Morgunblaðið - 14.07.2021, Side 8

Morgunblaðið - 14.07.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 Í örlitlum þingstubbi þriðjudagsins í liðinni viku, þessum sem hald- inn var til að bjarga alþingiskosn- ingunum, var líka tilkynnt um frest- un svara við nokkrum fyrirspurnum, þar á meðal frá tveim- ur alþingismönnum sem brátt hverfa af þingi, að sinni í það minnsta. Önnur fyrir- spurnin er frá Gunn- ari Braga Sveinssyni alþingismanni til ut- anríkis- og þróunar- samvinnuráðherra. Þar spurði Gunnar Bragi: „Hve margar tilskipanir og reglu- gerðir Evrópusam- bandsins hafa verið innleiddar í íslenskan rétt á yfirstandandi kjörtímabili?“ Fyrir- spurnin var lögð fram rúmum mán- uði fyrr og má það teljast nokkurt áhyggjuefni að ekki hafi tekist að telja fyrirspurnirnar á þeim tíma. - - - Hin fyrirspurnin er frá Sigríði Ásthildi Andersen og snýr einnig að EES-málum og beinist að sama ráðherra. Hún er í þremur lið- um og snýst um það hvaða undan- þágum EES-gerða á vettvangi sam- eiginlegu EES-nefndarinnar Ísland hafi óskað eftir á árabilinu 2015– 2020 og hversu oft hafi verið fallist á slíkar undanþágur? Þá spyr hún hvort sambærilegar upplýsingar liggi fyrir um önnur EES/EFTA-ríki og enn fremur hvort þær „aðlaganir og undanþágur séu enn í gildi sem veittar voru fyrir árið 2014“, en Sigríður lagði fram sambærilega spurningu fyrir sex árum. - - - Miklu skiptir að utanríkisráðu- neytið veiti sem fyrst skýr og sundurliðuð svör við þessum fyrir- spurnum. Vitað er að Ísland hefur ekki nýtt sér möguleika á undanþág- um sem skyldi, en upplýsingar um þetta verða að liggja sem nákvæm- ast fyrir. Gunnar Bragi Sveinsson Spurningar sem verðskulda svör STAKSTEINAR Sigríður Á. Andersen Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Læknafélag Íslands hefur skipað starfshóp til að fara yfir breytingar sem gerðar hafa verið á skipulagi og framkvæmd skimunar á leghálsi síðastliðið ár og aðdraganda þeirra. Í ályktun stjórnar LÍ segir að efasemdir hafi komið fram um að niðurstöður skýrslu heilbrigðisráðherra til Alþingis um málið gefi rétta mynd af at- burðarásinni og ábyrgðarsviði einstakra aðila. Skimanirnar voru fluttar frá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands til heilsugæslunnar í upphafi árs og greining sýna færð til erlendr- ar rannsóknastofu. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er hópnum falið að taka saman þau sjónarmið sem fram hafa komið með og á móti nýju fyrirkomulagi. Hann á að skila áliti eigi síðar en 1. október 2021. Vilja svör við spurningum Þá sendu forsvarskonur hópsins „Aðför að heilsu kvenna“, sem hefur gagnrýnt nýtt fyr- irkomulag leghálsskimana, opið bréf til heilbrigðisráðherra í gær. Þar er þeirri ákvörð- un að frá næstu áramótum fari rannsóknarhluti leghálsskimana aftur fram á Íslandi fagnað. Upplýsingar um ferlið hafi hins vegar verið af skornum skammti og óskar hópurinn eftir svörum við nokkrum spurningum. Þær snúa meðal annars að því hvort Landspítala hafi verið tryggt fjármagn til að sinna greiningum sýna og hvort formlegur undirbúningur sé haf- inn. Krafist er að notendur þjónustunnar séu hafðir með í ráðum og þeir upplýstir um stöðu mála. Læknafélagið skipar eigin starfshóp - Hafa efasemdir um skýrslu heilbrigðisráðherra - Sendu opið bréf til ráðherra Framkvæmdir standa nú yfir á Eg- ilsstaðaflugvelli, en verið er að mal- bika flugbrautina á vellinum. Brautin er 2.000 metra löng og 45 metra breið og til stendur að mal- bika hana alla. Um er að ræða 131 þúsund fermetra og í það þarf yfir 18 þúsund tonn af malbiki. Verkið var boðið út og auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu, en ein- ungis eitt tilboð barst í verkið. Hlaðbær Colas bauð tæpar 870 milljónir, án vsk., í verkið. Áætlað er að verkið klárist í ágúst og heild- arkostnaðaráætlun hljóðar upp á tæplega 1,4 milljarða. Örn Pét- ursson, verkefnastjóri hjá Colas á Íslandi, segir framkvæmdirnar ganga vel. „Við byrjuðum þarna 6. júlí og erum bara á áætlun eins og er,“ segir Örn. Hann segir stefnt að því að klára malbikunarvinnu um verslunarmannahelgi og þá sé ljósavinna eftir. Spurður hvort útlit sé fyrir að verkið standist kostn- aðaráætlun segir Örn: „Eins og er er allt á áætlun og ekkert útlit fyrir að við förum yfir hana.“ 131 þúsund fermetrar malbikaðir fyrir austan Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Egilsstaðaflugvöllur Framkvæmdir við malbikun eru í fullum gangi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.