Fiskifréttir - 02.09.1983, Blaðsíða 1
Siglinga og fiskileitartæki.
Viðgerða og varahlutaþjónusta.
Rafeindaþjónustan
ÍSMKR hf.
BORGARTÚN 29, P.O. BOX 1369
121 Reykjavík, SÍMAR: 29744 og 29767
BIRGIR BENEDIKTSSON, SÍMI 74741
REYNIR GUÐJÓNSSON. SÍMI 54636
FRETTIR
2. tbl. 1. árg. föstudagur 2. september 1983
ð norfloat
Belgir og
flot
Mu
Umboðs- og heildverslun.
Grandagarði 13. Símar: 21915-21030
Bolungavík:
Einar Guðfinnsson hf.
kaupir nýtt skip
frá Skipasmíðastöð Njarðvíkur
Fyrirtækið Einar Guðfinnsson hf.
í Bolungavík hefur nú samið við
Skipasmíðastöð Njarðvíkur um kaup
á 36 metra löngu fiskiskipi sem verður
tilbúið til afhendingar um áramót.
Áætlað afhendingarverð skipsins er
85 milljónir króna og í þeirri upphæð
eru vextir á byggingartímabilinu og
hluti lántökukostnaðar.
Skrokkur skipsins var upphaf-
lega byggður í Noregi og á sínum
tima samdi Skagavík h.f. í Kefla-
vík um kaup á þessu skipi en hætti
síðan við samninginn.
Samningur Einars Guðfinns-
sonar hf. við Skipasmíðastöð Njarð-
víkur er háður samþykki viðkom-
andi lánastofnana.
I nýja skipinu verður 990 hest-
afla Mirrlees Blackstone díselvél
og verður það búið til línu- og
togveiða.
íslenskur ferskleikamælir
Fyrirtækið Raflagnatækni sf.
hefur nú lokið við hönnun á nýjum
ferskleikamæli, sem ætlaðin- er til
þess að mæla ferskleika í fiski.
Fyrir er til á markaðnum fersk-
leikamælir, svonefndur Torrymæl-
ir, en hann hefur þann galla að vera
mjög seinvirkur. Islenski fersk-
leikamælirinn, sem nefnist RT-
mælir, er um 1000 sinnum hrað-
virkari en Torrymælirinn, sem er
framleiddur í Skotlandi.
Það eru verkfræðingarnir Björn
Kristinsson og Þorvaldur Sigur-
jónsson sem hafa unnið að smíði
RT-mælisins og við hönnun hans
var haft í huga, að mælirinn yrði að
vinna mjög hratt, svo að afköstin
gætu orðið 40 fiskar á mínútu. Er
það ríflega áaetlað fyrir 20 tonn
hráefnis á dag. Þegar ferskleiki
fisksins er mældur, þarf að mæla
nægjanlega marga punkta til að fá
gott meðaltal. Hver mæling má
taka 10-50 millisekúndur.
Margir höröustu flakararnir í frvstihúsunum eru komnir á gamaisaldur, en engu að síður
slá þeir mörgum yngri mönnum við. Maðurinn á myndinni heitir Magnús Guðnason og
er starfsmaður Hraðfrystihúss Keflavíkur. Hann varð 69 ára hinn 26. ágúst s.l. og þann
dag fók Loftur Ásgeirsson þessa mynd.
„Fá gott verð fyrir karfann en
segir Ludwig Jansen í Bremerhaven
„Við þurfum stöðugar landanir
íslenskra fiskiskipa frá byrjun þessa
mánaðar fram að páskum og skipin
þurfa fyrst og fremst að koma með
karfa. Verð á karfa á að geta orðið
gott í vetur, þetta 1.90 til 2.00 mörk
fyrir kflóið að meðaltali. Hins vegar
gegnir öðru máli með ufsann. Það er
lágt heimsmarkaðsverð á honum og
á meðan svo er, geta menn ekki vænst
þess að fá hátt verð fyrir hann á fisk-
mörkuðunum í Bremerhaven og Cux-
haven,“ sagði Ludwig Janssen
umboðsmaður ísl. fiskiskipa í Brem-
erhaven í samtali við Fiskifréttir.
Ludwig var staddur hér á landi í
síðustu viku ásamt Dick Stabel
umboðsmanni 1 Cuxhaven og
ræddu þeir þá við forráðamenn
L.I.U. auk þess sem þeir heimsóttu
marga útgerðarmenn vítt og breitt
um landið.
„Við teljum hæfilegt að fá fjóra
Færeyingar veiða mest
Á árinu 1978 veiddu Fær-
eyingar 757 kfló af fiski á
hvert mannsbarn í landinu, á
íslandi var talan 686 kfló. I
Noregi var talan 66 kfló á
mann, í Kanada 61 kfló og í
Danmörku 35 kfló.
togara í viku hverri til Þýskalands
á næstunni, það er tvo til Bremer-
haven og tvo til Cuxhaven. Við
teljum að markaðurinn þoli
kringum 800 tonn af karfa á viku,
þannig að hvert skip getur komið
með 200 tonn að meðaltali. Þá
leggjum við áherslu á að fá góðan
karfa, eins og þann sem veiðist
mest í Rósagarðinum svonefnda.“
Ludwig sagði, að 11 ísfisktogarar
væru enn gerðir út frá Þýskalandi,
ií
8 frá Bremerhaven og 3 frá Cux-
haven, auk þess gerðu Þjóðverjar út
um 15 frystitogara. Flotinn hefði
minnkað á síðari árum, sökum þess
hve þrengt hefði að fiskimiðum tog-
aranna með 200 mílna fiskveiðilög-
sögu víða um heim.
Bandaríkin:
Sig. Ágústsson hf. stofnar eigið sölufyrirtæki
Fyrirtækið Sigurður Ágústsson hf.
í Stykkishólmi hefur nú stofnað eigið
sölufyrirtæki í Bandaríkjunum. Sölu-
fyrirtækið, sem ber nafnið Royal Ice-
land Corporation, er staðsett í Burke-
lay, nálægt San Fransico. Royal Ice-
land á að annast sölu á hörpudisk-
framleiðslu Sigurðar Ágústssonar
h.f., en sem kunnugt er, þá er Sig.
Ágústsson langstærsti útflytjandi á
hörpudiski frá Islandi.
Bandarískt fyrirtæki hefur
undanfarin ár séð um sölu á hörpu-
diskinum fyrir Sig. Agústsson og
mun það nú annast ýmsa verkþætti
fyrir Royal Iceland.
Framkvæmdastjóri Royal Ice-
land verður Magnús Þ. Þórðarson
sem áður var framkvæmdastjóri
Sigurðar Ágústssonar hf. Er
Magnús þegar fluttur til Banda-
ríkjanna. Nýr framkvæmdastjóri
hefur verið ráðinn í stað Magnúsar
að fyrirtæki Sig. Ágústssonar í
Stykkishólmi. Er það Guðmundur
Maríusson sem undanfarna mán-
uði hefur verið framkvæmdastjóri
hjá Hraðfrystihúsi Keflavíkur.
Forstjóri Sigurðar Ágústsonar er
sem fyrr Ágúst Sigurðsson.
Guðsteinn fær nafnið Akureyrin
Ákveðið er að skuttogarinn Guð-
steinn, sem nú er verið að breyta í
frystitogara á Akurevri, fái nafnið
Akureyrin. Er það nafn komið frá
hákarlaskipi sem langafi núverandi
eigenda togarans var með.
Samkvæmt áætlun á breyt-
ingum á Akureyrinni að vera lokið
hjá Slippstöðinni á Akureyri 25.
október næst komandi. Tækjabún-
aður á vinnsludekki verður svip-
aður og um borð í Örvari frá Skaga-
strönd nema hvað karfaflökun-
arvél verður komið fyrir um borð í
Akureyrinni.
Nú hafa togurunum tveimur,
sem keyptir voru til Vestmanna-
eyja frá Ólafsvík á dögunum, verið
gefin nöfn. Guðlaugur Guðmunds-
son hefur fengið nafnið Smáey og
Lárus Sveinsson fékk nafnið Berg-
ey.
Freyr orðinn að
Radio Caroline
Togarinn Freyr RE, sem á sínum
tíma var seidur til Englands, og
fékk þá nafnið Ross Revenge,
hefur nú verið seldur á ný og mun
þjóna nýju hlutverki, sem útvarps-
stöð í framtíðinni. Framvegis mun
Frevr gamli bera nafnið Radio
Caroline.
Radio Caroline er starfandi í
Norðursjónum, undan SA-strönd
Englands og ein af svonefndum
sjóræningjastöðvum, en þær
starfa utan landhelgi landa.
Gamla Radio Caroline fórst í fár-
viðri í Norðursjó á árinu 1980.
Freyr var upphaflega í eigu
Ingvars Vilhjálmssonar út-
gerðarmanns og er systurskip
Sigurðar, Víkings. Skipið kom til
landsins árið 1960, en var selt
síðan til Ross fyrirtækisins í
Grimsby. Undir nafninu Ross
Revenge varð það eitt mesta afla-
skipið í Grimsby og í 50 mílna
þorskastríðunum kom Ross
Revenge oft við sögu. Eftir að
Bretar hrökkluðust út úr ís-
lenskri fiskveiðilögsögu var Ross
Revenge lagt, en frá árinu 1980
hefur skipið verið aðstoðarskip
við olíuborpallana í Norðursjó,
þar til nú er það er orðið útvarps-
stöð.
Svíar selja
Rússumsíld
Þessa dagana fara fram
viðskiptaviðræður við Rússa og
Ijóst er að íslendingar munu leggja
mikla áherslu á að Rússar auki
kaup sín á karfaflökum frá landinu
og ennfremur á að Rússar kaupi
verulegt magn af saltsfld í haust, en
ef þeir gera það ekki er næsta
öruggt, að lítið verður saltað af sfld
hér á landi á komandi sfldarvertíð.
Það hefur komið fram að
Rússar vilja helst kaupa síldina
frá hlið veiðiskips og salta sjálfur
síldina um borð í sínum skipum.
Þetta hafa Rússar gert á yfir-
standandi ári. Hafa þeir meðal
annars keypt síld af Skotum og
Norðmönnum. Það sem vekur
kannski hvað mesta athygli, er
að nýverið sömdu Rússar um
kaup á 1000 lestum af sænskri
Eystrasaltssíld og verður síldin
söltuð um borð 1 rússneskum
skipum. Þetta mun vera í fyrsta
sinn, sem Svíar selja Rússum
síld, á þennan hátt, en fram til
þessa hafa Svíar verið stórir
síldar innflytjendur og lengi
verið einhverjir stærstu kaup-
endur á íslenskri síld.
Samkvæmt ofangreindu er
ljóst, að viðræðurnar við Rússa
geta verið torsóttar.