Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.6. 2021
LESBÓK
L auga rna r í Rey k javí k
Fyrir
líkama
og sál
w w w. i t r. i s
S ý num hve r t öð ru t illit s s e mi og
virðum 2 m e t ra f ja rlægða rmörk in
ENDURKOMA Mörgum varð um þegar bassaleik-
aranum Miu Wallace var án skýringa vikið úr svarta-
málmbandinu Abbath í byrjun síðasta árs en það er sem
kunnugt er starfrækt af gamla brýninu Abbath Doom
Occulta sem lengi var í Immortal. Þeir hinir sömu geta
nú tekið gleði sína á ný því Mia sneri aftur í vikunni, ef
marka má færslu hennar á Instagram. „Við snúum brátt
aftur,“ skrifaði hún við mynd af sér með þeim Abböt-
hum. Þegar aðdáandi spurði hvort hún myndi samt ekki
halda áfram að koma fram með brasilíska þrassbandinu
Nervosa, sem hún gekk í fyrir réttu ári, svaraði Mia
stutt og laggott: „Að sjálfsögðu!“ Af Abbath er það að
frétta að hann er að ná vopnum sínum á ný eftir að hafa
skorað sinn forna fjanda Bakkus konung á hólm í fyrra.
Abbathdís snýr aftur Mia Wallace
er hress með
gang mála.
Twitter
ÞOLRAUN 25 ára gam-
all tónlistarkennari, Sheryl
Crow að nafni, fékk einstakt tæki-
færi sem listamaður þegar hún var ráðin
bakraddasöngkona hjá einum vinsælasta tónlistarmanni
heims, Michael Jackson, árið 1987. Við tók langur túr, þar
sem hún deildi sviðsljósinu með Jackson í nokkrum lög-
um á 123 tónleikum næstu 16 mánuðina. En utan sviðs
var róðurinn þyngri, að því er Crow greinir frá í við-
tali við breska blaðið Independent, en umboðsmaður
Jacksons, Frank DiLeo, mun ítrekað hafa áreitt hana
kynferðislega og hótað að leggja nýhafinn feril hennar í
rúst kjaftaði hún frá. Mikil depurð kom í kjölfarið.
Sheryl Crow
hefur notið mik-
illa vinsælda.
AFP
Nancy Ajram fær styttu á safninu.
Madame Tus-
sauds í Dubai
SAFN Vaxmyndasafn Madame
Tussauds mun opna útibú í Dubai
síðar á þessu ári, það fyrsta í araba-
heiminum. Eigandi safnsins, Merlin
Entertainments, greindi frá þessu í
vikunni. Móðursafnið í Lundúnum
dregur að milljónir gesta á ári
hverju en útibú er þegar að finna í
Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Á
safninu í Dubai verður að finna sex-
tíu vaxmyndir af „heimskunnum
stjörnum“, þar af sextán af fólki frá
svæðinu, svo sem poppstjörnunum
Nancy Ajram og Maya Diab frá Líb-
anon. Furstadæmið Dubai hefur
lagt aukna rækt við ferðaþjónustu
og afþreyingariðnaðinn á umliðn-
um árum enda efnahagskerfi rík-
isins fjölbreyttara en nágrannanna
vegna takmarkaðra olíuauðlinda.
L
eslie Caron var danselskt barn
en varð fyrir áfalli þegar hún
tilkynnti, í samráði við móður
sína, sem sjálf var dansari, föðurfjöl-
skyldu sinni yfir sunnudagssteikinni
að hún hygðist leggja ballett fyrir
sig. „Margaret, viltu virkilega að
dóttir þín verði vændiskona?“ spurði
föðurafi hennar hneykslaður.
Ungu stúlkunni brá í brún en
komst seinna að því að afi hennar
hafði sitthvað til síns máls. „Á þess-
um tíma voru ballerínur litlar hórur.
Allt var þaulskipulagt. Litli dans-
arinn fór með móður sinni niður í
anddyrið í hléinu og herrarnir
mættu á svæðið, völdu sér stúlku og
ræddu um kjörin,“ segir hún í sam-
tali við breska blaðið The Guardian í
vikunni. „Ballett var fyrir la fille de
la concierge – dætur húsvarða.“
Föðurfjölskylda Caron í Frakk-
landi var auðug og vinna til handa
stúlkunni því langt fyrir neðan henn-
ar virðingu – hvað þá ballett. Móðir
hennar, téð Margaret Petit, hálf-
bandarísk, hafði hins vegar þurft að
vinna fyrir sér sem dansari á Broad-
way áður en hún gekk að eiga föður
Leslie, apótekarann Claude Caron.
Viltu að dóttir
þín verði
vændiskona?
Leslie Caron, fyrsta franska Hollywood-stjarnan,
verður níræð í næstu viku. Sjálf botnar hún ekkert
í því að hún hafi orðið leikkona enda ákaflega
feimin að upplagi og lítið gefin fyrir sviðsljósið.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Caron árið 2018. Sjötíu ár eru nú liðin frá frumraun hennar í kvikmyndum.
AFP
Skömmu eftir að Caron sneri heim
til Frakklands á áttunda áratugnum
helltist þunglyndi yfir hana og hún fór
að nota áfengi óhóflega. Spurð í The
Guardian hvort hún hafi á þeim tíma
óttast að hennar biðu sömu örlög og
móður hennar, sem framdi sjálfs-
morð, svarar Caron: „Já, það var
hrein heppni að ég fór ekki sömu
leið.“ Tæpast stóð það einn illviðr-
isdag 1995. Hún náði þó áttum og
vann úr sínum málum með hjálp geð-
læknis í Lundúnum.
Í endurminningum sínum, Thank Heaven, frá 2009 kemst Caron
svo að orði: „Allar flóðgáttir opnuðust og líf mitt virtist gjör-
samlega misheppnað, uppfullt af meðalmennsku og kjánalegum
mistökum, alltaf skyldi ég velja ranga beygju. Ég grét bara og grét.“
Því lauk með því að hún var sett á deyfi- og geðlyf og lögð inn á
spítala í mánuð. Í seinni tíð líður henni miklu betur, þökk sé öðrum
fremur börnum hennar tveimur og AA-samtökunum.
Heppin að fyrirfara sér ekki
Leslie Caron árið 1976.
Ítrekað áreitt kynferðislega