Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.06.2021, Page 29
Síðan kom stríðið og auður fjöl-
skyldunnar fauk út um gluggann.
Caron minnist þeirra erfiðu tíma
með hryllingi. Stríðið hafi ekki sam-
einað Frakka, eins og það gerði við
Breta, heldur sundrað þeim. Loftið
var læviblandið. „Við skömmuðumst
okkar fyrir að hafa gefist upp og að
hafa óvininn, Þjóðverja, inni á gafli
hjá okkur. Það var skömm og óvild.
Útilokað var að biðja fólk á götum
úti um aðstoð – það dembdi sér bara
yfir mann. Enn þann dag í dag get
ég ekki beðið fólk um hjálp. Reikna
alltaf með að verða hafnað,“ segir
hún við The Guardian.
Stríðið reið móður hennar að fullu.
Hún hafði brotist úr sárri fátækt til
allsnægta og gat ekki stigið skrefið
til baka. Margaret varð alkóhólisma
að bráð og svipti sig að lokum lífi.
Líf Caron tók óvænta stefnu þeg-
ar ein skærasta stjarna Hollywood,
Gene Kelly, kom auga á hana, 17 ára
gamla, í ballettsýningu í París. Hann
vildi ólmur fá hana til Hollywood og
þegar Cyd Charisse varð að hafna
aðalhlutverkinu á móti Kelly í An
American in Paris árið 1951, vegna
þess að hún var barnshafandi, fékk
Caron kallið. Leikstjóri var Vincente
Minnelli.
Stórt tækifæri en sannarlega eng-
inn dans á rósum. „Ég hafði ekki
borðað almennilega í fimm ár. Þess
utan hafði ég aldrei mælt eitt einasta
orð á sviði og það var algjör martröð
fyrir mig. Algjör martröð,“ segir
Caron.
Hún ber Kelly þó vel söguna;
hann hafi stutt sig með ráðum og
dáð. Seinna steig hún dansinn með
annarri goðsögn, Fred Astaire, en
verst af fimi þegar blaðamaður The
Guardian vill fá að vita hvor hafi ver-
ið betri. „Ég hef harðneitað að svara
þessari spurningu í 70 ár. Stórkost-
legur dansari er stórkostlegur dans-
ari.“
En ólíkir voru þeir; Kelly harður
og örlátur en Astaire fágað ljúf-
menni.
Hver vinsæla myndin rak aðra,
svo sem Lili 1953, sem Caron hlaut
BAFTA-verðlaunin fyrir og var til-
nefnd til Óskarsverðlauna, en toppn-
um var líklega náð með söngleiknum
Gigi 1958. Sú mynd hlaut níu Ósk-
arsverðlaun. Verst að Caron þótti
söngleikir fánýtir og kjánalegir á
þessum tíma. „Ég kann betur að
meta þá í dag,“ segir hún hlæjandi.
Kornung og einmana
Caron skrifaði undir sjö ára samning
við Metro-Goldwyn-Mayer. En lifði
hún eins og blómi í eggi í Holly-
wood?
„Nei, ég var kornung og ákaflega
einmana og hitti fáa sem deildu
sömu reynslu og ég. Fólk sagði:
„Mikil ósköp. Við höfðum það bágt í
stríðinu – fengum ekki nema eitt
súkkulaðistykki á viku.“ Það er
ógjörningur að útskýra fyrir fólki
hvernig það er að búa með óvininum,
hríðskotabyssunum og vera stöðugt
með lyktina af óttanum fyrir vitum.“
Caron færði sig með tímanum yfir
í alvarlegri hlutverk og kynnti sér
Stanislavski-aðferðina í því sam-
bandi. Það skilaði sér í The L-
Shaped Room 1962, þar sem hún
fékk bæði BAFTA- og Golden
Globe-verðlaunin fyrir túlkun sína á
raunamæddri ófrískri konu. Og var
tilnefnd til Óskarsins.
Tveimur árum síðar lék hún á
móti Cary Grant í gamanmyndinni
Father Goose en hann mun hafa ver-
ið hæfileikaríkasti leikarinn sem hún
hefur unnið með.
Snemma á áttunda áratugnum
fékk Caron nóg af Hollywood og
sneri heim til Frakklands. Þar
mætti henni tómlæti. „Þeir dást að
fólki sem í raun og sann er banda-
rískt eða breskt en Frakka sem hef-
ur slegið í gegn í Hollywood – og ég
var eiginlega sú eina á þeim tíma –
geta þeir ekki fyrirgefið.“
Spurð hvað henni finnist um það
svarar Caron: „Það hryggir mig.“
Minna hefur farið fyrir Caron í
kvikmyndum hin síðari ár, þó fékk
hún mikið lof fyrir frammistöðu sína
í hinni vinsælu mynd Chocolat árið
2000 í leikstjórn Svíans Lasse
Hallströms.
Sjötíu árum eftir að hún birtist
fyrst á hvíta tjaldinu er Leslie Caron
enn að freista þess að ná utan um þá
staðreynd að hún sé kvikmynda-
stjarna.
„Ég kann engan veginn við mig í
sviðsljósnu. Satt best að segja er
með ólíkindum að ég hafi orðið kvik-
myndastjarna, feimin og hlédræg
sem ég er.“
Leslie Caron
árið 1953,
þegar hún lék í
þeirri vinsælu
mynd Lili.
AFP
27.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Afmæli Þrjátíu ár verða í sumar
liðin frá útgáfu Svörtu plötunnar,
mestseldu breiðskífu þrassgoðanna
í Metallica. Af því tilefni verður
hlaðið í hátíðarútgáfur af ýmsu
tagi, á vínyl, geislaplötu og staf-
rænu formi, og verður efnið að-
gengilegt frá og með 10. sept-
ember. Fyrir þá innmúruðustu
verður um enn meiri veislu að
ræða. Þá er von á The Metallica
Blacklist, þar sem á sjötta tug
hljómsveita og listamanna spreyta
sig á lögum af plötunni.
Þrítugsafmæli Svörtu plötunnar
Lars Ulrich, trymbill Metallica.
AFP
BÓKSALA 16.-22. JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 BréfiðKathryn Hughes
2 Palli PlaystationGunnar Helgason
3 Slétt og brugðiðÁrelía Eydís Guðmundsdóttir
4 Fjölskylda fyrir byrjendurSarah Morgan
5 DauðahliðiðLee Child
6 Færðu mér stjörnurnarJojo Moyes
7 Aðeins eitt leyndarmálSimona Ahrnstedt
8 Gönguleiðir á hálendinuJónas Guðmundsson
9 171 ÍslandPáll Ásgeir Ásgeirsson
10 BBQ kóngurinnAlfreð Fannar Björnsson
1 Palli PlaystationGunnar Helgason
2 Rím og romsÞórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
3 Maxímús músíkús þrautabókHallfríður/Linda/Þórarinn
4
Ég fer í fríið með Andrési
og félögum
Walt Disney
5
Sumarið í sveitinni
Guðjón Ragnar Jónasson/
Harpa Rún Kristjánsdóttir
6
Handbók fyrir Ofurhetjur 6
– vonlaust
Elias/AgnesVahlund
7 Bekkurinn minn 3 – lús!Yrsa Þöll/Iðunn Arna
8 Herra FnykurDavid Walliams
9
Bekkurinn minn 1
– prumpusamloka
Yrsa Þöll/Iðunn Arna
10
Risasyrpa – botnlaus
byggingarvinna
Walt Disney
Allar bækur
Barnabækur
Ég er einn af þeim sem las mjög
mikið sem barn en missti dálítið
dampinn á háskólaárunum. Ein eft-
irminnilegasta jólagjöfin mín frá
barnaæskuárunum var lítið lesljós
sem hægt var að festa á bækur, en
það þýddi að ég gat falið mig undir
sæng og lesið fram á nótt án þess
að foreldrar mínir yrðu þess varir.
Þegar lesturinn minnkaði fór ann-
að, og að því virtist algjörlega
óskylt, áhugamál að gera vart við
sig – bókakaup. Mér fannst, og
finnst enn, virkilega
gaman að kaupa fal-
legar bækur og
kaupi þær að jafnaði
hraðar en ég les. Að
endingu kom sá
tímapunktur sem ég
fattaði að ég gæti
kannski samtvinnað þessi áhuga-
mál og lesið þessar bækur sem ég
hafði svo gaman af að kaupa.
Ég kláraði nýverið tvö glæný
smásagnasöfn, Í miðju mannhafi
eftir Einar Lövdahl og Herbergi í
öðrum heimi eftir
Maríu Elísabetu
Bragadóttur. Ég held
að ég geti hiklaust
gefið þeim báðum
fimm stjörnur. Einar
er góður vinur minn
og það er dálítið
stressandi að lesa svona verk eftir
vini sína. Maður verður náttúrlega
að segja þeim að bókin sé frábær
þannig að það var mikill léttir að
komast að því að sú var raunin.
Ég er alinn upp við Hringadrótt-
inssögu eftir J.R.R. Tolkien, fyrst
kvikmyndirnar og strax í kjölfarið
bækurnar og fylgirit þeirra. Ég held
að það hafi dálítið mótað mig sem
mikinn unnanda fantasíu-
bókmennta. Af einhverri ástæðu
finnst mér betra að hlusta á fant-
asíur en lesa. Ef þið heilsið mér úti
á götu og ég svara ekki er það lík-
lega því hugurinn (og heyrnin) er í
einhverju fjarlægu fantasíulandi. Ég
gleypti allar níu bækurnar úr The
First Law-seríunni eftir Joe Aberc-
rombie í mig á síðasta ári eða svo
og bíð spenntur eftir þeirri tíundu.
Ég myndi mæla með þeirri seríu
fyrir þau sem eru orðin þreytt á að
bíða eftir The Winds of Winter eft-
ir George R.R. Martin. Ég held að
það sé svipaður markhópur þar
sem það er dálítið verið að hverfa
frá „góðir á móti vondum“-
dínamíkinni.
Annars hefur lestur minn ein-
kennst dálítið af því að reyna að
vinna á bókabunkanum sem ég hef
safnað í gegnum ár-
in. Ég er að lesa
Réttarhöldin eftir
Kafka og þótt mér
finnist hún mjög
skemmtileg á köfl-
um fæ ég líka auð-
veldlega leiða á
henni. Ég er örugglega búinn að
vera að lesa hana í ár eða eitthvað
slíkt og gríp í eitthvað annað þegar
mér tekur að leiðast. Ég er venju-
lega með nokkrar þannig bækur í
lestri í einu, sem ég rótera eftir
löngun og þörfum. Þannig er ég t.d.
líka að lesa ljóðasafn á spænsku
sem ég keypti á einhverjum tíma-
punkti á markaði í Bólivíu. Ég vissi
ekki alveg hvað ég var að kaupa en
þetta reyndist vera safn af ástar-
ljóðum frá árinu 1200-1800. Lest-
urinn vinnst vægast sagt hægt þar
sem ég þarf að fletta upp sirka
fjórða hverju orði, sem slær svona
aðeins á rómantíkina í lestrinum.
En ég skal klára bókina!
PÉTUR MARTEINN ER AÐ LESA
Í fjarlægu fantasíulandi
Pétur Marteinn
Urbancic Tóm-
asson er lög-
fræðingur.
Ljósmyndakeppni
mbl.is
Vilt þú vinna farsíma frá Samsung eða
glæsilegan ferðavinning frá Icelandair?
Allar myndir sem sendar eru inn birtast á mbl.is og þemað er flug.
Það er líka hægt að taka þátt á Instagrammeð myllumerkinu #mblflug
1.-2. Sæti Samsung Galaxy s21+
3. Sæti 100.000 kr. gjafakort frá Icelandair