Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Síða 12
KÓRÓNUVEIRAN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
Þ
að er stund milli stríða hjá Ragn-
heiði Ósk Erlendsdóttur þegar
fundum okkar ber saman að
morgni fimmtudags á skrifstofu
hennar í Mjóddinni. Stór vika er
að baki í bólusetningum í Laugardalshöllinni
og enn stærri vika fram undan; raunar sú allra
stærsta frá upphafi, þegar hvorki fleiri né
færri en 35 þúsund skammtar verða gefnir.
Enginn er þó asinn á Ragnheiði Ósk, hún er
þvert á móti yfirveguð og afslöppuð, rétt eins
og hún birtist manni í sjónvarpi eða blöðum.
Það skiptir máli, bæði inn og út á við, að leið-
togar í þjóðarátökum sem þessum hafi skýra
sýn og haldi ró sinni og sönsum enda þótt
verkefnin séu fordæmalaus og ærin.
Ekki er ofsögum sagt að allur þessi faraldur
hafi verið með ólíkindum og Ragnheiður Ósk
er snögg til svars þegar spurt er í upphafi
hvort hún hafi einhvern tíma gert ráð fyrir því
að hún ætti eftir að koma að því að bólusetja
alla þjóðina á einu bretti. „Nei! Mig hefði aldr-
ei órað fyrir því,“ svarar hún hlæjandi.
Það þurfti svo sem ekki að spyrja.
Hefur gengið ótrúlega vel
„En þetta hefur gengið ótrúlega vel,“ heldur
hún áfram, „og þá er ég að tala um allt frá upp-
hafi faraldursins hér á landi fyrir sextán mán-
uðum. Við heilbrigðisstarfsmenn höfum staðið
í ströngu allan þennan tíma og raunar aðeins
lengur, eða frá því að fyrstu fréttir fóru að ber-
ast af kórónuveirunni í byrjun árs 2020. Þá
strax byrjuðum við að bera saman bækur okk-
ar og setja allt í gang. Þegar hætta steðjar að
er mikilvægt að vera viðbúinn“.
– Hefur þessi barátta gengið betur en þú
bjóst við?
„Nei, í raun ekki. Ég hafði alltaf trú á því að
þetta myndi ganga vel. Við búum að mjög öfl-
ugu heilbrigðiskerfi hér á landi og mín stétt,
hjúkrunarfræðingarnir, er búin að standa sig
rosalega vel. Það kemur ekki á óvart. Sama má
segja um margar aðrar stéttir.“
Spurð hvort einhver leið sé að búa sig undir
heimsfaraldur af þessu tagi svarar Ragnheiður
Ósk: „Það eru til áætlanir en auðvitað duga
þær ekki fyrir öllu þegar faraldurinn er af
þessari stærðargráðu. Það sá þetta auðvitað
ekki nokkur maður fyrir enda hafa smit-
sjúkdómar ekki verið efst á baugi í heilsugæsl-
unni undanfarin ár, þar sem mest púður hefur
farið í að eiga við lífsstílssjúkdóma, öldrun og
annað slíkt. Að vísu komu bæði upp mislinga-
og berklafaraldur árið 2019 en það var auðvit-
að ekkert í líkingu við það sem við áttum í
vændum með kórónuveirunni. Allt í einu var
heimsfaraldur í uppsiglingu og við í ofboði að
panta alls konar búnað; hanska, maska, sýna-
tökupinna og annað slíkt, í kapphlaupi við aðr-
ar þjóðir. Hver hefði trúað þessu?“
Svo hófst sýnataka í áður óþekktum stíl,
fyrst á heilsugæslustöðvum en síðan á landa-
mærunum. „Sú vinna hlóð hratt utan á sig en
gekk merkilega vel enda búum við að frábæru
tölvukerfi sem hefur hjálpað okkur mikið. For-
ritarar Origo unnu nótt sem nýtan dag til að
gera sýnatökuna sem auðveldasta fyrir okkur.
Ég leyfi mér að fullyrða að hvergi í heiminum
sé til fullkomnara tölvukerfi fyrir þetta verk-
efni en það sem við erum að vinna með. Forrit-
urunum og Inga Steinari Ingasyni hjá rafræn-
um heilbrigðislausnum hjá Embætti
landlæknis verður seint fullþakkað fyrir sitt
framlag,“ segir Ragnheiður Ósk.Heilsugæslu-
stöðvarnar sprengdu fjöldann fljótt utan af
sér, þá var brugðið á það ráð að skima fólk í
bílum sínum, tjöld voru sett upp og þar fram
eftir götunum. Flest þekkjum við hvernig
þetta gekk fyrir sig. Ragnheiður Ósk segir
heilsugæsluna hafa þurft að hugsa hratt og
hafa hraðar hendur; ný sviðsmynd blasti við á
nánast hverjum degi. Miklu munaði að fá afnot
af Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut, sem er í
eigu fjárfestingarfélagsins Reita, en það stóð
autt eftir að Læknastöðin flutti búferlum í
Urðahvarf í Kópavogi.
Gerðust hústökufólk
„Við gerðumst hústökufólk,“ segir Ragnheiður
Ósk brosandi, „en Reitir eiga heiður skilinn
fyrir sína aðkomu; ég held að við höfum aðeins
þurft að borga hita og rafmagn. Það endur-
speglar vel andann í þjóðfélaginu – allir eru til-
búnir að leggjast á árarnar. Orkuhúsið hentar
mjög vel, það er miðsvæðis og auðvelt að búa
til sýkt og ósýkt svæði, svo dæmi sé tekið. Það
hefur farið vel um okkur þar“.
Þegar hilla fór undir bólusetningar seint á
síðasta ári var fyrsta pælingin sú að hver
heilsugæslustöð sæi um sína skjólstæðinga.
Menn áttuðu sig þó fljótt á því að það myndi
aldrei ganga enda lagt upp með að fólk þyrfti
að bíða í stundarfjórðung eftir nálarstunguna
ef ske kynni að upp kæmu alvarlegar auka-
verkanir eða ofnæmisviðbrögð. Þá kom fram
hugmyndin um að gera bólusetninguna mið-
læga og voru ýmsir möguleikar skoðaðir í því
sambandi, svo sem Orkuhúsið, Egilshöllin í
Grafarvogi og svo Laugardalshöllin sem varð
fyrir valinu.
„Að því vali komu ásamt okkur hjá Heilsu-
gæslunni aðgerðastjórn almannavarna,
slökkviliðið og lögreglan sem eru vön því að
skipuleggja fjölmenna viðburði og hafa staðið
vaktina með okkur allan tímann. Staðsetningin
er að mínu mati mjög vel heppnuð enda gerir
Laugardalshöllin okkur kleift að ná allt að tíu
til fjórtán þúsund skömmtum á dag,“ segir
Ragnheiður Ósk.
Eins og fram hefur komið í fréttum sér fyrir
endann á þessu risavaxna verkefni en búið er
að bólusetja tæplega 90% allra sem til stendur
að bólusetja að minnsta kosti einu sinni, sam-
kvæmt Covid-dagatalinu. Þýðið er þjóðskrá.
„Því verki lauk í þessari viku og frá og með
næstu viku verður nær eingöngu um endur
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir
gerði ekki ráð fyrir því að þurfa að
bólusetja alla þjóðina á einu bretti.
Morgunblaðið/Eggert
Þetta hefur verið okkar stríð
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, er starfsfólki, samstarfs-
aðilum, fjölmiðlum og þjóðinni allri þakklát fyrir framgöngu sína í stærsta bólusetningarverkefni Íslandssögunnar sem gengið
hafi ótrúlega vel. Nú sér fyrir endann á átakinu og vonandi faraldrinum í heild en Ragnheiður Ósk segir að við verðum eigi
að síður að gefa okkur tíma til að láta sárin gróa enda hafi þetta verið ígildi stríðs fyrir þjóð sem ekki grípur til vopna.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
’
Ég hafði alltaf trú á því að
þetta myndi ganga vel. Við
búum að mjög öflugu heilbrigð-
iskerfi hér á landi og mín stétt,
hjúkrunarfræðingarnir, er búin
að standa sig rosalega vel.
5