Morgunblaðið - 14.07.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
„JÆJA, SVO HÚN VILL MÁNAÐARDVÖL Á
HAVAÍ?ÞETTA FÆRÐU FYRIR AÐ SPYRJA
HANA Í STAÐ ÞESS AÐ TALA VIÐ MIG.“
„EKKI HANN!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... besta gjöfin.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SMÁKÖKUROG MJÓLK
Á HVERRI STÖÐ!
ÉG VÖKNA
ALLTAF UM
AUGUN
VÚÚÚÚÚÚ-HÚÚ! VIÐ GERUM NÚ HLÉ
Á „JÓLI SLAUFAR
MEGRUNINNI“
ÞARNA
ER LAFÐI
GÓDÍVA!
…NAKIN Á HESTBAKI! ER
HÚN EKKERT SPÉHRÆDD?
ÞAÐ ER BUNDIÐ FYRIR
AUGUN Á HESTINUM!
GJAFALISTAR
Skálmöld um árið. Annars geri ég
mér far um að festast ekki í ein-
hverju tímabili, heldur hlusta á
eitthvað nýtt og ferskt og finnst
margt skemmtilegt að gerast í tón-
listinni í dag. Svo hef ég líka áhuga
á hljómgæðum og er þess vegna
ekki á Spotify, heldur Tidal, þar
sem tónlistin er í fullum gæðum og
í sumum tilfellum í háskerpu. Það
er allt annað líf.“
Snorri les líka mikið, en reynir
að safna ekki bókum, heldur notar
kyndilinn. „Ég tek stundum svona
höfunda fyrir og er núna t.d. að
lesa 22. bók af 28 í bókaflokki eftir
Andrea Camilleri.“ Auk þess spilar
Snorri fótbolta með vinum sínum
tvisvar í viku. Þá er ótalið golfið
sem hann stundar af kappi.
„Síðan erum við Védís, kona
mín, mikið að tína sveppi og höfum
gaman af matjurtarrækt. Ég er
vanur sveppatínslu, því þegar
mamma kom hingað tíndum við
alltaf sveppi, en þá gerði þetta
varla nokkur maður hérna. Það
hefur breyst með komu fleira fólks
frá Austur-Evrópu, og við förum
með okkar tínslusvæði eins og
mannsmorð, því þetta eru viðkvæm
svæði og auðvelt að eyðileggja.“
Fjölskylda
Eiginkona Snorra er Védís Hún-
bogadóttir hjúkrunarfræðingur, f.
3.12. 1961. Foreldrar hennar
eruHúnbogi Þorsteinsson, f.11.10.
1934, d. 14.9. 2017, fv. sveitarstjóri í
Borgarnesi og ráðuneytisstjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu og Jóna Vil-
borg Jónsdóttir, f. 5.8. 1942, d. 30.9.
2002. Þau skildu. Stjúpmóðir: Erla
Ingadóttir, f. 19.2. 1929, hjúkrunar-
fræðingur. Börn Snorra og Védísar
eru 1) Lena, f. 20.9. 1987, verkfræð-
ingur í Reykjavík. Maki hennar er
Daniel Zeyen, f. 9.12. 1980, verk-
fræðingur og þau eiga dæturnar
Sóleyju, f. 2015 og Lóu, f. 2019. 2)
Árni Freyr, f. 8.11. 1990, tölv-
unarfræðingur í Reykjavík. Maki
hans er Auður Friðriksdóttir, f.
21.5. 1990, sálfræðingur og þau eiga
Jökul Húna, f. 2017, og óskírðan
dreng, f. 2021. Systir Snorra er
Olga Soffía Bergmann, f. 4.11. 1967,
myndlistarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Snorra eru hjónin Árni
Bergmann, f. 22.8. 1935, ritstjóri og
rithöfundur, og Lena Bergmann
(fædd Elena Rytsjardovna Tuvina),
f. 13.6. 1935, d. 9.6. 2008, lífeinda-
fræðingur. Þau bjuggu í Reykjavík.
Snorri
Bergmann
Ryszard Tuwim
yfirverkfræðingur
Sofía Tuvina, f. Mishon
tannlæknir
Lena Bergmann
(Elena Rytsjardovna Tuvina)
lífeindafræðingur
Bjarnhildur Helga Halldórsdóttir
húsfreyja í Veghúsum
Árni Vigfús Magnússon
bátasmiður í Veghúsum
í Keflavík
Halldóra Árnadóttir
húsfreyja í Keflavík
Jóhann Stefánsson Bergmann
sjóm. og bifreiðastj. í Keflavík
Guðlaug Bergmann
húsfreyja í Keflavík
Stefán Bergmann
ljósmyndari í Keflavík
Úr frændgarði Snorra Bergmann
Árni Bergmann
ritstjóri og rithöfundur
Helgi R. Einarsson sendi mér
póst þar sem sagði, að „þessar
limrur urðu til í leikfimitímum með
heldri borgurum í Mosfellsbæ“:
Útifjör með eldri borgurum
Það er erfitt að þegja
þegar við erum að teygja
því að hér
í hóp með mér
hafa‘ allir margt að segja.
Fyrst skal um liðina losa
svo líkjumst við ekki‘ honum Gosa
síðan að anda
árangri landa
og bannað að gleyma að brosa.
Vettlinga‘ á höndunum höfum
sem halda á göngustöfum.
Hentar það víst
á vappi‘, ekki síst,
ömmum bæði og öfum.
Ámann Þorgrímsson yrkir á
Boðnarmiði og segir „bjart fram-
undan“:
Ljúfsár er tíminn, samt lofa það skal
í lífinu fundið hef skjól
þó gosmistur leggi frá Geldingadal
í Grænuhlíð alltaf er sól.
Ólafur Stefánsson staldrar við og
segir eftir á: „væll er þetta“:
Þegar síðasta fræinu’ er sáð,
seinasta hugsjónin máð.
Þá er vestanhöll sólin
vanbúin skjólin
og í vindinn öll viðleitni stráð.
„Lúpínan“ er hér yrkisefni Jóns
H. Karlssonar:
Lúpínan læðist um heiðar.
Leiðirnar finnur hún greiðar
Þar vex hún og vex
við reiði og rex
og rifrildi kemur til leiðar.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og kallar „Hundakæti“:
„Ég af því hef endalaust gaman
og engist af hlátri“, kvað daman,
„þegar hundurinn minn
tekur hringsnúninginn,
til að hann nái endunum saman“.
Vigfús M. Vigfússon er með „enn
meiri endurvinnslu“ á gamalli
ferðasögu:
Öxar- við fjörðinn er friður
og fuglanna einstakur kliður.
Sem minnir á þetta;
að Melrakkaslétta
snýr frekar í norður en niður.
Gunnar J. Straumland er með
skrítinn þanka:
Varla auka vísur mínar
veraldarauð,
en þær raunar eru fínar
ofaná brauð.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Með heldri borgurum
í Mosfellsbæ