Morgunblaðið - 26.07.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021
Pepsi Max-deild karla
ÍA – FH ..................................................... 0:3
Leiknir R. – KA ........................................ 0:1
HK – Valur................................................ 0:3
Keflavík – Breiðablik ............................... 2:0
Víkingur R. – Stjarnan ............................ 3:2
Staðan:
Valur 14 9 3 2 25:13 30
Víkingur R. 14 8 5 1 22:12 29
Breiðablik 13 7 2 4 29:18 23
KA 13 7 2 4 19:9 23
KR 13 6 4 3 20:14 22
FH 13 5 3 5 18:17 18
Leiknir R. 14 5 2 7 15:19 17
Keflavík 13 5 1 7 17:22 16
Fylkir 13 3 5 5 17:21 14
Stjarnan 14 3 4 7 14:23 13
HK 14 2 4 8 14:26 10
ÍA 14 2 3 9 13:29 9
Lengjudeild karla
Vestri – Selfoss ......................................... 1:2
Staðan:
Fram 12 10 2 0 34:10 32
ÍBV 13 8 2 3 25:13 26
Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22
Fjölnir 13 6 2 5 17:15 20
Grindavík 13 5 5 3 25:26 20
Þór 13 5 4 4 29:22 19
Vestri 13 6 1 6 19:24 19
Grótta 13 5 2 6 25:24 17
Afturelding 12 4 4 4 27:24 16
Selfoss 13 3 3 7 21:29 12
Þróttur R. 13 2 1 10 22:33 7
Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2
2. deild karla
Leiknir F. – ÍR ......................................... 0:0
Magni – KV ............................................... 3:1
KF – Kári .................................................. 2:1
Staðan:
Þróttur V. 13 8 4 1 29:11 28
KF 13 7 2 4 25:18 23
Völsungur 13 7 2 4 29:24 23
Njarðvík 13 5 7 1 27:13 22
KV 13 6 4 3 25:19 22
Haukar 13 5 4 4 28:24 19
ÍR 13 4 5 4 23:21 17
Magni 13 4 5 4 25:26 17
Reynir S. 13 4 4 5 22:24 16
Leiknir F. 13 4 1 8 17:30 13
Kári 13 1 3 9 16:30 6
Fjarðabyggð 13 0 5 8 6:32 5
3. deild karla
Einherji – KFS ......................................... 2:1
Tindastóll – KFG...................................... 1:4
Víðir – Dalvík/Reynir............................... 1:0
Höttur/Huginn – KFS ............................. 4:1
Sindri – Augnablik ................................... 2:1
Staðan:
Höttur/Huginn 14 10 2 2 24:14 32
KFG 13 7 4 2 23:16 25
Ægir 13 6 5 2 22:13 23
Elliði 13 7 0 6 29:21 21
Augnablik 13 6 3 4 28:20 21
Sindri 14 6 3 5 26:21 21
Dalvík/Reynir 13 5 2 6 23:18 17
Víðir 13 4 4 5 19:22 16
KFS 14 4 1 9 18:34 13
ÍH 12 2 5 5 17:28 11
Tindastóll 13 2 4 7 23:29 10
Einherji 13 3 1 9 17:33 10
Pepsi Max-deild kvenna
Breiðablik – Selfoss.................................. 2:1
Þór/KA – Valur......................................... 1:3
ÍBV – Tindastóll ....................................... 2:1
Staðan:
Valur 12 9 2 1 33:14 29
Breiðablik 12 9 0 3 44:18 27
Selfoss 12 5 3 4 17:15 18
Stjarnan 11 5 1 5 13:16 16
ÍBV 12 5 1 6 20:27 16
Þróttur R. 11 4 3 4 23:23 15
Þór/KA 12 3 4 5 12:18 13
Tindastóll 12 3 2 7 9:18 11
Keflavík 11 2 3 6 10:18 9
Fylkir 11 2 3 6 10:24 9
2. deild kvenna
KM – Einherji......................................... 0:11
KH – Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir........ 0:3
Sindri – Fjölnir ......................................... 2:4
Staðan:
FHL 10 9 0 1 46:12 27
Völsungur 9 7 1 1 22:10 22
KH 9 7 0 2 30:8 21
Fram 9 7 0 2 26:11 21
Fjölnir 9 6 1 2 36:12 19
Sindri 9 4 0 5 20:23 12
Hamrarnir 9 3 2 4 21:19 11
ÍR 8 3 1 4 17:19 10
Einherji 10 2 3 5 18:19 9
Hamar 8 2 3 3 14:18 9
SR 8 1 1 6 15:20 4
Álftanes 9 1 0 8 6:19 3
KM 9 0 0 9 1:82 0
Rússland
CSKA Moskva – Ufa ................................ 1:0
- Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin
Magnússon léku ekki með CSKA vegna
meiðsla.
Þýskaland
B-deild:
St. Pauli – Holstein Kiel.......................... 3:0
- Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á
hjá Holstein Kiel á 62. mínútu.
C-deild:
Zwickau – Dortmund II .......................... 1:2
- Kolbeinn Birgir Finnsson lék allan leik-
inn með Dortmund.
50$99(/:+0$
LEIKNIR R. – KA 0:1
0:1 Ásgeir Sigurgeirsson 14.
M
Steinþór Már Auðunsson (KA)
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Mikkel Qvist (KA)
Andrés Manga Escobar (Leikni)
Sævar Atli Magnússon (Leikni)
Emil Berger (Leikni)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 6.
Áhorfendur: Um 150.
ÍA – FH 0:3
0:1 Steven Lennon 33.(v).
0:2 Steven Lennon 49. (v).
0:3 Steven Lennon 56.
MM
Steven Lennon (FH)
M
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Gunnar Nielsen (FH)
Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
Baldur Logi Guðlaugsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Oliver Heiðarsson (FH)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7.
Áhorfendur: Um 200.
VÍKINGUR R. – STJARNAN 3:2
0:1 Oliver Haurits 8.
1:1 Nikolaj Hansen 37.
2:1 Nikolaj Hansen 47.
3:1 Helgi Guðjónsson 70.
3:2 Emil Atlason 90.
MM
Atli Barkarson (Víkingi)
M
Viktor Örlygur Andrason (Víkingi)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Pablo Punyed (Víkingi)
Nikolaj Hansen (Víkingi)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Casper Sloth (Stjörnunni)
Oliver Haurits (Stjörnunni)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 6.
Áhorfendur: Um 400.
HK – VALUR 0:3
0:1 Patrick Pedersen 44.
0:2 Birkir Már Sævarsson 48.
0:3 Andri Adolphsson 66.
M
Birkir Valur Jónsson (HK)
Birnir Snær Ingason (HK)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Hannes Þór Halldórsson (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Haukur Þáll Sigurðsson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Andri Adolphsson (Val)
Birkir Heimisson (Val)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 6.
Áhorfendur: Um 400.
KEFLAVÍK – BREIÐABLIK 2:0
1:0 Joey Gibbs 43.
2:0 Frans Elvarsson 48.
MM
Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
M
Nacho Heras (Keflavík)
Magnús Þór Magnússon (Keflavík)
Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
Ástbjörn Þórðarson (Keflavík)
Joey Gibbs (Keflavík)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 8.
Áhorfendur: Um 200.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Heyja Valsmenn og Víkingar einvígi
um Íslandsmeistaratitilinn? Stimpl-
uðu Blikar sig út úr meistarabarátt-
unni með ósigrinum í Keflavík í gær-
kvöld? Eru Stjörnumenn að dragast
af alvöru niður í harða fallbaráttu eða
eru HK og ÍA á beinni leið niður?
Þetta eru helstu spurningarnar eft-
ir leiki gærdagsins þegar fimm leikir
af sex í 14. umferð úrvalsdeildar karla
fóru fram. Þeim verður svarað á
næstu vikum.
Eitt stig skilur að Val og Víking á
meðan Blikar eru nú sex og sjö stig-
um á eftir toppliðunum.
Valsmenn sigruðu HK 3:0 í Kópa-
vogi og Víkingar lögðu Stjörnuna 3:2 í
Fossvogi á meðan Blikar töpuðu
óvænt í Keflavík, reyndar í annað
sinn á þessu tímabil og með sömu
markatölu, 2:0.
Valsmenn halda eins stigs forskoti
á Víkinga en þeir stóðu af sér mjög
góðan kafla HK-inga í fyrri hálfleik
þar sem Birnir Snær Ingason átti
m.a. stangarskot.
_ Patrick Pedersen kom Val á
bragðið rétt fyrir hlé. Hann hefur
skorað í öllum þeim fimm leikjum
sem hann hefur spilað gegn HK í
deildinni og samtals sjö mörk.
„Þetta var leikur tveggja hálfleika.
HK-ingar fengu urmul af færum i
fyrri hálfleik og voru mun betri að-
ilinn. Í seinni hálfleik sást munurinn á
liðunum en Valur er að berjast á
toppi deildarinnar á meðan HK-ingar
eru að reyna bjarga sér frá falli,“
skrifaði Arnar Gauti Grettisson m.a.
um leikinn á mbl.is.
Markametið í sigtinu?
_ Nikolaj Hansen hélt uppteknum
hætti og skoraði tvö marka Víkings í
sigrinum á Stjörnunni. Hansen hefur
nú skorað 13 mörk í 14 leikjum og
með þessu áframhaldi getur hann
gert atlögu að markameti deild-
arinnar.
_ Daninn Oliver Haurits skoraði af
tæplega 60 metra færi þegar hann
kom Stjörnunni yfir gegn Víkingi
með sínu fyrsta marki fyrir Garða-
bæjarliðið.
„Lið Víkings virðist hafa þroskast
nokkuð frá síðasta tímabili. Þá urðu
menn stundum pirraðir og óþol-
inmóðir þegar hlutirnir gengu ekki
upp. Í kvöld fékk liðið hálfgert kjafts-
högg þegar Haurits skoraði glæsilegt
mark strax á 8. mínútu. Víkingar
voru ef til vill slegnir út af laginu í ein-
hvern tíma en fóru ekki á taugum.
Þegar Víkingar höfðu jafnað sig þá
náðu þeir fínum tökum á leiknum,“
skrifaði Kristján Jónsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Stórt skref Keflvíkinga
Blikar nýttu ekki umtalsverða yf-
irburði í Keflavík og m.a. fór víta-
spyrna í súginn þegar Thomas Mikk-
elsen skaut í stöng. Sindri Kristinn
Ólafsson átti drjúgan þátt í sigri
Keflvíkinga með góðri markvörslu.
_ Joey Gibbs skoraði sitt áttunda
mark í síðustu níu leikjum þegar
hann kom Keflavík yfir.
„Keflavík hefur hingað til gert vel í
að safna stigum gegn liðum í kring-
um sig, en það er stórt skref að
mæta eins sterku liði og Breiðabliki
og vinna. Segja má að sigurinn sé sá
fyrsti hjá Keflavík í sumar sem liðið
er ekki í beinni samkeppni við,“
skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
Lennon og Akranes
Steven Lennon kann manna best
við sig á Akranesi en hann skoraði
þar sína þriðju þrennu á ferlinum
þegar FH vann ÍA 3:0 í gær. Lennon
hefur nú gert fimm þrennur í deild-
inni og tvær af hinum komu gegn ÍA
á Akranesvelli árin 2017 og 2020.
_ Aðeins Hermann Gunnarsson
(9), Tryggvi Guðmundsson (7), Þór-
ólfur Beck (7) og Arnar Gunn-
laugsson (6) hafa nú gert fleiri
þrennur í deildinni en Lennon.
_ Þá skaust Lennon úr sjöunda
sætinu upp í það fimmta yfir
markahæstu menn deildarinnar frá
upphafi. Lennon hefur nú gert 96
mörk en hann fór í leiknum í gær
upp fyrir þá Hermann Gunnarsson
sem skoraði 95 mörk fyrir Val og
ÍBA og Matthías Hallgrímsson sem
skoraði 94 fyrir ÍA og Val.
„Þótt mörkin yrðu ekki fleiri fengu
FH-ingar fullt af tækifærum til að
bæta við og var sigurinn algjörlega
verðskuldaður,“ skrifaði Jóhann Ingi
Hafþórsson m.a. um leikinn á mbl.is.
FH-ingar komu sér af hættusvæði
deildarinnar og skildu ÍA eftir í verri
stöðu á botninum.
Lykilmark Ásgeirs
Ásgeir Sigurgeirsson tryggði KA
sigur á Leikni í Efra-Breiðholti, 1:0,
með laglegu marki snemma leiks í
gær. Akureyrarliðið ætlar ekki að
gefa eftir í baráttunni um Evr-
ópusæti og það hefur lifnað yfir þeim
draumi á ný eftir tvo sigurleiki í röð.
„Það er erfitt að leggja mat á
frammistöðu liðanna, en víst er að
KA-menn munu líta á það sem styrk-
leikamerki að hafa náð þremur stig-
um á erfiðum útivelli,“ skrifaði Stefán
Gunnar Sveinsson m.a. um leikinn á
mbl.is.
_ Steinþór Freyr Þorsteinsson lék
sinn 350. deildaleik á ferlinum þegar
hann kom inn á hjá KA. Þar af eru
186 á Íslandi, 155 í Noregi og 9 í Sví-
þjóð.
Einvígi Vals
og Víkings
um titilinn?
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
Fossvogur Stjörnumennirnir Magnus Anbo og Daníel Laxdal í baráttu við
Víkinginn Kristal Mána Ingason á Víkingsvellinum í gærkvöld.
- Stimpluðu Blikar sig út úr meist-
arabaráttunni með tapi í Keflavík?
_ Knattspyrnumaðurinn Kristófer
Ingi Kristinsson hefur gert samning
við danska úrvalsdeildarfélagið Sön-
derjyskE sem gildir til ársins 2024.
Hann kemur til félagsins frá Gre-
noble í Frakklandi. Kristófer fór til
Willem II í Hollandi frá Stjörnunni ár-
ið 2017 og þaðan til Grenoble tveim-
ur árum seinna, en hann lék aðeins
sex deildarleiki með franska liðinu.
Kristófer var lánaður til PSV í Hol-
landi þar sem hann lék vel með vara-
liði félagsins í B-deildinni á síðasta
tímabili.
_ Arnar Pét-
ursson úr Breiða-
bliki varð í gær Ís-
landsmeistari í
10.000 metra
hlaupi karla en
keppt var á Kópa-
vogsvelli. Hann
sigraði á 32:44,50
mínútum, Þórólfur
Ingi Þórsson úr ÍR
varð annar á 34:32,42 mínútum og
Goði Gnýr Guðjónsson úr Heklu varð
þriðji á 39:42,75 mínútum.
_ Sigþóra Brynja Guðmundsdóttir úr
UFA á Akureyri varð Íslandsmeistari í
10.000 metra hlaupi karla en hún náði
sínum besta tíma og vann á 37:38,06
mínútum. Íris Dóra Snorradóttir úr FH
varð önnur á 40:13,50 mínútum og
Fríða Rún Þórðardóttir úr ÍR varð
þriðja á 41;01,51 mínútu.
_ Knattspyrnumaðurinn Brynjólfur
Willumsson skoraði sín fyrstu mörk
fyrir norska liðið Kristiansund á laug-
ardaginn. Hann gerði sér lítið fyrir og
skoraði þrennu þegar liðið vann naum-
an sigur á D-deildarliðinu Volda, 4:2, í
framlengdum leik í fyrstu umferð
norsku bikarkeppninnar. Samúel Kári
Friðjónsson skoraði líka í umferðinni
en hann gerði eitt marka Viking í
naumum útisigri á D-deildarliðinu Sta-
al Jörpeland í gær, 3:2.
_ Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH varð
Íslandsmeistari í sjöþraut kvenna í gær
en Íslandsmótið í fjölþrautum fór fram
á Kópavogsvelli
um helgina. Þórdís
fékk 4.670 stig og
varði titilinn frá því
í fyrra en hún var
án keppni í þremur
síðustu greinunum
eftir að Kristín
Birna Ólafsdóttir
Johnson úr ÍR
þurfti að hætta í
þrautinni.
_ Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiða-
bliki varð Íslandsmeistari í tugþraut
karla á Kópavogsvelli í gær. Hann end-
urheimti því titilinn sem hann vann
þrisvar á árunum 2016-2018. Ingi Rún-
ar fékk 6.501 stig, Andri Fannar Gísla-
son úr KFA á Akureyri varð annar með
Eitt
ogannað