Morgunblaðið - 26.07.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.07.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Vísindamönnum í Dubai í Samein- uðu arabísku furstadæmunum hefur tekist að framkalla eigin úrkomu til að stemma stigu við miklum þurrk- um í landinu þar sem lofthiti fer reglulega yfir 46°C. Greint var frá þessu nýverið í frétt CBS. Með því að nota rafhleðslu frá drónum hafi vísindamönnunum tek- ist að hafa áhrif á veðrið þar í landi á þann hátt að það rigni yfir eyði- mörkina. Þessi nýstárlega aðferð til að framkalla rigningu kallast skýjasán- ing og á að vera umhverfisvænni en aðrar leiðir sem reyndar hafa verið til að draga úr þurrkum. Ríkisstjórnin í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum vonar að með skýjasáningu takist að draga úr hitabylgjum í landinu. Samkvæmt rannsókn frá Reading-háskólanum í Bretlandi tókst vísindamönnunum að nota dróna til að auka rafhleðslu þeirra skýja sem fyrir eru á himn- inum sem veldur því að þau fram- kalla stærri regndropa en ella. Loft- hitinn í landinu er oft svo mikill að smærri regndropar gufa upp áður en þeir ná að lenda á jörðinni. Árið 2017 hlutu vísindamenn við Reading háskólann 1,5 milljóna dollara styrk fyrir verkefnið.Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa fjár- fest 15 milljónir dollara í vísinda- verkefni sem snúa að því tryggja vatnsöryggi í landinu sem fer minnkandi með ári hverju. „Mark- miðið er að reyna að auka úrkomu,“ segir Maarten Ambaum veðurfræð- ingur í samtali við fréttastofu BBC. Karim Sahib Eyðimörk Kameldýr í eyðimörkinni. Framkalla regn með drónum - Nýstárleg rannsókn gerð í Dubai Stjórn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, tel- ur að ef smitum haldi áfram að fjölga í Þýska- landi gætu óbólu- settir þurft að lúta nýjum reglum. „Bólu- settir munu klár- lega hafa meira frelsi en óbólusett- ir,“ sagði Helga Braun, skrifstofustjóri Merkel, í samtali við þýska dagblaðið Bild am Sonn- tag. Eins og er þurfa Þjóðverjar að framvísa bólusetningarvottorði eða neikvæðu prófi til að komast á veit- ingastaði, í kvikmyndahús eða íþróttaleikvanga. Braun sagði að ef smitum fjölgar yrði óbólusettum meinað aðgengi að slíkum stöðum þar sem áhættan á smiti væri of mikil. Um helmingur Þjóðverja er fullbólusettur en Merkel segist ekki ætla skylda fólk í bólusetningu líkt og Frakkar gera við ákveðinn hóp. ÞÝSKALAND Herða tökin á rétt- indum óbólusettra Angela Merkel Sajid Javid, heil- brigðisráðherra Bretlands, hefur beðist afsökunar á ummælum sín- um á Twitter um að fólk eigi að hætta að hlaupa í felur frá Covid- 19. Ummælin lét Javid falla eftir að hann sagðist hafa náð fullum bata af veirunni viku eftir að hann greindist smitaður, en hann var fullbólusettur. Verkamannaflokkurinn sakaði Javid um að vanvirða þá sem fylgdu sóttvarnaaðgerðum. Javid baðst innilegrar afsökunar á ummælum sínum og sagði að meining hans hafi verið að lýsa þakklæti til bólu- efna gegn veirunni. Um 70% Breta eru fullbólusettir en yfir 30 þúsund tilfelli hafa greinst daglega und- anfarna daga. Alls hafa um 5,5 milljónir smitast í Bretlandi. BRETLAND Baðst afsökunar á Covid-ummælum Sajid Javid Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Víða um heim hafa sóttvarnaaðgerð- ir yfirvalda vakið mótmæli síðustu daga. Í Ástralíu, Frakklandi, Ítalíu og Grikklandi komu þúsundir saman og mótmæltu aðgerðunum og auk- inni pressu á fólk um að fara í bólu- setningu gegn Covid-19. Hundruð sekta voru gefnar út í áströlsku borginni Sydney vegna mótmælanna. Mótmælendur og lög- regla tókust á og sagði einn lögreglu- þjónanna hegðun mótmælenda „of- beldisfulla, ógeðslega og áhættu- sama“. Forsætisráðherra Ástralíu, Scott Morrison, sagði mótmælin vera „eigingjörn og gagnslaus“ þar sem þau myndu ekki binda enda á útgöngubannið fyrr. Rannsóknar- lögreglumenn kemba nú samfélags- miðla, öryggismyndavélar og búk- myndavélar lögreglumanna til þess að bera kennsl á þá sem tóku þátt í mótmælunum. Lögreglan gaf út 510 sektir á laugardag og handtók 57 manns fyrir óeirðir. Um helmingur Ástrala býr nú við útgöngubann vegna útbreiðslu Delta-afbrigðis veirunnar. Einungis um 15% Ástrala eru bólusett gegn veirunni. Harkalegar aðgerðir Í Frakklandi beitti lögregla tára- gasi gegn sumum mótmælendum en áætlað er að 160.000 manns hafi mót- mælt aðgerðum Emmanuels Mac- ron, forseta Frakklands, á landsvísu. Í landinu er nú skylda að sýna fram á svonefndan „heilsupassa“ á öllum stöðum þar sem fleiri en 50 eru sam- ankomnir. Til þess að fá passann þarf fólk annaðhvort að vera með bólusetningarvottorð eða neikvætt Covid-19-próf. Í mótmælunum voru um 70 handteknir og um 30 lögreglu- menn slösuðust. Um 48% Frakka eru fullbólusett en efasemdir um ágæti bólusetninga hafa verið hvað mestar í Frakklandi af Evrópuþjóð- um síðan að faraldurinn blossaði upp. Þá söfnuðust mótmælendur einnig saman í höfuðborgum Ítalíu og Grikklands. Í Róm mótmælti fólk svokölluðum grænum passa sem því er skylt að framvísa ef það ætlar á innisvæði veitingastaða eða á við- burði sem haldnir eru innandyra. Í Aþenu mótmælti fólk ákalli stjórn- valda um að fara í bólusetningu. Mótmælendur kölluðu meðal annars „ekki snerta börnin okkar“. Lög- regla í Aþenu þurfti að grípa til tára- gass og háþrýstidælna til að dreifa mannfjöldanum. Takmörkunum mótmælt - Mótmæla sóttvarnaaðgerðum og bólusetningu - Hegðun mótmælenda „of- beldisfull, ógeðsleg og áhættusöm“ - Lögregla beitti táragasi og háþrýstidælum AFP Mótmæli Þúsundir hafa mótmælt aðgerðum Macron í Frakklandi. Ár hafa flætt yfir bakka sína í Belg- íu í annað sinn á rúmri viku. Fleiri en 210 hafa látist af völdum flóða í liðinni viku í Vestur-Evrópu. Á ann- að hundrað manns er enn saknað. Verst er ástandið í héruðunum Namur og Vallóníu sem eru suð- austur af höfuðborginni Brussel. Í héruðunum var þrumuveður og miklar rigningar á laugardag sem olli því að áin Maas varð að stór- fljóti. Mikið rennsli vatns hreif með sér tugi bíla á götum borgarinnar og skildi eftir mikla mold á götum sem skemmdust talsvert í flóðunum í liðinni viku. Borgarstjóri Dinant í Vallóníu, Robert Closset, segir að ekki hafi verið tilkynnt um nein dauðsföll en flóðin um helgina séu verri en þau sem urðu í síðustu viku. Áframhaldandi flóð í Vestur-Evrópu Mikil vatns- flóð skekja Belgíu á ný AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.