Morgunblaðið - 14.07.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 14.07.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 Tilboð/útboð Skagafjarðarveitur óska eftir tilboðum í verkið Skagafjörður ljósleiðari 2021 Um er að ræða fjögur svæði í Skagafirði. 1. Vatnsskarð, lögn ljósleiðara 14,5 km 9 tengistaðir 2. Skagi, lögn ljósleiðara 36,9 km 23 tengistaðir 3. Hjaltadalur, lögn ljósleiðara 30,9 km 26 tengistaðir 4. Deildardalur, lögn ljósleiðara 10,1 km 10 tengistaðir Verkinu skal lokið fyrir 31. desember 2021. Útboðsgögn verða afhent rafrænt hjá Stoð ehf. verkfræðistofu Aðalgötu 21 Sauðárkróki frá og með miðvikudeginum 14. júlí. stod@stodehf.is Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Skagafjarðarveitna ehf. Borgarteigi 15 Sauðárkróki, kl. 11.00 fimmtudaginn 29. júlí 2021. Skagafjarðarveitur ÚTBOÐ Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Gönguferð um hverfið kl.10:30 - Skák 13:00 - Kjarvals- staðir kl.13:30, hittumst kl.13:00 í anddyrinu og sameinumst í lei- gubíla - Kaffi kl.14:30-15:20.Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Útifjör kl.10:45 - Félagsvist kl.13:00 -Tálgað í tré kl.13:00 -Tríó Velferðarsviðs kl.13:30, tónleikar fyrir alla - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Bíósýning á tjaldinu kl. 12.45. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Dansleikfimi kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10 . Frjáls spila- mennska kl. 12:30-15:45. Fjölskyldubingó kl. 13:00, 250 kr. spjaldið, allir hjartanlega velkomnir, glæsilegir vinningar eins og t.d. frá: Norðursigling, Fiskifélagið, Lin design, Perlan,Timberland og margir fleiri. Opið kaffihús kl. 14:30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi, blöðin og spjall kl. 8:10-11:00. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Opin Listasmiðja kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Hreyfihópur í garði Ísafoldar farið frá Jónshúsi kl. 13:30. Smiðjan Kirkjuhvol opin kl. 13:00 – 16:00 Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Félagsvist frá kl. 13:00. Útifjör, ganga, teygjur og fleira með Bertu, frá kl. 13:00 (fer eftir veðri hvort farið er út). Alltaf allir velkomnir. Gjábakki Boccia verður alla miðvikudaga í sumar í Gjábakka kl .10. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8:30-10:30. Dans- og stólaleikfimi með Auði Hörpu kl. 10:00. Framhaldssaga kl. 10:30. Opin vinnustofa kl. 13:00-16:00. Korpúlfar Útifjör klukkan 9:30 til 10:20. Gönguhópur klukkan 10:00, gengið frá Borgum. Félagsvist kl 13:00 í Borgum. Skákhópur Korpúlfa verður frá 12:00 til 16:00. Njótum saman. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er Postulínsmálun frá kl.9-12 í handv.stofu 2. hæð. Píla í setustofu 2. hæð kl.10:30-11:15. Núvitund í handverksstofu 2. hæð kl.13:30-14:10. Íslenska þáttaröðin Katla sýnd í setustofu kl.14:15-16. Verið öll hjartanlega velkomin til okkar. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, Botsía í salnum Skólabraut kl. 10, handavinna og samvera í Salnum kl. 13, Samfélagsmiðlanámskeið 13:30. Það verður BINGO á morgun kl 13:30 í salnum Skólabraut. Garðar » Jarðvinna » Drenlagnir » Hellulagnir » Þökulagnir Þjónustum einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög prostone@prostone.is 519 7780 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald » Smíðavinna » Múrvinna » Málningarvinna Þjónustum einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög prostone@prostone.is 519 7780 Smá- og raðauglýsingar ✝ Jón Leví Tryggvason fæddist í Skraut- hólum á Kjalarnesi 13. nóvember 1937. Hann lést í Reykja- vík 10. apríl 2021. Foreldrar hans voru hjónin Tryggvi Stefánsson bóndi, f. 1898, d. 1982, ættaður úr Vestur-Húnavatns- sýslu, og Guðrún Sigurðardóttir húsmóðir, f. 1904, d. 1953, ættuð úr Skagafirði. Systkini Jóns eru níu alls, Ásta Ingibjörg, f. 1923, d. 2011, Gunnar, f. 1924, d. 1984, Sigríður Láretta, f. 1926, d. 1993, Svanhvít, f. 1927, d. 2016, Erla, f. 1945. Hálfsystkini Jóns samfeðra eru Grétar, f. 1956, Stefán, f. 1957 og Ragnheiður, f. dóttur, f. 1964, börn þeirra eru Andri Már, f. 1991 og Jóhanna Klara, f. 2005. Barn Helenu: Berglind Markúsdóttir, f. 1984. Barnabörn Óskars eru tvö. 3) Dagrún, f. 1970. 4) Níels, f. 1974, í sambúð með Kristlaugu Birnu Jónsdóttur, f. 1984, og barn þeirra Nikulás Oddur, f. 2015. Jón ólst upp í Skrauthólum á Kjalarnesi. Samhliða því að að- stoða föður sinn við búskapinn fór Jón fljótlega að sinna ýms- um störfum á Kjalarnesinu, róðrum frá Keflavík og í Reykjavík vann hann m.a. hjá Sláturfélagi Suðurlands. Jón og Elín héldu fyrst heimili í Skraut- hólum. Á árunum 1967 til 1971 voru Jón og Elín húsverðir í fé- lagsheimili Kjalnesinga Fólk- vangi og bjuggu þar. Næstu árin bjuggu þau m.a. í Lykkju og Álfsnesi á Kjalarnesi og Jón vann við ýmiss konar bygging- arvinnu, einkum múrverk og og smíðar. Um 1980 fluttu Elín og Jón til Reykjavíkur og bjuggu lengst af í Grýtubakka 12. Fljót- lega eftir að Jón flutti til Reykjavíkur hóf hann störf hjá BYKO og starfaði lengst af á smíðaverkstæði fyrirtækisins við Skemmuveg eða þar til að hann varð að hætta vegna MS- sjúkdómsins. Jón byrjaði að fást við hross heima í Skrauthólum og þau fylgdu honum bæði í starfi og sem áhugamál meðan heilsan leyfði. Hann sinnti tamningum, þjálfun, járningum og sýndi eig- in hross. Hann var áhugasamur um að ferðast um landið á hross- um sínum. Áhuginn á hrossun- um og vandkvæði á því að geta unnið vegna veikinda, fyrst í baki og síðar MS, leiddu til þess að Jón fór að sinna verkum tengdum söðlasmíði. Á þeim vettvangi liggja eftir Jón ýmsar nýjungar, svo sem sérstakar teymingagjarðir til að teyma fleiri hross saman í einfaldri röð og búnaður til stuðnings fyrir hreyfihamlaða sem hefur verið notaður við þjálfun þeirra á hestum. Að ósk Jóns var ösku hans dreift uppi á Esju í kyrrþey. 1958, en móðir þeirra Sigríður Arnfinnsdóttir var síðari kona Tryggva. Þau gift- ust 1956. Jón kvæntist 1963 Elínu Ósk- arsdóttur sjúkra- liða, f. 1944 í Reykjavík. For- eldrar hennar voru hjónin Óskar Páls- son og Þórunn Guðmundsdóttir. Börn Jóns og Elínar eru: 1) Guð- rún, f. 1963, gift Sigurði Hjalta Sigurðarsyni, f. 1956, börn þeirra: Freyr, f. 1981, Sindri, f. 1988 og Elín, f. 1990. Barn Guð- rúnar: Reynir Ari Guðráðsson, f. 1980. Barnabörn Guðrúnar eru fjögur. 2) Óskar, f. 1965, kvænt- ur Helenu Vigdísi Kristjáns- Við Skrauthólasystkinin, eins og við vorum gjarnan kölluð, urðum þeirrar sjaldgæfu gæfu aðnjótandi að alast upp með 20 árum eldri bróður á heimilinu. Jón var okkur eðlilega mikil fyrirmynd. Ein fyrsta minningin er þegar við borðuðum appels- ínubörk út í eitt til að ráða við stóra bróður. Það skilaði ekki árangri, a.m.k. minnumst við þess að hafa laumast að honum í hádegislúrnum og togað í hárin á kálfunum ef við áttum eitthvað sökótt við hann. Þegar allt um þraut pissaði Stefán í stígvélin hans. Jón átti forláta Ford-dros- síu og það var heiður að fá að sitja í, með töffarann við stýrið. Það er þó minningin um Hrólf sem setur Jón á stall sem stóru fyrirmyndina okkar. Myndir af þeim félögum og ekki síst bik- arinn heima í stofu, sem Jón og Hrólfur unnu til eignar í gæð- ingakeppni Hestamannafélags- ins Harðar, gerðu Jón að „ædóli“ bernskunnar. Þetta var á þeim árum sem viðurkenning eins og bikar hafði einhverja merkingu. Gamli bærinn í Skrauthólum var vart nema 40 fermetrar með 20 fermetra þiljuðu svefnlofti. Á loftinu hóf Jón búskap sinn með Elínu sem hann hafði kynnst í vinnu hjá Sláturfélaginu. Og þar eignuðust þau Guðrúnu, 1963. Það er ótrúlegt og ómetanlegt til þess að hugsa að við þessar að- stæður stofnaði fólk til fjöl- skyldu fyrir aðeins 60 árum. En þó Jón væri harðduglegur og eftirsóttur starfskraftur gerði brjósklos í baki hann nær að ör- yrkja um tíma. Þau Elín urðu fyrstu húsverðir í Fólkvangi, ný- byggðu félagsheimili Kjalnes- inga. Jón kom sér upp aðstöðu til leðurvinnu og margir urðu taumarnir og höfuðleðrin sem hann ýmist smíðaði eða gerði við í gegnum tíðina. Jón fékk sem betur fer það mikla starfsgetu að hann gat aft- ur farið að vinna erfiðisvinnu og varð múrverk og smíðar hans aðalatvinna lengst af. Hestamennska var alla tíð að- aláhugamál Jóns. Líkt og aðrir „dellukallar“ hafði hann sterkar skoðanir á flestu sem viðkom hestum og hestamennsku. Hann reið mikið út og ferðaðist oft með marga hesta langar leiðir. Það varð kveikjan að sérstakri teymingagjörð sem hann smíð- aði og gerði að verkum að hross- in teymdust hvert á eftir öðru en ekki hlið við hlið eins og algeng- ast var. Vöktu þessar lestir hans oft mikla athygli. Eftir að fjölskyldan flutti til borgarinnar vann Jón á verk- stæðinu hjá Byko og var þar sannarlega á réttum stað. Verksvit hans nýttist vel og ekki síður var félagsskapurinn hon- um mikilvægur. Var ósjaldan látið fjúka í kviðlingum á kaffi- stofunni og við konurnar á skrif- stofunni. Að því kom að Jón fór að koma fullur heim. Eða þannig lýsti hann sjálfur göngulagi sínu þegar MS- sjúkdómurinn kvaddi fyrst dyra. „Þær hafa sjálfsagt haldið að ég kæmi sífullur heim úr vinnunni nágrannakonurnar sem sáu mig koma heim í lok vinnudags.“ Það fór svo að sjúk- dómurinn lagði Jón að velli og var hann rúmliggjandi mörg síð- ustu árin. Þáttur Elínar við umönnun hans er ótrúlegur en þrátt fyrir tímabundnar sjúkra- húslegur og hvíldarinnlagnir bjó Jón heima hjá Ellu sinni í Grýtu- bakkanum til hinsta dags. Við systkinin kveðjum kæran bróður með þökk fyrir samfylgd- ina. Grétar, Stefán og Ragnheiður. Fyrstu minningar mínar um Jón Leví föðurbróður eru tengd- ar hestum og Skrauthólum. Ég man hversu stoltur ég var þegar Jón leyfði mér fyrst að setjast á bak tinnusvörtum gæðingi hans, Hrólfi, en eins og ég átti eftir að kynnast enn betur síðar passaði Jón upp á strákinn. Það var hafður aukataumur í klárnum, enda þekktur fyrir vilja. Allt fór þetta vel og hestamennskan varð það sem átti eftir að leiða okkur frændur enn nánar saman síðar. Þótt jafnan væri samgangur milli fjölskyldu minnar og þeirra Jóns og Elínar meðan þau bjuggu á Kjalarnesinu urðu kynni mín af þeim enn nánari eftir að þau fluttu til Reykjavík- ur um 1980 og í Grýtubakkann. Ég hafði verið í hestum í Reykjavík með foreldrum mín- um frá barnsaldri. Eftir að faðir minn féll frá 1984 varð að ráði að Jón gengi til liðs við okkur bræður um hestahald í Víðidaln- um. Það var ómetanlegur stuðn- ingur að eiga Jón að á þessum tíma. Hann leiðbeindi og passaði upp á hrossin. Og þær hefðu sjálfsagt orðið færri hestaferð- irnar á þessum árum ef ekki hefði notið við kraftsins í Jóni við að undirbúa og hafa forystu í þeim efnum. Jón var líka áhuga- samur um leiðir og reiðvegi og lagði þeim málum lið á vettvangi hestamannafélaganna. Jón hafði komið sér upp að- stöðu fyrir hrossin á landspildu úr Skrauthólum sem hann nefndi Söðlagerði. Þegar kom að vori var farið með hrossin í sum- arhagana í Söðlagerði. Jón byggði síðar sérstakt skýli þar sem hann gat gefið hrossum sín- um á veturna og veitt þeim skjól eftir útreiðartúra. Hesta- mennskan hjá Jóni færðist því í Söðlagerði og hann naut þess að geta verið þar, bæta aðstöðuna og sinna hrossunum. Hestahaldi okkar frænda í Reykjavík lauk því um árið 2000. Hann var kominn í Söðlagerði og ég hafði keypt jörð austur í Rangárvallasýslu. Þar naut ég liðsinnis Jóns við framkvæmdir og við hrossin. Við frændur tók- um til við að framlengja ætt- arlínu hrossanna frá Tryggva afa mínum í Skrauthólum en þau hafði hann upphaflega komið með með sér norðan úr Miðfirði. Jón passaði upp á ungviðið og tamdi. Þetta skilaði okkur góð- um reiðhestum. En Jón gat því miður allt of stutt notið þeirra og aðstöðunnar í Söðlagerði. MS-sjúkdómurinn gerði honum æ erfiðara um vik og þar kom að hann varð að hætta að vinna vegna hans og sama var með út- reiðar. Jón fylgdist áfram með framvindu mála í sveitinni, spurði um hrossin og kom í heimsókn. Hann lét ekki hjóla- stólinn stoppa sig. Elín kona Jóns var honum stoð og stytta í veikindunum og með aðstoð hennar, síðar einnig með utankomandi aðstoð, gat Jón verið heima hjá sér nánast til loka. Það var til marks um það hvernig þau mættu þessum breytingum á högum Jóns að þau höfðu verið búsett um árabil á þriðju hæð í Grýtubakkanum. Í stað þess að flytja annað sömdu þau við nágranna sína á fyrstu hæðinni um skipti á íbúð- um. Þar var aðgengi breytt og Jón gat bæði komist út á litla verönd og í sérútbúna bíla til ferða. Við leiðarlok þökkum við Ragnhildur þau ár og samveru sem við áttum með Jóni Leví. Við færum Elínu og fjölskyld- unni samúðarkveðjur. Tryggvi Gunnarsson. Það var líklega haustið 1992 sem leiðir okkar Jóns Levís Tryggvasonar lágu fyrst saman. Ég var nýútskrifaður úr háskóla og var með tvo fullorðna hesta sem mig vantaði pláss fyrir. Í gegnum kunningsskap fékk ég inni í hesthúsinu þeirra í Víði- dalnum. Var þetta upphafið að áralöngum vinskap okkar Jóns og það var hestamennskan sem tengdi okkur saman. Á veturna vorum við saman við útreiðar fram undir vor, en þá fór Jón með hestana sína upp í Söðla- gerði. Þaðan riðum við út á kvöldin og um helgar á sumrin og undirbjuggum hrossin fyrir lengri ferðir. Saman ferðuðumst við vestur á Snæfellsnes, upp í Kjós, austur fyrir fjall í ótal ferðum, um afrétti sunnanlands, um nágrenni Flúða, á Þingvöll og norðan úr Miðfirði alla leið suður á Kjalarnes. Ég hugsa að það hafi verið um svipað leyti sem hann lauk við að byggja sér aðstöðu fyrir hrossin í Söðla- gerði og eftir það hætti hann að halda hross á húsi í Reykjavík. Hann taldi að það færi betur um hrossin úti við, þar sem þeim væri sinnt, þeim gefið og látin þorna undir þaki á opnu hest- húsi eftir góðan reiðtúr. Líklega var Jón þar á undan sinni samtíð hér á landi, en algengt er að hestar séu hafðir við opið í Evr- ópu. Voru hans hestar alltaf glæsilega útlítandi að vori og var ekki laust við að þeir litu betur út en þeir sem höfðu verið á húsi allan veturinn í bænum. Jón vann heilmikið við söðla- smíði og smíðaði haganlega ýms- an búnað til ferðalaga á hestum. Hann var sérvitur og vissi vel hvernig hann vildi hafa hlutina. Hann hannaði teymingarbúnað til að teyma hesta á ferðalögum og fékk hönnunarvernd á bún- aðinn. Byggði hann hugmyndina á hestalestum fyrri tíma. Við notuðum „stroffurnar“ eins og hann kallaði þetta mikið og ég held að á ferðalögum höfum við teymt fleiri en 10 hesta í einni lest. Var þetta gjarnan notað til að temja unga hesta, með því að hafa unga hrossið inni í lestinni þar sem hesturinn á undan og eftir sáu um að kenna þeim unga að fylgja. Man ég vel eftir því að Jóni var meinilla við að reka hesta á ferðalögum og vildi miklu frekar teyma. Jón var hagmæltur, setti gjarnan saman vísur, hafði sterkar skoðanir á pólitík og hafði gaman af því að rökræða hlutina í þaula. Hann var Framsóknarmaður og tók virkan þátt í starfi flokksins lengi vel. Þá voru þau Elín, kona hans, opin og vingjarnleg og sýndu þau mér og mínum ein- stakan hlýhug. Ég held að ýmsir hafi átt gott skjól hjá þeim. Mér er minnisstætt hversu áhugasamur og eljusamur Jón var og hann hlakkaði einlæglega til þess að komast á eftirlaun og getað þá sinnt hestunum sínum og aðstöðunni í Söðlagerði meira. Það var því mikið áfall fyrir hann að veikjast um svipað leyti og starfsævinni lauk. Hann tók þó veikindunum af æðruleysi þótt að ég þykist vita að það hafi reynt mikið á hann og fjölskyld- una, sérstaklega Elínu sem sinnti honum af mikilli alúð allt til enda. Var aðdáunarvert að fylgjast með þeim og hvernig þau tókust á við það sem lífið bauð þeim. Mér þótti vænt um að fá hann og Dagrúnu, dóttur hans, í heimsókn í hesthúsið til mín í fyrravor, en þá kom hann á hjólastólnum alla leið inn í hest- hús. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir ómetanleg ár sem ég átti með vini mínum Jóni Leví. Elínu og fjölskyldunni votta ég samúð. Gunnar Sturluson. Jón Leví Tryggvason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.