Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 21.03.1981, Page 3

Skólablaðið - 21.03.1981, Page 3
Ólafur Jóhann Ólafsson, 5.-Y, forseti Listafél.: Ágætu nemendur; Allt frá bvx er sögur hófust hefur hvers konar list verið mönnum hugleikin. A það ekki einungis vió um fámenna hópa sérvitringa, bá sem nú á dög- um eru nefndir menningarvitar eða jafnvel enn ljótari nöfnum, heldur alþýðu alla, og hefur aldur og staða engu ráðió þar um. 7>að er bvi ekki að furóa, að félag kennt við listir og bók- menntir skuli vera einn helsti innviður i sam- kundulifi okkar nemenda. Hitt er i meira lagi undarlegt, aó starfsemi félags sem þessa skuli vera jafnbágborin og raun hefur borið vitni um langt skeið. En ekki dugir að fórna höndum ell- egar sitja upp jaróarfararsvip, þótt margt hafi farió úrskeiðis og starfsemi Listafélags verið úr hófi fram lágkúruleg. Úrbóta er þörf. Til þess að gera langt mál stutt, töluset ég hér tvö helstu stefnumál min og færi þau i sem knappast form, en geri betur grein fyrir beim siðar. 1. Stefnt verði að þvi, að starfsemi Lista- félags tvinnist öðrum félögum skólans, svo sem málfundafélaginu Framtiðinni og Skólafélaginu sjálfu. Verði það gert á þann hátt, að félög þessi sameinist um gerð skemmtikvölda hér i skóla Með þessu móti yróu skemmtikvöldin fjölbrevttari og meira i þau spunnið, um leið og Listafélagið færðist nær hinum "almenna" nemenda. 2. Listafélagið beitti sér fyrir listadegi eða dögum vetur hvern. Yrði betta eins konar listahátið skólans, bar sem bæði nemendur og listamenn kanu fram. Gæti samkoma bessi orðið menningarlifi skólans mikil hvatning og búbót, svo fremi að hún sé undirbúin af atorku og al- vöru, en þær dvggðir hafa að jafnaði brostið undanfarin ár. Sérhver nemandi skólans greiðir i sjóð Lista- félags ár hvert. Á félagið þvi augljóslega að leitast vió að uppfvlla þarfir sem allraflestra, en ekki fámenns hóps kringum forráðamenn félags- ins. Tökum loks undir með manni þeim, sem sagði hin þekktu orð: "List er hvorki afreksverk fárra né einkamál þeirra, heldur er hún nauðsynleg öllum mönnum, rétt eins og matur og drykkur." Lifið heil Jón Vilberg, 5.-A, forseti Listafélagsins. Wiltu listafélagsskemmtiljóðasöngkaffi- húsastemningarmálverkasýningar? -og eitthvað i pokahorninu og rúsinuna i pylsuendánum? Ekki sömu letina og i vetur? Reallv? þá kýstu Jón vilberg, 5.A. i forseta Listafélagsi.ns. p.s.Nemo fere saltat sobrins nisi forte in insanit est! ( isl. þýðing: Enginn dansar ófullur nema hann sé vanheill á geðsmunum.') Sigriður Guðmarsdóttir, 3.-B i bókmenntadeild Listafélagsins: Hvers vegna? Æ, ég veit það ekki. Er þetta e-s konar stökkpallur? Já. Veistu i hverju starfið felst? Nei. Heldurðu að bú komist að? Já. Ertu meó einhverjar nýjungar? Ég er komin. o- íd-Ls a/£Mi3Ð ----------=7 A-listi til ritnefndar Skólablaðs: Comerades.' Eins og bið vitið höfum við undirrituð i hvggju að taka að okkur ritstjórn Skólablaðsins næsta vetur með hjálp vkkar. 1 tilefni framboðs- ins fara hér örfáar linur. Við lestur undanfarinna Skólablaða höfum við sannfærst um að gera megi mun betur. Allt stefn- ir i aó aðeins komi út þrjú tölublöð i vetur og er fjárskorti' helst kennt xim. Prentun á upr>- lagi hvers 32 sióna blaðs kostaði i vetur u.þ.b. 11-12 þús. krónur. Þessa tölu má lækka um helm- ing og þannig koma út fleiri tölublöðum án þess aó það bitni á gæðum efnis. Við gerum okkur ekki vonir um aukið efni frá nemendum en teljum að með góðri ritstjórn megi koma út a.m.k. 4 tölublöðum (ha,ha,ha), e.t.v. með auknu utanaðkomandi léttmeti. Frekari loforðarulla þjónar litlum tilgangi. Þaó er vkkar að meta og velja. 'líjkkum lesturinn, Karl Th. Birgisson, 4.-A Helga Einarsdóttir, 4.-C Halldór Halldórsson, 4.-C Hafliði Helgason, 3.-E Aðalsteinn Þórarinsson, 3.-E Karl Logi Bernódus Þórður Þráinn B-listi til ritnefndar Skólablaðsins: Heil.' „Þessi veröld er viljinn til valda og ekkert annað. Þú sjálfur ert viljinn til valda og ekk- ert annað." (F. Nietzsche). Til að fullnægja þessum hvötun þinum höfum við nevóst til að gefa kost á okkur i ritnefnd. Eins og revnslan sýnir veistu nefnilega ekki frekar en aðrir hvernig skrifa á i skólablað. Við neyðumst bvi til að gera það fyrir þig. Þó verður alls ekki stefnt að þvi að kæfa raddir lesenda. Stefnuskrá okkar hljóðar i stuttu máli svo: Aukin efnisöflun ritnefndarmanna, fleiri Skóla- blöó, pólitiskt hlutverk blaðsins endurvakið, ritskoðun að mestu hætt. öðru verður ekki breytt nema okkur dytti i hug að svikja einhver kosninga- loforð. Eins og bú hefur vafalaust orðið var við halda rætnisfullar rægitungur þvi fram að þú sért örverpi. Griptu nú tækifærið og afsannaðu þetta með einum litlum krossi. ÖRVERPI ALLRA BEKKJA, SAMEINIST.’ Karl Logason, 5.-U Þórður Ó. Björnsson, 4.-M Logi Gunnarsson, 4.-M Bernódus Kristinsson, 4.-Y Þráinn Hreggviðsson, 5.-Y Steinunn Kristjánsdóttir, 4.-M, i leiknefnd: Þvx miður er nú svo komið aó kjósa verður i leiknefnd Herranætur. Ætlunin var að bjóða fram sjalfkjörinn fimm manna hóp, sem starfað hefur af krafti í Herranótt i vetur. Einhver ógæfa hefur þó valdið þvi að úr þessu verður ekki. A.ðilar sem ekki enn hafa tekið þátt i starfi Herranætur hafa ákveðið að hefja strax stjórnar- starf i þessu annars ágæta félagi. Ég vil hvetja kjósendur til að athuga vel hverjir það eru sem hæfasti eru í störf þessi, en vera hlutlausir ella. Stei.nunn A. Björnsdóttir, 4. -B i bókm.deild ListaS Hvers vegna i framboð? Mér finnst starf bókmenntadeildar hafa verið mjög ábótavant i vetur og vil reyna að bæta úr. Einhverjar nýjungar? Fjölga heimsóknum skálda og halda leshringa. Ég vil halda Listafélagskvöld i samvinnu við aðr- ar deildir. Brynjar Karlsson, 3.-A i Herranótt: Hvers vegna? Vegna þess, að ég hef mikinn áhuga á leik- list. Sumir mundu kalla það stórleikarakomplexa. Nú i fjolskvldunni hefur verið mikið leikhúsfólk og þannig hef ég komist i nána snertingu við þetta. Starfið i Herranótt hefur verið mjög lif- legt i vetur og ég vil stuðla að þvi að svo haldi áfram. Veistu i hverju starfið felst? Já - nei. Ég „lék" i Ys og bvs og kvnntist þa starfinu nokkuó, en i raun veit maður ekkert hvað er aó ske, nema maður sé i nefndinni. Heldurðu aó þú komist að? Já, ef nemendur telja mig nógu góðan. ©

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.