Morgunblaðið - 13.07.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Farþegar á leið sinni úr landi í
gegnum flugstöð Leifs Eiríkssonar
geta ekki innritað sig í flugið sjálf-
virkt, hvort sem er á netinu eða í
þar til gerðum innritunarvélum.
Birna Ósk Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá
Icelandair, segir unnið að lausnum.
„Vandinn liggur í því að aðgangs-
kröfur eru mismunandi eftir áfanga-
stöðum og síbreytilegar. Við erum
skuldbundin til þess að fara yfir
ákveðin heilbrigðisgögn áður en við
hleypum fólki um borð.“
Birna segir ferlið einfaldlega ekki
vera orðið sjálfvirkt, þ.e. að fólk geti
hlaðið inn viðeigandi skjölum. Ama-
deus er bókunarkerfi sem Iceland-
air auk margra annarra flugfélaga
notast við og segir Birna að þar sé
verið að vinna að lausn og sam-
kvæmt þeirra upplýsingum ætti hún
að liggja fyrir seinni part ágústmán-
aðar.
Sýna skilning
Birna segir skiljanlegt að sumir
geri sér ekki grein fyrir því að nú
þurfi að innrita alla handvirkt en
Icelandair hafi lagt kapp á að koma
öllum upplýsingum til viðskiptavina.
Hún segir alla viðskiptavini sýna
öllum aðgerðum á flugvellinum mik-
inn skilning, flestir séu bara ánægð-
ir að geta yfirhöfuð ferðast.
Upplýsingaveitan Sherpa er nú
komin inn á vefsíðu Icelandair, en
þar er hægt að nálgast upplýsingar
um hvaða aðgangskröfur eru í
hverju landi fyrir sig, auk þess
hvaða takmarkanir eru í gildi og
hvaða skjöl og kröfur þarf að upp-
fylla.
„Við byrjuðum á því að reyna að
halda utan um þetta sjálf, en þetta
breytist gífurlega hratt. Við hrein-
lega vorum ekki með mannafla til að
halda þessu við,“ segir Birna.
Farþegar geta ekki
innritað sig sjálfvirkt
- Aðgangskröfur mismunandi - Ekki komin sjálfvirk lausn
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Heildarmat kostnaðar við nýbygg-
ingar Landspítalans á Hringbraut
var 62,8 milljarðar króna árið 2017,
uppfært til verðlags í desember
2020, en nú er gert ráð fyrir að þær
muni kosta alls 79,1 milljarð.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í svari fjármála- og efnahags-
ráðherra við fyrirspurn Bergþórs
Ólasonar þingmanns um kostnað við
byggingu nýs Landspítala.
Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf.,
segir breytinguna skýrast af auknu
umfangi verkefnisins.
Tekin hafi verið ákvörðun um að
stækka meðferðarkjarnann, sem er
stærsta bygging verkefnisins, úr 53
þúsund fermetrum í 70 þúsund fer-
metra. Það var gert bæði vegna end-
urrýni á ferlum starfseminnar og
einnig vegna ákvörðunar um að gera
kröfu til hússins um að standa af sér
mun öflugri jarðskjálfta en almennt
er gert í byggingarreglugerðum.
Starfhæft eftir jarðskjálfta
Húsið sé nú talið verða starfhæft
nokkrum klukkustundum eftir slík-
an jarðskjálfta sem líklegast ætti
upptök sín í Brennisteinsfjöllum.
Samhliða stækkuninni urðu vegg-
ir einnig mun þykkari og meira
magn af stáli notað í húsið. Sams
konar breytingar voru gerðar á
rannsóknahúsinu sem er 17 þúsund
fermetrar. Gunnar segir þessar
breytingar eiga stærsta þáttinn í
kostnaðarhækkununum ásamt verð-
hækkunum á mörkuðum.
Þar að auki segir hann að ákveðið
hafi verið að stækka gatnagerðar-
verkefnið í kringum spítalann og
horfa til framtíðar með því að taka
allt nýbyggingarsvæðið við Hring-
braut fyrir. Bætt hefur verið við bíla-
kjallara undir miðjutorg svæðisins,
sem rúmar 200 bíla.
Nýbyggingar Hringbrautarverk-
efnisins verða alls fjórar. Sjúkrahót-
elinu var skilað til rekstrar í upphafi
árs 2019, meðferðarkjarninn er á
framkvæmdastigi en rannsóknahús
og bílastæðahús eru á hönnunarstigi.
„Það er stöðugt verið að rýna
áætlanir, bæði tíma- og kostnaðar-
áætlanir. Það er mikilvægt að birta
stjórnvöldum allar breytingar en um
leið að tryggja að verkefnið sé innan
áætlunarrammans og verkefnin séu í
samræmi við heimildir Alþingis.“
Þá skipti máli að gera sér grein
fyrir þeirri áhættu sem er til staðar,
leggja mat á hana og vera á vaktinni
með mildunaraðgerðir.
Óvissa er alltaf nokkur, en fer
minnkandi eftir því sem verkinu
vindur fram. Alltaf er því um ein-
hverjar breytingar að ræða.
Nýr spítali verður stærri og dýrari
- Áætlaður kostnaður nýs Landspítala hækkað um 16,3 milljarða frá 2017 - Skýringin aukið umfang
Morgunblaðið/Eggert
Landspítali Meðferðarkjarninn er á framkvæmdastigi. Hann verður
stærsta bygging nýs Landspítala. Myndin var tekin af grunninum í vor.
Eiríkur Sigurðarson, fyrrverandi
bóndi, er nú á leið sinni hringinn
um landið. Farartækið er þó af
fremur einkennilegri tegund, en
um er að ræða Belarus-dráttarvél
frá árinu 1967. Spurður hvort vélin
sé nýtt til einhverra verka segir Ei-
ríkur: „Nei, ég er nú bara að klappa
honum, horfa á hann og gera hann
upp.“
Eiríkur hefur áður gert upp tvær
sambærilegar Belarus-vélar. „Á ár-
unum 1966 til 1971 voru fluttar inn
74 svona vélar, allt Rússar, 20 hest-
afla, svo 40 hestafla eins og þessi
sem ég er á núna, og svo 55 hestafla
hlunkur.“
Eiríkur gerði upp 55 hestafla vél
sem hann fann norður í Mývatns-
sveit og gaf hana síðan búminja-
safninu á Hvanneyri. Einnig keypti
faðir hans 20 hestafla vélina og Ei-
ríkur kláraði að gera hana upp fyr-
ir um fimm árum. Spurður hve
hratt hann fari yfir á hringferðinni
segir hann: „Ég er með GPS-tæki
hérna hjá mér og það sýnir yfirleitt
svona 26 eða 27 km/klst. Ég er allt-
af með hann í fullri gjöf náttúrlega
en ég er nú ekki á neinni hraðferð.“
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hring-
ferð á
traktor