Morgunblaðið - 14.07.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.07.2021, Blaðsíða 28
Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins frá Selfossi, mun stýra brekku- söngnum á Þjóðhátíð í Eyjum 1. ágúst. „Magnús hefur um árabil verið einstaklega eftirsóttur trúbador sam- hliða því að spila með hljómsveit sinni vítt og breitt um landið við hin ýmsu tilefni og meðal annars komið fram á Þjóðhátíð óslitið síðan 2016,“ segir í tilkynningu vegna þessa og að boðið verði upp á lifandi streymi í samvinnu við Senu live frá söngnum í fyrsta sinn. Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrir brekkusöngnum á Þjóðhátíð MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 195. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Valsmenn stóðu sig afar vel gegn króatíska meist- araliðinu Dinamo Zagreb í fyrstu umferð Meistara- deildar karla í fótbolta á Hlíðarenda í gærkvöld en urðu að lokum að sætta sig við 2:0 ósigur. Valsmenn færast því yfir í aðra umferðina í Sambandsdeild Evrópu og mæta þar annaðhvort Bodö/Glimt frá Noregi eða Legia Varsjá frá Póllandi. »23 Valsmenn til Noregs eða Póllands ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hornstrandastofa er góður staður til að hefja ferðalag á hinar af- skekktu slóðir. Hér á fólk að geta fengið tilfinningu fyrir því hvaða og hvernig náttúra fær vernd,“ segir Kristín Ósk Jónasdóttir hjá Um- hverfisstofnun á Ísafirði. Nýlega opnaði Guðmundur Ingi Guðbrands- son umhverfisráðherra formlega Hornstrandastofu sem er í húsinu Björnsbúð við Silfurtorg á Ísafirði. Í gestastofu, sem kalla má anddyri Hornstranda, er sýning hvar kynna má sér margt af því sem gerir Hornstrandir einstakar; það er björg með fuglum á syllum, fjöl- breytt flóra á þriðja hundrað plantna og melrakkinn, sem er al- friðaður á svæðinu. Stafrænt og sterkt myndmál Á sýningunni má meðal annars sjá myndband um fuglalíf við Hæla- víkurbjarg og fá tilfinningu fyrir því hvernig mannlíf og samfélag voru í þessari byggð, þaðan sem síðasta fólkið flutti laust fyrir 1950. Enn eru búsetuminjar og hús, sem er vel við haldið, á Hesteyri, Aðalvík, Fljótavík og Hornvík svo nefndir séu nokkrir staðir. „Já, ég tel okkur með þessari sýningu hafa að einhverju leyti náð að skapa andblæ Hornstranda. Með stafrænum útfærslum og sterku myndmáli má töfra sitthvað fram,“ segir Kristín. „Verkefni eins og þetta þróast svo alltaf í fyllingu tím- ans. Þá sé ég fyrir mér að segja hér ítarlegar frá búsetu á Hornströnd- um. Þar var harðbýlt en sjórinn og fuglabjörgin gáfu vel, svo aldrei varð matarskortur. Af þessu eru til margar sögur.“ Friðlandið 600 ferkílómetrar Friðlandið á Hornströndum er nyrst á Vestfjörðum; nær frá Hrafnfjarðarbotni í Jökulfjörðum norður í Furufjörð. Alls eru þetta 600 ferkílómetrar: friðland frá 1975. Yfir sumarið er siglt frá Ísafirði og Bolungarvík á Hornstrandir flesta daga og hófust ferðirnar snemma í júní. Einnig eru siglingar frá Norð- urfirði á Ströndum. Breyting seinni tíðar er annars sú að nú fer fólk á þennan hjara veraldar yfir lengri tíma á árinu en bara hásumarið. Ljósmyndaferðir að vetri og leið- angrar í Jökulfirði með fjallaskíða- fólk koma sterkt inn. „Núna er fjöldi fólks á svæðinu. Margir fara til dæmis í Veiðileysu- fjörð, ganga þaðan yfir í Hornvík og svo á Hesteyri og sigla þaðan heim. Sennilega hafa um 75% alls göngu- fólks á Hornströndum viðkomu í Hornvík. En margir fleiri eru á ferðinni, til dæmis fólk sem hefur tengsl við svæðið og á þar hús. “ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landverðir Kristín Ósk Jónasdóttir og Lydía Ósk Óskarsdóttir standa vaktina í Hornstrandastofu á Ísafirði. Andblær Hornstranda - Gestastofan í Björnsbúð á Ísafirði er anddyri friðlandsins Ljósmynd/Kristín Ósk Jónasdóttir Flugsýn Til hægri sést inn í Hesteyrarfjörð, utar eru Grænahlíð og Riturinn er yst. Handan fjalla sést niður í Aðalvík. Skýjaloft við ströndina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.