki einlægnina á bak við
gjörðir hennar og vilja styðja hana,“
segir Halsted um mál Naomi Osaka
sem dró sig úr keppni á Opna franska
meistaramótinu í tennis fyrr í sumar.
AFP
’
Það er ekki þess virði að
komast á toppinn ef þú
situr eftir með ekkert sjálfs-
álit. Ef íþróttir byggja þig ekki
upp sem manneskju, til hvers
þá að vera að þessu?