Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021 FERÐALÖG Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Fulltrúar ferðaþjónustunnar mótmæla fyrir utan þinghúsið í Lundúnum. Tilgangurinn var að hvetja stjórnvöld til að styðja við bakið á millilandaferðum almennings í tæka tíð fyrir mesta álagstímann sem nú ætti að fara í hönd. AFP Þessi mynd er úr farþegasal flugvallar, ef einhver skyldi vera búinn að gleyma hvernig slíkt rými lítur út. Hún er tekin á John F. Kennedy-flugvellinum í New York á dögunum en líf er heldur að færast þar í tuskurnar eins og víðar. AFP Fátt hefur verið um manninn á hinni vinsælu ferðamannaströnd Patong í Phuket undanfarna mánuði. Það gæti þó farið að rofa til en stjórnvöld í Taílandi samþykktu í vikunni að hleypa ferðamönnum aftur þangað án þess að þeir þurfi að fara í sóttkví við komuna. Það er fyrsta skrefið í átt að endurreisn efnahags landsins sem farið hefur illa út úr faraldrinum. AFP Heimur fer á flug Heimurinn er smám saman að lifna við á ný eftir faraldur kórónuveirunnar. Og hvað vilja menn gera þá? Jú, auðvitað ferðast. Hömlur eru mismiklar eft- ir löndum og heimsálfum en víða er ferðaþjónustan að taka við sér. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Eitt frægasta kennileiti heims, sjálfur Eiffelturninn, er enn á sínum stað og bíður í eftirvæntingu eftir að gestum og gangandi fjölgi í París. AFP Þetta fólk lét fara vel um sig fyrir framan gosbrunninn á flugvellinum í Singapúr í vikunni en hann ber það tígulega nafn Jewel Changi. Ekki fylgdi sögunni hvert það var að fara. Yfirvöld þar hafa verið að slaka á í áföngum að undanförnu. AFP ’ Mundu að ham- ingjan er ferðalag en ekki áfangastaður. – Spakmæli. ’ Ferðalag er það eina sem þú kaupir og gerir þig auðugri. – Spakmæli.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.