Morgunblaðið - 14.07.2021, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 4. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 163. tölublað . 109. árgangur .
FYRSTA SKÁLD-
SAGA ÖNNU
HAFÞÓRSDÓTTUR Á SÉR EKKI HLIÐSTÆÐU
NÆSTUM
ALLIR NÝTA
NETVERSLUN
LITIÐ YFIR GOSMÆLINGAR 4 VIÐSKIPTAMOGGINNKONA Í KRÍSU 24
Örtröð var við Laugardalshöllina í gær, þegar margir mættu
þrátt fyrir að hafa ekki fengið boð í bólusetningu, þar á meðal
fólk búsett erlendis sem þurfti að skrá sérstaklega inn í kerf-
ið. Fólk í sóttkví fékk bólusetningu út í bílana sína og mynd-
uðust biðraðir. Gert er ráð fyrir að í dag verði síðasti bólu-
setningardagurinn í höllinni. »2
Síðasti bólusetningardagurinn í höllinni runninn upp
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bergþór Ólason, þingmaður Mið-
flokksins, hefur áhyggjur af því að
kostnaður við verkefni Nýs Land-
spítala ohf. muni aukast.
Hann telur bæði að kostnaður við
verkið af núverandi umfangi verði
umfram áætlanir og einnig að veru-
legur kostnaður muni fylgja því að
lagfæra eldri byggingar spítalans
umfram það sem reiknað er með.
Í svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn Bergþórs kemur fram að und-
irbúningur standi yfir að heildstæðri
áætlanagerð fyrir verkefnið. Úti-
lokað sé að henni verði lokið fyrr en í
lok árs 2022 því enn eigi eftir að taka
ákvarðanir um hvað af eldra hús-
næði spítalans verður nýtt og hvaða
breytingar þurfi að gera. »6
Kostnaður
gæti aukist
Morgunblaðið/Eggert
Hringbraut Nýr spítali að rísa.
- Heildarkostnaður
Nýs Landspítala óljós
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eigendur tveggja byggingarlóða á
Hlíðarenda hafa óskað eftir leyfi
fyrir 350-390 íbúðum á lóðunum í
stað atvinnuhúsnæðis sem átti að
vera samtals 35 þúsund fermetrar.
Eigendur reitanna eru félagið S8
ehf. annars vegar og eignasjóður
Reykjavíkuborgar hins vegar.
Miðað við að lóðaverð á íbúð sé að
jafnaði um 10 milljónir gæti sala lóð-
anna skilað 3-4 milljörðum króna.
Samkvæmt heimildum Viðskipta-
Moggans hafa fulltrúar borgarinnar
tekið jákvætt í þessar hugmyndir.
Því eru menn eftir atvikum von-
góðir um að tillagan fái brautargengi
en lóðasalan gæti skilað borginni vel
á annan milljarð króna.
Hætt við að reisa risahótel
Með umsókninni, sem ASK arki-
tektar leggja fram fyrir hönd lóða-
hafa, er horfið frá hugmyndum um
risahótel á öðrum reitnum, svo-
nefndum H-reit, en áformað var að
reisa þar 400-450 herbergja hótel.
Samtals er búið að byggja eða
skipuleggja um 710 íbúðir á reitum
B-F á Hlíðarenda. Með reitum G og
H gæti sá fjöldi farið í tæplega 1.100
íbúðir og með því orðið til rúmlega
tvö þúsund manna hverfi.
Ekki er gert ráð fyrir atvinnuhús-
næði á jarðhæð á nýju reitunum
tveimur, G og H, og mun ástæðan
fyrir því vera mikið framboð slíks
húsnæðis í hinu nýja hverfi.
Gert er ráð fyrir að Hringbrautin
fari í stokk sem hefjist norðan við H-
reitinn. Þá er mikil uppbygging
fyrirhuguð á svonefndum BSÍ-reit.
Stækkar byggð
við flugvöllinn
- Sótt um leyfi fyrir allt að 390 íbúðum á Hlíðarendareitum
MViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haukahlíð 2 og 4 Reitur H er til vinstri en reitur G er til hægri á myndinni.
Athafnahjónin Aron Einar Gunn-
arsson og Kristbjörg Jónasdóttir
hafa gengið til liðs við fulltrúa Kola-
portsins en fram undan er umbreyt-
ing þess í Hafnarþorpið.
Með Hafnarþorpinu á að skapa al-
þjóðlegt markaðstorg með matar-
torgi og matarmarkaði, auk þess
sem Kolaportið verður á sínum stað.
Aron Einar segir í samtali við Við-
skiptaMoggann að þau hjónin útiloki
ekki frekari fjárfestingu í mið-
bænum en þau hafa meðal annars
fjárfest í hótelrekstri og húðvörum.
Ívar Jósafatsson kemur að
Hafnarþorpinu en hann hefur m.a.
starfað með Cristiano Ronaldo.
Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson
Fjölskyldan Aron Einar með Trist-
an Þór og Kristbjörg með Alexand-
er. Fyrir framan er Óliver Breki.
Endurgera
Kolaportið
- Aron Einar og
Kristbjörg fjárfesta