Morgunblaðið - 14.07.2021, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021
✝
Þorvarður
Ingi Vilhjálms-
son fæddist 26.
maí 1939 á Grund
á Dalatanga í
Mjóafirði. Hann
lést 1. júlí 2021 á
Dvalarheimilinu
Ljósheimum á Sel-
fossi. Foreldrar
hans voru Vil-
hjálmur Svanberg
Helgason, f. 26.9.
1888, d. 28.5. 1971, og Jóhanna
Sveinsdóttir, f. 24.1. 1897, d.
14.10. 1971. Þorvarður var
yngstur fimm systkina. Þau
voru: 1. Helga Vilhjálmsdóttir,
f. 1.6. 1916, d. 1.10. 1999. 2.
Arngrímur Vilhjálmsson, f. 5.9.
1918, d. 22.2. 2006. 3. Sveinn
Vilhjálmsson, f. 17.8. 1922, d.
10.8. 1979. 4. Helgi Vilhjálms-
2.12. 1973, gift Steinari Krist-
jáni Óskarssyni, f. 13.10. 1965.
Barn Jóhönnu úr fyrra hjóna-
bandi er Símon Prakash, f.
15.10. 1994. Börn Jóhönnu og
Steinars eru: 1. Kristín Björg,
f. 3.1. 2007. 2. Þorvarður Logi,
f. 8.4. 2012. 3. Vilhjálmur Svan-
berg, f. 5.5. 1975. Sambýlis-
kona hans er Marnie R. Nesnia,
f. 11.11. 1994. Barn hans er
Pálína Ýr, f. 9.7. 1990. 4. Krist-
björg Þorvarðardóttir, f. 18.5.
1978, gift Eiríki Björnssyni, f.
20.2. 1976. Börn Kristbjargar
úr fyrra sambandi eru: 1. Aníta
Björt, f. 20.11. 1997. 2. Sveina
Björt, f. 20.8. 2002. Börn Krist-
bjargar og Eiríks: 1. Björn
Ingi, f. 1.9. 2009. 2. Ástrós
Björt, f. 20.4. 2011. Fyrir átti
Þórhildur soninn Gunnar
Kristin, f. 30.3. 1959. Börn
hans eru: 1. Hrefna Henný, f.
17.4. 1985. 2. Ómar Berg, f.
17.7. 1995. 3. Matthías Jochum,
f. 17.7. 1995.
Þorvarður verður jarðsettur
í dag, 14. júlí 2021, klukkan 13
frá Selfosskirkju.
son, f. 15.9. 1925,
d. 7.4. 2005.
Þann 8.1. 1967
kvæntist Þorvarð-
ur Þórhildi Ingi-
björgu Gunnars-
dóttur, f. 30.12.
1941. Foreldrar
hennar voru Gunn-
ar Sigurðsson, f.
3.2. 1922, d. 31.5.
1970, og Kristín
Stefánsdóttir, f.
28.9. 1919, d. 27.1. 1988. Börn
Þorvarðar og Þórhildar eru: 1.
Ingibjörg Hrönn, f. 5.5. 1967, 2.
Gunnhildur Lilja, f. 19.5. 1970,
gift Kristjáni Sæmundssyni, f.
17.5. 1970. Börn þeirra eru: 1.
Þórhildur Nilam, f. 15.1. 2002.
2. Freydís Malin, f. 18.7. 2003.
3. Sæmundur Sesar, f. 28.12.
2005. 3. Jóhanna Kristín, f.
Þorvarður Ingi Vilhjálmsson
fæddist 26. maí 1939 að Grund á
Dalatanga í Mjóafirði. Foreldrar
hans voru Vilhjálmur Svanberg
Helgason vitavörður og Jóhanna
Sveinsdóttir. Þorvarður var lang-
yngstur 5 systkina. Þau voru
Helga, Arngrímur, Sveinn og
Helgi. Þorvarður minntist æsku-
stöðvanna oft og með mikilli
hlýju. Á táningsaldri fór Þorvarð-
ur í fyrsta skiptið í skóla að Eið-
um. Fram að því fékk hann
heimakennslu frá móður sinni og
fór á hverju vori að Brekkuþorpi
til að taka próf sem hann kláraði
með bestu einkunn í hvert sinn og
af því var hann mjög svo stoltur.
Lauk hann sveinsprófi í renni-
smíði í maí 1967 með 9,29 í aðal-
einkunn. Árið 1966 kynntist hann
ástinni í lífi sínu, henni Þórhildi
sinni. Í maí 1967 eignuðust þau
sitt fyrsta barn, Ingibjörgu
Hrönn, en fyrir átti Þórhildur
soninn Gunnar Kristin. Á næstu
11 árum eignuðust þau 4 börn í
viðbót. Þau Gunnhildi Lilju, Jó-
hönnu Kristínu, Vilhjálm Svan-
berg og Kristbjörgu, ásamt því
að vinna fulla vinnu og byggja
fjölskyldunni heimili að Setbergi
21 í Þorlákshöfn. Þorvarður og
Þórhildur byrjuðu sinn búskap í
Keflavík, fluttu svo í Hveragerði,
Þorlákshöfn, Vestmannaeyjar,
Svíþjóð og enduðu svo á Selfossi.
Þorvarður vann við ýmislegt um
ævina, í Meitlinum, Búrfellsvirkj-
un, skipalyftunni í Vestmanna-
eyjum, svo eitthvað sé talið. Mest
við járniðn og rennismíði. Hann
var mikil listamaður, mjög skap-
andi og frábær teiknari og vel
lesinn. Mikill sögumaður og það
lék allt í höndum hans. Margs er
að minnast og mikils að sakna
eins og gönguferðanna með
krakkaskarann, bryggjurúntana
með stoppi í sjoppunni, Nestis og
berjamósferða í Selvoginn.
Lestrarstundanna fyrir svefninn,
með leikrænum tilburðum, og að
vera vakin að morgni með kitli og
tásuklípu. Með árunum eignaðist
hann 15 barnabörn. Hann var
mikill afi og þar skein sögumað-
urinn sterkt í gegn, var hann líka
mjög stoltur af því hve listhæfi-
leikagenin hans skinu í gegnum
afkomendur hans. Þorvarður var
búin að berjast við Alzheimer-
sjúkdóminn síðan 2011 og hefur
það reynst fjölskyldunni erfitt að
horfa á þennan hæfileikaríka
mann missa færni sína hægt og
rólega. Elsku Þorvarður, pabbi,
tengdapabbi og afi, við þökkum
þér fyrir ástina, umhyggjuna.
Mikið það sem við höfum verið
heppin og lánsöm með þig. Við
elskum þig og söknum þín. Þín
ástkæra eiginkona, börn, tengda-
börn og barnabörn.
Þórhildur Gunnarsdóttir.
Kærleikur og gleði eru orð
sem sitja fast í huga við umhugs-
un um Þorvarð Inga, tengdaföð-
ur bróður míns. Hann var fróður
um menn og málefni og óspar á
að segja sögur af lífinu í gamla
daga, oftar en ekki sögur þar sem
húmorinn var til staðar.
Hann var fljótur að koma auga
á það sem henda mátti gaman að í
kringum sig og því alltaf stutt í
hlátur þar sem hann var.
Ég fékk þau hjónin stundum
til mín í skötu á Þorláksmessu
með bróður og mágkonu, eftir að
þau fluttu á Selfoss, mjög svo in-
dælt. Mikil samheldni, kærleikur
og umhyggja var ríkjandi í hinni
stóru fjölskyldu Þorvarðar, þar
sem hann var eins og kapteinn í
brúnni með bros á vör.
Ég varð þess aðnjótandi að
vera hluti af stórfjölskyldunni,
frá tíma til tíma. Fyrir það vil ég
þakka við kveðjustund. Ég votta
Þórhildi, börnum, tengdabörnum
og barnabörnum innilega samúð
mína.
Langt er flug til fjarra stranda,
fýkur löður, stormur hvín.
Eins og fugl sem leitar landa,
leita ég, ó Guð til þín.
Eins og sævarbylgjan breiða,
býður faðminn, þreyttri lind,
þannig faðir lát mig leiða,
löngun háa að þinni mynd.
Líkt og móðir blindu barni,
beinir veg af kærleiksgnótt,
leið þú mig á lífsins hjarni,
leið þú mig um harmsins nótt.
Leið þú mig í myrkri nauða,
leið þú mig er sólin skín.
Leið þú mig í lífi og dauða
leið mig Guð æ nær til þín.
(Sb. 1945. - J.J. Smári)
Guðrún María Óskarsdóttir.
Þorvarður Ingi
Vilhjálmsson
✝
Þórarinn Arn-
ar Gunn-
laugsson fæddist
12. september 1938
á Siglufirði. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Grund 9. júní 2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Gunn-
laugur Hjálm-
arsson, f. 11.12.
1904, d. 18.2. 1976
og Þuríður Gunnarsdóttir
(Hulla), f. 13.2. 1913, d. 13.9.
1958.
Systkini Þórarins eru Gunnar
Hreinn, f. 12.6. 1935, Gígja, f.
2001, Mikael Þeyr, f. 15.3. 2008
og Ísey Lilja, f. 22.10. 2009. 2)
Marteinn, f. 11.8. 1971, sam-
býliskona Sigurveig Kr. Guð-
mundsdóttir, f. 15.2. 1972. Börn
hans eru Þórarinn Fannar, f.
30.1. 1990, Guðmundur Hreiðar,
f. 11.3. 1991, d. 30.6. 2019 og
Katrín Ingibjörg, f. 6.2. 1993. 3)
Þuríður Júdit, f. 19.11. 1975, gift
Finni Guðmundssyni, f. 13.3.
1970. Börn þeirra Örn, f. 25.12.
1997 og Kristvin, f. 18.11. 1999.
Barnabarnabörn Þórarins eru
orðin 10 talsins.
Þórarinn flutti frá Siglufirði
til Akraness árið 1960 og var
bæði sjómaður og verkamaður í
landi og vann við hin ýmsu störf.
2004 flyst hann á höfuðborg-
arsvæðið og árið 2020 verður
hann heimilismaður á hjúkr-
unarheimilinu Grund.
Útför Þórarins fór fram í
kyrrþey.
8.1. 1937 og Ingi
Steinar, f. 27.2.
1947.
Þórarinn kvænt-
ist 11.12. 1969
Henny Nielsen frá
Færeyjum, f. 31.10.
1942. Þau eign-
uðust 3 börn: 1)
Tómas Ingi, f. 8.8.
1969, kvæntur Mir-
jam Foekje van
Twuijver, f. 9.4.
1969. Börn hans eru Þórarinn
Ingi, f. 5.1. 1987, Guðný Lára, f.
2.9. 1991, Eydís Lind, f. 20.3.
1993, Gunnlaugur Friðberg, f.
12.1. 1998, Jón Pétur, f. 7.10.
Ef ég hef unnið í einhverju þá
var það í pabbalottóinu, ég fékk
dásamlegan pabba sem var alltaf
blíður og góður við menn, börn
og dýr. Þolinmóður, skapgóður,
mildur og hlýr, þetta eru allt lýs-
ingarorð sem eiga við pabba,
mjög ung ákvað ég að ég vildi
líkjast pabba að þessum eigin-
leikum og því hef ég reynt að
fylgja. Pabbi minn elskaði vísur
en var sjálfur skúffuskáld, sínar
vísur faldi hann í skúffunni sinni
en bræður hans hafa báðir gefið
út ljóðabækur. Þegar pabbi minn
var 12 ára gamall var honum
gert að búa til vísur í skólanum,
hann gerði einmitt þá vísu sem
hann sagði mér oft en hún er
svona:
Kjartan karlinn æfur orðinn er,
langar mig hann að kyrkja.
Alltaf skipar hann mér,
skipar hann mér að yrkja.
Kjartan var kennarinn hans
en fyrir um þremur árum datt
mér fyrst í hug að spyrja pabba
hver viðbrögð Kjartans hefðu
verið við vísunni og fékk ég þá að
vita að pabbi skilaði náttúrlega
aldrei þessari vísu heldur ein-
hverri mun saklausari vísu sem
ég hef áreiðanlega aldrei heyrt.
Síðustu vikurnar hans fylgd-
um við pabba í gegnum hans síð-
ustu daga, ég fann þegar hann
var sóttur til næsta tilverustigs,
þegar ég spurði pabba minn
hvort hann ætlaði til Sigló í sum-
ar hætti hann að anda en hjarta
hans sló smástund lengur undir
lófa mínum. Ég kvaddi hann á
þeirri stundu. Góða ferð, elsku
pabbi minn, takk fyrir allar sam-
verustundirnar og allt það sem
þú kenndir mér.
Þín dóttir,
Þuríður Júdit (Hulla).
Ástkær bróðir minn, Þórarinn
Arnar Gunnlaugsson, lést á
Grund hjúkrunarheimili, 9. júní
sl. Hann hafði lengi átt við van-
heilsu að stríða og varð síðan fyr-
ir því óláni að detta og brotna illa
og greru þau brot ekki.
Þórarinn, sem oftast var kall-
aður Tóti, var þriðja barn for-
eldra sinna, en fyrir áttu þau
Gunnar og Gígju, seinna eignuð-
ust þau Inga Steinar. Tóti fædd-
ist á Siglufirði og ólst þar upp.
Það voru yndisleg ár og áttum
við systkinin góða daga. Margar
minningar koma upp í hugann
þessa dagana, minningar um
ýmsa leiki og athafnir, skíðaferð-
ir og snjókast. Öll áttum við skíði
og voru þau óspart notuð því oft-
ast var nægur snjór á vetrum á
Siglufirði.
Ungur að árum veiktist Tóti af
heilahimnubólgu og náði hann
sér aldrei að fullu eftir það.
Minni hans var skert og barðist
hann alla tíð við minnisleysi og
var það honum oft fjötur um fót.
Hann lauk samt iðnskólanámi og
tók sitt bílpróf og gekk vel.
Tóti hafði gaman af vísum og
kunni þær margar, en eina vísu
hélt hann sérstaklega upp á og
fór oft með hana seinni árin, en
hún er eftir Baldvin Halldórsson
kenndan við Þverárdal og hljóð-
ar þannig:
Ellin herðir átök sín
Enda sérðu litinn.
Æviferðafötin mín
Fara að verða slitin.
Tóti fluttist til Akraness rúm-
lega tvítugur ásamt föður sínum,
en fljótlega eftir það kynntist
hann eftirlifandi konu sinni,
Henny Nielsen frá Borgarfirði
eystri. Þau hófu búskap á Akra-
nesi og bjuggu þar lengst af, en
fluttu sig um síðir til Reykjavík-
ur.
Þau eignuðust þrjú börn,
Tómas, Martein og Þuríði Júdit.
Tóti stundaði sjóróðra frá
Akranesi og starfaði einnig hjá
H. B. & Co. og í Sementsverk-
smiðjunni. Tóti var hjálpsamur
og vildi allra götu greiða, mátti
ekkert aumt sjá hvorki hjá dýr-
um né mönnum.
Með kærri þökk og með sökn-
uð í hjarta kveð ég kæran bróður
minn, en veit að hann fær góðar
móttökur á nýrri strönd.
Gígja Gunnlaugsdóttir.
Þórarinn Arnar
Gunnlaugsson
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig
er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar
Okkar elskaða móðir, tengdamóðir
og amma,
FRIÐGERÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR,
Brúnavegi 13, Reykjavík,
áður Hraunbæ 111, Reykjavík,
lést sunnudaginn 4. júlí á Hrafnistu
í Reykjavík. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn
15. júlí klukkan 15.
Logi Ragnarsson Jóhanna Kr. Steingrímsdóttir
Valur Ragnarsson Sigríður Björnsdóttir
Halla Hrund, Haukur Steinn, Ingunn Ýr, Vaka
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EDDA S. SKAGFIELD
frá Páfastöðum,
sem lést mánudaginn 21. júní á Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands, Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 21. júlí
klukkan 13.
Lovísa Baldursdóttir
Albert Baldursson Birna G. Flygenring
Helga Baldursdóttir Jón Gunnar Valgarðsson
Sólveig Baldursdóttir
Sigurður Baldursson Guðrún Kristín Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
vegna andláts og útfarar
BJARNA GEORGS EINARSSONAR,
Fjarðargötu 49, Þingeyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
dvalarheimilisins Tjarnar á Þingeyri fyrir
góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sylvía Ólafsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ATLI PÁLSSON,
Norðurbrú 1,
Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 11. júlí.
Útförin fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi föstudaginn 16. júlí
klukkan 13.
Hallgrímur Atlason Guðbjörg Líndal Jónsdóttir
Guðjón Atlason Ana Isorena Atlason
Atli Atlason Elin Svarrer Wang
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SOFFÍA G. JÓHANNSDÓTTIR
frá Siglufirði,
Kleppsvegi 62,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 11. júlí.
Jóhann Pétur Jónsson Kristín Salóme Steingrímsd.
Einar Hjálmar Jónsson Erla J. Erlingsdóttir
Hafdís Jónsdóttir Georg Kulp
Kristrún Jónsdóttir Ólafur Fannar Vigfússon
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
BALDUR SIGURÐSSON,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut 2. júlí.
Hann verður jarðsunginn frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 15. júlí klukkan 11.
Sigríður Ingvarsdóttir
og fjölskylda