Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Qupperneq 18
1
Galleríið Fyrsta rýmið sem gengið er inn í er svæði þar sem afrakstri
þeirra verkefna sem unnin hafa verið innan fyrirtækisins eða stofnunar-
innar er gert hátt undir höfði. Þar eiga starfsmenn síðan að fá innblástur. F
rá því blessaði faraldurinn fór af
stað í fyrravor hefur vinna
skrifstofufólks og annarra sem
sitja fyrir framan tölvu megnið af
vinnudeginum gjörbreyst. Hefur
þetta fólk þurft að gera sér að góðu
að vinna heima sem hefur í flestum
tilfellum gengið vonum framar.
Margir tala til að mynda um að þeim
gangi mun betur að einbeita sér
heimafyrir þótt auðvitað sakni flestir
félagsskaparins í vinnunni.
Raunar er óformlegt spjall sam-
starfsmanna innan hvers fyrirtækis
mikilvægt því þar spretta upp sam-
ræður sem geta leitt til nýrra hug-
mynda og þar með þekkingarsköp-
unar. Slíkar samræður er ólíklegt að
eigi sér stað þegar fólk situr við skrif-
borðið heima hjá sér og á aðeins í
samskiptum um það sem skiptir máli
hér og nú, til dæmis verkefnið sem
klára þarf fyrir helgi. Það sama má
segja um þá sem sitja inni á sinni eig-
in skrifstofu allan daginn og hitta
samstarfsfélaga sína sjaldan.
Og þaðan er hugmyndin að baki
opnu starfsrými sprottin. Ef allir
sitja saman í sama rými verður meira
um óformlegt spjall. Þá geta þeir sem
hafa einhverjar spurningar til sam-
starfsfélaga sinna fengið svör við
þeim um leið, auk þess sem enginn
missir af mikilvægu samtali sem á sér
stað í nærumhverfi viðkomandi.
Þetta leiði svo til þekkingasköpunar
og meiri afkasta starfsmanna og
sparar að auki vinnuveitandanum
fjármagn með lægri leigu því minna
svæði þarf undir hvern starfsmann.
Vinnustaðnum skipt upp
Raunin er þó önnur og hafa rann-
sóknir sýnt að starfsfólk í opnum
rýmum kemur minna í verk og er al-
mennt óánægðara í starfi en þeir sem
geta unnið í ró og næði. Tíma tekur
að ná upp fullri einbeitingu á verkefni
og þegar einstaklingur er truflaður
tekur tíma að ná einbeitingunni upp
aftur þegar athyglinni er beint að
verkefninu á ný. Í opnum rýmum er
athyglin á mun meira flakki og því
nær fólk ekki upp jafngóðri einbeit-
ingu, kemur minna í verk og er
óánægðara.
Margir hafa velt vöngum yfir lausn
á þessu vandamáli. Einn þeirra er
fyrrverandi prófessor í arkitektúr,
David Dewane í Chicago í Bandaríkj-
unum, sem starfar nú við að hanna
vinnurými. Dewane hefur hannað
vinnurými sem stuðlar að því að fólk
fái næði til að einbeita sér algjörlega
að verkefnum sínum en þó þannig að
hægt sé að viðhalda þeirri samvinnu
og því óformlega spjalli sem fram fer
á vinnustöðum.
Hugmyndir Dewanes vöktu fyrst
athygli fyrir alvöru árið 2016 þegar
rithöfundurinn og tölvunarfræðing-
urinn Cal Newport fjallaði um þær í
metsölubók sinni, Deep Work, árið
2016. Í grunninn snýr hugmynd
Dewanes að því að skipta vinnustaðn-
um upp í ákveðin rými þar sem lögð
er áhersla á ólíka þætti þeirrar vinnu
sem þar fer fram.
Í sinni upprunalegu mynd byggir
hönnunin á fimm rýmum vinnustað-
arins þar sem gengið er í gegnum
hvert rými til að komast í það næsta.
Þegar starfsmenn færa sig yfir í
næsta rými krefst starfsemin sem í
rýminu er viðhöfð sífellt meiri ein-
beitingar. Í því fyrsta geta starfs-
menn sótt innblástur fyrir verkefnin
sem eru fram undan, í því næsta er
ýtt undir óformlegt spjall, næst tekur
við hefðbundið opið vinnurými fyrir
störf sem krefjast samvinnu starfs-
manna eða ekki mikillar einbeitingar,
þar á eftir koma starfsmenn inn á
bókasafn þar sem hægt er að afla sér
upplýsinga fyrir verkefnið sem svo er
unnið í algjöru næði í síðasta rýminu,
þar sem hver starfsmaður vinnur
einn í afmörkuðu herbergi.
Nánari útlistun á svæðunum má
sjá í myndatextunum hér á opnunni.
Farsældarvélin
Hönnun Dewanes kallast „eduaim-
onia machine“ og er byggð á hugtaki
Aristótelesar um farsæld mannsins.
„Farsældarvél“ er því besta þýðing á
hugtakinu sem blaðamaður getur
fundið upp á. Hún á að stuðla að því
að fólk komi meira í verk á skemmri
tíma en ella og sé ánægðara í starfi.
Dewane hefur komið að hönnun
nokkurra vinnurýma í Bandaríkj-
unum en of snemmt er að segja til um
hversu vel hefur tekist til. Setja má3
Skrifstofan Hér er um hefðbundið opið vinnurými að ræða þar sem
fólk getur sest niður og unnið verkefni sem krefjast lítillar einbeitingar
eða komið saman í fundarherbergjum þegar þess er þörf.
Stígðu inn
í klefann
Opið vinnurými verður sífellt vinsælli lausn með-
al vinnuveitenda en gerir fólki erfiðara fyrir að
einbeita sér. David Dewane, fyrrverandi prófessor
í arkitektúr, hefur hannað vinnurými sem nýtir
kosti opins vinnurýmis og lágmarkar ókosti þess.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
2 Kaffistofan Hér getur fólk slakað á í sófanum yfir kaffibolla eða máltíð,spjallað og rökrætt hugmyndir sínar og annarra. Engin formleg vinna ferfram á kaffistofunni heldur er áherslan á afslappað andrúmsloft.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
HÖNNUN
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is