Morgunblaðið - 13.07.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.07.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Lögin „Regnbogans stræti“ og „Strákarnir á Borginni“ eru auðvitað systkini,“ segir Bubbi Morthens sem hefur nú gefið út sérstaka útgáfu af textaverkum sem hafa að geyma búta úr lögunum tveimur. Tilefnið er ekki gleðilegt því undanfarið hafa borist fréttir utan úr heimi um aukið hatur í garð samkynhneigðra, hatursglæpi og lög í Ungverjalandi sem banna allt það sem „ýtir undir samkynhneigð“, eins og segir í þeim. Bubbi segir skelfilegt að heyra fréttir af enda- lausum ofsóknum í Evrópu á hendur samkynhneigðum og nefnir sem dæmi nýlega lagasetningu í Ung- verjalandi sem bannar fræðslu um hinsegin fólk í skólum þar í landi en stjórn Samtakanna ‘78 hefur lýst yfir djúpstæðum áhyggjum af þróun mála í Ungverjalandi og þá sérstaklega af nýsamþykktum lögum sem stjórnin segir grófa aðför að tilverurétti hin- segin fólks í landinu og banni í reynd sýnileika þeirra og réttindabaráttu. Fasismi í fæðingu Bubbi segir að með þessu sé bann- að að ræða um mannlega náttúru í skólum. „Það sem maður er að upp- lifa er að það er einhvers konar fas- ismi að verða til,“ segir Bubbi. Textann við „Regnbogans stræti“ samdi hann fyrir fáeinum árum, á Hótel Færeyjum. „Ég var með tón- leika í Færeyjum og hafði verið á Seyðisfirði aðeins fyrr og sá þá göt- una þar, Regnbogans stræti. Ég hugsaði með mér að nú væri komið að því, nú myndi ég gera þetta lag sem væri búið að vera svona lengi inni í mér,“ segir Bubbi. Hann skrifaði textann við lagið, „Regnbogans stræti“, á bréfsefni hótelsins og samdi við það lag. Bubbi segir að þar sem textinn hafi verið handskrifaður hafi hann getað gert úr honum texta- verk í anda þeirra sem hann gaf út í árslok í fyrra. Og nú eru þau fáanleg á bubbi.is, í öllum regnbogans litum. Gjöf til samfélagsins Nú styttist í Hinsegin daga en þeir verða haldnir 3.-8. ágúst og Gleði- gangan fer fram með pompi og prakt laugardaginn 7. ágúst. Bubbi segist hafa ákveðið að gefa verkin út núna, skömmu áður en hátíðin hefst, og gefa þessu samfélagi öllu verk regn- boganum til heiðurs. „Og líka til að stíga fram með þessi verk sem ein- hvers konar innlegg inn í þessa geð- veiku hluti sem eru að gerast við bæj- ardyrnar,“ bætir hann við. Bubbi segir bráðnauðsynlegt að fjalla um þessa hluti, líkt og hann gerði í „Strákunum á Borginni“ fyrir margt löngu. „Ég veit að fólk trúir því ekki í dag en það var hrópað á mig úti á götu og hrækt á mig,“ rifjar Bubbi upp. Spurður að því hver hafi verið kveikjan að því lagi á sínum tíma, árið 1984, segir Bubbi að hann hafi horft upp á gegndarlaust ofbeldi í garð samkynhneigðra á skemmtistöðum og í samfélaginu. Umræðan hafi líka verið afar fordómafull. „Svo fyllti það mælinn þegar komu auglýsingar í blöðum um að sumir væru velkomnir en ekki allir og það voru auglýsingar við dyrnar á sumum skemmtistöðum um að hommar og lesbíur væru ekki velkomin. Þetta er ekkert langt síðan, þetta er bara 1981,“ segir Bubbi. Hann segir lagið einfaldlega hafa verið viðbragð við ákveðnu sam- félagsmeini. „Þannig að í rauninni er ég að viðhalda þessu innleggi með verkunum,“ segir Bubbi um texta- verkin nýju og minnir á hversu stutt sé í fordómana. Þeir grasseri enn í dag í íslensku samfélagi. Bubbi segir verkin eiga sér sögu og skipta máli í umræðunni og þá sér- staklega fyrir regnbogafólkið. Þá sé regnboginn hin fullkomna táknmynd fyrir samkynhneigða og allt LGBTQ- samfélagið. „Regnboginn er auðvitað brjálæðislegt náttúruundur og feg- urð,“ segir Bubbi. Allt snýst um að verða vinsæll Bubbi er spurður hvort honum þyki íslenskir tónlistarmenn í dag gera nóg af því að semja um samtíma sinn og tjá sig um hin ýmsu samfélagsmein. Nei, þeir gera ekki nóg af því, að hans mati. „Í dag snýst þetta allt um að verða vinsæll, að verða áhrifavaldur, að vera á G-streng, að semja um eitt- hvað sem pottþétt mun selja í staðinn fyrir þörfina að skapa, að hafa eitt- hvað til málanna að leggja, að þora og hafa kjark til að stíga fram og semja um eitthvað sem er ekki vinsælt og segja hluti sem geta valdið úlfúð,“ segir Bubbi. Að hafa eitthvað til mál- anna að leggja skipti meira máli en smellir á samfélagsmiðlum eða fjöldi streyma á Spotify. „Það skiptir gríð- arlega miklu máli að listamenn hafi kjark og þor til að stíga fram og segja hlutina. Ég er ekki að segja að það eigi að vera „twenty-four seven“ en það sem þú ert að benda á, réttilega, er að það er ótrúlega lítið af þessari rödd,“ segir Bubbi en mikil þörf sé fyrir þá rödd. „Ef þeir listamenn, sem hafa hvað mest til málanna að leggja hjá ungu kynslóðinni, eru ekki að spegla samfélagið eins og það birtist þeim þá erum við að tapa heilmiklu.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Regnbogastræti Bubbi lék og söng lög af plötunni Regnbogans stræti á regnbogamáluðum Skólavörðustíg sum- arið 2019. Lagið sem platan er nefnd eftir varð til í Færeyjum og titillinn vísar í regnbogamálaða götu á Seyðisfirði. Verk til heiðurs regnbogafólkinu - Bubbi gefur út textaverk með bútum úr „Regnbogans stræti“ og „Strákarnir á Borginni“ - Uggandi yfir fréttum Litrík Fjögur verk unnin upp úr texta Bubba við „Regnbogans stræti“. S ögusviðið í nýju smásagna- safni Einars Lövdahl, Í miðju mannhafi, er fjöl- breytt; lýðháskóli í Kold- ing, tölvupósthólf stærstu vefhönn- unarstofu landsins og vinnustofa líkbrennslumeistara Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Einar er annar tveggja höfunda sem báru sigur úr býtum í handrita- samkeppni Forlagsins, Nýjar radd- ir, í ár. Sögurnar í safninu eru átta, fæstar lengri en tíu síður, og eiga það flestar sameiginlegt að fjalla um veruleika ungs fólks í samtím- anum. Í kynningartexta á kápu verksins er lögð áhersla á hreinskilna nálgun höfundar á karlmennsku, sem vissu- lega er til staðar. Sumar sögurnar varpa ljósi á ýmsa fleti karlmennsk- unnar og sýna jafnvel hvernig við- teknar hugmyndir um karlmennsku geta verið eitraðar. Þar kemur æs- ingurinn sem á það til að einkenna knattspyrnu, jafnt innan vallar sem utan, við sögu. Auk þess sem, í sög- unni „Rót“, rifjast upp niðurlægj- andi atvik fyrir ungum manni sem leitar að rót þess vanda að honum vex ekki nægilegt skegg. Aðstæð- urnar sem hann lendir í við þessa leit sína eru grátbroslegar og sama lýsingarorð má nota um ýmis augnablik sem Einar lýsir í sög- um sínum. Húm- orinn er aldrei langt undan þótt aðstæðurnar séu oftar en ekki hálfdapurlegar. Í miðju mann- hafi er þó ekki verk sem ein- skorðast við karlmenn og karl- mennsku. Síður en svo. Pressan til að eignast börn og eftirköst kyn- ferðisbrots, sem mynda kunnuglegt stef, koma við sögu og er þar raun- heimur ungra kvenna ekki síður í forgrunni. Í sögunni „Blöðrur“, sem er með betri sögum safnsins, bíður Aþena óþreyjufull eftir móður sinni og skartar úri um ökklann til þess að vera alveg eins og hún. Þetta er saga þriggja kynslóða kvenna þar sem Einar skiptir fumlaust milli sjónarhorna. Þar skín í gegn sú samúð höfundar með persónum sín- um, sem einkennir safnið í heild. Textinn sem Einar sendir hér frá sér er vandaður og einlægur og greinilegt að höfundurinn skrifar af öryggi. Það má þó segja að sögurn- ar séu full snyrtilegar. Það vantar í þær eitthvað krassandi, einhverja dýpt, eitthvað sem kemur á óvart, eitthvað sem fær lesandann til þess að staldra við. Galdurinn við góða smásögu er nefnilega að segja margt í fáum orðum og hér hefði oftar en ekki mátt segja aðeins meira. Að því sögðu er sagnasafn Einars fínasta verk til að taka með sér í sumarbústaðinn, hugguleg afþrey- ing í hæfilegum smáskömmtum. Ný rödd Í miðju mannhafi er fyrsta smásagnasafn Einars Lövdahl. Grátbrosleg huggulegheit Smásagnasafn Í miðju mannhafi bbbnn Eftir Einar Lövdahl. Forlagið, 2021. Kilja, 110 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.