Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 13

Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 Fimi Smiðir og verkamenn í byggingarvinnu þurfa að vera liprir og lausir við lofthræðslu þegar steypumótin eru slegin frá, og vissara að gæta fyllsta öryggis í leiðinni. Árni Sæberg Sérfræðingar Efna- hags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) segja að ís- lensk stjórnvöld hafi brugðist djarflega við efnahagslegum afleið- ingum kórónuveir- unnar en um leið beitt sveigjanleika í aðgerð- um. Þá hafi þegar ver- ið mörkuð stefna til að tryggja sjálfbærni ríkisfjármála til lengri tíma að loknum faraldrinum. Í nýrri skýrslu OECD um ís- lenskt efnahagslíf, sem kynnt var í síðustu viku, segir að þrátt fyrir þungt högg af völdum kórónuveir- unnar hafi aðgerðir, jafnt á sviði ríkisfjármála og peningamála, verið árangursríkar. Á blaðamannafundi sagði Alvaro S. Pereia, for- stöðumaður hagrannsókna OECD, að íslenskt efnahagslíf væri á góð- um vegi til efnahagslegrar end- urreisnar eftir kórónukreppuna, fyrst og fremst vegna efnahags- úrræða stjórnvalda. OECD telur að hagvöxtur geti orðið meiri á næst- unni en áður var reiknað með – 2,2% á þessu ári og 4,7% á því næsta. Ágætt veganesti Í aðdraganda kosninga er skýrsla OECD ágætt veganesti fyrir stjórn- arflokkana. En skýrslan er annað og meira en yfirlit eða einkunn- argjöf fyrir hvernig staðið hefur verið að verki í glímunni við efna- hagslega erfiðleika með árangurs- ríkum hætti – og það með betri hætti en flestar aðrar þjóðir. Skýrslan varpar ljósi á þá gríðar- legu möguleika sem við Íslendingar eigum til að sækja fram og bæta lífskjör og lífsgæði allra landsmanna enn meira á komandi árum. En kerfislægir þættir koma í veg fyrir að við getum gripið öll tæki- færin og búið til önnur. OECD bendir á ýmsa ágalla, sam- keppnishindranir og áskoranir sem við þurfum að takast á við á komandi árum. Auð- vitað er sumt af því sem bent er á ekki óumdeilanlegt fremur en annað, en flest er sett fram af yfirvegun og með góðum rökstuðningi. Þeir sem sækjast eftir kjöri í alþingiskosn- ingum í september næstkomandi, gerðu margt vitlausara en að fara vandlega yfir skýrsluna sem er rétt liðlega 100 blaðsíður (að meðtöldum sérstökum kafla um loftslagsmál). Hindranir í veginum Ein helsta áskorun sem við Ís- lendingar þurfum að takast á við er að auka framleiðni á öllum sviðum, jafnt í opinbera geiranum sem og í atvinnulífinu öllu. Strangar reglu- gerðir kæfa samkeppni. Hindranir fyrir nýja innlenda eða erlenda aðila inn á markað eru miklar og það kemur í veg fyrir samkeppni. Þung stjórnsýslubyrði og umfangsmiklar og oft flóknar leyfisveitingar og leyfiskerfi virka sem vörn fyrir þá sem eru fyrir á fleti en draga úr frumkvöðlum og gera sprota- fyrirtækjum erfitt fyrir. Árið 2019 sömdu stjórnvöld við OECD um að gera sjálfstætt sam- keppnismat á regluverki sem bygg- ingastarfsemi og ferðaþjónustu er gert að starfa eftir. Matið var unnið í samvinnu við Samkeppniseftirlitið. Niðurstaðan sem var kynnt síðasta haust var sláandi. Bent var á 676 samkeppnishindranir í regluverki þessara tveggja starfsgreina, sem ætti að afnema. Með því sé hægt að gera umhverfið sveigjanlegra fyrir viðkomandi atvinnugreinar, skapa fleiri störf og auka framleiðni og vöxt í hagkerfinu á næstu árum. Nái tillögurnar fram að ganga gæti landsframleiðsla aukist um 32 millj- arða á ári. Byggingariðnaður og ferðaþjónusta eru innan við 20% landsframleiðslunnar. Ef til vill er staðan í þessum tveimur atvinnu- greinum verri en á öðrum sviðum. En það virðist ljóst að aukin fram- leiðni, jafnt hjá hinu opinbera og einkaaðilum, afnám samkeppnis- hindrana og einföldun regluverks geta bætt hag landsmanna um á annað hundrað milljarða á ári (og líklega gott betur). Traustir fætur, en Íslenskt samfélag stendur í flestu á traustum grunni, þótt ýmislegt þurfi að lagfæra. Jöfnuður er óvíða meiri innan OECD en á Íslandi. Eftir fjármálakreppuna hækkuðu lægstu laun hlutfallslega meira en hæstu laun og það hefur aukið jöfn- uð enn frekar. Velferðarkerfið og þar með talið lífeyriskerfið er byggt upp með þeim hætti að dregið er enn frekar úr ójöfnuði, að mati OECD. Aðgangur að menntun og heilbrigðisþjónustu stendur öllum til boða óháð efnahag. Lítil tengsl virðast vera á milli félagslegrar og efnahagslegrar stöðu annars vegar og framgangs í menntun eða heil- brigðiskerfi hins vegar, ólíkt flest- um öðrum löndum OECD. Umbætur á skattkerfinu síðustu ár hafa verið skynsamar að mati OECD. Þær hafi ýtt undir nýsköp- un og þróun og létt skattbyrði á tekjulág heimili. Jaðarskattar séu hins vegar enn of miklir hjá ein- staklingum. Bent er á að háir jað- arskattar geti unnið gegn auknu jafnrétti á vinnumarkaði. Pottur brotinn Ábendingar (sumir gætu sagt gagnrýni) OECD eru af ýmsum toga. Bent er t.d. á nauðsyn þess að stokka upp tryggingakerfi öryrkja og þá fyrst og síðast að styrkja virkniúrræði til að byggja undir at- vinnuþátttöku. Leggja þarf enn meiri rækt við rafræna opinbera stjórnsýslu en þar erum við Íslend- ingar eftirbátar margra landa, en gætum verið fremstir. Áætlun um átak í þessum efnum liggur þegar fyrir. Meiri rækt þarf að setja í uppbyggingu lítilla sprota- og ný- sköpunarfyrirtækja. Beina opinber- um sjóðum sem sitja á áhættu- fjármagni í auknum mæli í samstarf við einkasjóði sem hafa meiri getu og þekkingu til að styðja fyrir- tækin. En framtíðin byggist á menntun og gæðum hennar. Skipulag menntakerfisins verður að vera með þeim hætti að hægt sé að mæta síbreytilegum þörfum samfélagsins. Og þar er pottur brotinn að mati OECD sem bendir á að gæði menntunar í grunn- og framhalds- skólum hafi minnkað á síðustu ár- um. Þá sé kennurum ekki umbunað í samræmi við reynslu og frammi- stöðu. Menntun þeirra virðist ekki hafa fylgt kröfum nýrra tíma. Háskólamenntun veldur ójafn- vægi á vinnumarkaði þar sem tengsl milli skóla og atvinnulífsins séu veik. Fjármögnunarmódel há- skóla hefur leitt til þess að skól- arnir einbeita sér fremur að því að innrita sem flesta nemendur í stað þess að tryggja gæði náms og frammistöðu nemenda. Starfsmenntun fær enn og aftur falleinkunn hjá OECD og hún sögð vanþróuð. Hlutfallslega færri sækja sér slíka menntun hér á landi en í nokkru öðru Evrópuríki. Námið takmarkast við hefðbundnar tækni- og handverksstéttir. Skólabundið og starfsnám sé illa samþætt og nemendum standi fáar leiðir til há- skólanáms til boða. Í sjálfu sér eru flestar ábend- ingar OECD ekki nýjar. Við flest höfum lengi vitað eða haft nokkra hugmynd um hver verkefnin eru á komandi árum – þekkjum flesta brotnu pottana. Að einhverju leyti skortir pólitískan vilja (eða kjark) til að hefjast handa við að lagfæra það sem miður fer. Að einhverju leyti er ástæðan djúpstæð andstaða við að einfalda regluverk atvinnu- lífsins og þætta betur saman menntun og þarfir atvinnulífsins. Sú andstaða á sér annars vegar rætur í andúð á atvinnulífinu og hins vegar litlum skilningi á því hvernig verðmætasköpun á sér stað – verðmætasköpun sem stendur undir samfélagi velferðar. Niðurstaða kosninganna í sept- ember ræður mestu um hvort mögulegt verður að brjótast út úr pólitískri sjálfheldu sem hefur hindrað árangursríka uppstokkun í regluverki atvinnulífsins og leggja styrkari grunn undir aukna vel- sæld. Eftir Óla Björn Kárason » Aukin framleiðni, afnám samkeppnis- hindrana og einföldun regluverks geta bætt hag landsmanna um á annað hundrað milljarða á ári. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Góð lesning fyrir frambjóðendur til þings

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.