Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 28

Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 & "!(%'$# "$&'%#! "-+ ! !" &,'*)%(!$# Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Mackintosh sannar að kapítal- ismi er ekkert kjaftæði [...] Mackintosh, eða Mackintosh Quality Street eins og það er betur þekkt í heimalandi sínu, á sér nokk- uð merkilega sögu. Lengst af var konfekt munaðarvara. Á 19. öld og snemma á þeirri 20. greiddu fínir borgarar fúlgur fjár fyrir skrautlega innpakkað konfekt á meðan almúg- inn lét sér nægja að borða gulrætur og epli. Tækniframfarir 19. og 20. aldar gerðu það að verkum að hægt var að framleiða meiri mat á einfaldari hátt og þar með lækkaði verð á ýmis konar mat- vöru, þar með tal- ið á sykri. Seint á 19. öld sáu því Mackintosh- hjónin frá Jórvík- urskíri á Bret- landi að mögulegt var að bjóða almúganum upp á ódýrt konfekt. Sér í lagi karamellur. Og þetta sló í gegn. Árið 1936 var Bretland enn að glíma við efnahagshremmingar heimskreppunnar miklu. Fólk var komið með nóg af volæðinu og þráði gömlu góðu dagana, þegar sólin sett- ist aldrei yfir breska konungsveld- inu. Það var þá sem sonur Mackin- tosh-hjónanna, Harold, tók við rekstrinum og breytti áherslunni. Hann ákvað að búa til konfekt- kassa. Í stað þess að sérsmíða dýrar umbúðir fyrir hvern mola, eins og títt var í konfektheiminum, fjárfesti hann í vél sem pakkaði hverjum mola í einfaldan pappír og rúllaði upp. Og í staðinn fyrir að útbúa kon- fektkassann þannig að hver moli lægi vel í sínu rúmi – svona eins og venjan er hjá Nóa – þá var molunum bara hrúgað í dós, sem sparaði vinnu, efni og tól. Til að markaðs- setja vöruna spilaði Harold inn á hinn eilífa fortíðarþorsta Breta. Hann skellti frú Sweetly og yfirlið- þjálfanum Quality úr vinsælu og samnefndu leikriti á öskjuna og klæddi þau í fínasta púss Regency- tímabilsins (1811–1820), þegar Bret- land var best í heimi. Bretar bitu á agnið og Mackintosh Quality Street sló í gegn. Utan Bretlands er Mackintosh ekki vel þekkt. Nema í Noregi og á Íslandi, þar sem það þykir ómissandi jólagóðgæti. Mackintosh kom þó ekki fyrst til Íslands með raka sæ- faranum. Lengi vel var nánast óger- legt að flytja inn erlent gúmmelaði. Allavega í einhverju magni. Ríkis- stjórn Íslands amaðist lengi við inn- flutningi og setti á boð og bönn, hömlur og tolla til að sporna við hon- um. Og þar var Mackintosh engin undantekning. Því var Mackintosh lengi vel nammi sem fólk kom með heim úr siglingum. Árið sem raki sæfarinn keyrði á leigubílinn var þó Mackintosh orðið talsvert þekkt á Íslandi, þrátt fyrir tolla og hömlur. Það árið seldi frí- höfnin ferðalöngum þrjú og hálft tonn (sem jafngildir þrjú þúsund dollum) af Mackintoshi, innan landa- mæra Íslands. Síðan þá hefur mikið vatn úr Elliðaám runnið út í Atlantshafið. Ég hef reyndar ekki nákvæmar töl- ur en treysti mér samt til þess að fullyrða að nánast allir Íslendingar reki augun í Mackintosh-dós yfir há- tíðirnar og flestir sem nammi borða fái sér í það minnsta einn mola. Mackintosh-dollan hefur breyst talsvert í gegnum árin. Bæði hefur hönnunin breyst og einnig hefur ómerkilegri molum verið skipt út fyrir nýja mola. Árið 2020 var til að mynda toffee deluxe („brúna mol- anum“) skipt út fyrir nýjan mola, chocolate caramel brownie („blá- græni molinn“). Í dag er hver dolla troðin af 12 tegundum mola og magn hvers ræðst af slembivali með ójafna líkindadreifingu. Meira er framleitt af vinsælum molum en molarnir lenda í dollunum af handahófi. Sú staðreynd að fólk er með mis- munandi nammismekk gerir það að verkum að kaup á Mackintosh-dollu er ekkert ósvipað ferð í Gullnámuna. Ef þú ert heppinn færð þú fullkomna dollu, í fullkomnum hlutföllum, með enga mola sem þú hatar. Ef þú ert óheppinn færð þú bara vondu mol- ana. Þetta hefur þau áhrif að áhættu- sæknir nammiunnendur eru líklegri til að kaupa sér dollu á meðan hinir áhættufælnu láta það frekar eiga sig, jafnvel þó hinir áhættufælnu séu alveg jafn miklir Mackintosh- aðdáendur og hinir áhættusæknu. Þetta leiðir til þess að of mikið af molum hjá áhættusækna hópnum endar í ruslinu og áhættufælni hóp- urinn borðar minna Mackintosh en hann kysi. Varan er til. Hægt er að kaupa hana. En vegna óvissunnar fer of mikið til spillis og minna Mackintosh endar í maga lands- manna en best verður á kosið. Ef þetta er ekki markaðsbrestur, þá kallaði Steingrímur J., forseti Alþingis, mig ekki „góðan jóla- hagfræðing“ í Vikunni með Gísla Marteini. Þennan markaðsbrest hef ég nú ákveðið að nefna Mackintosh- vandann. Ráðagóðir Íslendingar reyna að leysa vandann með því að bjóða frændfólki sínu vondu molana í jóla- boðinu og vonast til að einhver ryk- sugi þá upp. Þetta er þó greinilega ekki nóg og nú hefur verið stofnuð grúppa á Facebook sem kallast Mackintosh-nammi-skiptimarkaður. Eins og nafnið gefur til kynna er það eftirmarkaður sem gengur út á að býtta á Mackintosh-molum – rétt eins og við gerðum með körfubolta- spjöld í minni barnæsku. Fyrsta skrefið í lausn Mackin- tosh-vandans hefur því verið stigið. Eftirmarkaður, þar sem fólk getur keypt og selt Mackintosh-mola, ætti að draga úr sóuninni og auka vel- megun Mackintosh-neytenda. Alla- vega samkvæmt kenningum hag- fræðinnar. Einn hængur er þó á. Fólki á þessum eftirmarkaði gengur oft illa að komast að niðurstöðu um það hvað er sanngjarnt verð. Hversu marga rauða á að gefa fyrir bláa? Hversu marga karamellupeninga þarf að greiða fyrir tvo þríhyrninga? Og hversu marga bleika þarf að greiða fyrir karamelluvindling? Á máli hagfræðinnar má segja að aðferðin sem notuð er við að fylla dolluna sé óskilvirk. Áhættusæknir Mackintosh-unnendur eiga það til að „tapa“ og fá lélega dollu og áhættu- fælnir Mackintosh unnendur fá enga dollu, af því þeir vilja ekki taka séns- inn. Erlendis hefur Nestlé, sem tekið hefur við framleiðslunni á Quality Street, nú þegar leyst vandann. Í Bretlandi er nefnilega hægt að kaupa sérsniðnar dollur. Þannig get- ur fólk valið molana og fengið full- komna dollu og engin sóun á sér stað. Sérsniðin dolla er þó talsvert dýr. 1,2 kíló kosta 2700 krónur á meðan sama magn handahófsdollu kostar 1690 krónur í John Lewis. Því miður er ekki hægt að fá sér- sniðna dollu á Íslandi og hafa frum- kvöðlar því sett upp áðurnefndan eftirmarkað á Facebook. Sá mark- aður gæti þó virkað betur. Allt of oft sé ég að fólk býður vissa mola og vonast til þess að fá jafn marga mola af annarri tegund í skiptum. Og oft reynir fólk að fá of mikið fyrir mol- ana sína og engin tekur tilboðinu og engin viðskipti eiga sér stað. Því eru viðskipti minni á markaðnum en best væri á kosið. Þegar ég sá að enginn var tilbúinn að safna gögnum eða reyna að finna út úr því hvað væru sanngjörn mola- verð ákvað ég að ég yrði að gera það. Fyrir komandi kynslóðir. Ég var Keanu Reeves. Ég var Luke Sky- walker. Ég var hinn útvaldi. Ég auglýsti eftir fólki til að taka þátt í tilraun. 12 manns skráðu sig og ég setti upp þrjá fjarfundi. Svo úthlutaði ég fólki rafrænni Mackin- tosh dollu, hver innihélt 78 mola í 11 mismunandi tegundum. Dollurnar voru allar mismunandi, rétt eins og í raunheiminum, og var fólki úthlutað dollur af handahófi. Næst bauð ég þátttakendum að eiga í viðskiptum. Hver og einn fékk að bjóða upp eins marga mola og hann vildi losna við. Hinir þátttak- endurnir gátu svo boðið í og samið um greiðslu fyrir molana, sem að sjálfsögðu var greidd í molum af annarri tegund. Meginmarkmið tilraunarinnar var að finna markaðsverð mismunandi tegunda. Þó var það ekki eina mark- mið rannsóknarinnar. Ég safnaði meiri gögnum með það að markmiði að varpa ljósi á hagfræðina á bak við neytendahlið Mackintosh-markaðar- ins. Það fyrsta sem ég tók eftir þegar markaðurinn opnaði var að vissir molar voru í hugum sumra einskis virði. Flestir vildu losa sig við sem mest af vissum tegundum, jafnvel þótt mjög lítið fengist í skiptum fyrir þær. Þar sem Mackintosh-dolla inni- heldur 12 mismunandi tegundir, oft mjög ólíkar, kemur þetta ekkert á óvart. Fólk sem ekki borðar appels- ínugula mola er betur sett með einn fjólubláan en tíu appelsínugula. Þar fyrir utan vildu þátttakendur ekki heldur allt of einsleitar dollur, fyrir utan Arnór sem vildi alls enga hnetumola. Það kom á óvart þangað til hann upplýsti hina þátttakend- urna um að hann væri með hnetu- ofnæmi. Fyrir míkró-hagfræðing eins og mig var þetta mikill léttir. Ein af grunnforsendum neytendakenninga hagfræðinga er að almennt vilji fólk blandaða neyslukörfu í stað eins- leitrar. Fólk vill almennt ekki borða bara kjúkling, heldur kjúkling, kart- öflur, pylsur og hnetusteikur. Og meira segja þegar kemur að nammi viljum við ekki bara gyllta mola. Við viljum meira af þeim en líka smá af karamellu- og hnetumolum. Þegar Berglind Festival spurði mig í þættinum Vikan með Gísla Marteini hvort jólin væru bara „kap- ítalískt kjaftæði“ benti ég henni á að kapítalismi væri ekkert bull. Þótt hver virðist hafa sína skilgreiningu og túlkun á kapítalisma, þá er hann í grunninn bara kerfi þar sem ein- staklingar mega eiga dót, framleiða dót, og selja og kaupa dót. [...] (Skýringarmynd er sleppt.) Lausn á litlum markaðsbresti Bókarkafli Í bókinni Eikonomics – hagfræði á mannamáli fjallar Eiríkur Ásþór Ragnarsson um ýmis viðfangsefni hagfræð- inga sem jafnframt snerta okkur hin með margvíslegum hætti. Morgunblaðið/Unnur Karen Fórnarkostnaður Eiríkur Ásþór Ragnarsson fjallar um hagfræði hins daglega lífs á nýstárlegan hátt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.