Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Joe Biden for-
seti Banda-
ríkjanna sæt-
ir töluverðri
gagnrýni fyrir að
hafa fallið frá fyrri
afstöðu sinni og
forvera sinna um andstöðu við
gasleiðsluna Nord Stream 2,
sem ætlunin er að flytji gas
beint frá Rússlandi til Vestur-
Evrópu í stað þess að Rússar
þurfi að treysta á gasleiðslur í
gegnum ríki Austur-Evrópu.
Í leiðara The Wall Street
Journal segir að merki um
veikleika í utanríkisstefnu
Bidens séu ítrekað farin að
koma fram og breytt afstaða
gagnvart Nord Stream 2 sé
dæmi um þetta. Biden tali
digurbarkalega en fylgi þeim
orðum ekki eftir. Blaðið bend-
ir á að bæði Barack Obama og
Donald Trump forverar Bid-
ens hafi staðið gegn gasleiðsl-
unni, en nú hafi Biden fært
„Vladimír Pútín meiri háttar
sigur í málinu á kostnað Úkra-
ínu og orkumála Evrópu.“
Í breska blaðinu Telegraph
hefur einnig verið fjallað
nokkuð um málið, meðal ann-
ars í grein eftir Con Coughlin
sem fer fyrir varnarmála-
umfjöllun blaðsins. Hann segir
að Pútín hljóti að vera frekar
ringlaður vegna óljósra skila-
boða sem hann fái frá stjórn
Bidens. Í síðasta mánuði, í að-
draganda G7-fundarins, hafi
Bandaríkjaforseti haft uppi
stór orð um að mæta endur-
teknum tilraunum Kremlar til
að grafa undan Vesturlöndum
og varaði við alvarlegum af-
leiðingum.
Biden hafi einnig haft uppi
stór orð í tengslum við fund
þeirra Pútíns í Genf um að
hann ætlaði að
„láta [Pútín] vita
það sem ég vil að
hann viti“. Þá hafi
Bandaríkin í sam-
starfi við banda-
menn á borð við
Breta sýnt herstyrkinn í
Svartahafinu sem hafi falið í
sér siglingu breska herskips-
ins HMS Defender. Þrátt fyrir
allt þetta hafi „Bandaríkja-
forseti tekið algera U-beygju
með því að samþykkja samn-
ing þýska kanslarans Angelu
Merkel um að ljúka byggingu
hinnar umdeildu Nord Stream
2 leiðslu frá Rússlandi til
Þýskalands.“
Coughlin segir að með þessu
snúi Biden ekki aðeins við
langvarandi andstöðu Banda-
ríkjanna við verkefnið og færi
Moskvu möguleikann á að hafa
afgerandi áhrif á orkuöflun
Evrópu í framtíðinni, heldur
séu þetta einnig alger svik
bandarískra stjórnvalda við
bandamenn í Austur-Evrópu
sem verði mun berskjaldaðri
gagnvart þrýstingi rússneskra
stjórnvalda þegar Rússland
þurfi ekki lengur að treysta á
þessi ríki til að selja orku til
Vestur-Evrópu.
Líklega bjóst enginn við að
Joe Biden yrði sterkur forseti
en þó bjuggust varla margir
við að hann yrði veikari í utan-
ríkismálum en Barack Obama.
Fyrir bandamenn Bandaríkj-
anna er það töluvert áhyggju-
efni ef utanríkisstefnan mun
einkennast af hringlandahætti
og eftirgjöf næstu árin. Og
raunar verður mjög erfitt,
jafnvel þó að vilji stæði til
þess, að snúa af slíkri braut
eftir að skilaboð um veikleika
hafa einu sinni verið send út.
Biden vék frá eigin
orðum og stefnu
forvera sinna um
Nord Stream 2}
U-beygja í Hvíta húsinu
Þeir sem búa í
Reykjavík eða
reka þar fyrirtæki
eiga ekki von á
neinum glaðningi
frá borgaryfirvöldum á næst-
unni að mati áheyrnarfulltrúa
Miðflokksins, Vigdísar
Hauksdóttur, í borgarráði. Á
fundi borgarráðs síðastliðinn
fimmtudag kom fram svar við
fyrirspurnum Vigdísar um
væntanlega álagning-
arprósentu á húsnæði í
Reykjavík og hvort til stæði
að lækka hana.
Svarið kom ekki á óvart,
ákvörðun hefði ekki verið tek-
in og þar við sat. Þá bókaði
Vigdís á borgarráðsfundinum:
„Af svarinu má ráða að ekki
standi til að lækka fasteigna-
álögur í Reykjavík á árinu
2022. Það má öllum vera ljóst
að fjárhagsáætlunarvinnan er
langt komin þegar
kominn er 22. júlí.
Enginn vilji er til
að koma til móts
við Reykvíkinga
og létta af þeim álögum af
völdum hækkunar fasteigna-
mats sem nær eingöngu má
rekja til lóðaskorts í borg-
inni.“
Óhætt er að taka undir með
Vigdísi, það bendir ekkert til
að borgaryfirvöld hyggist
koma til móts við Reykvík-
inga og létta af þeim álögum,
jafnvel þó að borgin sjálf beri
ábyrgð á þessum hækkandi
álögum. Borgarstjórnarmeiri-
hluti Samfylkingar, Pírata,
Vinstri grænna og Viðreisnar
hefur sýnt að hann stendur
saman um að sóa skattfé
Reykvíkinga og gæta þess um
leið að álögur séu með allra
hæsta móti.
Borgaryfirvöld vilja
halda álögum háum}Lítil von um lækkun
Í
sumarfríinu getur verið freistandi að
slaka á í sófanum með hlýtt ullarteppi
og þá er gott að geta valið sér íslenskt
efni til áhorfs. Til dæmis hafa nýir og
spennandi þættir um Kötlu átt hug
minn allan þessa dagana. Slíkt efni verður þó
ekki til af sjálfu sér.
Hlúa þarf að kvikmyndagerð líkt og mörgu
öðru. Ef greininni er veitt athygli og pláss hef-
ur hún möguleika að vaxa og dafna okkur öllum
til heilla. Mikilvægt er að sveigjanlegt og kraft-
mikið stuðningskerfi sé til staðar sem ýtir und-
ir jákvæða þróun í kvikmyndagerð. Síðastliðið
haust markaði tímamót í sögu kvikmyndagerð-
ar á Íslandi þegar Lilja Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, lagði fram fyrstu
heildstæðu stefnu íslenskra stjórnvalda á sviði
kvikmynda. Markmiðið með stefnunni er að
skapa auðuga kvikmyndamenningu sem styrk-
ir sjálfsmynd þjóðarinnar, eflir íslenska tungu, býður upp
á fjölbreyttari og metnaðarfyllri kvikmyndamenntun,
styrkir samkeppnisstöðu greinarinnar og stuðlar að því að
Ísland verði þekkt alþjóðlegt vörumerki á sviði kvik-
myndagerðar. Með kvikmyndastefnu hafa íslensk stjórn-
völd viðurkennt vaxandi hlutverk menningar, lista og
skapandi greina á Íslandi.
Framsókn hefur lengi talað fyrir mikilvægi þess að
styðja eigi við kvikmyndagerð í landinu ásamt því að
hækka endurgreiðslur af framleiðslukostnaði í 35% líkt og
gert er í löndum sem keppa við Ísland um verkefni. Kvik-
myndagerð hefur fyrir löngu sannað gildi sitt
sem listgrein og atvinnugrein. Kraftmikil kvik-
myndamenning eflir sjálfsmynd þjóðarinnar.
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru listgrein
sem speglar samtímann og gerir sögu og
menningararfi skil. Ýmiss konar efni er fram-
leitt sem bæði er afþreying fyrir nútímann
ásamt því að segja mikilvæga sögu til fram-
tíðar. Mikilvægi kvikmyndagerðar fyrir ís-
lenska tungu er ómetanlegt, en kvikmynda-
gerð skipar stóran sess í því að efla og
varðveita íslenska tungu.
Ferðavenjukönnun hefur sýnt að tæplega
40% þeirra ferðamanna sem hingað koma tóku
ákvörðun um að ferðast til Íslands eftir að hafa
séð landið í sjónvarpi eða á hvíta tjaldinu.
Heildarvelta ferðaþjónustunnar af slíkum
ferðamönnum hleypur á mörgum milljörðum.
Íslensk kvikmyndagerð skapar á fjórða þús-
und beinna og afleiddra starfa og laðar að erlenda fjárfest-
ingu. Í því felast gríðarleg verðmæti fyrir ríkissjóð. Við í
Framsókn höfum talað fyrir mikilvægi þess að skapa fjöl-
breytt atvinnutækifæri. Kvikmyndagerð er skapandi at-
vinnugrein sem fellur vel að þeim hugmyndum, en mik-
ilvægt er að hún fái viðeigandi stuðning. Fjórða
iðnbyltingin kallar eftir hugviti, hátækni, sköpun og sjálf-
bærum lausnum og kvikmyndagerð er allt þetta.
Lilja Rann-
veig Sigur-
geirsdóttir
Pistill
Íslensk kvikmyndagerð
Höfundur er varaþingmaður Framsóknar og situr í 2. sæti á
lista flokksins í Norðvesturkjördæmi.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
E
ndurhæfingarmiðstöðin á
Reykjalundi hefur tekið á
móti einstaklingum sem
glíma við eftirköst af Co-
vid-19 frá því í október á síðasta ári.
Hefur fjöldi fólks sóst eftir endurhæf-
ingu í kjölfar veikinda af völdum veir-
unnar. Reykjalundur fór í þriggja
vikna sumarleyfi á dögunum og mun
starfsemin hefjast að nýju eftir versl-
unarmannahelgina.
Stefán Yngvason, fram-
kvæmdastjóri lækninga á Reykja-
lundi, segir að tíminn geti skipt máli
og oft batni fólki af sjálfu sér. Þess
vegna eru þrír mánuðir látnir líða
þangað til fólk er kallað inn. Þannig
eru þeir síaðir út sem þurfa raun-
verulega á hjálpinni að halda. Í milli-
tíðinni er fólki bent á að sækja sér að-
stoð á heilsugæslustöðvum.
Óþol fyrir miklu álagi
Hópurinn sem kemur á Reykja-
lund er fjölbreyttur, á aldrinum 18
ára og eldri. Stefán segir að stærsti
hópurinn sé á miðjum aldri. Lang-
vinnu áhrifin sem fólk glímir við eru
helst líkamleg þreyta og mæði, orku-
leysi og andleg þreyta. Stefán bendir
á að þetta séu mjög víðtæk vandamál
og þau verði ekki leyst með áhlaupi.
„Nær allir hafa óþol fyrir miklu
líkamlegu álagu og við mælum lík-
amlegt atgervi hvers og eins í upphafi
með áreynsluprófum,“ segir Stefán.
Hann bætir við að mikilvægt sé að
skammta líkamlegt álag mjög stíft
enda sé annars hætta á að fólk geti
ekki tekið fullan þátt, fari það fram úr
sér á fyrsta degi.
Á Reykjalundi er fólki kennt að
takast á við heilaþoku, örmögnun eða
kulnun. Til séu ýmis ráð eins og að
kyrra hugann og nýta orkuna betur.
Stefán segir að fólki sé þannig kennt
að nota verkfæri sem það getur svo
notað sjálft. „Það er mikið álag að
komast ekki í vinnu og vera með ein-
kenni sem er erftt að útskýra og sjást
ekki utan á þér.“
Mikil byrði um ókomin ár
Það virðist vera erfiðara að losna
við langtímaáhrif Covid-sjúkdómsins
en langtímaáhrif annarra veirusýk-
inga. Þeir sem hafa útskrifast eru nú í
eftirfylgd en ekki er gert ráð fyrir
endurkomum. „Við stöndum í miðri á
með þetta fólk,“ segir Stefán. Hann
bendir á að menn hafi áhyggjur af því
að langtímaáhrif veirunnar verði mik-
il byrði um ókomin ár.
„Það veit enginn, maður getur
ekki fullyrt fyrir fram hvort fólk losni
við þau yfirhöfuð.“ Inn í myndina þarf
þó að taka að heilsufar fólks í grunn-
inn er alla vega og það þarf að draga
frá við mat á því hvernig fólk hefur
það eftir Covid.
Ekki er enn vitað um áhrif bólu-
setninga á langvinn einkenni og því
getur Stefán ekki fullyrt um það
hvernig sjúkdómurinn leggst á bólu-
setta til lengri tíma.
„Í heildarmyndinni er þessi
veira ólíkindatól. Langvinnu einkenn-
in eru ekki endilega í réttu hlutfalli
við hve veikur þú varðst,“ segir Stef-
án. Fólk geti því haft lítil veikinda-
einkenni en svo fengið langvinn ein-
kenni sem geri það óstarfhæft í
framhaldinu.
Stefán telur að endurhæfingin
á Reykjalundi komi að gagni.
„Við eigum samt eftir að
mæla árangurinn og nið-
urstöður sem segja okkur hvað
dugar fólki best.“ Reykjalundur
er í samtali við Sjúktratrygg-
ingar núna enda er ekki hægt að
ráðast í aukin verkefni nema
með samningi við Sjúkra-
tryggingar. „Það er tíma-
frekt en þetta er sú staða
sem Reykjalundur og aðrar
svipaðar stofnanir búa við.“
Ásókn í endurhæf-
ingu í kjölfar Covid
Reykjalundur er heilbrigðis-
stofnun í eigu Sambands ís-
lenskra berkla- og brjósthols-
sjúklinga (SÍBS). SÍBS var
stofnað árið 1938 af berkla-
sjúklingum. Starfsemin á
Reykjalundi nær allt aftur til
ársins 1944 og fyrstu árin
nutu berklasjúklingar þar að-
hlynningar. Upp úr 1960 var
farið að bjóða upp á endurhæf-
ingu fyrir hjarta- og lungna-
sjúklinga, auk fleiri hópa sjúk-
linga.
Nú skiptist endurhæfingin í
níu svið; hjartasvið, lungna-
svið, taugasvið, geðsvið,
gigtarsvið, hæfingarsvið,
næringarsvið, verkjasvið
og atvinnulega endurhæf-
ingu. Innan sviðanna er
teymisvinna fagstétt-
anna lögð til
grundvallar
endurhæfing-
unni, segir á
vef Reykja-
lundar.
Endurhæfing
á níu sviðum
REYKJALUNDUR
Stefán
Yngvason
Ljósmynd/Odd Stefán
Reykjalundur Aukin aðsókn er í endurhæfingu í kjölfar veikinda af völdum
Covid-19. Starfsemi Reykjalundar liggur niðri núna vegna sumarleyfa.