Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.01.1984, Side 3

Fiskifréttir - 06.01.1984, Side 3
föstudagur 6. janúar 3 Tvö Sambandsskip með fisk fyrir meira en 130 milljónir Tvö frystiskip Sambandsins Skafta- fell og Jökulfell lestuðu á dögunum og fluttu til Sovétríkjanna fisk að verðmæti 130 milljónir króna. Skaftafell fór til Murmansk ■ Sovétríkjunum, þar sem það losaði 1500 lestir af frystum fiski. Verðmæti físksins var 2,3 milljónir dollara eða jafnvirði rösklega 66 milljónum ísl. króna. Japanir byggja fiski- rannsóknastöð í Sam- einuðu furstadæmunum J apanir eru nú að byggja fiskivís- inda- og rannsóknarstöð í Sam- einuðu arabísku furstadæmunum, að sögn blaðsins World Fishing. Áætlaður byggingarkostnaður stöðvarinnar er um 6 milljónir doll- ara, og þar mun arabískum sjó- mönnum gefinn kostur á að læra meðferð nútíma fiskiskipa og veiðarfæra og ennfremur verður lögð mikil áhersla á alla tækni- kennslu af hálfu Japana. Tværsölurerlendis Tvö íslensk fiskiskip seldu afla erlendis milli jóla og nýárs. Már SH seldi 190,2 tonn í Þýskalandi dag- ana 27. og 28. desember. Fyrir afl- ann fengust kr. 2.924.101 og var meðalverð á kíló kr. 15.37. Helga RE seldi í Þýskalandi hinn 29. desember, alls 55 tonn fyrir kr. 1.349.374 og var meðalverð á kíló kr. 24.50. Alls flutti skipið 55.000 kassa af freðfiski til Sovétríkjanna í þessari ferð. Þar af voru 40.000 kassar frá Reykjavík. Það er mesta magn af freðfiski, sem skip Skipadeildar Sambandsins hefur lestað í einu á einni innlendri höfn hingað til. 15.000 kassar voru frá Þorláks- höfn. Milli jóla og nýárs lestaði Jökul- fell álíka mikið af frystum fiski, sem einnig fer til Murmansk og er samanlagt verðmæti þessara tveggja farma meira en 130 mill- jónir króna. Þetta eru fyrstu farmamir sem fluttir eru til Sovétríkjanna sam- kvæmt samningi, sem gerður var við Sovétmenn í byrjun desember. Þá samdist svo um, að Sovétmenn keyptu héðan 23.000 lestir af fryst- um fiski að verðmæti rösklega 33 milljónir dollara, eða meira en 930 milljónir ísl. króna. Þessi samn- ingur er talinn með þeim hagstæð- ari, sem gerðir hafa verið við Sovét- menn á þessu sviði, auk þess sem hann leysti mikinn birgðavanda frystihúsanna. Samningsgerðina önnuðust Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri Sjávarafurðar- deildar Sambandsins, og Árni Finnbjörnsson, framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna. Af þeim 23.000 lestum af fiski, sem fara til Sovétríkjanna sam- kvæmt þessum samningi, eru 17.000 lestir ýmis konar fiskflök, mest karfi eða 70 til 75%. Um 6.000 lestir eru heilfrystur fiskur, aðal- lega grálúða og annar flatfiskur. Erfið sjósókn frá Vest- mannaeyjum í des. Vestmannaeyjar 2. janúar. Erfitt tíðarfar setti svip sinn á jólamánuðinn að þessu sinni. Nokkrir trollbátar reyndu við sjó- sókn, en lítill sem enginn afli fékkst. Nokkrar togaralandanir voru í desember og landaði Bergey 50 tonnum og Sindri 103 tonnum, hinn 12. desember. Hinn 13. land- aði Vestmannaey 69 tonnum. Breki seldi 116 tonn í Þýskalandi skömmu fyrir jól. Togarinn fór beint til veiða á Austfjarðamiðum, var þar í 3 sólarhringa og landaði 56 tonnum 27. desember. Klakkur landaði 108 tonnum hinn 15. desember og aftur 69 tonn- um hinn 27. desember. Bergey landaði 36 tonnum 21. desember. Hjá Hraðfrystistöðinni í Vest- mannaeyjum voru fryst 469,5 tonn af síld að þessu sinni og þar voru saltaðar rösklega 4.000 tunnur af síld. IG. TCM Lyftari Löng reynsla við sjávarsíðuna Til á lager rafmagns og diesel lyftarar, með eða án snúnings. Handlyftarar Notaðir diesellyftarar TOOGURHF. Bíldshöfða 16—Sími81530 SENN LIÐUR AÐ KOMU GIDEONS Nú líður senn að því að Vest- smíðaðir í Gdansk í Póllandi og eru 32.7 mannaeyjabáturinn Gideon komi til metrar að lengd. Aðalvél bátanna er 840 landsins. Gideon er í eigu Samtog hf. í hestafla. Cegielski-Sulzer. Kaupin á Vestmannaeyjum og á fyrirtækið von á Gideon og systurskipi hans eru meðal ann- samskonar báti síðar í vetur. Bátarnir eru ars fjármögnuð með því að frystihúsin í Eyjum leggja hluta af útflutningsverðmæti til hliðar og er sú upphæð notuð til að fjár- magna kaupin á skipunum. Myndirnar voru teknar þegar Gideon var hleypt af stokkunum HvaÓ eefur miðií happdtætti I SÍBS? Hann gefur þér gott tækifæri til að hreppa vinning allt upp í milljón — eða einn þeirra mörgu sem eru lægri en munar þó um. Og hver seldur miði á þátt í að gefa 3Úsundum betri tækifæri til að endurheimta leilsu sína og þrek. Öllum ágóðanum er varið til að byggja upp þá aðstöðu sem SÍBS hefur skapað til endurhæfingar og starfa við hæfi fólks sem hefur skert starfsþrek. Happdrætti SÍBS wi hagur þinn og heildarinnar

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.