Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 20

Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 Sindrastóll Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001) Sindrastóllinn er bólstraður með íslenskri lambagæru. Verð frá: 199.000 kr. Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is 40 ÁRA Jasa Baka fæddist 14. júlí 1981 í Toronto í Kanada en fjöl- skyldan flutti þegar hún var tveggja ára til Vancouver, en þar bjó íslensk amma hennar, Jóna Mowczan (fædd Jónsson). „Þar var gott að alast upp og við vorum mikið úti í náttúrunni, fórum á ströndina, upp í fjöllin, en útivist er mjög vinsæl í Vancouver.“ Jasa flutti árið 2003 til Montreal og fór í Listaháskóla þar sem hún hóf nám í leikmyndahönnun og útskrif- aðist árið 2008. „Ég bjó þar í tíu ár og var í samstarfi við dansara, tón- listarmenn og gjörningalistamenn í ýmiss konar verkefnum og svo skrif- aði ég líka handrit fyrir kvikmyndir og tónlistarmyndbönd.“ Jasa ferðað- ist oft í tengslum við listina og fór m.a. til New York oft en einnig til Grikklands og Prag í Tékklandi. Árið 2017 kom Jasa til Íslands til þess að vera gestalistamaður á Ísafirði. Hún kom með móður sinni, Deborah Alanna, og systur, Týr Jami, sem er í hljómsveitinni Syngja. Þær bjuggu til gjörning sem byggði á kassettum sem þær áttu með söng langömmu hennar, Ingibjargar Guðmundsdóttur (1891– 1994) og Jónu ömmu hennar. „Við tókum hluta af lögunum og settum í nýjan búning og þetta varð gjörningur með tónlist og myndum sem tengdi saman fjórar kynslóðir kvenna. Svolítið eins og miðilsfundur þar sem langömmu var boðið inn í salinn.“ Gjörningurinn var sýndur á Ísafirði og í Vestmannaeyjum og í Mengi í Reykjavík. Núna er Jasa í meistaranámi í LHÍ og útskrifast á næsta ári. Hún segir að hún sé komin inn á nýjar brautir í listinni. „Núna er ég mjög upptekin af yf- irnáttúrulegum verum sem gætu verið hluti af náttúrunni, en eru um leið svona leikandi, stríðið og skapandi afl. Þær virðast, við fyrstu sýn, vera svo- lítið sætar, það er ekki allt sem sýnist.“ Jasa býr með kærasta sínum, Kristjáni Einvarði Karlssyni myndlist- armanni, í Reykjavík. Á Djúpuvík stendur yfir sýningin The Factory þar sem Jasa tekur þátt í samsýningu listamanna. Jasa Baka Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Nú er rétti tíminn til þess að koma málum sínum fram. Farðu eftir innsæi þínu og láttu aðra alls ekki stjórna þér að þessu leyti. 20. apríl - 20. maí + Naut Leitaðu leiða til þess að koma systk- inum þínum og ættingjum til hjálpar. Tím- inn fer ýmist í vinnu eða skemmtanir, núna vilt þú bara lyfta þér upp. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það væri ekki úr vegi að verja deginum í að fara í gegnum málin og finna út, hvað þú vilt og hvert skal stefna. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að halda í annað fólk ef það er staðráðið í að fara sína leið. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú ert full af frábærum og skapandi hugmyndum núna. Vinur gæti boðið þér út eða fært þér gjöf sem gleður þig. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Ef þú ert ekki viss hverju trúa skuli, ertu í góðri stöðu. Nú er rétti tíminn til þess að ræða við stjórnendur. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þótt mikið fjör ríki þessa stundina og gaman sé að taka þátt í því, máttu ekki gleyma alvöru lífsins. Framkvæmdafólkið finnur ekki tíma til að gera hlutina, það stelur honum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Skemmtanaiðnaðurinn laðar og lokkar, en þar sem annars staðar er hóf best á hverjum hlut. En ef einhver sér- stakur er í spilinu, verður hann að fá alveg sérstaka athygli. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Viðræður við vin um vonir þín- ar og drauma fyrir framtíðina gætu borið óvæntan ávöxt. Paul Getty sagði eitt sinn að ríkidæmi snerist jafn mikið um viðhorf og peninga. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Eitt er víst að fólk getur treyst þér og það gerir það. Líkaminn þinn geymir minningar sem þú hefur gleymt. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er gott að eiga vin, sem óhætt er að ræða við sín hjartans mál. Vertu vinalegur við einhvern í dag. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þótt það sé í góðu lagi að hafa mik- ið að gera, þarftu að gæta þess að fá tíma fyrir þig. Vanræktu ekki þinn innri mann, heldur gefðu þér tíma til að sinna and- legum þörfum. sem tók landspróf og fór fyrst í Menntaskólann við Sund, en ákvað síðan að færa sig yfir í Mennta- skólann í Reykjavík og náði þar með jafnöldrum sínum í skólanum. „Það var mikið happaskref, því flestir mínir bestu vinir í dag eru skólafélagarnir úr MR.“ Snorri var virkur í félagslífinu og var eitt árið 1980, enda erfitt að halda við tungumáli þegar maður notar það ekki. Hins vegar var móðurbróðir minn rússneskur hérna nýlega og var í nokkra daga og við töluðum alltaf rússnesku saman og þá fann ég að málið fór að lifna við og koma til baka.“ Snorri var í síðasta árganginum S norri Bergmann fæddist í Moskvu 14. júlí 1961. „Pabbi var þar í meist- aranámi í rússnesku og bókmenntum og kynnt- ist mömmu. Við fluttumst til Ís- lands 1963, þegar ég var tveggja ára.“ Snorri ólst upp fyrstu árin í Drápuhlíð og hann hóf skólagöng- una í Ísaksskóla og síðar Hlíða- skóla. Þegar hann var 8 ára fluttist fjölskyldan í Álfheima og hann fór í Langholtsskólann. „Æskan skipt- ist á milli Hlíðanna og Heimanna og svo var ég mikið í Keflavík hjá ömmu og afa á sumrin. Síðan fór- um við í árlegar ferðir til Smólensk þar til afi dó 1968, en þá flutti amma með okkur til Íslands og varð íslenskur ríkisborgari og bjó hér til dauðadags.“ Snorri segir að ferðalögin til Rússlands hafi verið miklar ævin- týraferðir. Það þurfti að fljúga fyrst til Kaupmannahafnar og þar var gist og svo flogið með Aeroflot til Rússlands. „Ég man í einni ferðinni þegar ég var 4-5 ára að ég var alveg takkaóður og flugfreyj- urnar voru stöðugt að koma. Í ís- lensku vélinni voru þær mjög elskulegar og buðu mér kók og tóku þessu stússi bara vel, en ekki voru þær jafn geðgóðar í Aeroflot vélinni. Þar hélt ég uppteknum hætti, en flugfreyjan þar spurði mig höstuglega hvað ég vildi. Í þriðja skiptið sem hún kom sagði hún að ef ég hætti ekki að ýta á þennan takka þá myndi hún opna dyrnar og henda mér út úr vélinni, en mamma myndi halda áfram og fljúga til Rússlands. Það gefur að skilja að ég snarhætti leiknum skelfingu lostinn.“ Snorri var bráðger og lærði snemma að lesa, ekki á íslensku, heldur á rússnesku. Hann byrjaði ári fyrr í skóla vegna þess að hann var hraðlæs og fór þá í Hlíð- arskóla. Snorri talaði oft rússnesku við mömmu sína, en þegar amma hans flutti til þeirra í Álfheimana talaði hann nánast eingöngu við hana á rússnesku og hélt þannig málinu lifandi. „Þessi kunnátta hef- ur farið hrakandi eftir að amma dó gjaldkeri Framtíðarinnar. „Við vorum nú í eðlisfræðideild 1 sem sumir kölluðu nördadeildina, og þetta var mjög skemmtilegur tími.“ Hann útskrifaðist úr MR 1981 og fór í tölvunarfræði í Há- skóla Íslands. Eftir tvö ár í náminu fór hann að vinna hjá Verk- fræðistofunni Streng, þar sem hann vann við forritun í rúm 20 ár. „Við unnum mörg skemmtileg verkefni hjá Streng, m.a. settum við Gagnasafn Morgunblaðsins á netið 1993, sem var mjög áhuga- vert. Fyrst var þetta í gegnum skjáhermi, en svo fór þetta á vef- inn 1997 og þá var hægt að leita í gagnasafninu og skoða blað dags- ins, ekki á pdf-formi eins og í dag, heldur sem greinalista.“ Þegar Strengur sameinaðist Landsteinum og Kögun keypti fyrirtækið ákvað Snorri að hætta 2006, en hefur samt haldið sig við hugbún- aðargerð, kerfisstjórnun og gagna- safnsumsýslu. Helstu áhugamál Snorra eru tónlist og lestur. „Bæði börnin okkar lærðu á píanó og búa að því og eru mjög ánægð með það. Ég hlusta á allt og við hjónin erum áskrifendur að sinfóníunni. En ég hlusta líka á þungarokk og fannst gaman þegar Sinfónían vann með Snorri Bergmann kerfisfræðingur – 60 ára Hjónin Védís og Snorri í Brúarárskörðum í gönguferð á góðum degi í sumar. Lærði fyrst að lesa á rússnesku Afi kennari Sóleyju kennd hand- tökin við sveppahreinsunina. Drengurinn Snorri heldur alvar- legur á svip í Sovétríkjunum. Barnabörnin Hér er Snorri að lesa spennandi bók fyrir barnabörnin. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.