Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Blaðsíða 20
Mesti sigurdagur íslenskra íþrótta
D
agurinn í gær, föstudag-
urinn 29. júní, er mesti sig-
urdagur, sem íslenskir
íþróttamenn nokkru sinni hafa litið:
Þeir unnu þá þrjá landsleiki. Tæpum
þremur klukkustundum eftir að
frjálsíþróttamenn okkar höfðu sigr-
að bæði Dani og Norðmenn í Oslo,
hafði knattspyrnumönnunum tekist
það ótrúlega, að vinna Svía hjer í
Reykjavík. Það er mjög sjerstætt að
slíkt komi fyrir og þætti stór-
viðburður meðal milljónaþjóða —
hvað þá hjer hjá okkur. Íslenska
þjóðin samfagnar íþróttamönnum
sínum og þakkar þeim unnin afrek.“
Með þessum orðum hófst frétt á
forsíðu Morgunblaðsins laugardag-
inn 30. júní 1951 og ekki dugði
minna en fimm dálka fyrirsögn til að
lýsa afrekinu í Ósló. Drjúgum hluta
forsíðunnar var varið undir umfjöll-
un um keppnina ytra og henni fram
haldið á blaðsíðu 2. Knattspyrnu-
landsleiknum voru svo gerð ítarleg
skil á baksíðu blaðsins undir fimm
dálka fyrirsögn og sögufrægri mynd
af þremur leikmönnum liðsins með
hetju kvöldsins, Ríkharð Jónsson, á
gullstól en hann gerði öll mörkin í
4:3 sigri Íslands.
Um frjálsíþróttamótið var skrifað:
„Stóðu íslensku íþróttamennirnir sig
frábærlega vel og höfðu þegar
tryggt sjer tvöfaldan sigur áður en
síðasta grein mótsins, 4x400 m. boð-
hlaupið, fór fram, en þar unnu þeir
einnig, eins og til að undirstrika sig-
urinn. Íslendingar unnu Dani með
15 stiga mun, en Norðmenn með 9
stigum. Eftir fyrri daginn var mun-
urinn 2 og 4 stig, þannig að Ísland
vann keppnina báða daga mótsins.“
Goðsagnir úr íslensku frjáls-
íþróttalífi fóru mikinn í Ósló. Torfi
Bryngeirsson vann stangarstökkið á
nýju mjög góðu íslensku meti, 4,30
m. Hörður Haraldsson vann 100 m
hlaupið. Gunnar Huseby vann
kringlukastið, Örn Clausen 110 m
grindahlaup og Ingi Þorsteinsson
varð annar. Guðmundur Lárusson
vann 400 m hlaupið og Ásmundur
Bjarnason varð annar. Kári Sól-
mundarson varð annar í þrístökki og
Jóel Sigurðsson varð þriðji í spjót-
kasti. Tveir Norðmenn skipuðu þar
fyrstu sætin. Örn Clausen var þriðji
til fimmti í 100 m hlaupi og Kolbeinn
Kristinsson 4. í stangarstökki og
Þorsteinn Löve 4. í kringlukasti. Ís-
lendingarnir voru síðastir í 10.000 m
hlaupinu (sem raunar var ekki nema
9.800 m) og 1.500 m hlaupinu, „en
það var fyrirfram vitað,“ að sögn
Morgunblaðsins.
Að keppninni lokinni var íslenski
þjóðsöngurinn leikinn og Ísland
hyllt með ferföldu húrrahrópi.
Ferna frá Ríkharði
Þúsundir áhorfenda sáu Íslendinga
sigra Svía í fyrsta landsleik þessara
þjóða í knattspyrnu á Melavellinum.
Áhugi á leiknum var mjög mikill.
Kom það gleggst í ljós við það, að
fólk var farið að streyma að vell-
inum, er klukkutími var til leiks.
„Ekki munu miklar sigurvonir
hafa verið bundnar við þennan leik
af Íslendinga hálfu, þar sem við eina
sterkustu knattspyrnuþjóð í Evrópu
var að etja. En hjer skeði hið ólík-
lega,“ stóð í inngangi fréttar Morg-
unblaðsins.
Fátt var um fína drætti til að
byrja með en eftir um hálftíma leik
tók að færast fjör í tuskurnar. Rík-
harður kom Íslandi yfir á 32. mínútu
með skoti sem hafði viðkomu í varn-
armanni Svía. Hann tvöfaldaði for-
ystuna skömmu síðar með óverjandi
skoti.
Ríkharður gerði sitt þriðja mark
með skalla áður en Svíarnir komust
á blað. Arne Selmosson var þar að
verki. Litlu síðar skoraði Sanny Jak-
obsson, 3:2. Fór þá um áhorfendur
enda höfðu þeir áhyggjur af þoli
landans á lokasprettinum. Fjórða
mark Ríkharðs var viðstöddum því
mikill léttir en það gerði hann eftir
góða samvinnu í sóknarlínu Íslend-
inga. Svíar sóttu án afláts allt til
leiksloka en uppskáru aðeins eitt
mark sem Jakobsson gerði. Lokatöl-
ur því 4:3.
Morgunblaðið sagði Ríkharð hafa
borið af á vellinum en einnig hafi
verið áberandi að Íslendingar höfðu
hvergi nærri eins mikið þol og and-
stæðingar þeirra. Blaðið varð fyrir
vonbrigðum með leik Svía og gat
ekki fallist á að liðið væri í hópi
bestu liða sem hingað hefðu komið.
Þess má geta að marga af bestu leik-
mönnum Svía vantaði en þeir voru
orðnir atvinnumenn erlendis.
„Hinsvegar munu Íslendingar
sjaldan eða aldrei hafa sýnt betri
leik, hvorki hjerlendis eða erlendis.
Samvinna Bjarna, Þórðar og Rík-
[h]arðs var til fyrirmyndar en hins-
vegar voru útherjarnir óvirkir. Af
varnarleikmönnum skal mark-
mannsins, Bergs Bergssonar, eink-
um getið. Sýndi hann mjög góðan
leik. Öll mörkin, sem skoruð voru,
voru algerlega óverjandi.“
Frjálsíþróttalandsliðið blés knatt-
spyrnulandsliðinu baráttuanda í
brjóst en í hálfleik upplýsti Baldur
Jónsson, vallarstjóri á Melavell-
inum, viðstadda um afrekið. „Þetta
hafði mjög mikið að segja og við
tvíefldumst við þessi tíðindi,“ hefur
Sigmundur Ó. Steinarsson eftir Rík-
harði í bók sinni Saga landsliðs
karla. „29. júní 1951 verður mér allt-
af ógleymalegur.“
Gleðin var fölskvalaus í leikslok og
Sigmundur rifjar upp í bók sinni um-
mæli Einars Halldórssonar Valsara,
sem hann lét léttur í lund falla við
Ríkharð: „Þakka þér fyrir að leyfa
okkur að vera með.“
Örn Clausen, ÍR (lengst til hægri), í 110 m grindahlaupi á Melavelli annað hvort 1950 eða 1951. Örn varð hlutskarpastur í greininni í Ósló.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Torfi Bryngeirsson í stangarstökki í landskeppni Íslands og Danmerkur á Mela-
velli árið 1950. Hann varð Evrópumeistari í greininni það sama ár.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Íslenskt íþróttalíf fékk heldur betur byr í seglin föstudaginn 29. júní 1951, þegar frjálsíþróttalandsliðið lagði bæði
Dani og Norðmenn í keppni í Ósló og knattspyrnulandsliðið vann frækinn sigur á Svíum á Melavellinum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Karl Guðmundsson, Sæmundur Gíslason og Þórður Þórðarson bera marka-
skorarann Ríkharð Jónsson á gullstól af velli eftir sigurinn á Svíum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
ÍÞRÓTTIR