Morgunblaðið - 13.07.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
13. júlí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.36
Sterlingspund 170.63
Kanadadalur 98.72
Dönsk króna 19.673
Norsk króna 14.148
Sænsk króna 14.363
Svissn. franki 134.8
Japanskt jen 1.1215
SDR 175.82
Evra 146.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.49
Hrávöruverð
Gull 1803.4 ($/únsa)
Ál 2470.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.67 ($/fatið) Brent
« Íslandsbanki
hefur sent frá sér
jákvæða afkomu-
viðvörun og var
hún send til Kaup-
hallar Íslands eftir
lokun markaða í
gær. Þar kemur
fram að drög að
uppgjöri annars
ársfjórðungs sýni
að hagnaður bank-
ans hafi numið 5,4
milljörðum króna á fjórðungnum og að
arðsemi eigin fjár nemi af þeim sökum
11,6%. Segir í tilkynningunni að það sé
„umfram fjárhagsleg markmið bank-
ans“ og að „til samanburðar nam hagn-
aður bankans um 3,6 milljörðum á
fyrsta ársfjórðungi 2021 og arðsemi
eigin fjár 7,7%“. Bent er á að frávikin á
frá fyrri fjórðungi og markmiðum bank-
ans skýrist að stærstum hluta af því að
virðisrýrnun er jákvæð og er um 1,1
milljarður króna og sé færð til tekna í
bókum bankans á fjórðungnum. „Til
samanburðar færði bankinn 0,5 millj-
arða til gjalda í virðisrýrnun á fyrsta
ársfjórðungi ársins. Þá höfðu hækkanir
á innlendum hlutabréfamörkuðum
einnig jákvæð áhrif á afkomu fjórðungs-
ins.“ Uppgjör Íslandsbanka fyrir annan
ársfjórðung verður formlega birt 28. júlí
næstkomandi.
Hagnaður Íslandsbanka
eykst milli fjórðunga
Hringt inn Bankinn
fór á markað í liðn-
um mánuði.
STUTT
BAKSVIÐ
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Útlit er fyrir að vísitala neysluverðs
hækki um 0,1% milli mánaða en
verðbólga lækkar úr 4,3% í 4,2% í
júlí ef spá Íslandsbanka gengur eft-
ir. Verðbólga hefur verið mun meiri
en síðustu ár vegna kórónuveiru-
faraldursins. Hækkandi fasteigna-
verð og hækkun á hrávörumörkuð-
um heimsins hafa haft áhrif á
verðbólgu hérlendis og erlendis en
vaxandi verðbólga er ekki eitthvað
sem Íslendingar þurfa að hafa
áhyggjur af, segir Bergþóra Bald-
ursdóttir, hagfræðingur hjá Ís-
landsbanka, nema hrávöruverð í
heiminum haldist hátt.
Ekki einskorðað við Ísland
Samkvæmt spám Íslandsbanka
er talið að verðbólga muni ná verð-
bólgumarkmiði Seðlabankans á
þriðja fjórðungi næsta árs.
„Við erum að sjá verðbólgu í öðr-
um löndum, til dæmis í Bandaríkj-
unum. Það er ekkert einskorðað við
Ísland að það sé verðbólga í þessu
ástandi. Ástæða þess að það tekur
verðbólguna langan tíma að fara
niður er sú að fasteignamarkaður-
inn þarf aðeins að róast. Hann er að
mælast mikið í verðbólgunni núna
og er stór ástæða fyrir því að verð-
bólgan er tiltölulega há en hún er
samt að hjaðna núna. Við sáum
hana í apríl vera 4,6% og svo er hún
komin í 4,3% og við erum að spá því
að hún verði 4,2% í júlí,“ segir Berg-
þóra.
Hún telur Seðlabankann ekki bú-
inn að bregðast við með meiri vaxta-
hækkunum vegna þess að verðbólg-
an er byrjuð að hjaðna og
mikilvægara sé að koma hagkerfinu
í gang, en þar af leiðandi verður
þrálátari verðbólga í staðinn.
„Seðlabankinn er þegar byrjaður
að hækka vexti og við höldum að
hann sé að fara að hækka núna jafnt
og þétt en við munum ekki búa við
þetta vaxtaumhverfi sem við vorum
vön áður fyrr og við teljum að við
verðum enn í lágvaxta-umhverfi. En
auðvitað mun Seðlabankinn hækka
vexti um leið og við sjáum fyrir end-
ann á þessari Covid-kreppu.“
Bergþóra segir Íslandsbanka enn
búast við áframhaldandi hækkunum
á húsnæðismarkaði en það muni
hægja á hækkunum og bætir við að
fasteignamarkaðurinn skýri um
30% af verðbólgunni þessa dagana.
„Við í greiningu Íslandsbanka
teljum forsendur fyrir því að íbúða-
verð haldi áfram að hækka, sérstak-
lega á þessu ári, þó hækkanir verði
hægari en verið hefur. Ró mun fær-
ast yfir markaðinn þegar vextir
taka að hækka sem og framboðið
tekur við sér, en það mun taka tíma
fyrir fasteignaverð að ná jafnvægi
og við teljum að það gerist ekki fyrr
en árið 2023.“
Yngvi Harðarson, framkvæmda-
stjóri Analytica, segir verðhækkan-
ir á hrávörum erlendis hafa mikil
áhrif á verðbólguþróun hér innan-
lands.
„Það sem spilar á móti þessu er
gengisþróun krónunnar sem hefur
áhrif á þetta líka og ýmsar aðrar að-
stæður innanlands, en þessar verð-
hækkanir sem hafa verið að ganga
yfir hrávörur hafa verið að ýta und-
ir verðbólguþróun bæði erlendis og
hérlendis,“ segir Yngvi.
Óeðlilegt ástand
Hann telur áframhaldandi hækk-
anir á hráolíu líklegar.
„Ég myndi segja að það megi al-
veg búast við því að sú þróun haldi
áfram; það hafa verið talsverðar
hækkanir á hráolíu undanfarið. Svo
blandast inn í þetta árstíðabundnar
verðbreytingar, sérstaklega á olíu
sem hefur haft þá tilhneigingu að
hækka í aðdraganda sumarsins og
yfir sumarmánuðina.“
Yngvi telur líklegt að þegar virð-
iskeðjur komast aftur í gang þá
byrji verðbólga að hjaðna.
„Þetta óeðlilega ástand sem hefur
verið á sumum mörkuðum, til dæm-
is timburmarkaðinum, mun lagast
en þetta verður kannski ekki eins-
leitt yfir alla hrávörumarkaði, ekki
jafn einsleitt og það hefur verið.“
Verðbólgumarkmiði náð á
næsta ári ef spár ganga upp
Morgunblaðið/Golli
Verðbólga Áframhaldandi hækkanir á hráolíu og fasteignum líklegar
næstu mánuði. Búast við hægari hækkunum á fasteignamarkaði.
- Hækkanir á hrávörumörkuðum valda áhyggjum - Búast við hægari hækkunum
Bergþóra
Baldursdóttir
Yngvi
Harðarson
Viðskipti með hlutabréf íslenska
tölvuleikjafyrirtækisins Solid
Clouds hófust á First North-
markaði Kauphallar Íslands í gær-
morgun. Skráningin á sér stað í
kjölfar hlutafjárútboðs sem félagið
réðst í þar sem það aflaði 725 millj-
óna króna til að styðja við áfram-
haldandi vöxt félagsins. Var eftir-
spurnin í útboðinu fjórföld.
Útboðsgengið var 12,5. Opnunar-
gengi bréfa félagsins í Kauphöll
var 14,0. Gáfu bréfin nokkuð eftir
snemma dags og endaði gengi bréf-
anna í útboðsgenginu 12,5 eftir
fremur takmörkuð viðskipti upp á
25,7 milljónir króna. Eftir skrán-
inguna og fyrsta viðskiptadag er
markaðsvirði félagsins 2,3 millj-
arðar króna.
Fyrsti dagur Stefán Gunnarsson og Stefán Björnsson, stofnendur Solid
Clouds, hringja félagið inn ásamt Sigurlínu Ingvarsdóttur stjórnarformanni.
Takmörkuð velta á
fyrsta viðskiptadegi
- Markaðsvirði Solid Clouds 2,3 ma.