Morgunblaðið - 26.07.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 26.07.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum hafðu það notalegt Úlfar Steindórsson hætti fyrir helgi sem stjórnarformaður Icelandair og skilar býsna góðu búi miðað við aðstæður í flug- heiminum. Viðskiptablaðið ræddi við hann í liðinni viku um flug- og ferðamál í víðum skilningi, þar á meðal um veiruna alræmdu og að- gerðir gegn henni. Þar gagn- rýndi Úlfar að herða ætti að- gerðir þegar stærstur hluti þjóð- arinnar hefði verið bólusettur og benti á að fyrirtæki í ferðaþjón- ustu væru búin að „ráða inn hell- ing af starfsfólki, byggt á ákvörðun sem stjórnvöld voru búin að taka og tilkynna. Það er ekki gerandi að ætla svo skyndi- lega að breyta því eftir ekki nema hálfan mánuð, það bara gengur ekki upp.“ - - - Úlfar sagði enn fremur: „Þetta snýst auðvitað um að stjórn- völd, þeir fulltrúar okkar sem kjörnir eru til að stýra landinu, taki ákvarðanirnar. Það er ekki hægt að gagnrýna embættismenn fyrir tillögur sem þeir leggja til í samræmi við hlutverk sitt en stjórnvöld verða að byggja ákvarðanir sínar á stóru mynd- inni. Ef kjörin stjórnvöld ætla ekki að stýra landinu, þá veit ég ekki til hvers við ætlum að hafa kosningar í haust.“ - - - Leiðari Viðskiptablaðsins var á svipuðum slóðum og hvatti stjórnvöld til að byggja ákvarð- anir sínar „á vísindalegri nálgun, þ.e. styðjast við gögn og meta ólíkar sviðsmyndir þeirra breyta sem skipta máli í stóra samheng- inu. Mikilvægt er að týna sér ekki í rörsýn á smitfjölda ef al- varleg veikindi eru fátíð og ekki hætta á ofálagi á heilbrigðis- kerfið.“ Úlfar Steindórsson Heildarsýn eða rörsýn? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Maímánuður var ákaflega kaldur sem lofar ekki góðu um aðalbláberjasprettu. Eins hefur verið litið til snjóalaga. Þegar þau haldast þá hlífa þau berjalynginu,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjaáhugamaður. „En þegar maður skoðar bláberjalyng í Borgarfirði og víðar þá er það merkilega fallegt að sjá og með sætukoppa.“ Hann segir að það sé því alls ekki útséð með berjasprettuna í sumar. Meira hefur verið litið til hitastigs en úr- komu þegar spáð er í sprettu berja, þó eru miklir þurrkar ekki góðir fyrir þroska berj- anna. Sveinn Rúnar segir að krækiberin séu óútreiknanlegri varðandi þessa þætti en að- albláberin. Það kemur í ljós hvernig úr rætist þegar kemur fram í ágústmánuð. Býst Sveinn Rúnar jafnvel við þroskuðum berjum um miðjan ágúst. Berjatíminn hefur færst örlítið fram undanfarin ár. Fólk er farið að tína ber mun fyrr en áður. Á árum áður var aðalberjatíminn síðustu dagarnir í ágúst og fyrsta vikan í sept- ember, eða þar til fyrstu næturfrost komu og spilltu berjunum. gudni@mbl.is Fallegir sætukoppar á lyngi - Enn of snemmt að segja fyrir um berin Morgunblaðið/Ómar Bláber Enn er of snemmt að segja fyrir um hvernig rætist úr berjasprettunni í sumar. Rauðavatn er nú með allra minnsta móti líkt og fleiri vötn og er um að kenna miklum þurrkum í sumar. Hilmar J. Malmquist, vistfræðingur og forstöðumaður Náttúruminja- safns Íslands, segir að Rauðavatn sé orðið verulega vatnslítið. „Vatnasviðið er fremur lítið og þess vegna hefði maður talið að það tæki fljótt við sér við úrkomu, en það er ekki að sjá,“ segir Hilmar. Lífríkið á strandgrunninu getur farið illa ef þurrkarnir vara lengi. Lífverur sem hafast við á hörðu undirlagi, sniglar og fleiri dýr, ná ekki að forða sér þegar vatnið þornar. Hætt er við að þau drepist. Hilmar sagði að það hafi áður gerst að vatnabobbar og aðrir sniglar, sem alla jafna eru mjög al- gengir í Rauðavatni, hafi mikið til horfið við lága vatnsstöðu. Þeir geta hörfað út á dýpið en þar er mýkri botn sem hentar þeim ekki. Vatnaplantan síkjamari er áber- andi í Rauðavatni. Hilmar telur að vatnið dragi nafn sitt af rauðleitum blómum hennar sem standa upp úr vatnsyfirborðinu og gera vatnið rautt yfirlitum. gudni@mbl.is Rauðavatn er orðið mjög vatnslítið Morgunblaðið/Árni Sæberg Nafn frambjóðanda Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem á góðan möguleika á að komast á þing í haust, var ekki rétt í skýringarmynd í blaðinu sl. föstudag. Lilja Rannveig er Sigurgeirsdóttir. Beðist er velvirð- ingar á rangherminu. LEIÐRÉTT Lilja Rannveig er Sigurgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.