Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Blaðsíða 14
KÓRÓNUVEIRAN 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021 bólusetningu að ræða. Lokaspretturinn er haf- inn.“ Fram hefur komið að átak var að koma öll- um skömmtum út í vikunni og Ragnheiður Ósk segir það til marks um að markaðurinn sé að verða mettaður. „Fæstir þekkja einhvern sem á eftir að fá sprautu.“ Örfáir hafna bólusetningu Hún segir ákaflega lítið um að Íslendingar hafni bólusetningu. „1-2% hafna ung- barnabólusetningu hér á landi og ætli hlut- fallið varðandi kórónuveiruna sé ekki svipað. Af þeim sem ekki hafa skilað sér eru einhverjir útlendingar sem farnir eru af landi brott.“ Einhverjir hafa rekið áróður gegn bólusetn- ingu, einkum á samfélagsmiðlum, en Ragn- heiður Ósk hefur lítið heyrt frá því fólki per- sónulega. „Það kemur einn og einn neikvæður póstur en langflestir sem hafa samband eru já- kvæðir og þakklátir. Og við erum að tala um einhverja 200 pósta sem berast mér á hverjum einasta degi. Sumir biðjast líka afsökunar á því að hafa samband, þar sem mikið sé hjá mér að gera. Þannig að kurteisi er lykilorðið – gegn- um verkefnið allt.“ – Okkur er stundum lýst sem hálfgerðum þursum en Íslendingar kunna sig þá sumsé þegar virkilega á reynir? „Já, það er óhætt að segja það.“ Hún hlær. „Fólk finnur líka að allir eru að reyna að gera sitt besta og það skiptir alltaf máli. Þríeykið sló tóninn í því sambandi – fékk þjóð- ina strax með sér. Þau hafa gert rosalega vel gegnum allan farald- urinn. Undir miklu álagi. Eins stjórnvöld sem höfðu hugrekki til að treysta fag- mönnunum og styðja með ráðum og dáð við bakið á þeim. Það var mikið gæfuspor en alls ekki sjálfgefið og fróðlegt verður að sjá hvað gerist í kosningunum í haust þegar ríkis- stjórnin leggur verk sín í dóm kjósenda.“ – Hvað stendur upp úr þegar þú horfir um öxl yfir verkefni síðustu mánaða? „Frábært starfsfólk, fyrst og fremst. Sjö til tíu manna teymi hefur borið hitann og þung- ann af skipulagningunni og unnið sem einn maður. Það skiptir öllu máli að vera samstíga í svona verkefnum. Við hefðum ekki getað verið heppnari með verkefnastjóra, hvort sem við erum að tala um blöndun efnanna á Suður- landsbrautinni, bólusetninguna sjálfa í Höll- inni eða skipulagninguna í kring. Við höfum tekið þetta skref fyrir skref og metið stöðuna á hverjum tíma. Heilbrigðiskerfið hefur svo sannarlega sýnt og sannað ágæti sitt í þessum faraldri. Innviðirnir eru frábærir, sveigj- anleikinn mikill og starfsfólkið brettir upp ermar þegar á þarf að halda.“ Þannig hafa til dæmis ófáir lífeyrisþegar og menntað heilbrigðisfólk sem vinnur önnur störf lagst á árarnar með heilsugæslunni. „Stofnanir og einkafyrirtæki hafa verið mjög liðleg að leyfa sínu fólki að leggja okkur tíma- bundið lið. Bakvarðasveitin okkar telur í dag 160 manns og munar um minna. Heilsugæslan hefði aldrei getað þetta ein síns liðs og það hef- ur verið frábært að verða vitni að þessari sam- stöðu. Hvatinn er líka nánast áþreifanlegur – að klára Covid-19.“ Leiðtogi sem hlustar á fólk Sjálf lýsir Ragnheiður Ósk sér sem liðsmanni. „Þótt ég sé að fronta þetta verkefni og sé á ein- hvern hátt sögumaðurinn fer því fjarri að ég sé að stýra öllu og ráði öllu sjálf. Þvert á móti er ég leiðtogi sem hlustar á sitt fólk og segir: Góð hugmynd! Hvað ætli ég hafi sagt það oft á dag undanfarna mánuði? Ég treysti mínu fólki mjög vel. Margrét Héðinsdóttir, verk- efnastjóri hér hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, er gott dæmi um manneskju sem fær frábærar hugmyndir. Allt flæði er inn- byggt í Margréti sem þess utan er algjör jarð- ýta. Ég gæti nefnt marga fleiri. Við aðstæður sem þessar veitir ekki af frjórri og skapandi hugsun og hlutverk leiðtogans er að hvetja sitt lið og tengja það saman.“ Hún viðurkennir að það hafi verið stórt skref að færa sig yfir í Laugardalshöll, ekki síst eftir að sjálfur keppnissalurinn var lagður undir bólusetninguna. Byrjað var í anddyrinu en þegar rafíþróttamótið stóra brast á missti heilsugæslan þá aðstöðu. „Til að byrja með vor- um við aðeins í vafa um hvort salurinn myndi henta undir verkefnið en vorum fljót að átta okkur á því að hann gerir það svo sannarlega. Hljóðvistin er mjög góð í salnum og fólk þarf heldur ekki að færa sig inn í annað rými meðan það bíður eftir að mega fara heim.“ Misgreiðlega hefur gengið fyrir fólk að kom- ast að og þegar álagið hefur verið mest hafa myndast langar raðir sem vekja minningar um stórviðburði í íslenskri tónleikasögu, svo sem heimsókn Led Zeppelin 1970, Guns N’ Roses 2018 og Eds Sheerans 2019. Ragnheiður Ósk hefur ugglaust ekki átt von á því að þurfa að stíga inn í hlutverk Senu Live og slíkra aðila í því sambandi. Hefði einhver tjáð henni sein- asta sumar að hún ætti eftir að stjórna stærsta giggi ársins 2021 í Laugardalnum hefði hún ábyggilega hlegið sig máttlausa. En svona get- ur lífið verið skrýtin skepna. Stressaðist yfir fimm manna röð Spurð um raðirnar segir Ragnheiður Ósk fólk þróa með sér ákveðið þol. „Til að byrja með fylltist ég stressi um leið og ég sá fimm manns í röð fyrir utan; á endanum náði röðin hringinn í kringum Höllina,“ segir hún hlæjandi. „Það hefur þó sem betur fer verið sjaldgæft, eig- inlega bara tveir dagar frá upphafi og engin leiðindi komu upp þessa daga enda allir stað- ráðnir í að láta hlutina ganga upp og keyra þetta áfram. Ég leyfi mér að fullyrða að hver einasti dagur hafi gengið vel. Fólk er þakklátt og fær svo ákveðna stemmingu í kaupbæti. Það átti ekki síst við þegar við vor- um með árgangana; þá var fólk að hittast í röðinni sem ef til vill hafði ekki sést áratugum saman. Úr urðu hinir bestu endurfundir. Við erum mjög þakklát fyrir hvað almenningur hefur tekið þessu vel. Það hefur gert þetta verkefni miklu auðveldara en ella.“ Talandi um stemmingu þá hefur tónlist sett sterkan svip á bólusetninguna; félagar í Sin- fóníuhljómsveit Íslands riðu á vaðið og plötu- snúðar hafa ítrekað þeytt skífum. Oftast nær hafa fagrir tónar fyllt salinn. Ekki er öllum vel við sprautur og fram hefur komið að algengara er að ungt fólk falli í yfirlið í Höllinni en það eldra. Hver ætli skýringin á því sé? „Eldra fólkið hefur upp til hópa séð meira í þessu lífi en það sem yngra er og kippir sér því ekki eins mikið upp við sprautur. Unga fólkið hefur samt staðið sig ljómandi vel og sem bet- ur fer hefur fæstum orðið meint af þessum yfirliðum. Einn fékk að vísu gat á höfuðið í vik- unni, það er alvarlegasta atvikið.“ Ragnheiður Ósk er ekki eini fjölskyldu- meðlimurinn sem hefur komið að skipulagn- ingu bólusetningarinnar en elsti sonur hennar, Agnar Darri Sverrisson, hefur líka lagt sitt af mörkum. „Hann er menntaður kerfisverk- fræðingur frá Bandaríkjunum með áherslu á flugrekstrarstarfsemi. Eðli málsins sam- kvæmt hefur verið lítið að gera í þeim geira undanfarið hálft annað ár þannig að ég spurði hann bara hvort hann væri ekki tilbúinn að koma og hjálpa til. Hann hélt það nú enda ómögulegt að hafa fólk hangandi heima ef það getur lagt eitthvað af mörkum. Agnar Darri setti sig vel inn í kerfið og vann við það til loka maí að hann fór í fæðingarorlof.“ Mágkonan lagði hönd á plóg Þess má líka geta að mágkona Ragnheiðar Óskar, Jórlaug Heimisdóttir, hefur verið verkefnisstjóri bæði á landamærunum í Keflavík og í Höllinni. „Hún er hjúkr- unarfræðingur og var áður hjá Embætti landlæknis. Ég leitaði til hennar síðastliðið vor og spurði hvort hún gæti losað sig og koma í þessa vegferð með mér. Enda mik- ilvægt að hafa fólk sem maður getur treyst sér við hlið. Eins og við þekkjum eru þetta fordæmalausir tímar og maður reynir að nýta sem flesta. Eða eins og sagt er á sjónum: All- ir upp á dekk!“ Sjálf hefur Ragnheiður Ósk verið mikið á staðnum. „Við sem berum ábyrgðina á verk- efninu, sem eru ég og Sigríður Dóra Magn- úsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, höfum reynt að vera sýnilegar og taka þátt með okkar fólki enda þótt við stýrum ekki einstökum þáttum á staðnum heldur verkefnastjórarnir.“ – Dagarnir hjá þér hljóta að vera langir? „Já, þeir hafa verið það. Ég vil gjarnan taka daginn snemma og blanda bóluefnin með mínu fólki á Suðurlandsbrautinni. Sú vinna byrjar alls ekki seinna en klukkan 7. Að vinnudegi á vettvangi loknum bíða svo þessir 200 tölvupóstar sem ég gat um og ég held að ég hafi slökkt á tölvunni klukkan hálf eitt í nótt. Ekki eru þó allir dagar svo langir. Mað- ur nær að draga andann inni á milli og ég ætla mér í sumarfrí.“ Hún brosir. Hún segir verkefnið hafa vakið meiri athygli en hún bjóst við. „Við vissum svo sem ekkert út í hvað við vorum að fara en á fyrstu stigum kom til tals hvort banna ætti fréttamenn og ljósmyndara á staðnum til að virða einkalíf ’ Það er alls ekki óeðlilegt að það verði mörgum erfitt að hverfa aftur til fyrra lífs. Vinna þarf úr áfallastreitunni, rétt eins og hermenn þurfa að gera að stríði loknu og þeir hverfa aftur til síns venjulega lífs. Ragnheiður Ósk tekur virkan þátt í starfinu á gólf- inu í Laugardalshöllinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.