Morgunblaðið - 14.07.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 14.07.2021, Síða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '* -�-"% ,�rKu!, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Anna Hafþórsdóttir er annar tveggja sigurvegara í handritasam- keppni Forlagsins, Nýjar raddir. Sigurverkið Að telja upp í milljón er fyrsta skáldsaga hennar og segir höfundurinn bókina henta vel í sumarbústaðinn, hún sé vel til þess fallin að lesa yfir eina helgi, stutt og laggóð. „Sagan er um konu sem er að ganga í gegnum sambandsslit, hún skilur ekki alveg hvernig hún á að vinna úr áfallinu og fer að rifja upp æsku og unglingsárin. Hún átti mjög erfiða æsku, hefur ekki unnið úr því og er ekki í neinum samskiptum við fjölskyldu sína. Henni finnst hún ekki hafa neinn sem hún getur leitað til og er bara í algjörri krísu. Kona í krísu! Það er það sem þessi bók snýst um,“ segir Anna og hlær. Hún bætir við að aðalpersónan sé í gegn- um söguna að reyna að átta sig á því hvers vegna hún er eins og hún er. Ofboðslegur áhugi á fólki Verkið fjallar að miklu leyti um flókin fjölskyldubönd, samskipti og ekki síður samskiptaleysi. „Mér hef- ur alltaf þótt tengsl milli fólks, bæði í fjölskyldum og utan þeirra, áhuga- verð og pæli mikið í þeim. Ég hef of- boðslega mikinn áhuga á fólki og hegðun þess og hugsa að það drífi mig svolítið áfram í svona skrifum,“ segir höfundurinn. Í verkinu skoðar Anna hvaða áhrif erfiðar uppeldisaðstæður geti haft á börn. „Mamman er ekki til staðar út af andlegum veikindum og það er ekki gripið inn í. Það er eitthvað sem mig langaði að skoða, börn sem lenda á milli, kerfið grípur þau ekki en þau hafa heldur ekki bakland. Það er enginn að sjá um þau.“ Hún segist hafa áhuga á því hvaða áhrif þetta geti haft á fólk þegar það er orðið fullorðið. Sjálfsákvörðunarrétturinn „Ég er að velta ýmsum hliðum foreldrahlutverksins fyrir mér. Til dæmis hvort og hvernig áföll og geð- sjúkdómar erfast og hvort maður eigi að taka tillit til þess í lífinu. Aðalpersónan ákveður að eignast ekki börn. Það eru sjálfsagt ýmsar ástæður fyrir því en ein af þeim er kannski að stoppa áfallasöguna, ná að brjóta þetta mynstur og komast út úr því.“ Anna veltir þannig upp spurningum um tilfinningar fólks gagnvart því að taka á sig foreldra- hlutverk yfir höfuð. Anna snertir með þessu á sjálfs- ákvörðunarrétti konunnar yfir eigin líkama. „Aðalpersónan upplifir for- dóma og finnst fólk og samfélagið sem heild þrýsta á hana að eignast börn. En hún tekur þetta algjörlega í sínar hendur og hugsar bara: „Ég á minn líkama og þetta kemur engum öðrum við“. En hennar viðhorf er alltaf svolítið þannig: „Það kemur engum neitt við sem ég geri“, sem kemur henni ekkert á rosalega góð- an stað af því að hún hleypir engum að sér. Hún er búin að þróa með sér svo þykkan varnarvegg að hún nær ekki að mynda tengsl við fólk og er verulega einmana.“ Nostalgían er skemmtileg Mikið er flakkað fram og aftur í tíma í bókinni og lesandinn fær að kynnast sömu persónunni sem barni, unglingi og fullorðinni konu. Endurlitin vekja upp einhvers konar nostalgíu sem Anna segir að sér þyki skemmtileg. Það er þó viss kúnst að raða ólíkum þáttum upp á tímalínu og láta verkið hanga sam- an. „Fyrst fannst mér það smá flókið. Ég skrifaði bókina í köflum og svo þegar ég fór að raða þessu upp þá fór ég allt í einu að spyrja mig: „Er ég með heildarmyndina og bogann fyrir hverja persónu?“ Það var svo- lítið krefjandi en samt bara mjög skemmtilegt.“ Leið Önnu að ritstörfunum var ekki þráðbein. „Ég byrjaði að læra leiklist í kvikmyndaskólanum og er alltaf eitthvað aðeins að leika, en sá að það væri kannski ekki hundrað prósent vinna þannig ég ákvað að fara í nám í tölvunarfræði og kláraði það. Svo ég er með BS í tölvunar- fræði og vann eitthvað sem forritari. En svo fannst mér ég kannski ekki alveg vera á réttri hillu þannig að ég ákvað að sækja um í ritlist og komst inn. Síðan þá hef ég aðallega verið að einbeita mér að skrifum og aðeins að leika með, og mér finnst ég meira á réttri hillu í því.“ Anna byrjaði að vinna að bókinni, Að telja upp í millj- ón, í meistaranáminu í ritlist við Háskóla Íslands sem hún kláraði ár- ið 2019. „Þetta var lokaverkefnið mitt svo ég hafði heila önn þar sem ég lá bara yfir þessu. Það var styttri útgáfa af bókinni og svo hélt ég áfram að vinna hana jafn og þétt.“ Útgáfan er berskjaldandi Rithöfundurinn segir viðurkenn- inguna sem felst í því að hafa borið sigur úr býtum í samkeppninni, Nýjar raddir, hafa haft mikla þýð- ingu fyrir sig. „Þetta er aðallega góð hvatning fyrir mig til að halda áfram að skrifa. Ég hef náttúrlega aldrei gefið neitt út, alla vega ekki eitthvað sem er bara mitt. Það er svo ber- skjaldandi og stressandi, þannig að það er mjög mikil hvatning að hafa það á bak við sig að hafa unnið verð- laun og það gefur manni sjálfstraust. Annars finnst mér þessi verðlaun mjög sniðug, að gefa nýjum röddum pláss.“ Anna segist aðallega vera að vinna að handritum þessa dagana. „Ég er að skrifa handrit að sjón- varpsþáttum sem ég er búin að vera að vinna í síðan ég fékk fyrsta hand- ritsstyrkinn árið 2018. Þannig að þetta er búið að vera lengi í bígerð,“ segir hún kímin. „Þetta eru gaman-dramaþættir um ungt fólk í Reykjavík sem er að reyna að finna sig í lífinu og svo kemur inn í þetta smá mystík. Aðal- persónan er forritari svo þetta bygg- ist kannski oggulítið á mér,“ segir Anna og hlær. „Svo er ég líka að að- stoða við handritsgerð að bíómynd. Þannig að ég er svolítið upptekin í því þessa dagana, en svo er ég að vonast til að geta farið að vinna að næstu bók.“ Morgunblaðið/Unnur Karen Rithöfundur „Mér hefur alltaf þótt tengsl milli fólks, bæði í fjölskyldum og utan þeirra, áhugaverð og pæli mikið í þeim,“ segir Anna Hafþórsdóttir. Áhuginn á fólki er drifkraftur - Anna Hafþórsdóttir sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu, Að telja upp í milljón - Segir þetta sögu um konu í krísu - Annar tveggja sigurvegara í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir Dúplum dúóið heldur tónleika á morgun, 15. júlí, í sumartónleikaröð Norræna hússins kl. 21. Dúóið mun frumflytja nýja ljóðaflokka eftir kan- dadísk/íslenska tónskáldið Fjólu Ev- ans og Hróðmar I. Sigurbjörnsson og segir í tilkynningu að ljóðaflokk- arnir fái texta sína annars vegar úr bókinni Íslenzk ferðaflóra eftir Áskel Löve og hins vegar úr ljóðabókinni Guðlausir menn: hugleiðingar um jökulvatn og ást eftir Ingunni Snæ- dal. Einnig mun dúóið fagna útgáfu smáskífunnar „Flowers of evil“ eftir hollenska tónskáldið Aart Strootman við ljóð eftir Baudelaire, sem gefin var út um jólin í fyrra. „Viðfangsefni tónleikanna er flóra Íslands með beinskeyttum lýsingingum á bæði náttúrunni og mannlegum sam- skiptum,“ segir í tilkynningu vegna tónleikanna en dúóið skipa Björk Níelsdóttir söngkona og Þóra Mar- grét Sveinsdóttir víóluleikari. Þær kynntust í Tónlistarháskólanum í Amsterdam og fóru í mörg tónleika- ferðalög og þá m.a. með Björk, Sig- urrós, Florence and the Machine og Stargaze áður en þær ákváðu að sameina krafta sína sem dúett. Þær leggja áherslu á nútímaljóð og flutn- ing á ljóðasöng og notast einungis við söngrödd og víólu. Tónlistin er sögð bæði hrá og viðkvæm. Dúplum Þóra Margrét Sveinsdóttir og Björk Níelsdóttir skipa dúettinn Dúplum frumflytur nýja ljóðaflokka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.