Fiskifréttir - 02.09.1983, Qupperneq 2
2
föstudagur 2. september
Aflabrögdln
Afli tregur um land allt:
Kropp hjá snurvoðabátum
og nokkrum trollbátum
Afli í síðustu viku var almennt
mjög tregur og virtist ekki skipta
máli hvaða veiðarfæri menn voru
með á sjó. Gæftir voru frekar erfiðar
um allt land hjá minni bátum og á
mörgum stöðum komust handfæra-
bátar ekki á sjó.
Togbátar frá Suðurnesjum fengu
þó nokkrir sæmilegan afla og sömu
sögu er að segja af netabátum frá
Olafsvík og snurvoðabátunum í
Faxaflóa. Þar er alltaf gott kropp.
Afli togaranna er almennt tregur,
hvort sem þeir eru á þorskveiðum
eða skrapi. Sá guli ætlar víst seint að
gefa sig af einhverjum krafti, en
hann hlýtur að koma.
Vesturland
Oskar Magnússon landaði 131.4
tonnum á Akranesi hinn 25. ág.
Haraldur Böðvarsson landaði
130,5 tonnum hinn 24. og Kross-
vík var að landa 135 tonnum á
mánudag.
Runólfur landaði 86 tonnum á
Grundarfirði, miðvikudaginn 24.
ágúst og Sigurfari átti að landa
þar í vikunni. Fjórir bátar frá
Grundarfirði eru nú á trolli og
tveir eru á skel. Netabátar frá
Olafsvík hafa aflað ágætlega und-
anfarið eða allt upp í 10 tonn í
róðri, en síðustu daga hefur afli
dottið nokkuð niður. Fimm bátar
frá Olafsvík eru gerðir út á net,
þrír á línu og fjórir á snurvoð.
Afli skelfiskbáta frá Stykkis-
hólmi hefur verið góður frá því að
þeir byrjuðu róðra og sem fyrr fylla
bátarnir ávallt kvótann.
S.J.H.
Vestfirðir
Bessi landaði 78 tonnum hinn
25. ágúst á Súðavík og var afla-
verðmætið kr. 730.722. Að löndun
lokinni fór Bessi í slipp.
Guðbjartur landaði 120 tonnum
á Isafirði á mánudag, mest þorski.
Togarinn er nú á skrapi. Páll Páls-
son landaði hinn 22. 83 tonnum,
af skrapfiski og aflaverðmætið
656.992.57 kr. Guðbjörg landaði
45 tonnum á laugardag.
I Bolungavík landaði Dagrún
hinn 26. ágúst alls um 100
tonnum, en togarinn var á skrapi.
Heiðrún landaði deginum á undan
104 tonnum og var aflinn þorskur
og ýsa.
Frá Suðureyri er það helst að
frétta að Elín Þorbjarnardóttir er
enn biluð, en vonast var til að tog-
arinn kæmist til veiða á mánu-
dagskvöld.
Framnes 1 landaði 98 tonnum á
Þingeyri í vikunni og Sléttanesið
landaði 70 tonnum á Suðureyri.
Sölvi Bjarnason landaði 88
tonnum á Tálknafirði hinn 23.
ágúst og sama dag landaði Tálkn-
firðingur 98 tonnum.
Frekar var dauft yfir rækju-
veiðinni í júlímánuði ogframan af
ágúst. Um síðustu helgi lifnaði
mjög yfir veiðunum og hafa bát-
arnir komið með 7 til 8 tonn eftir
vikuna. Jón Þórðarson var vænt-
anlegur til hafnar með 15 tonn og
Dalaröst landaði 15 tonnum eftir
stutta útiveru.
Gæftir hjá skakbátum hafa
verið afleitar og sem dæmi má
nefna að bátar frá Þingeyri hafa
ekki komist á sjó frá 24. ágúst
þar til að þeir komust út á mánu-
dag. Afli skakbáta hefur þó verið
góður þegar gefið hefur.
S.V.
Norðurland
Tveir Akureyrartogarar lönduðu
í vikunni. Sléttbakur lándaði 218,1
tonni og var aflaverðmætið kr.
1.626.700. Þá landaði Kaldbakur
hinn 24. ágúst 200.1 tonni og var
aflaverðmætið 1.703.746.
Frá Skagaströnd er það að frétta,
að Arnar er enn í slipp og afli
smærri báta hefur verið mjög
tregur. Frystitogarinn Orvar land-
aði á Skagaströnd í vikunni.
Tveir .Skagafjarðartogaranna
lönduðu í vikunni. Drangey land-
aði 115,3 tonnum hinn 24. á Sauð-
árkróki og þann 26. landaði Hegra-
nes 170 tonnum. Afli smærri báta
frá Skagafirði en frekar tregur.
Stálvík landaði 93.4 tonnum á
Siglufirði á mánudeginum og var
skiptaverðmætið kr. 807.507.00.
Afli minni báta hefur verið sæmi-
legur og góður hjá mörgum í vik-
unni.
Á Ólafsfirði landaði Sólberg 90
tonnum og Sigurbjörg 123 tonnum.
Mjög tregt hefur verið hjá Ólafs-
fjarðartrillum á heimaslóð, en
stærri trillurnar hafa fengið góðan
afla við Grímsey þegar þær hafa
getað sótt þangað.
Á Dalvík landaði Dalborg 67.9
tonnum í vikunni og var afla-
verðmætið kr. 866.892. Baldur
landaði einnig, alls 57.8 tonnum og
var aflaverðmætið kr. 733.219.
Einnig landaði Björgúlfur alls
122.3 tonnum og var aflinn mest
þorskur. Einn bátur er á netum,
Otur, og landaði hann 10.8 tonn-
um.
Trillur á Hjalteyri lönduðu 2.4
tonnum í vikunni.
í Grenivík landaði Hákon 59.7
tonnum og netabáturinn Sjöfn
landaði tvisvar alls 29.1 tonni.
Á Húsavík landaði Kolbeinsey
117.5 tonnum og Júlíus Hafstein
landaði 73.5 tonnum. Þar lönduðu
einnig tveir handfærabátar tæp-
lega 6 tonnum. Trillubátar lönduðu
síðan 35 tonnum á Húsavík.
Smábátar á Raufarhöfn lönduðu
31.7 tonni í vikunni og í Hríey land-
aði Ólafur Magnússon 39.1 tonni og
Þórður Jónasson landaði 50.3
tonnum. Mikil ótíð hefur verið hjá
Grímseyjarbátum að undanförnu
og komust bátarnir lítt á sjó í vik-
unni.
Austfírðir
Á Fáskrúðsfirði landaði Ljósafell
116 tonnum, en togarinn var á
skrapi. 70 tonn af aflanum var
karfi og brúttóverðmæti aflans var
rösklega 1 milljón kr. Afli minni
báta er lítill eða enginn. Sólborg
seldi erlendis í vikunni og Fá-
skrúðsfjarðarbátarnir Þorri og
Guðmundur Kristinn eru byijaðir
á línu. Hafa þeir víða reynt, en lítið
hefur fengist.
Gullver landaði rösklega 100
tonnum á Seyðisfirði í vikunni. Var
aflinn 30 tonn grálúða, 60 tonn
karfi og 10 tonn ýsa. Afli minni
báta hefur verið 300-400 kíló á dag.
Togbáturinn Ottó Wathne landaði
18 tonnum.
Hólmanes landaði 50 tonnum á
Eskifirði, en skipið var á skrapi.
Afli annarra báta frá Eskifirði hefur
verið mjög tregur að undanförnu.
Þó hefur Sæþór, sem er með net í
firðinum fengið 1400 til 1500 kíló
á dag.
í Neskaupstað landaði Barði 67.3
tonnum og var skiptaverðmætið
585.500 kr. smærri bátar lönd-
uðu alls 45.4 tonnum. Afli þeirra
var góður fyrri hluta vikunnar en
seinni hlutann fékkst lítill fiskur.
V estmannaeyj ar
Þrír Vestmannaeyjatogararnir
lönduðu í vikunni. Fyrst landaði
Klakkur en togarinn þurfti að
koma inn vegna bilunar. Þá land-
aði Vestmannaey 57 tonnum og
Sindri 130 tonnum.
Afli togbáta hefur verið tregur,
en þó landaði Huginn 38 tonnum og
Helga Jó 29 tonnum. Fjöldi togbót-
anna hefur fengið lítinn sem eng-
ann afla.
Þorlákshöfn
Frekar lítið var um landanir í
Þorlákshöfn í síðustu viku. Fimm-
tán bátar eru nú gerðir þaðan út
með troll og aflahæstur þeirra var
Guðfinna Steinsdóttir með 47 tonn,
þá kom Sæunn Sæmundsdóttir með
35 tonn. Ein togaralöndun var.
Þorlákur landaði 84 tonnum.
Togarinn Jón Vídalín kom til Þor-
lákshafnar á föstudag eftir tveggja
mánaða yfirhallningu erlendis.
Suðurnes
Grindavíkurbátar eru lítið byij-
aðir róðra á ný, en þó eru minni tog-
bátar byijaðir sumir hverjir. I vik-
unni landaði Þórkatla 5,8 tonnum
og Reynir landaði 8 tonnum. Afli
togbáta og sömuleiðis handfæra-
báta er tregur.
Afli Keflavíkurbáta var misjafn
í vikunni eða frá nokkur hundruð
kílóum upp í rúm 8 tonn. Stafnes,
sem er á netum, landaði 8.2 lestum
af einnar náttar netafiski og línu-
báturinn Freyja landaði 9 tonnum
eftir tvær lagnir. Snurvoðabátar
kroppa vel, eru með þetta 5-7 tonn
eftir daginn. Togarinn Ymir land-
aði 214 tonnum.
Frá Sandgerði er það að frétta, að
þar eru það helst togbátar sem fá
fisk. Sem dæmi má nefna að Elliði
landaði 13 tonnum hinn 23. og
aftur 9.4 tonnum þann 26. ágúst.
Jón Gunnlaugs landaði svo 14
tonnum 26. ágúst. Afli togbátanna
er aðallega ýsa.
Þrír togarar lönduðu í Sandgerði
í vikunni. Voru það Erlingu með 73
tonn, Sveinn Jónsson með 131 tonn
og Sveinborg með um 40 tonn.
Reykjavík
Sjö togarar lönduðu í Reykjavík
í síðustu viku. Ingólfur Arnarson
landaði 92.7 tonnum á mánudag og
sama dag landaði Ásþór 82 tonnum
af þorski. Ögri landaði hinn 23.
136 tonnum. Daginn eftir landaði
Viðey 127 tonnum og Hjörleifur
landaði 151 tonni sama dag. Jón
Baldvinsson landaði 191.5 tonni og
Ottó N. Þorláksson 194 tonnum.
Efling byggóar
og atvinnulifs
til sjós og lands
Landsbanki íslands hefur að
baki nær 100 ára reynslu i
þjónustu við atvinnuvegi
þjóðarinnar. A þessu tímabili
hefur Landsbankinn tekið
virkan þátt í baráttu þjóöar-
innar fyrir sjálfstæði og betri
lífskjörum. Spariféð sem
geymt er í Landsbankanum
hefur gert honum kleyft aö
leggja hönd á plóginn.
Þjónusta Landsbankans hefur
ætíð haldist í hendur við upp-
byggingu sjávarútvegs, land-
búnaðar, iónaðar og verslunar.
LANDSBANKINN
Banki allra landsmanna